Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.1994, Qupperneq 4
44
MIÐVIKUDAGUR 30. MARS 1994
l@nlist_______________________________________________________________________dv
Safnplötuútgáfa:
Ringulreifað
Löngum hafa hljómplötuútgef-
endur gefið út safnplötur. Það hefúr
verið gert í ýmsum tilgangi, jafnt til
að kynna nýja íslenska tónlistar-
menn sem og erlenda og svo
auðvitað til þess að halda lífi í þeim
rótgrónu. Þetta ár mun ekki verða
neitt öðruvísi hvað þessi mál varðar
og eru safnplötumar strax famar aö
streyma inn á markaðinn.
Hljómplötuútgáfan Spor hefur
verið dugleg hvað þessi mál snertir
og er nú að gefa út aðra og þriðju
safnplötu sína á þessu ári. Plötumar
heita Algjört Kúl og Ringulreif en
reif virðist vera vaxandi tónlist-
arstefna á íslandi þar sem þetta er
önnur platan í þeim geira á þessu
ári.
íslenskt
Á plötunni Ringulreif er að fmna
leifar tríósins Todmobile sitt í hvom
lagi. Andrea og Þorvaldur hafa
stofnaö saman hljómsveitina
Úr kvikmynd
- In the Name of the Father:
★ ★ ★
Mikið samræmi er í tónlistinni á
plötunni og hún er í góðum tengslum við
efni myndarinnar. Úrvalsvinna hjá
úrvalsfólki. -HK
Garth Brooks- In Pieces:
★ ★ ★
In Pieces samanstendur af mörgum
smáum bútum og brotum af ýmsum
tónlistarstefhum sem mynda sterka
heild^infaldlega góða plötu. -SþS
Úr kvikmynd - Philadelphia:
★ ★ ★
Philadelphia er sérstaklega góð og
heilsteypt plata af kvikmyndatónlist-
arplötu að vera og nú er bara að bíða og
sjá hvort myndin er eins góö og platan.
-ÁT
Blind Melon - Blind Melon:
★ ★ ★ ★
Hljómsveitin spilar ögrandi melódíur
og rödd Shannon Hoon vekur verö-
skuldaða eftirtekt, skerandi en samt
melódisk og með afbrigðum kröftug.
-GBG
Smokin Suckaz Wit Logic
- Playin' Foolz:
★ ★ ★
Góðir rapptextar, fullir af ádeilu með
föiik- og rokkáhrifum sem hafa góð áhrif
á heildarmynd plötunnar. -GBG
Atomic Swing
- A Car Crash into the Blue:
★ ★ ★
Plata Atomic Swing er eitt besta
byijendaverk ársins 1993, einkennandi
við plötuna eru óhefðbundnar hijóma-
samsetningar og áheyrilegar laglínur.
-GBG
Freaky Fukin' Weirdoz
- Mao Mak Ma:
★ ★ ★
Kraftmikið Funkreggae í anda MTV-
kynslóðarinnar með fantagóðum spilur-
um. Platan er frábær heild. -GBG
Crowded House
-Together Alone:
★ ★ ★
Þeir sem hafa ánægju af vandaðri
melódískri popptónlist ættu ekki að láta
þessa plötu fram hjá sér fara. -SþS
Hijómsveitin Suede er ein fjölmargra á safnplötunni Algjört Dúettinn 24/7 sækir nafn sitt i 24 klukkustundir dagsins og
Tweety og eru hér með sitt fyrsta lag
undir því nafni sem er á ensku og
heitir So Cool. Þetta eru þó engin
nýmæh þar sem hljómsveitin Bong,
Móeiður og Eyþór, hefur leikið
þennan leik áður og er nú með fjórða
lag sitt á þessari plötu og ber það
nafnið Furious.
Þetta eru einu íslensku sveitimar
á plötunni. íslenskuleysi Ringul-
sjö daga vikunnar.
plötunni Ringulreif.
reifsins er hins vegar bætt upp á
plötunni Algjört Kúl með sjö
islenskum lögum. Algengasta nafn
plötunnar virðist vera Eiður Am-
arson bassaleikari en hann spilar í
fjómm af þessum sjö lögum sem
verður að teljast nokkuð gott. Nýjar
sveitir á plötunni eru hljóm-
sveitimar Vitrun, Blackout og
Fantasía (sem átti athyglisverðasta
Nýjustu smáskífu hans er að finna á
lagið í Landslagskeppninni ekki alls
fyrir löngu).
Valgerður Guðnadóttir er einnig
þama með lagið I Don’t Know how
to Love Him úr uppsetningu Versló
á Jesus Christ Superstar og Selma
Bjömsdóttir kemur einnig inn með
nýtt lag sem ber nafnið Kikn’ Af
Kikki (hvað svo sem það þýðir).
Richard Scobie er einnig með lag
pEftugagnrýni
Ýmsir- Eva Luna
★★★
Hæfirvið-
fangsefninu
Egill Ólafsson á aö baki langan og
farsælan feril sem tónlistarmaður,
bæði sem söngvari og tónskáld. Hann
var ein aðaldriffjöðurin í þremur
hljómsveitum, Stuðmönnum,
Spilverki þjóðanna og Þursa-
flokknum.
Á þeim vettvangi sýndi hann oft á
tíðum hæfileika á breiðum
grundvelh. Til að mynda er varla til
ólíkari ferill hjá Stuðmönnum, þar
sem léttleikinn og húmorinn var
ávallt í fyrirrúmi, og Þursaflokknum
þar sem tekist var á við ramm-
íslenskt efni sem tengt var nútím-
anum. Þessi tónlistarlega breidd
kemur einnig fram á tveimur góðum
plötum sem hann hefúr gert undir
eigin nafrii.
Það ætti því engum að koma á
óvart sem fýlgst hefúr með Agli að
hann skuli færa út kvíamar og nýta
krafta sína í þágu leikhússins,
sérstaklega þegar haft er í huga að
meðfram tónlistinni hefúr hann
starfað sem leikari með góðum
árangri.
Tónlist og söngtextar Egils við
leikgerð hinnar þekktu skáldsögu
Isabel Allende, Evu Lunu, er eins og
við mátti búast fúllskapað og vel
heppnað verk. Lögin í sýningunni,
sém byggjast að mestu á nokkrum
melódískum stefjum, eru grípandi og
flutningur í flestum tilfellum sérlega
góður, en af flutningsmönnum er á
engan hallað þótt Edda Heiðrún
Backman sé tekin út úr fyrir frá-
bæran flutning.
Eins og gefúr að skilja eru suöur-
amerísk áhrif mikil í tónlistinni en
þó má einnig gréina áhrif frá
þekktum söngleikjatónskáldum og má
þar nefna Kurt Weil. Sú heiilandi
heildarstemning sem er yflr þeim
sextán lögum sem eru á geisla-
plötunni er ekki síst að þakka
Ríkaröi Emi Pálssyni sem útsetti
lögin. Eftir hans handbragð verða
þau að sjálfstæðu leikhúsi sem veitir
mikla ánægju.
Hilmar Karlsson
Therapy? - Troublegum
★★★★
Besta rokk
síðan...?
Árið 1991 kom út plata. Platan
hét/heitir Nevermind og var ástæða
þess að hijómsveitin Nirvana skaust
upp á stjömuhimininn. Nú, áriö 1994,
hefUr ný hljómsveit tekið völdin.
Rokktríóið Therapy? hefur nú gefið
út aðra plötu sína sem ber nafnið
Troublegum. Andrew James Caims
(gítar), Fyfe Ewing (trommur og
Michael McKeagan (bassi) kippa
hreinlega undan manni fótunum með
gífurlega kraftmiklu rokki og heiftar-
legum textum sem þó bera með sér
töluverða merkingu.
Fyrsta lag plötunnar, Knives, er
óður til sjálfsmorðshugleiðinganna,
hvaðan sem þær koma, en þessu er
svo snúið til betri vegar í laginu
Hellbelly þar sem textinn gengur út á
að þú sért „Jesús án þjáninganna..
.“. Einfaldleiki heitanna, innsæi
textanna og þyngd spilamennskunnar
mynda einstaka heild. En jafnframt
því að vera góö getur platan verið
hálfyffrþyrmandi og þess valdandi aö
erfitt getur verið að halda hana út í
heilu lagi. Platan venst hins vegar
ekki einungis heldur gagntekur hlust-
andann sem ekki veit hverra veðra er
von.
Nafliið Therapy? ber með sér
ákveðna ímynd sem hljómsveitin
stendur óafvitað undir í tónsmíðum
og textagerö. Án þess að gera lítið úr
öðrum lögum plötunnar verð ég að
gefa lögunum Knives, Trigger,
Nowhere, Screamager og Hellbelly
hæstu einkunn. Ætii platan
Troublegum sé ekki stærsta sprengja
rokkheimsins frá árinu 1991.
Guðjón Bergmann
SaintEtienne-TlgerBay
★★★
Magnaður
seiður
Breska lffjómsveitin Saint Etienne
átti eina af betri plötum síöasta árs
að mati margra erlendra sem inn-
lendra gagnrýnenda. Og þegar svo vel
hefúr tU tekist er næstu plötu ávailt
beðið með nokkurri eftirvæntingu.
Og nú er hún komin og það er ekki
á plötunni og ber það íslenskt nafh,
Gaukurinn, en það lag kemur aðeins
á óvart miðað við fyrri afrek
söngvarans. Síðast en ekki síst er
hljómsveitin Þúsund andlit með
nýtt lag sem ber nafnið Fullkominn.
Erlent
Á Ringulreifinu er að finna 14 lög
með erlendum flytjendum. Þetta eru
sveitirnar MAXX, D.J. MIKO,
STAXX, 24/7, D.J.BOBO, 2 Brothers
on the Floor, Caballero, Doop,
Double You, D.J. Fusion, Mount
Rushmore, Beverly, Urban Jungle
og 2 Unlimited Megamix.
Safiiplatan Algjört Kúl státar af
örlítið meiri fjölbreytni í lagavali
erlendis frá. Þar má fmna hljóm-
sveitir eins og Suede, Saint Etienne,
Boo Radleys, Manic Street
Preachers, Depeche Mode, Rozalla
og fleiri. Það sem kemur mest á
óvart er hversu ný lög eru á
plötunum og er það hljómplötu-
útgáfunni til hróss. Safnplötumar
Algjört Kúl og Ringulreif era þó
langt frá því að vera síðustu
safhplötur ársins og látum við því
hér staðar numið í upptalning-
unni.
GBG
hægt að segja annað en að Saint
Etienne standist álagið að fullu.
Tiger Bay er kannski ekki fyllilega
jafhingi So Tough en er engu að síður
afbragðsgóð poppplata. Hún krefst
töluverðrar þohnmæði til að upp
ljúkist með öllu sá margbrotni
fjölbreytileiki sem í tónlistinni býr.
Þetta er ekki einföld né léttmelt
tónlist, nema kannski að hluta til, og
ef það hjálpar einhveijum að skilja
má segja að sumpart minnir tónlist
Saint Etienne á það sem Todmobile
var að gera undir það síðasta.
Tónlistin er sem sagt undir þó
nokkrum dansáhrifúm, takturinn
þéttur og tölvuvæddur að miklu leyti,
en ofan á sigla melódískar fléttur og
ekki ósvipað og Todmobile er Saint
Etienne undir mjög svo sterkum
klassískum áhriflim. Inn á milli er
svo skotið afskaplega fallegum
einfoldum ballöðum. Margbreytileiki
tónhstarinnar er þó margfalt meiri en
hægt er að lýsa á prenti. Þannig má
nefha að sum lögin minna mig
sterklega á kvikmyndatónhst a la
víðáttumiklar kúrekamyndir þar sem
myndavélin skimar yfir sléttuna sem
teygir sig svo langt sem augað eygir.
Suðræn áhrif koma líka fyrir og
margt fleira.
Tiger Bay er eiginlega tónlistarlegt
samsafh af öhum mögulegum stílum
og stefnum þar sem höfúndunum
tekst að sameina aht inni í einum
ramma án þess að úr verði kaos.
Sigurður Þór Salvarsson