Alþýðublaðið - 29.08.1967, Page 2
Steingrímur heldur á Fuglum yfir Súlum. Til hliðar er Bæn. — Ljósm.: G. P.
Römm er sú taug...
::
Rætt við Steingrím Sigurðsson,
listmálara og skríbent
— Málaralistin veitir manni óskaplega mikið. Hún etur mann
í vissum skilningi, en gefur þeim mun meira í staðinn. En mað-
ur verður að hafa frið — bæði næði Ofr Innri sálarró, annarg
kemst ekki á þetta samspil tilfinninga og skynsemi, sem er
nauðsynleg allri listiðkun, ásamt vissri spennu og sköpunarólgu.
1»
i»
i|
!»
#
Þetta sagði skáldmálarinn í
viðtali, er hann var að búa
myndir sínar til flutninsg norð-
ur.
Það var farið að rigna, bar
sem við stóðum á dyrahellunni
fyrir utan hjá Steingrími á
laugardagsmorguninn var, en
eftir skamma stund heyrðum
við fótatak inni fyrir og stig-
ann stokkinn í tveim skrefum
hurðin var opnuð og í gáttinni
stóð Steingrímur, — snarlegur,
með svart Fransaraskegg, í blá
um, teinó.ttum buxum og gráu,
silfurhnepptu vesti- að skart-
manna sið.
— Gerið svo vel að koma inn
fyrir, strákar. Ég þarf bara að
fá mér kaffi svo að ég vakni,
áður en ég tala við ykkur.
Hann hellti upp á Tíaffi, sem
var svartara en skeggið á lion-
um og sagði um leið og hann
renndi í bollana:
— Ef ég þekki ykkur rétt,
blaðamennina, þá viljið þið
heldur að það barki.
— Já, ég er að fara norður
á æskuslóðir með rúmlega 50
myndir. Flestar þeirra, eða 46
hef ég málað síðan í vor að ég
hætti blaðamennskunni. — Ég
ætla að opna sýningu í Lands-
bankasalnum á Akureyri á
laugardaginn kemur, 2. sept.
— Ég veit nú reyndar ekki
hvort ég á að segja það, en ég
er þegar búinn að selja 8
myndir. — Þegar ég sýndi síð.
ast, seldt ég 90%.
Er við höfðum lokið úr boll-
unum, leiddi Steingrímur okk-
ur um stofur og gat þar að
líta myndir, bæði figúrativar
og nonfigúratívar á veggjum
og gólfi, málaðar heitum lit-
um og á tveimur -stórum mynd
um voru þrjú börn í forgrunn.
— Þessi heitir t. d. Börnin
á heiðinni, ja, gæti verið Lyng
dalsheiði, sagði málarinn og
benti á allstóra mynd í vín-
rauðum heiðaltt, víðirinn far-
inn að gulna, en mosinn haust
grænn. Börnin standa í for-
grunni vinstra megin, en
gróðri vaxin dyngjan til hægri.
Þessi heitir Ljóðablóm, þessi
Bæn, Blóm í vasa, 19. júní í
Reykjavík, Fuglar yfir Súlum
— abstrakt mynd með fönix-
svip og tinda — gæ.ti verið
minningar að norðan. Hérna er
Við vatnið, ef til vill Þingvalla
vatn, Skötuveizla — átti áður '
að heita Hefðarfrú úr Vestur- i
bænum borðar skötu í Naust-f
inu og hér er Framtíðin, sagði ?
málarinn og staðnæmdist fyr-1
ir framan abstrakt mynd( tígl- j
óttri með snúnum deplum í
hverjum fleti.
— Svona er ég farinn að
mála mest núna. Það eru ein-
ar 4 myndir í þessum stíl, og
ég er nokkuð ánægður með
þetta — finnst mér hafi tekizt,
það sem ég ætlaði mér.
— Þið takið eftir römmun-
um, strákar. Þetta héma eru
rammar frá honum Hallsteini
Sveinssyni, bróður Ásmundar
myndhöggvara, en hinir eru
hollenzkir, úr Rammagerðinni.
— Ég hef málað þetta mest
megnis hér í Reykjavík og hef
valið nokkur mótív héðan. —
Þessa t. d. kalla ég Við Lauf.
ásveg, gömul, skemmtileg hús
með persónulegan svip —
gluggarnir eins og augu. Svo
hef ég líka málað fyrir austan.
— Ég er búinn að fást við
þetta í 20 ár, en er annars al-
inn upp við góða myndlist, því
að í Menntaskólanum á Akur-
eyri var eitthvert bezta mál-
verkasafn norðanlands. Faðir
minn lét ríkið kaupa málverk
eftir beztu íslenzka málara á
sínum tíma. Honum fannst það
hafa jafnmikið menningarlegt
og uppeldislegt gildi fyrir ung
menni að umgangast myndlist
eins og t. d. að alast upp við
tónlist. Svo, þegar ég gaf út
Frh. á 14. síðu.
Kennarar læra
mengjafræöl
Kennaranámskeið í mengjareikn
ingi var sett í Hagaskóla í gær
morgun og stendur til 9. sept.
Þáttakendur eru um 80 víðs vegar
af landinu.
Kennaranámskeið það í mengja
fræði, sem haldið er að tilhlutan
Skólarannsókna, Fræðsluskrifstof
unnar og Menntamálaráðuneytis
ins, var sett í Hagaskóla í gær-
morgun. Aðalkennarar eru:
Guðmundur Arnlaugsson rektor,
Björn Bjarnason menntaskólakenn
ari og fr. Agneta Bundgaard ann
ar þeirrar sem byrjað var að kenna
hér í sjö bekkjadeildum tveggja
skóla í fyrravetur. Nemendur eru
80 talsins þar af um 50 úr Reykja
vík. Þetta námskeið er einkum
ætlað yngri kennurum og var á-
berandi, hve margir þeirra eru
konur, enda mun svo vera, að af
84 starfandi kennurum við barna-
skólana í Reykjavík fæddum eftir
1935 eru aðeins 14 karlar.
Kennslunni er hagað þannig,
að byrjað er á' morgnana kl. 9.00
og halda þá leiðbeinendur fyrir-
lestur í sal skólans fram til há-
degis, en eftir hálfs annars tíma
Framhald á bls. 15.
30 þvottavélar
og 8 saumavélar
30 tegundir þvottavéla og 8 teg
undir saumavéla eru til sýnis að
Hallveigarstöðum við Túngötu
þessa dagana. Félag Raftækjasala
og Kaupmannasamtökin standa að
þessari sýningu, en efnt var til
hennar í samráði við Kvenféldga-
sambands íslands. 17. landsþing
sambandsins er nýlokið.
Blaðamönnum var boðið að
skoða sýningunna á föstudags-
kvöldið. Þarna getur að líta nýj-
ustu tegundir saumavéla, sem gera
„allt”: -sauma, stoppa og bródéra,
festa hnappa og gera hnappagöt.
En svo mátti líka sjá formæður
þessara fínu tækja, -gamlar vélar
sem fengnar voru að láni úr Minja
safni Reykjavíkur. Mátti sjá, að
mikil breyting hafði orðið á sauma
vélatækninni á þessari öld.
Húsmæður virtust dálítið ringl
aðar, þegar þær komu í salinn og
sáu 30 tegundir þvottavéla. Um-
boðsmenn tækjanna sögðu, að það,
sem þeir hefðu á boðstólnum,
væri það bezta sem völ er á.
Sigríður Haraldsdóttir, forstöðu
kona Leiðbeiningarstöðvar hús-
mæðra, sagði í ræðu við opnun
sýningarinnar, að mikil þörf væri
á þvf að húsmæður kynntu sér
heimilistæki sem allra bezt, þvi.
að þetta væru dýrar vörur, en milc
ið keyptar. Það riði því á' miklu,
að hver og einn gerði sér sem
gleggsta grein fyrir því, hvað það|
væri sem hann helzt' vildi fá, og
hvar það væri helzt að finna.
Gísli Jóhann Sigurðsson, for-
maður félags raftækjasala sagðl
í ræðu, sem hann flutti við sama
tækifæri, að æskilegt hefði veriB
að sýna fleiri heimilistæki, en
því hefði ekki verið unnt að koma
við í þetta sinn.
Fram kom, að síðasta ár vom
flutt inn rafknúin heimilistækl
fyrir um 100 millj. ísl. króna og
er þá átt við innkaupsverð erlend-
is. Við það bættist síðan tollar og
álagning.
Mjög mikil aðsókn var um s.l.
helgi á' þvottavéla og' saumavéla-
sýningunni að Hallveigarstöðum.
Skoðuðu sýninguna þá á þriðja-
þúsund manns.
Vegna þessarar miklu aðsókn-
ar hefur verið ákveðið að fram-
lengja sýninguna um cinn dag og
verður hún því opin þriðjudaginn
29. ágúst kl. 2-10.
Gömlu saumavélarnar vöktu mikla athygli á sýningunni.
2 29. ágúst 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ