Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1994, Side 3

Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1994, Side 3
FIMMTUDAGUR 7. APRIL 1994 29 DV Mannaskipti í Pláhnetunni og ný ptata í smíðum: tónligt: *»•?•** Markvissari og rokk- aðri hljómsveit en áður Hljómsveitin Pláhnetan er í óðaönn að taka upp plötu um þessar mundir í nýju hljóðveri Félags íslenskra hljómlistarmanna. Það er nýkomið í gagnið og Pláhnetan fær heiðurinn af að vígja það. Og milli þess sem tekið er upp spilar hljóm- sveitin víða um land. Síðustu vik- urnar er hún búin að koma við á Akureyri, ísafirði, Vestmannaeyjum og Selfossi. „Maður nær því varla að taka upp úr töskunni. Hendir bara því óhreina í þvottavélina og er s vo rokinn af stað aftur," segir nýjasti liðsmaður Plá- hnetunnar, Jakob Magnússon bassa- leikari. Hann tók við starfi Friðriks Sturlusonar þegar hann hélt utan til náms. „Við höfum haft nóg að gera í vetur,“ bætir Sigurður Gröndal gítarleikari við. „Þótt hljómsveit- imar séu ekki jafh áberandi á þess- um árstíma og á sumrin þýðir það samt ekki að þær séu í fríl Við höfum spilað um flestar helgar í vetur, á skólaböllum og almennum böllum." Pláhnetan tekur sér samt frí frá dansleikjahaldi um skeið í apríl vegna plötuupptökunnar. Eftir er að syngja öll lög nýju plötunnar og síðan þarf Stefán Hilmarsson söngvari að fara til Dyflinnar á írlandi í lok mánaðarins vegna Evrópusöngva- keppninnar. Hann er höfúndur text- ans við Nætur, Júróvisjónlagsins okkar í ár. ' - • ■■' ■//// i&m m íferfP . * I Sr'" - ,i /• Hljómsveitin Pláhnetan hefur verið á ferðinni í allan vetur og er fullbókuð fram á haust. DV-mynd ÞÖK Meira rokk „Við ætluðum að hafa tíu lög á plötunni en sennilega verða þau ellefu eða tólf,“ segir Sigurður. „Það viKunnar er éilltaf erfitt að skera niður svo að við höfum þau sennilega öll með. Menn eru oft að tala um að þeir ætli nú að vera rokkaðri en á næstu plötu á undan og svo verður ekkert úr neinu. Lögin hljóma að minnsta kosti mun rokkaðri en á plötunni sem kom út í fyrravor. Gítarinn er meira ráðandi en áður og við höfúm ekkert verið að nostra viö lögin. Annars er Jakob ágætur að dæma um muninn á nýju plötunni og þeirri fyrri því að hann er nýkominn í hópinn." Jakob samsinnir því að nýju Pláhnetulögin séu rokkaðri en þau gömlu. „Þau eru kraftmeiri og beinskeyttari en á gömlu plötunni. Enda er hljómsveitin búin að spila sig saman núna,“ segir hann. „Þegar Pláhnetan vann að fyrri plötunni var hún nýstofnuð og hún er mun samspilaðri núna.“ „Við kynntumst 1 stúdíóinu," segir Sigurður. „Við Golli þekktum Stefán og Friðrik og við vissum ekkert hvaða viðtökur hljómsveitin myndi fá. Þess vegna tókum við enga áhættu. Nú þekkjum við hver annan og þess vegna er mun þægilegra að vinna við nýju plötuna en þá fyrri.“ Stuttur fyrirvari Jakob Magnússon var búinn að leika með hljómsveitinni SSSól frá stofnun, fyrir sjö árum, þegar hann hætti skyndilega um síðustu áramót. Hann segist hafa verið orðinn leiður og langað í tilbreytingu. Eitthvert kvöldið spurðu Pláhetumenn hann í gríni hvort hann væri nokkuð á lausu því að þeir væru að leita að bassaleikara í stað Friðriks. Þremur dögum síðar sagði Jakob upp í Sólinni og var samstundis ráðinn í Pláhnetuna. „Ég hætti ekki til að leita mér að nýjum verkefnum eins og ég las í einhveiju blaði,“ segir Jakob sposk- ur á svip. „Ég var einfaldlega orðinn þreyttur á að spila sömu lögin aftur og aftur og ég var heldur ekki sáttur við þá stefhu sem Sólin átti að feta sig í á næstu plötu sinni. - Heitir það ekki tónlistarlegur ágreiningur? - Aðalatriðið í mínum huga var að fara að gera eitthvað nýtt og þess vegna skipti ég um hljómsveit." Jakob segist kunna vel við sig með nýjum samstarfsmönnum. „Andinn í Sólinni var alls ekki slæmur en núna softiar maður brosandi á kvöld- in og vaknar brosandi á morgnana,“ segir hann. „Það er mikið grínað í Pláhnetunni." „Við erum saman í hóp í fjóra til fmun daga í einu og við verðum að halda móralnum léttum," segir Sigurður Gröndal. „Við látum allt flakka hver við annan og segjum það sem okkur finnst. Enginn þarf að setja sig í neinar stellingar og þykjast vera eitthvað annað en hann er. í sumum hljómsveitum sem ég lék áður með þurfti ég sífellt að falla inn i einhverja fyrirfram ákveðna mynd. í Pláhetunni komum við bara til dyranna eins og við erum klæddir. Ekkert er ákveðið mörg ár fram í tímann. Núna ætlum við til dæmis bara að gera plötu og spila til hausts. Þá skoðum við málin. Við erum í þessari vinnu til að hafa gaman af henni og ég held að þannig viðhorf skili sér út í salinn til fólksins sem er komið til að skemmta sér með okkur." -ÁT Tónlistargetraun DV og Japis Tónlistargetraun DV og Japis er léttur leikur sem allir geta tekið þátt í og hlotið geisladisk að launum. Leikur inn fer þannig fram að í hverr i viku eru birtar þijár léttar spum- ingar um tónlist. Fimm vinnings- hafar, sem svara öllum spumingum rétt, hljóta svo geislaplötu í verðlaun frá fyrirtækinu Japis. Að þessu sinni er það geisladiskurinn Prince And The New Power Generation sem er í verðlaun. Hér koma svo spumingamar: 1. Númer hvað er nýjasti „NOW“ diskurinn? 2. Hvað heitir nýja platan með Kristin Hersh? 3. Hvað heitir nýjasta plata The Breeders? Rétt svör sendist DV merkt: DV, Tónlistargetraun Þverholti 11 105 Reykjavík Dregið verður úr réttum lausnum 14. apríl og rétt svör verða birt í tónlistarblaðinu 21. apríl. Hér em svörin úr getraiminni sem birtist 17. mars: 1. Björk Guðmundsdóttir. 2. Love & Liberte. 3. Grisk. Að þessu sinni er það geisladiskurinn Prince AndThe New Power Generation sem er í verðlaun.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.