Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1994, Page 3
FIMMTUDAGUR 9. JUNI 1994
25
»
I
HL^y/ ' m
ílllllsÍlllftV 1 t' V» *T ■■ m*, f
Hljómsveitin Saint Etienne.
tónli0t:
Sungið á leiðinni
að búðarborðinu
Eftir plötuútgáfuna var ráðist í að
gefa út nýjar smáskífur en því miður
gengu lögin Join Our Club og Avenue
ekki eins og best var á kosið. Eftir
þessar misheppnuðu útgáfur kom
hins vegar sprengja sem átti eftir aö
ryðja veginn svo um munaði. Smá-
skífan Your in a Bad Way ruddist
fram á sjónarsviðið í feb. 1993 ogfékk
kaupendur til að syngja á leið sinni
að búðarborðinu. í kjölfarið fylgdi
platan So Tough sem fékk fádæma
góðar undirtektir og komst hæst í 7.
sæti breska breiðskifulistans.
Þetta árið kom síðan þriðja plata '
hljómsveitarinnar á markaðinn og
ber hún nafnið Tiger Bay. Platan
inniheldur 12 lög og þegar hafa lögin
Pale Movie og Like a Motorway (sem
er uppáhaldslagið hennar Sarah
Cracknell eins og sténdur) gert það
gott erlendis. Næsta smáskífa plöt-
unnar heitir Hug My Soul og telur
undirritaður að það geti náð töluvert
hátt á listum jafnt hérlendis sem
erlendis.
ísienskar upp-
hitunarhljómsveitir
Enginn hljómsveitarmeðlima hef-
ur komið til íslands og þau vita því
ekki við hverju má búast. „Það eina
sem mér hefur verið sagt er að
íslendingar drekki mikið vodka,“
sagði Sarah í stuttu spjalli sem
undirritaður átti við hana fyrir
stuttu. í síðustu viku var hjómsveitin
stödd í hljóðveri að taka upp B-hliðar
og bónus lög á fyrirhugaöar smáskif-
ur sveitarinnar.
Saint Etienne á listahátíð
- spilar á morgun í nýja Kolaportinu
>
i
i
i
vikunnaf
Hljómsveitin er nefnd eftir kirkju
í París í Frakklandi en nýja platan
hennar, Tiger Bay, er nefnd eftir
bresku sjávarþorpi. Sjálf heita þau
Bob Stanley, Sarah Cracknell og Pete
Wiggs en þau munu spila í
Kolaportinu á morgun í boði Lista-
hátíðar Reykjavíkur. Við skulum
fræðast aðeins nánar um þessa popp-
uðu danshljómsveit sem enginn virð-
ist geta haldið vatni yfir, hvort sem
er hér eða erlendis.
„Þegar maður
reynir of mikið...“
Hljómsveitin var stofnuö árið 1990.
Það voru poppspekúlantamir Bob og
Pete sem hófu sögima með endurgerð
af gamla Neil Young laginu, Only
Love Can Brake Your Heart. Saint
Etienne bast hljómplötufyrirtækinu
Havanly og brátt bættist Sarah í
hópin með það sem Mickey Most
kallaði „stjömugæði." Sarah, sem er
kænni en margir, veit sem er að sá
sem öskrar tapar rökræðunum. Hún
lifir því eftir þeirri einföldu Tao
speki, „Þegar maður reynir of mikið
virkar það ekki.“
Smáskífan Nothing Can Stop Us
Now komst í sæti ógleymanlegra
laga eins og Primal Scream laginu
Higher than the Sun og laginu
Unfinished Symphony með Massive
Attack. Platan Fox Base Alpha kom
síðan út árið 1991 og var tilnenfd til
Mercury tónlistarverðlaunanna.
Platan fékk góða dóma jafnt hjá
gagnrýnendum sem og almenningi
og það er kannski sá staðall sem
Saint Etienne hefur náð á undan
mörgum samtímasveitum sínum því
sölutölur og skrif gangrýnenda fara
sjaldnast saman.
Upphitunarhljómsveitir fyrir
Saint Etienne á tónleikunum annaö
kvöld eru allar íslenskar. Fyrsta má
telja til leiks „stuðdiskóboltann" Pál
Óskar Hjálmtýsson sem kom sá og
sigraði með plötu sinni Stuð fyrir jól.
Hljómsveitin Scope með Svölu
Björgvinsdóttir mun einnig stíga á
stokk en þau eiga lag á safnplötunni
Trans Dans 2 sem Skífan gaf út fyrir
stuttu. Síðast en ekki síst er að telja
dansdrungasveitina Ólympíu þar
sem Sigurjón Kjartansson er í
fararbroddi(gottefhannerekkiehm -
en sú hljómsveit treður upp í fyrsta
skipti á þessum tónleikum.
Þaö má sem sagt búast við miklu
á þessum fyrstu tónleikum hljóm-
sveitarinnar Saint Etienne í Kola-
portinu á morgun. Enginn ætti að
ganga vonsvikinn á dyr nema hann
fái ekki miða!
Tónlistargetraun DV og Japis er
léttur leikur sem allir geta tekið þátt
í og hlotið geisladisk að launum.
Leikurinn fer þannig fram að í hverr i
viku eru birtar þrjár léttar
spurningar um tónlist. Fimm
vinningshafar, sem svara öllum
spurningum rétt, hljóta svo
geisladisk í verðlaun frá fyrirtækinu
Japis. Að þessu sinni er það
geisladiskurinn Ian Mccullough -
Mystero, sem Japis gefur út, í
verölaun.
Hér koma svo spumingamar:
1. Hvaðan er hljómsveitin Crash
Test Dummies?
2. Hvað heitir nýi diskurinn með
Jah Wobble?
3. Hvernig tónlist er á safn-
diskinum Chill out Classics?
Rétt svör sendist DV merkt.
DV, tónlistargetraun
Þverholti 11
105 Reykjavík
Dregið verður úr réttum lausnum
16. júní og rétt svör verða birt í
tónlistarblaðinu 23. júni.
Hvaðan er hljómsvertin Crash Test Dummies?
Hér em svörin úr getrauninni 2. Hym.
sem birtist 26. maí: 3. Blúsý báðum megin.
1. Laugardalshöll.
Tónlistargetraun DV og Japis