Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1994, Blaðsíða 3
xvixj_/ v mux/nu uiv íj\j. ru íviu
47
'tónliSt
► w ^
Valinn nýliði ársins 1993 fyrir „Drög að heimkomu":
viKHnnar
Valgeröur Jónsdóttir sér síðan um
söng og raddir með mér.“
Ánægjulegar
viðtökur
Orri Harðarson segir að viðtök-
umar sem Drög að heimkomu fengu
hafl jafnvel verið betri en hann bjóst
við. Hann var búinn að lofa sjálfum
sér því að hefjast handa við nýja
plötu ef hann tapaði ekki miklu fé á
útgáfunni og sú áætlun stóðst. Þá
fékk platan góðar viðtökur í útvarpi.
Lögin Dauðir dagar og Hamingjusöm
á ný voru spiluð eins og hann bjóst
við en það kom honum á óvart að
Okkar lag komst alla leið í fimmta
sæti á íslenska listanum.
„Ég hafði alls ekki gert mér grein
fyrir styrk þess lags og leit siður en
svo á það sem neitt vinsældalista-
lag,“ segir hann. „Á nýju plötunni
verða sennilega íjögur lög í þessum
rólega og afslappaða stíl sem ein-
kenndi Drög að heimkomu. En hin
verða öll í hraðari kantinum. Sjáif-
sagt verður áferðin eitthvað öðru vísi
en áður. Þegar maður stjómar gerð
plötunnar sjálfur og sníður sér stakk
eftir vexti verður útkoman önnur en
þegar aðrir ráða ferðinni. Ég get
nefnt sem dæmi að lögin á Drögum
að heimkomu vora mörg í of hámi
tóntegund til að ég réð við hana með
góðu móti. Ég lækkaði nokkur þeirra
þegar ég byrjaði að kynna plötuna og
átti þvi auðveldara en ella með að
syngja þau. Svo heyrir maður alltaf
eitt og annað þegar frá líður sem
maður hefði viljað hafa öðra vísi en
það varð. Við að gera þessa fyrstu
plötu hefúr mér aukist sjálfstraust til
að krefjast þess að hlutirnir séu
gerðir eins og ég vil hafa þá. Þar af
leiðandi hlýtur útkoman næst að
verða talsvert persónulegri en í
fyrstu tiiraun."
-ÁT
hljómsveitinni Tic Tac frá Akranesi
og er menntaður i hljóðfæraleik frá
Berkeley tónlistarskólanum í
Boston. Ég reikna síðan með að spila
sjálfur mestallan rafgítar og kassa-
gítar og einnig hljómborð. Einnig
langar mig til að fá Eðvarö Lárusson
til að spiia eitthvaö á gítar en hann
er að mínu mati einhver færasti
gítarleikari sem við eigum í dag.
Tónlistargetraun DV og Japis
Hvað hertir nýjasti Capellu-diskurinn? er ein af spumingum getraunarinnar að þessu
sinni.
Tónlistargetraun DV og Japis er
léttur leikur sem allir geta tekið þátt
í og hlotiö geisladisk að launum.
Leikurinn fer þannig fram að í
hverri viku eru birtar þrjár léttar
spumingar um tónlist. Fimm vinn-
ingshafar, sem svara öllum spum-
ingum rétt, hljóta svo geisladisk í
verðlaun frá fyrirtækinu Japis. Að
þessu sinni er það diskurinn
Dubnobasswithmyheadman með
hljómsveitinni Under World sem er
í verðlaun.
Hér koma svo spumingamar:
1. Hvað heitir nýjasti Capellu
diskurinn?
2. Hvað heitir nýjasti Redd Cross
diskurinn?
3. Hvað heitir nýjasti Reptilicus
diskurinn?
Rétt svör sendist DV merkt:
DV, tónlistargetraun
Þverholti 11
105 Reykjavík
Dregið veröur úr réttum lausnum
28. apríl og rétt svör verða birt í
tónlistarblaðinu 5. maí.
Hér eru svörin úr getrauninni
sem birtist 30. mars:
1. 27.
2. Blús.
3. Creedence Clearwater Revival.
Orri leggur drög
að nýrri plötu
Orri Harðarson hlaut titilinn
Nýliði ársins þegar íslensku tón-
listarverðlaunin 1993 voru afhent við
hátíðlega athöfn á dögunum. Orri
kom vel út úr uppgjöri síðasta árs í
blöðum og hjá útvarpsstöðvum en
eigi að síður kom honum útnefningin
mjög á óvart.
„Eg var þama á hátíðinni vegna
þess að ég hafði verið beðinn um að
spila eitt lag,“ segir hann. „Ég bjóst
alls ekki við neinum titli. Þegar verið
var að velja nýliða ársins og björt-
ustu vonir þessa árs var hlj ómsveitin
Bubblefiies yfirleitt stigahærri en ég.
Ég er mjög ánægður með heiðurinn
og ekki síst vegna þess að það voru
tónlistarmennimir sjálfir sem höfðu
mest vægi í atkvæðagreiðslunni. Ég
lít þannig á niðurstöðuna að ég hafi
verið boðinn velkominn f hópinn."
Þótt Orri hafi fengist við tónlist í
allmörg ár vakti hann þó ekki á sér
verulega athygli fyrr en síðastliðið
haust þegar hann sendi frá sér plöt-
una Drög að heimkomu. Hann gaf
plötuna út sjálfur í samvinnu við
Japis og er nokkuð ánægður með
viðtökumar.
„Platan seldist nokkuð vel en þó
vantaði herslumuninn á að hafa upp
í kostnað. Þá reikninga greiði ég í
rólegheitum. Ég fékk auðvitað engin
laun fyrir vinnu við plötuna en í
kjölfar útkomunnar fékk ég talsvert
að gera. Ég spilaði aðallega úti á landi
en kom einnig við og við til Reykja-
víkur."
Ný plata í haust
Þegar Orri Harðarson kynnir
Orri Harðarson stýrir gerð næstu plötu sinnar sjálfur og hefur þegar valið fólk til að
vinna með sér að henni. DV-mynd S.Sv.
næstu plötu sína ætlar hann að hafa
hljómsveit með i för. Segist vera
búinn að fá á sig hálfgildings
trúbadorstimpil enda þótt ekkert lag
á plötu hans sé í þeim stíl. Þá hefúr
hann mestan hluta ferils síns verið
liðsmaður hljómsveita. Hann stefhir
á að senda frá sér nýja plötu í haust
og er þegar byrjaður að undirbúa
hana.
„Ég er byrjaður að vinna að
prufuupptökum og reikna með að
ljúka þeim á næstu dögum,“ segir
Orri. „Reyndar kom út með mér eitt
nýtt lag á plötunni Heyrðu 3 sem
Skífan gaf út ádögunum, lagið Söng-
ur úr lífinu. Ég legg prufuupptök-
umar fyrir útgáfustjóra Skífuimar í
næstu viku. Nú, ef Skífan sér sér ekki
fært að gefa plötuna út leita ég til
annarra.“
Orri segir að“ nýja platan verði
nokkuð rokkaðari en Drög að heim-
komu.
Flest lögin sem hann vinnur núna
að urðu til í vetur. Hann vinnur með
þrettán lög en segir óvíst að þau verði
öll með. Ný lög eigi jafnvel eftir að
bætast við á næstunni.
„Ég er ákveðinn i að fá Sigurð
Bjólu til að taka upp fyrir mig næstu
plötu og verða þriðja eyrað við gerð
hennar,“ segir Orri. „Hins vegar
ætla ég að stjóma gerð hennar að
þessu sinni. Þótt samstarfið við Jón
Ólafsson hafi verið með ágætum á
Drögum að heimkomu langar mig til
að ráða ferðinni að þessu sinni. Ég
reikna með að Birgir Baldursson sjái
um trommuleik sem fyrr. Jón Bjarki
Bentsson er heitur sem bassaleíkari.
Hann spilaði á árum áður með