Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1994, Side 1
t'í
FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 1994
/liliiiliifiiiiiiiiiiiiiiliiiiliiiíí
Gengið til kosninga í 184 bæjar- og sveitarfélögum:
Um 186 þúsund
manns á kjörskrá
ó
v
u
3
'Q
q-
- fyrstu tölur væntanlegar strax um hálfellefu
Gengið verður til kosninga í 184 bæjar- og sveitarfélögum, þar af 31 kaupstað og bæ. Kjörfundir hefjast víðast hvar klukkan 9.00
og lýkur klukkan 22. DV-mynd Brynjar Gauti
Gengið verður til
kosninga í 184 bæjar- og
sveitarfélögum laugar-
daginn 28. maí. Ellefu
sveitarfélög hafa fengið
frest til að halda kosn-
ingar til 11. júní saman-
boriö við 50 sem báðu
um frest fyrir fjórum
árum. Að kosningunum
11. júní loknum hafa 195
nýjar bæjar- og sveitar-
stjórnir verið kjörnar
um land allt.
Á kjörskrá á landinu
öllu eru rúmlega 186
þúsund manns. Flestir
eru á kjörskrá í Reykja-
vík eða 74.428 manns, 6
prósent fleiri en í kosn-
ingunum 1990. Karlar
eru 35.834 og konur
38.604. Tölur um fjölda á
kjörskrá eru ekki end-
anlegar þar sem ýmis
kærumál og vafaatriði á
enn eftir aö afgreiða.
Kjörfundir hefjast víö-
ast hvar klukkan 9 og
lýkur klukkan 22. A
stærri stöðunum hefst
talning milli kl. 18 og 19.
Má búast við fyrstu
tölum strax milli 22 og
22.30.
í Reykjavík er kosið í
99 kjördeildum sem
skiptast á 13 skóla,
Grund, Hrafnistu og
Hátún 12. Talning fer
fram í borgarstjórnarsal
Ráðhússins og hefst upp
úr klukkan sex þegar
talningarfólk verður
læst þar inni. Þar sem
einungis tveir framboðs-
listar eru í Reykjavík
ætti talning að ganga
fljótt og vel fyrir sig og
má búast við fyrstu
tölum fljótlega eftir lok-
un kjörstaða. Formaður
yfirkjörstjómar í
Reykjavík er Jón Steinar
Gunnlaugsson.
í Kópavogi voru 12.059
manns á kjörskrá þegar
hún var lögð fram. Er
kosið á tveimur stöðum;
í Kópavogsskóla og
Kársnesskóla. Talning
fer fram í félagsheimili
HK í íþróttahúsinu í
Digranesi og hefst upp
úr sex. Fyrstu tölur eru
væntanlegar upp úr
hálfellefu. Formaður yf-
irkjörstjómar er Jón
Ath Kristjánsson.
í Hafnarfirði voru
11.444 á kjörskrá þegar
hún var lögð fram. Kosið
er á fjórum stöðum; í
Lækjarskóla, Víðistaða-
skóla, á Hrafnistu og á
Sólvangi. Talning fer
fram í íþróttahúsinu við
Strandgötu. Byrjað
verður að telja milh kl.
18 og 19 og fyrstu tölur
væntanlegar um hálfell-
efu. Formaður yflrkjör-
stjórnar er Gísh Jónsson
prófessor.
í Suðurnesjabæ er kos-
ið í Holtaskóla í Keflavík
og Grunnskólanum
Njarðvík og eru kjör-
staðir þar opnir kl.
10-22. Þá er einnig kosið
í samkomuhúsinu Höfn-
um kl. 12-22. Talning fer
fram í íþróttamiðstöð
Njarðvíkur og er von á
fyrstu tölum fyrir
klukkan ehefu. Formað-
ur yfirkjörstjórnar er
Börkur Eiríksson.
Á Akureyri er að venju
kosið í Oddeyrarskóla
þar sem einnig er talið.
Talning hefst um kvöld-
matarleyti og ættu
fyrstu tölur að verða
væntanlegar milh kl. 22
og 23. Formaður kjör-
stjómar er Ásgeir Pétur
Ásgeirsson.
Efnisyfirlit kosningahandbókar
1. Reykjavík 18 11. Bolungarvík 20 21. Seyðisfjörður 30 31. Bessastaðahr. 32
2. Hafnarfjörður 18 12. ísafjörður 20 22. Neskaupstaður 30 32. Eyrarsveit
3. Garðabær 18 13. Blönduós 20 23. Eskifjörður 30 33. Sam. sveitarf.
4. Kópavogur 18 14. Sauðárkrókur 20 24. Hornafjarðarbær 30 á Vestfjörðum 32
5. Seltjarnarnes 18 15. Siglufjörður 20 25. Vestmannaeyj. 30 34. Búðahreppur 32
6. Mosfellsbær 19 16. Ólafsfjörður 29 26. Selfoss 31 35. Ölfushreppur 32
7. Akranes 19 17. Dalvík 29 27. Hveragerði 31
8. Borgarnes 19 18. Akureyri 29 28. Grindavík 31
9. Snæfellsbær 19 19. Húsavík 29 29. Sandgerði 31
10. Stykkishólmur 19 20. Egilsstaðir 29 30. Suðurnesjabær 31