Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.1994, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.1994, Síða 4
V-A 26 FIMMTUDAGUR 26. MAÍ 1994 Ff Skógarpúkar" huga að útgáfu - hljómsveitin Fánar með nýtt lag á safnplötu í upphafl var ekkert. Svo sagði Guð „Verði ljós“ og þá varð ljós og svo sögðu þrír strákar „Verði gleðitríóið Fánar“ en það gerðist ekki fyrr en 1992. Þegar saga Fána er skoðuð kemur margt skrítið og skemmtilegt í ljós, svo sem að hljómsveitin er ekki tríó í dag. Sagan hefst um vor 1992. Þá var tríóið stofnað og þeir unnu saman í eitt ár. Útgáfa var helst til lítil en þó megnuðu þeir að koma myndbandi á markaðinn við lagið „Mamma viil ekki“ og síðar komust 5 tölusett eintök á útvarpsstöðvamar sem nú verða að teljast til safngripa. Tríóið lagði síðan upp laupana og það var ekki fyrr en þeir Ásgeir Óskarsson og Haraldur Þorsteins komu að máli við fyrrum forsprakka Fána, Magnús R. Einarsson, að tríóið var endurvakið. Nú er hins vegar svo komið að í tríóinu eru fleir en þrír og þar af leiðandi geta Fánar ekki kailað sig tríó. Núverandi meðlimir eru Magnús R. Einarsson (gítar/söngur), Haraldur Þorsteinsson (bassi), Raggi Sigurjóns (trommur) og Þorsteinn Magnússon (gítar). Nafnið afbökun úr frönsku Nú þegar saga sveitarinnar er komin á hreint er ekki úr vegi að skoða nafnið aðeins. Nafhið Fánar þýðir nefnilega alls ekki flagg eða flögg eins og ég eða þú hefðum haldið. Nafnið er afbökun úr franska orðinu „faune“ sem þýðir skógarpúkar. í gegnum tíðina hefur hljómsveitin náð að halda sínum einkennum þrátt fyrir mannaskipti. Þegar tríóið var stofnað var meiningin að spila Crash Test Dummies - God Shuffled His Feet: ★ ★ ★ Þa er ekki annað hægt en að láta sér líka vel viö tónlist Crash Test Dummies sem er vönduð og áheyrileg. -ÁT Tori Amos - Under The Pink: ★ ★ ★ Á plötunni fæst gott sýnishom af því að Tori Amos ræður hvort heldur sem er við léttpoppað rokk og torræðar tónsmíðar með skrítnum textum. -ÁT Elvis Costello — Brutal Youth: ★ ★ ★ 'i í heildina litið er hér um að ræða eina af betri plötum Costellos síðustu ár. -SþS ZZ-Top-Antenna: ★ ★ ★ Íy Antenna sýnir að ZZ Top er í fullu Qöri og heldur stöðu sinni fyllilega sem ein áheyrilegasta blús-rokkhljómsveit samtimans. -ÁT Beautiful South - Miaow: ★ ★ ★ Miaow er plata fyrir fólk sem vill hlusta á vandað popp og frábæran söng. -SÞS Terrorvision- How To Make Friends and Influence People: ★ ★ ★ "Á Strax við fyrstu hlustun ber hljóm- sveitin með sér einkennilegan húmor og léttleika en jafiiframt þéttleika í spilun. -GBG Counting Crows - August and Everything After: ★ ★ ★ < Þessi fyrsta plata hljómsveitarinnar er einstaklega vel heppnað byrjendaverk þar sem allt sameinast í sterkri heild, lagasmíðar, flutningur og útsetningar. -SþS Kurious - A Constipated Monkey: ★ ★ ★ Tónlistin á plötunni er biönduð djass- , fönk- og poppáhrifum og útkoman veröur til fyrirmyndar í þessum sístækkandi geira rappsins. -GBG Núverandi meðlimir em Magnús R. Einarsson (grtar/söngur), Haraldur Þorsteinsson (bassi), Raggi Sigurjóns (trommur) og Þorsteinn Magnússon (grtar). DV-mynd ÞOK rythmablús og gamalt og nýtt rokk. Þetta hefur haldist. Einnig er lögð mikil áhersla á það innan sveitar- innar að hafa alltaf gaman af spila- mennskunni og ná að skemmta sjálfum sér og öðrum og ekki má gleyma „grúvinu“. Fánar gera einnig mikið að því að taka gömul lög og endurútsetja þau. Þetta eru ailt vanir menn og ekki við öðru að búast en vönduðum vinnu- brögðum. Björgvin og Brimkló Þegar menn hafa verið eins lengi í plMtugagnrýni bransanum og þeir sem í Fánum eru, má búast við að leiðir þeirri hafi mæst af og til á ferlinum. Sem dæmi um þetta voru Haili og Steini saman í hljómsveitinni Eik og Halli og Raggi voru saman í Brimkló. Þegar liðnir tímar voru rifjaöir upp kom upp sú hugmynd að fá einn besta rokk- söngvara landsins til að endurskapa Brimklóarstemninguna. Björgvin Haildórsson tók vel i þetta og hefur nú nokkrum sinnum komið fram með sveitinni við góðar undirtektir áheyrenda. Samstarfið milli Fána og Björgvins hefúr gengið mjög vel og ekki er enn séð fyrir endann á því. Á þessum tveimur starfsánnn sveitarinnar hefúr orðið til þónokkuð af frumsömdu efni en aðspurðir um útgáfu stórrar plötu segjast Fánar vera að íhuga málin. „Nokkrir utanaðkomandi aðilar hafa sýnt efninu áhuga. Það er aldrei að vita hvað verður." Splunkunýjar hagfræðikenningar Með þessum orðum er þó ekki sagt að engin verði útgáfan með hljóm- sveitinni því nú um næstu mánaðamót kemur út lag með þeim á safhplötunni „Já takk“ sem Japis gefur út. Lagið sem prýðir þá plötu heitir „Greidd skuld er glatað fé“ og má segja að Fánar setji þar fram byltingarkenndar hugmyndir í hagfræði. I sumar heldur hljómsveitin áfram að skemmta sér og öllum þeim sem vilja á skemmtistöðum landsins, núna um helgina verða þeir á Feita dvergnum. Svo er aldrei að vita, kannski kemur stór plata . . . GBG Sissel — Gift of Love ★ ★ ★ Angurvært poppí klassískum dúr Sissel Kirkebö er norsk söngkona í allra fremstu röð. Hún vakti athygli fyrir örfáum árum fyrir frábærlega tæra og fallega rödd en hefur enn sem komið er að mestu haldið sig við heimamarkað og Skandinavíu. Með þessari plötu er hins vegar greinilega ætlunin að vinna lönd á alþjóða- markaði; platan er sungin á ensku og lagavalið er alþjóðlegt. Sömuleiðis hefúr eftimafni söngkonunnar verið varpað fyrir róða og hún einfaldlega kynnt undir nafninu Sissel. Platan ber það með sér að Sissel er ætlað að hasla sér völl á angurværu og rómantísku nótunum, áferðarfallegar og mjúkar melódíur eru uppistaða laganna á plötunni og ekki hægt að segja að nokkuð komi á óvart. Umgjörðin og útsetningar eru allar í sama angurværa dúmum, mjúkir strengir og raddþýður bakraddakór. Sissel syngur sjálf eins og engiil og á plötuumslagi löcir Neil Sedaka henni við Barbra Streisand. Ekki leiðum að líkjast. Neil Sedaka á líka ein þrjú lög á plötunni, Miracle Song, Sohtaire og Breaking Up Is Hard to Do og syngur hann með Sissel i þvi siðastnefnda. önnur heimskunn lög sem Sissel býður upp á em If sem David Gates og Brad sungu um árið, Dream a Little Dream of Me, sem Mamas and the Papas gerðu frægt og Here, There and Everywhere eftir þá Lennon og McCartney. Aðalskrautíjöður plötunnar er samt ólympíulagið Fire in Your Heart sem var einkennislag Liilehammerleikanna. Það er að finna í tveimur útgáfum á pötunni, annars vegar þessari opinbera sem Sissel söng ein og svo er önnur þar sem ekki lakari söngvari en Placido Domingo syngur með Sissel. Gift of Love býður upp á popp í klassískum dúr, eins áferðarfallegt og hægt er að hafa það og fyrsta flokks söng; Sigurður Þór Salvarsson Underworld - Dub No Bass with My Head Man ★ ★ "Á Poppuð sýra Tríóið Underworld kemur frá Bretlandi. Það fllar danstónlist, spilar danstónlist og semur danstónlist. Tríóið hefúr nú þegar slegið í gegn í Bretlandi og er á leið út í heim. Það kemur hingað með Björk, hðsmenn þess endurhljóðblönduðu nokkur lög með Björk, þeir era upphitimarhljóm- sveitin. Fyrir mér er tónlistin öðra- vísi. Sýran er ekki algjör þótt hún ráði ferðinni að mestu. Það skiptir miklu máli. Á skemmtistöðunum er fólki nokkuð sama hvort tónlistin sé áheyrileg, en þegar maður kaupir sér plötu er það nokkurs konar skflyrði að tónlistin sé áheyrileg. Eins og allir era strákamir í Underworld að fikra sig áfram í óendanlegum heimi hljóðgervlanna og þeim tekst nokkuð vel til. Þetta skapar þeim ákveðinn ferskleika og gefúr þeim forskot í þessum sívaxandi heimi danstónlistarinnar. Eitt má þó batna þónokkuð ef vel á aö vera en það er söngur Karl Hyde. Lengst af er hann flatur og laglínur finnast varla í lögum hljómsveitarinnar. Bestu lög plötunnar verða að teljast „Mmmm Skyskraper I Love You“ og „Spoonman". Allt í allt verður tónlistin að teljast áheyrilega poppuð sýra og líklega góð fyrir þá sem era að komast inn í heim danstón- Ustarinnar, likt og undirritaður. Hljómsveitin á að teljast til betri tónleikasveita og verður þvi gaman að fylgjast með þeim hita upp í Laugardalshöllinni. Guðjón Bergmann

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.