Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1994, Blaðsíða 6
22
FÖSTUDAGUR 25. MARS 1994
Stjömubíó:
Forsýning á Philadelphia
Stjömubíó forsýnir stórmyndina
Philadelphia á föstudagskvöld kl.
21.00. Óskarsverölaunahafinn Tom
Hanks leikur aöalhlutverkið en hann
fékk einmitt óskarinn sem besti karl-
leikari í aðalhlutverki fyrir leik sinn
í Philadelphia. Stórleikarinn Denzel
Washington fer einnig með mjög
stórt hlutverk. Myndin hefur hlotiö
einróma lof gagnrýnenda í Banda-
ríkjunum og Evrópu og aðsókn hefur
verið mjög góð. Þykir myndin lýsa
lífi eyðnismitaðra á raunsæjan hátt.
Vinsæll lögfræðingur, Andrew
Beckett, sem Tom Hanks leikur,
veröur fyrir því áfalli að vera rekinn
frá lögfræðifyrirtæki því sem hann
vinnur hjá þegar í ljós kemur að
hann er smitaður af eyöni. Beckett
ræður sér mjög færan lögfræðing,
Joe Miller, sem Denzel Washington
leikur, sem á að hjálpa honum að fá
vinnuna aftur.
Leikstjórinn, Jonathan Demme,
segir kvikmyndina Philadelphia
fjalla um menn, konur, eyðni, lög-
fræöinga, vináttu, barneignir, um
það að vera samkynhneigður, gagn-
kynhneigður, um ameríska réttar-
kerfið, hjartasorgir, hlátur eða með
öðrum orðum, hún íjallar um Amer-
íku nútímans.
íslenskir bíógestir eru vanari því
að sjá Tom Hanks í gamansömum
hlutverkum en fá nú að sjá hann
spreyta sig á hlutverki með aivarleg-'
Tom Hanks og Denzel Washington i hlutverkum sínum í Philadelphia.
um undirtóni. Hann hefur leikið í
myndum eins og Sleepless in Seattle,
A League of Their Own, Splash, Big,
Nothing in Common og Punchline
svo eitthvað sé nefnt. Bíógestir geta
meðal annars séð Denzel Washing-
ton leika á móti Juliu Roberts í kvik-
myndinni Pelikanaskjalið sem sýnd
er í Sam-bíóunum um þessar mundir.
-em
Kvikmyndir
BÍÓBORGIN
Simi 11384
Pelikanaskjalið
Vel heppnaður spennutryllir um víðtækt sam-
særi í Washington. Stjörnuleikarar standa vel
fyrir sínu. -HK
Hús andanna ★★★!/!
Bille August hefur tekist að gera áhrifamikla
og vandaða kvikmynd, mynd sem hrærir við
tilfinningum og læturengan ósnortinn. -HK
BÍÓHÖLLIIM
Sími 78900
Beethoven 2 ★ 'A
Það stendur upp úr annars slakri gamanmynd
eru hinir skemmtilegu St. Bernhardshundar
sem standa mennskum leikurum mun framar
í túlkun. Einnig sýnd í Háskólabiói. -HK
Á dauðaslóð *
Karatesnillingurinn Steven Seagal sparkar og
sprengir I nafni náttúruverndar í slappri frum-
raun sinni sem leikstjóri. -GB
Aladdin ★★★
Aladdin er einstaklega vel heppnuð teikni-
mynd. islensku leikararnir, sem tala inn á
myndina með Ladda í broddi fylkingar, ná
góðumtökumápersónunum. -HK
SAGA-BÍÓ
Sími 78900
Mrs. Doubtfire ★★★
Robin Williams er frábær. Hann sýnir allar
sinar bestu hliðar sem gamanleikari í tvöföldu
hlutverki. Góð skemmtun fyrir alla fjölskyld-
una. -HK
HÁSKÓLABÍÓ
Simi 22140
Listi Schindlers ***
Spielberg tvinnar saman helförina og starf-
semi þýsks striðsmangara í Póllandi með
misjöfnum árangri en veitir óneitanlega eina
bestu innsýn til þessa i kafla mannkynssög-
unnarsemmáekkigleymast. -GE
I nafni föðurins ★★★'/J
Áhrifamikil og sterk kvikmynd frá írska leik-
stjóranum Jim Sheridan. Daniel Day Lewis
og Pete Postlethwaite eru mjög góðir í hlut-
verkum feðga sem verða fórnarlömb haturs.
-HK
Julia Roberts og Denzel Washington i hlutverkum sínum i Pelikanaskjalinu.
Sambíóin:
Pelikanaskjalið
Sambíóin hafa tekið til sýningar
spennuþriller Alans J. Pakula, Pelik-
anaskjalið sem skartar þeim Juliu
Roberts og Denzel Washington í aðal-
hlutverkunum.
Laganeminn Darby Shaw, Julia
Roberts, flækist óvart í morðmál og
verður vitni að morðum á tveimur
hæstaréttardómurum á stuttum
tíma. Derby tekst að ráða gátuna og
komast að því hverjir morðingjarnir
eru en á sama tíma er hún ekki leng-
ur hult. Hringurinn utan um hana
þrengist smátt og smátt.
Derby endar einsömul á hótelher-
bergi í Washington þar sem hún
reynir aö fela sig fyrir morðingjan-
um. Hún setur allt sitt traust á
ókunnan rannsóknarblaðamann,
Gray Grantham, Denzel Washington,
sem elskhugi hennar, Callahan, hef-
ur mikið álit á. Darby trúir Grant-
ham fyrir sögu sinni og segir honum
nákvæmlega frá því sem hún skrifaði
í „Pelíkanaskjalinu" svokallaða þar
sem hún fjallaði um morðin á hæsta-
réttardómurunum og um manninn
sem stendur á bak við morðin tvö. í
skjalinu kemur einnig fram hvernig
uppljóstrun málsins leiddi inn í
innsta hring ríkisstjórnarinnar.
Ef Grantham tekst að birta söguna
áður en morðingjarnir hafa uppi á
Darby eiga þau bæði einhverja von
um aö lifa af. Myndin er gerð eftir
metsölubók Johns Grisham sem
einnig skrifaði The Firm.
-em
Örlagahelgi ☆☆*
Hin endanlega kvennréttindafantasía, þar
sem ómögulegur karlpeningurinn fær loks
að kenna á því. Óútreiknanleg og þræl-
skemmtileg. -GE
Leið Carlitos ★★'A
Kröftug mynd frá Brian de Palma um fyrrum
glæpamann sem gengur erfiðlega að koma
undir sig fótunum á heiðarlegan hátt. Stór-
leikur hjá Al Pacino. -HK
Vanrækt vor ★★'/:
Kennarar á móti nemendum í dönskum efri-
stéttarskóla ca 1950. Myndin leggur áherslu
á léttari hliðar kaldhæðninnar. Kennaratýp-
urnarerusérlegavelheppnaðar. -GE
LAUGARÁSBÍÓ
Sími 32075
Leiftursýn ★ ’/i
Þokkaleg spennumynd um blinda konu sem
fær hálfa sjón og baráttu hennar við að sann-
færa lögguna um að hún geti borið kennsl
á morðingja.
-GB
Dómsdagur ★★
Spennandi tryllir um unga menn sem villast
af leið i borgarfrumskóginum. Kemur á óvart.
-GB
Banvæn móðir *'A
Heldur billegur sálfræðitryllir um snarklikkaða
konu sem á sér þá ósk heitasta að fjölskyldan
sameinistáný. -GB
REGNBOGINN
Simi 19000
Háskólabíó:
Iifmitt
Háskólabíó hefur tekið til sýninga
dramatísku kvikmyndina My life eða
Líf mitt. Bob og Gail Jones, Michael
Keaton og Nicole Kidman, eiga von
á sínu fyrsta bami þegar í ljós kemur
að Bob er með krabbamein. Ekki er
víst að hann lifi það að sjá barnið. Á
meðan Bob er að berjast við sjúk-
dóminn ákveður hann aö búa til
myndband af lífi sínu sem gjöf til
bamsins. Meðan á gerð myndbands-
ins stendur kemst Bob að því að hann
hefur engan skilning á því hver hann
er eða um hvað líf hans hefur snúist
fra til þessa.
Bob fer í ferðalag sjálfskoðunar og
hann finnur huggun og hjálp í að
grafast fyrir um sitt fyrra líf.
Leikstjóri myndarinnar, Bruce
Joel Rubin, stígur hér sín fyrstu
skref í leikstjórn en hann skrifaði
handritiðsjálfur. -em
Michael Keaton og Nicole Kidman í
hádramatískri kvikmynd, Líf mitt.
Regnboginn:
Germinal **!4
Niðurdrepandi stórmynd um eymd, volæði
og verkfóll kolanámufólks en góður efniviður
skáldsögu Emile Zola og frábær leikhópur
heldur henni uppi. -GE
Far vel, frilla mín **!/2
Stórglæsileg mynd um róstusamt lif tveggja
óperusöngvara sem nær samt aldrei flugi
vegna fjarlægðar við persónurnar. -G E
Arizona Dream *‘/2
Evrópskur leikstjóri varpar Ijósi á tálsýn drau-
malandsins. Góðir punktar inn á milli en
heildin ber þess merki að hann hafi látið of
mikið eftir eigin duttlungum. -GE
Kryddlegin hjörtu ★★★
Heillandi frásagnarmáti i bragðmikilli og
dramatískri mynd þar sem ýkjukennd sagna-
hefð nýtur sín vel. Athyglisverð og vel leikin
kvikmynd i háum gæðaflokki. -HK
Píanó ★★★ /i
Pianó er einstaklega vel heppnuð kvikmynd,
falleg, heillandi og frumleg. Þrátt fyrir að rauði
þráðurinn sé erótik með öllum sinum öfgum
er myndin aldrei yfirþyrmandi dramatísk. -HK
STJÖRNUBÍÓ
Simi 16500
Dreggjar dagsins ★★★★
Anthorty Hopkins er maður dagsins i þessari
úrvalsmynd um þjóninn Gtevens sem missir
af lífsins strætó en vill bæta fyrir mistök sin.
-GB
Fleiri pottormar ★VI
Hugmyndin var góð i fyrstu myndinni en er
orðin útþynnt og að láta hunda hugsa eins
ogmanneskjurerfullmikiðafþvígóða. -HK
Morögáta á Manhattan ★★★
Léttur og leikandi Woody Allen og félagar í
þráhyggjuleit að meintum morðingja.
-GB
i kjölfar morðingja ★★
Bruce Willis í banastuði sem fljótalógga i
Pittsburgh í spennandi eltingaleik við band-
óðan fjöldamorðingja. Hasar i góðu meðal-
lagi. -GB
Lævís leikur
í dag frumsýna Regnboginn og
Borgarbíó á Akureyri samtímis
spennumyndina Malice sem hlotið
hefur nafnið Lævís leikur í íslenskri
þýðingu. Malice var vel tekið í
Bandaríkjunum þar sem myndin fór
beint á toppinn við útgáfu fyrr í vet-
ur. Sömu sögu var að segja frá heims-
borginni London enda er atburðarás
myndarinnar afar hröö og hörku-
spennandi með afar óvæntri fram-
vindu og fléttan kemur sannarlega á
óvart.
í örstuttu máli fjallar Lævís leikur
um ástir, svik og launráð þar sem við
sögu kemur ungt par, Tracy og Andy,
sem Nicole Kidman og Bill Pullman
leika, og afdrifarík kynni þeirra af
skurðlækninum Jed (Alec Baldwin).
Leikstjóri Malice er Harold Becker
sem einnig leikstýröi spennumynd-
inni Sea of Love með A1 Pacino í aðal-
hlutverki. Framleiðendur eru auk
Beckers þau Rachel Pfeffer (A Few
Good Men) og Charles Mulvehill og
handrit myndarinnar skrifuðu Aaron
Sorkin ( A Few Good Men) og Scott
Frank (Dead again). -em
Nicole Kidman leikur eitt aðalhlutverkanna i Lævísum leik.
X