Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1994, Qupperneq 4
34
MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 1994
tönlist
► T 4
Þeir virðast ekki hjátrúarfullir,
segjast fullum fetum ganga undir
stiga, brjóta spegla og hræðast ekki
svarta ketti. Útgáfudag þeirra fyrstu
plötu ber upp á fóstudaginn 13. maí
og þeir eru hvergi bangnir. Þeir eru
Hallur Ingólfsson (gítar, söngur
og...), Eiríkur Sigurðsson (gítar) og
Jón Ingi Þorvaldsson (bassi) og skipa
hljómsveitina 13. Fyrsta plata hljóm-
sveitarinnar ber nafnið SALT og
kemur út föstudaginn 13. maí en
þann dag á sveitin einmitt eins árs
afmæli eftir að hafa starfað saman
frá fimmtudeginum 13. maí 1993.
Þetta er fyrsta breiðskífa sveitarinn-
ar sem áður hefúr gefið út kassettu
og lag samnefnt sveitinni á plötunni
íslensk tónlist sem kom út árið 1993.
13 táknar líf og
dauða
Aðal driffjöður sveitarinnar er
Hallur Ingólfsson en hann semur öll
lög og texta á nýju plötunni. Að-
spurður segir hann nafnið beinlínis
hafa elt sveitina uppi en ekki öfúgt.
Áður var Hallur trommuleikari í
hljómsveitinni Bleeding Volcano en
þegar stöðnun var farin að gera vart
við sig í þeirri sveit var hún stokkuð
upp og útkoman var 13. „Talan er
Útgáfutónieikar hljómsveitarinnar 13 verda á Hressó en þar lék sveitin einmitt þann 13. maí 1993.
Föstudagurinn þrettándi
Utgáfudagur plötunnar Salt
með hljómsveitinni 13
Deep Forest- Deep Forest:
★ ★ ★
Deep Forest er plata fyrir þá sem vilja
leggja eyrun við einhverju nýju og
spennandi og vilja brjótast úr viðjum
hversdagsleikans. -SþS
Tori Amos - Under The Pink:
★ ★ ★
Á plötunni fæst gott sýnishom af því
að Tori Amos ræður hvort heldur sem
er við léttpoppað rokk og torræðar tón-
smíðar með skritnum textum. -ÁT
Elvis Costello - Brutal Youth:
★ ★ ★ ★
í heildina litið er hér um að rasða eina
af betri plötum Costellos síðustu ár.
-SþS
ZZ-Top - Antenna:
★ ★ ★ ★
Antenna sýnir að ZZ Top er í fullu fjöri
og heldur stöðu sinni fyllilega sem ein
áheyrilegasta blús-rokkhljómsveit sam-
tímans. -ÁT
Troublegum - Therapy:
★ ★ ★ ★
Ætli platan Troublegum sé ekki
stærsta sprengja rokkheimsins frá ár-
inu 1991. -GBG
Morrissey- Vauxhall And I:
★ ★ ★ ★
Vauxhall And I er fjarri þvi að vera
vinsældapopp, hún er miklu betri en
það, sannkaÚað Listapopp með stóru
L-i. -SþS
Counting Crows
- August and Everything After:
★ ★ ★ ★
Þessi fyrsta plata hljómsveitarinnar er
einstaklega vel heppnað byrjendaverk
þar sem allt sameinast í sterkri heild,
lagasmíðar, flutningur og útsetningar.
-SþS
Kurious - A Constipated
Monkey:
★ ★ ★
Tónlistin á plötunni er blönduð
djass-, fónk- og poppáhrifum og útkoman
verður til fyrirmyndar í þessum sí-
stækkandi geira rappsins. -GBG
táknræn fyrir líf og dauða. Eins og
allir vita lifiiar eitt við þegar annað
deyr og má segja að hljómsveitin
starfi undir þessum formerkjum.
Þegar hljómsveitin staðnar erum við
hættir, það er eitt sem víst er,“ segir
Hallur. En nú hefur hljómsveitin
starfað i tæpt ár án trommuleikara.
Hvemig fer tónleikahald fram? „Við
höfum notfært okkur fyrri reynslu
Halls sem trommara til margra ára
og hann hefur trommað allt inn á
DAT kassettu (Digital Audio Tape)
sem við síðan spilum af á tónleikum.
Þetta hefur sina kosti og galla og það
veit enginn hvort við eigum eftir að
ráða trommuleikara 1 framtíðinni en
eitt er víst að hljómgæðin verða ekki
betri.“
Gaman að vera í
sinni uppáhalds
hljómsveit
„Við erum okkar uppáhalds hljóm-
sveit. Ég fékk meira að segja gæsahúð
þegar ég hlustaði á plötuna í fyrsta
sinn á geisla,“ segir Hallur. Þetta
segja strákamir lika stafa af því að
þeir em búnir að leggja allt sitt í þessa
plötugerð; ekki fjárhagslega, heldur
gerðu þeir allt sjálfir. Allt frá laga-
smiðum 1 upptökur til þess að hanna
umslag plötunnar. Þeir gerðu þetta
allt sjálfir og það gerir þetta mjög
sérstakt allt saman. Eitt sem grein-
arhöfundur tók þó eftir þegar hann
pl@tugagnrýni
Beautiful South - Miaow
★ ★ ★
Afburða-
söngur
Þegar breska gleðipoppsveitin
Housemartins hvarf af sjónarsviðinu
fyrir nokkrum árum þótti mörgum
eftirsjá í henni, ekki sist fyrir þá sök
að þrátt fyrir galgopatónlist oft á tíð-
um vom afburðasöngvarar innan raða
sveitarinnar. Tveir þeirra vom Paul
Heaton og Dave Hemingway og sem
betur fer hóuðu þeir fljótlega saman í
nýja hljómsveit sem var kölluð Beauti-
ful South og hefur sú ágæta sveit lifað
þokkalegu lífi undanfarin ár.
Ekki er hægt að segja að hljómsveit-
in sé stómúmer en það er leitun að
vandaöri poppsveitum og sérílagi er
allur söngur í sérflokki eins og við var
að búast af Heaton og Hemingway.
Heaton er forkólfurinn, semur flestöll
lögin og er forsöngvari og fyrir mína
parta em ekki margir söngvarar sem
slá honum við í dag. Hann hefur skipt
eilítið um tónlistarstíl frá fyrri dögum
og Beautifúl South leikur mestanpart
áferðarfallegt soulpopp en samt fær
glensið að njóta sín inn á milli og þá
einna helst í textum. Tveir aðrir að-
alsöngvarar eru með hljómsveitinni,
þau Jacqueline Abbott og Dave
Hemingway, og em ekki margar
hljómsveitir sem hafa jafii sterkan
söngfront og Beautifúl South.
Lögin em sem áður sagði áferðar-
fallegt soulpopp, melódiskt og þægi-
legt á aö hlýða en þarf nokkra hlust-
un áður en allt situr á sinum stað,
enda lögin sum nokkuð flókin og
mikið lagt í útsetningar. Heildar-
svipurinn á plötunni er góður en þó
er þar eitt lag sem stingur nokkuð í
stúf, gamla Glen Campbell-lagið
Everybody’s Talkin, ágætt lag út af
fyrir sig en er svolítið úti að aka á
þessari plötu. Miaow er plata fyrir
fólk sem vill hlusta á vandað popp og
frábæran söng.
Sigurður Þór Salvarsson
.israuá i aniaóxI-Vai
fékk plötuna í hendumar var að allir
textar hljómplötunnar eru þannig
uppsettir að þeir em illskiljanlegir
aflestrar. Er þetta gert með ráðnum
hug? „Það er hægt að lesa úr þeim en
til þess þarf ákveðið kerfi. Þetta er
eins konar gestaþraut." Greinar-
höfundur verður að viðurkenna að
hann hefur ekki enn leyst þessa gesta-
þraut.
Útgáfutónleikar
13. maí
Útgáfudaginn 13. maí 1994 verður
snúið aftur til þess staðar þar sem
Terrorvision - How to Make
Friends and Influence People
★ ★ ★ -i
Breskt
bítlarokk
Hljómsveitin Terrorvision kom
fyrst fram á sjónarsviðið árið 1993,
eftir að hafa starfað i rúm 6 ár. Þá
kom platan Formaldehyde út og fékk
mikið lof, jafht hjá gagnrýnendum
sem og almennum kaupendum, þó
sérstaklega lagið American TV. Nú,
rétt rúmu einu ári siðar, hefur hljóm-
sveitin gefið út aðra breiðskífu. Plat-
an heitir How to Make Friends and
Influence People, en nafnið gefur
fremur góða mynd af plötunni sem
var tekin upp á aðeins tveimur vik-
um.
Strax við fyrstu hlustun ber hljóm-
sveitin með sér einkennilegan húmor
og léttleika en jafnframt þéttleika í
spilun. Hljómar og laglínur eru mikið
tii sóttar til Bítlanna en þó ekki svo
að lögin séu hreint og beint stolin (þó
að allar hljómasamsetningar séu nú
þegar komnar fram á sjónarsviðið).
Útsetningar laganna eru hráar og
skjóta beint í mark. Jafnframt því að
hafa mikinn húmor í öllu því sem
þama kemur fram kveður við þung-
hljómsveitin hélt sína fyrstu tón-
leika. Útgáfutónleikarnir verða á
Hressó en þar lék sveitin einmitt
þann 13. maí 1993. Tónleikarnir
hefjast snemma eða um 22.3U en eigi
verður sagt til um miðaverð. Fyrir þá
sem vilja fylgjast betur með mun
hljómsveitin síðan gefa út myndband
við lagið „Zoot“ um næstu mánaða-
mót. Framundan eru nokkrir
tónleikar sem verða betur auglýstir
síðar. í lokin langar greinarhöfund að
lýsa ánægju sinni yfir vaxandi áhuga
á rokki hjá hljómplötuútgefendum
með von um að þar verði framhald
á.
GBG
an tón í sumum textum sveitarinnar
(t.d. í laginu Still the Rhythm þar sem
fjallað er um dagleg vandamál eins og
kynsjúkdóma og eiturlyf).
Aðrir textar eru léttari, til dæmis i
lögunum Discoteque Wreck og Stab
in the Back sem fjallar um útbrunnar
rokkstjömur. Skemmtilegar
hljómasamsetningar, hráar
útsetningar og sambland af þunglyndi
og léttleika gera Terrorvision að
einni bestu rokksveit Bretans í dag.
Nú verður undirritaður að bíöa eftir
framhaldi því nóg hlýtur að hafa
safnast saman á tæpra átta ára ferli
sveitarinnar.
Guðjón Bergmann