Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1994, Side 3
MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 1994
33
tórtli0ti
DV-mynd ÞÖK
Jóhann Torfason myndlistarmaður tók sig til og málaði
mynd til dýrðar grúvinu og verður hún notuð á plakati
hljómsveitanna Bong og Bubbleflies á meðan á ferðinni
stendur.
Meðlimir hljómsveitanna Bong og Bubbleflies.
Grúvi sé lof og dýrð
— tónleikaferð með Bong og Bubbleflies
Danstónlistin virðist vera komin
til þess að vera. Allt frá því að rapp,
hip-hop og fleiri afbrigði dans-
tónlistar komu fram á sjónarsviðið
hefur því verið haldið fram að þessi
tegund tónlistar væri aðeins tísku-
bóla sem senn myndi hjaðna. Nú
hefur það hins vegar sýnt sig að
undir auknum áhrifum annarra tón-
listarstefna verður danstónlistin vin-
sælli með degi hvérjum. í byrjun eru
íslendingar oft lengi að taka við sér
en þegar það gerist er það gert með
stæl. Þannig hefur þetta einnig verið
viKUnnar
með stofnun danshljómsveita hér á
landi ognúer svo komið að við eigum
nokkrar sem eiga mikið erindi inn á
erlendan markað.
Meðal þessara sveita er að flnna
hljómsveitimar Bong og Bubbleflies.
Það voru þau Eyþór Arnalds og
Móeiður Júníusdóttir sem stofnuðu
Bong fyrir um 2 árum en það er fyrst
núna sem þau eru virkilega farin að
láta á sér bera og má búast við miklu
meira frá þeim bænum. Hljóm-
sveitin Bubbleflies sló hins vegar
eftirminnilega í gegn á síðasta ári
með breiðskífu sinni, The World Is
still Alive, og voru Bubbleflies meðal
annars kosnir nýliðar ársins af
nokkrum gagnrýnendum. Nú hafa
þessar tvær hljómsveitir sameinað
krafta sína og leiðin liggur út á land.
Aðeins einir
tónleikar
á hverjum stað
Upphafleg hugmynd að samstarfi
þessara tveggja sveita rekur upp-
runa sinn til heimkynna Rósenberg-
kjallarans sem löngum hefur verið
eins konar neðanjarðarmiðstöð
transfíkla á íslandi. Hugmyndin
þróaðist og nú er svo komið að
framkvæmdin er orðin að veruleika
því ftrstu tónleikamir eru í kvöld.
Allt í allt eru þetta sex tónleikar sem
hljómsveitimar þreyta saman. Allt
hefst þetta í kvöld, 11. maí, á ísafirði,
nánar tiltekið á Hnífsdal.
17. mai verða hljómsveitirnar
síðan í Reykjavík og spila í hátíðarsal
MH. Þess má geta að hátíðarsalurinn
hefur löngum verið rómaður fyrir
tónleikahald og ætti því enginn að
vera svikinn af þessari uppákomu.
Næsti viðkomustaður hljómsveit-
anna er Akranes þann 18. maí en þar
verður troðið upp í Bíóhöllinni. 20.
maí verður svo Vopnafjörður fyrir
valinu en tónleikaferðin endar á
Akureyri þar sem hljómsveitimar
spila í Dynheimum 21. maí og 1929
22. maí.
Strætisvagnateiti
Til þess að helga samstarfið tóku
hljómsveitimar upp lag saman sem
kemur út á safnplötunni Reif í
staurinn í lok þessa mánaðar. Lagiö
heitir Loose Your Mind og var tekið
upp á tveimur dögum í stúdíó Gný.
Þetta er partílag og var þess vegna
ákveðið að gera við það partí-
myndband. Hvar er betra að halda
partí en í strætisvagni?
Hljómsveitirnar fengu lánaðan
strætisvagn og bilstjóra (sem verður
seint fullþakkað fyrir mikla þolin-
mæði og góða útgeislun) og það var
ekið af stað. Til upptöku á mynd-
bandinu fengu hljómsveitimar með
sér margt góðra manna. Kristján
Tónlistargetraun
DV og Japis
Tónlistargetraun DV og Japis er
léttur leikur sem allir geta tekið þátt
í og hlotið geisladisk að launum.
Leikurinn fer þannig fram að í hverri
viku eru birtar þrjár léttar spum-
ingar um tónlist. Fimm vinnings-
hsfar, sem svara öllum spumingum
rétt, hljóta svo geisladisk í verðlaun
frá fyrirtækinu Japis. Að þessu sinni
er það diskurinn Sensation með
Burger Habit sem er í verðlaun.
Hér koma svo spumingamar:
1. Hvaða hljómsveitir spila með
Björk Guðmundsdóttur í Laug-
ardalshöll þann 19. júní?
2. Hvað heitir titillag nýju Waltari
plötunnar?
3. Hvemig tónlist spilar ORB?
Rétt svör sendist DV, merkt:
DV, tónlistargetraun
Þverholti 11
105 Reykjavík
Dregið verður úr réttum lausnum
19. maí og rétt svör verða birt í
tónlistarblaðinu 26. maí. Hér eru
svörin úr getrauninni sem birtist 21.
apríl:
1. U got 2 Know.
2. Phase Shifter.
3. Designer Time.
Friðriksson sá um leikstjóm, Rafn
Rafnsson var kvikmyndatökumað-
ur, Hlynur Óskarsson og Breki
Karlsson sáu um framkvæmda-
stjórnina, Böddi um leikmyndina,
Gunnar Amason og Einar Bjömson
um hljóð, auk margra annarra sem
lögðu hönd á plóginn.
Myndlist og
safnplötur
Fleiri hafa aðstoðað hljómsveit-
imar á einn eða annan hátt og má
þar fyrstan nefna Jóhann Torfason
myndlistarmann. Að sögn sveitanna
tveggja er Jóhann einn mesti mynd-
listarmaður landsins. Jóhannn tók
sig til og málaði mynd til dýrðar
grúvinu og verður hún notuð á
plakati sveitanna á meðan á ferðinni
stendur. Báðar hljómsveitimar eru
önnum kafnar við lagasmíðar sem
senn líta dagsins ljós. Bong er með
annað lag á safnplötunni Reif í
staurinn og ber það nafnið Live in a
Life.
Bubbleflies gefa hins vegar út sitt
fyrsta og síðasta lag á íslensku á
lýðveldisplötu Smekkleysu sem
kemur út 17. júní og hefur það hlotið
heitið Pjakkur. Greinarhöfundur
hvetur hins vegar alla sem geta til að
sjá þó ekki nema eina af þessum
tónleikum því ferð sem þessi verður
líklega ekki farin á ný. GBG
1. Hvaða hljómsveitir spila með Björk
Guðmundsdóttur í Laugardalshöll
þann 19. júní?