Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1994, Qupperneq 4
48
MIÐVIKUDAGUR 20. APRÍL 1994
t@nlist
Roxette segir:
Crash!
Boom!
Bang
i
Nýjasta plata dúettsins kemur út í dag hér á landi
Marie Fredriksson og Per Gessle,
liösfólk Roxette dúettsins, eru komin
fram á sjónarsviðið á ný eftir að hafa
haldið sigfrá sviðsljósunum að mestu
leyti á síðasta ári. Fimmta stóra
platan frá dúettinum kom út í lok síð-
ustu viku víðast hvar erlendis og
kemur í verslanir hér á landi í dag.
Platan heitir því furðulega nafni
Crash, Boom Bang sem reyndar er
ekkert furðulegt þegar maður hefur
hlustað á texta titillagsins. Fyrir
nokkrum vikum kom eitt lag plöt-
unnar, Sleeping in My Car, út á
smágeisla til að kynda undir fyrir
útkomu stóru plötunnar. Það hefur
tekist með ágætum og hefur lagið
komist hátt á lista víða um Evrópu
og til að mynda á topp tíu hér á landi.
Roxette parið var aldeilis ekki
aðgerðalaust á síðasta ári þótt það
tæki sér að mestu leyti frí frá
sviðsljósunum. Þau tóku til dæmis
upp Unplugged sjónvarpsþátt fyrir
MTV músíksjónvarpsstöðina og urðu
fyrst tónlistarmanna utan enska
málsvæðisins til að fá boð um að gera
slíkan þátt. Þá kom út með þeim lagið
Almost Unreal. Það hljómaði í kvik-
myndinni Super Mario Bros sem kol-
féÚ reyndar. Lagið varð aftur á móti
mjög vinsælt síðastliðið sumar. Þá
- 'notaöi Marie tækifærið í fríinu til að
eignast bam (og hver veit nema fríið
hafi einmitt orðið til vegna þess!) og
Per kvæntist æskuást sinni, Asu
Nordin. Það samband er þegar farið
að gefa ávöxt að því leyti að þau hafa
samið saman lag!
Svíar í
heimspoppinu
Dúettinn Roxette var helsta skraut-
fjöður Svía í heimspoppinu þegar
hann tók sér frí á síðasta ári. Síðan
þá hefur margt gerst. Ace of Base frá
Gautaborg hefúr til að mynda komið
fram á sjónarsviðið og sett mikinn
- svip á vinsældalista í Evrópu og
Bandaríkjunum með lögunum AU
That She Wants, The Sign og fleirum.
Og þá er annar dúett kominn til sög-
unnar sem gerði það gott í dans-
tónlistinni á síðasta ári og virðist ætla
að halda áfram sigurgöngu sinni á
þessu. Þetta er dúettinn Stakka Bo.
Roxette ber þó óumdeilanlega
ennþá höfuð og herðar yfir aðrar
hljómsveitir og dúetta i Svíþjóð.
Árangurinn síðan önnur plata
Dúettsins, Look Sharp sló í gegn fyrir
fimm árum, hefur verið sérlega
glæsilegur. Sú plata, Joyride og
v Tourism hafa selst í meira en tuttugu
milljóna eintaka upplagi og lög af
þeim náð gífurlegum vinsældum. Þar
má nefna The Look (sem varð upp-
haflega til að vekja athygli á dúett-
inum utan Sviþjóðar), Dressed For
Success, Listen To Your Heart,
Joyride, Fading Like A Flower,
Almost Unreal sem fyrr var nefnt og
How Do You Do. Að ógleymdu
temalagi kvikmyndarinnar Pretty
Woman, It Must Have Been Love. Það
lag kom út á plötu með lögum úr
myndinni og hún seldist í níu milljón
eintökum. Lagið var raunar endur-
gerð It Must Have Been Love (Christ-
mas for the Broken Hearted) sem sló
rækilega í gegn með Roxette í Svíþjóð
um jólin 1987, rúmu ári áður en dúett-
inn sló í gegn á heimsvísu.
Allir draumar
uppfylltir
Samstarf Pers Gessles og Marie
Fredriksson hófst árið 1986. Bæði
höfðu gert það gott hvort í sínu lagi
en ákváðu að slá saman í púkk til að
gera ennþá betur en fyrr. Það tókst.
Plötur dúettsins fara um viða veröld
og sjálf hafa þau lagt á sig ómælt erfiði
til að fylgja plötunum eftir. Hljóm-
leikaferðin Join The Joyride var far-
in til að fylgja eftir plötunni Joyride.
Sú ferð hófst í september 1991 og lauk
ekki fyrr en í júlí árið eftir. Þá hafði
Roxette komið fram á 108 tónleikum
^K^tugagnrýni
Roxette dúettinn, Per Gessle og Marie Fredriksson. Plötur þeirra hafa selst í meira en tuttugu milljónum eintaka.
Ljósm. Kevin Davies
í Evrópu, Ástralíu, Bandaríkjunum
og Suður-Ameríku. Alls er talið að
um sautján hundruð þúsund manns
hafl komið á tónleikana. Ferðin tókst
sem sagt eins og best veröur á kosið
hjá heimsnöfnum poppsins.
Ekki er ætlunin að fylgja plötunni
Crash! Boom! Bang! eftir með sama
hætti og Joyride. Per Gessle og Marie
Fredriksson eru orðin hálffertug. Þau
eru búin að helga líf sitt tónlistinni
hingað til og nú vilja þau fara að taka
lífinu með meiri ró en áður og eyða
dálitlum tíma með sínum nánustu.
Flestir sem hella sér út í tónlistarlífið
af fullum krafti ala með sér þann
draum að slá í gegn. Fá heiminn til
að leggja við hlustimar. Það hefur
Roxette dúettinum tekist. Árangur
síðustu fimm ára er til vitnis um það.
Draumar Marie Fredriksson og Pers
Gessles hafa vafalaust allir ræst. Þau
þurfa ekki að sanna sig lengur og geta
því óhrædd notið ávaxta erfiðisins.
Soundgarden - Superknown
★ ★ ★
Eins manns
hljómsveit?
Hljómsveitin Soundgarden hefúr
aukið mjög fylgi sitt á síðustu árum
og virðist nú vera að ná toppnum.
Nýverið gaf hún út plötuna Super-
known og hefúr hún tyllt sér á toppa
vinsældahsta um allan heim. Það eru
þeir Chris Comell (söngur, gitar),
Kim Thayil (gítar), Ben Shepard
(bassi, bakraddir) og Matt Cameron
(trommur) sem skipa hljómsveitina.
Platan Superknown inniheldur 16 lög
og má segja að hún sé ofskipuð
lögum. Það er án efa Chris Comell
sem heldur sveitinni uppi i lagasmíð-
um. Lögin Let Me Drown, Like
Suicide, The Day I Tried to Live og
Spoonman, sem er að mínu mati eitt
besta rokklag síðari ára, eru auk
annarra öll eftir hann. Tilraunir hans
með laglínur og takt gefa
hljómsveitinni nýjan og ferskan blæ
sem hrífúr hlustandann. Cameron og
Shepard eiga einnig ágætis lög á plöt-
unni en svo virðist sem Kim Thayil
neiti að sleppa pönktímabilinu og svo
virðist sem hann dragi sveitina með
sér niður í svað lagleysu. í heild hefði
platan sem sagt mátt vera styttri en
nýja ímynd hljómsveitarinnar má
rekja til tilraunastarfsemi Comells
sem virðist hvergi nærri hættur.
Guðjón Bergmann
ZZTop - Antenna
★ ★ ★
Gæða
blúsrokk
Antenna sýnir að ZZ Top er í fullu
fjöri og heldur stöðu sinni fyllilega
sem ein áheyrilegasta blús-rokk-
hljómsveit samtímans. Á plötunni er
ýmislegt sem stenst fyllilega saman-
burð við það besta sem sveitin hefúr
sent frá sér til þessa. Það lag á
Antenna sem mesta athygli hefur
vakið til þessa er Pincussion. Þótt það
sé góðra gpda vert eru önnur lög á
plötunni mun áheyrilegri og
verðskulda svo sannarlega að verða
gefm út á smáskífum. Þar má nefna
PCH, Girl In A T-Shirt og Cherry
Red.
Þremenningamir í ZZ Top, Dusty
Hill, Frank Beard og Billy Gibbons,
eru allir orðnir hálffimmtugir að
aldri. Þótt plötur þeirra hafi vissulega
verið misjafnar að gæðum á liðnum
árum er staða þeirra í rokkinu nú
orðin slík að þeir hafa ekkert lengur
að sanna. Þeir geta því með góðri
samvisku látið líða alllangan tíma
milli platna sinna. Fyrir vikið er enn
meira gaman að fá nýja ZZ-Top plötu
í heymartólin en ef þremenningamir
stæðu í einhverri karamellufram-
leiðslu.
Ásgeir Tómasson
Morrissey-Vauxhall and I
★ ★ ★ ★
Meistara
taktar
Morrissey er eitt af stóra nöfn-
unum í potti síðustu ára. Hann slð í
gegn með hljómsveit sinni The
Smiths fyrir einum tíu árum eða svo
og hefur síöan þá vefið einn helsti
gúrúinn í bresku poppi. Ekki held ég '
að áhrif hans minnki með útkomu
þessarar nýju sólóplötu hans, Vaux-
hall and I, því hér er shkur kjörgrip-
ur á ferð að mér er til efs að
Morrissey hafi gert betur á ferlinum
og er þó mörgu góðu til að jafna.
Vauxhail and I er tvímælalaust
besta og jafnasta sólóplata Morrisseys
til þessa og platan hlýtur að verða í
hópi þeirra bestu þegar árið verður
gert upp. Sem fyrr er yfirbragðið á
tónlist Morrisseys ffemur drungalegt
og stundum allt að því þunglyndis-
legt. Hann hefur löngum verið þung-
ur á bárunni og stundum virkað allt
að því svartsýnismaður í tónlist
sinni. Samt verður ekki ffam hjá því
gengið að yfír öllum þessum dapur-
leika er ákveðinn sjarmi sem skín
mjög í gegn á þessari plötu. Morriss-
ey sannar það óumdehanlega hér að
hann er meistari
þunglyndismelódíunnar.
Samt er undirtónninn hér tiltölu-
lega bjartur á köflum, mikið um
bjarta gítarhljóma bæði rafmagnaða
og órafmagnaða, sumir svo bjartir að
engu er líkar en Shadows sálugu séu
mættir á svæðið. En það sem gerir
þessa plötu að stórvirki sem hún er,
em fyrst og fremst öll þessu frábæra
lög sem em hvert öðm betra þó svo
lagið The More You Ignore Me, The
Cleser I Get hafi enn sem komið er
heyrst mest.
Reyndar er ég ekkert viss um að
mörg fleiri muni heyrast í útvarps-
stöðvunum sem eltast alla daga út og
inn við vinsældalögin því þetta er
fjarri því að vera vinsaældapopp,
þetta er miklu betra en það,
sannkallað Listapopp með stóm L-i.
-SþS-