Alþýðublaðið - 29.08.1967, Blaðsíða 7
DÁTAIt eins og hljómsveitin var skipuð áður en hún hætti. — Klæðnaður þcirra er frá Herrahúsinu.
ENN EIN HLJÓM-
SVEIT HÆTT
OG NÚ ERU ÞAÐ
MIKIÐ er að geFast í hinum ís-
lenzka „popheimi" um þessar
mundir. Hver hljómplatan rekur
aðra, vinsælar hljómsveitir detta
upp fyrir, aðrar eru vaktar upp
frá dauðum og nýjar ihljpmsveit-
ir koma fram.
Nýlega var sagt frá því hér
í þættinum, að Toxic væru hætt-
ir að koma fram, en þess jafn-
framt getið, að nokkrir úr hljóm
sveitinni hefðu í bígerð að
stofna nýja hljómsveit. Það hef-
ur nú gerzt og um leið orðið til
þess, að tvær hljómsveitir til við
bótar hafa lagt frá sér hljóðfær-
in og hætt að koma fram, en það
eru Dátar og Mods.
Það eru mikil tíðindi, þegar
vinsæl ihljómsveit eins og Dátar
hætta. Einmitt um þær mun'dir-
sem vinsældir þeirra eru hvað
mestar. Ekki alls fyrir löngu
kom út ný plata með þeim félög-
um, sem þykir í alla staði sér-
staklega vel unnin, enda fékk
hún glæsilegar móttökur hjá
unga fólkinu og þátturinn hefur
fregnað, að hún hefði verið kom
in langleiðina að slá öll sölumet
hjá S. G.-hljómpIötum. Öll lögin
voru eftir aðalsöngvara Dáta,
Rúnar Gunnarsson og þóttu flest
þeirra sérstaklega eftirtektar-
verð.
Þátturinn kom að máli við þá
Rúnar-Gunnarsson og Jón Pétur
og fyrsta spurningin, sem borin
var fram, var:
— Hvers vegna eru Dátar
hættir?
Rúnar varð fyrir svörum:
— Það er einfaldlega vegna
þess, að við erum búnir að missa
orgelleikarann, Karl Sighvats-
son. Þá var lákveðið að hætta
þessu um tíma á meðan viö er-
um að átta okkur á hlutunum.
— Hins vegar höfum við fuU-
an hug á að koma fram aftur,
segir Jón Pétur og strýkur hugs-
andi um vel ræktað yfirvara-
skeggið. En það er ekki hlaupið
að því að fylla það skarð, sem
íhefur myndazt í hljómsveitinni.
Svo að það getur dregizt. Á með-
an tökum við lífinu með ró.
— Hvenær var hljómsveitin
stofnuð?
— Það var 18. júní 1965, svar
ar Gunnar. Þá voru í hljómsveit-
inni fyrir utan mig og Jón Pét-
ur, Stefán Jóhannsson og Hilm-
ar Kristinsson.
— Ári síðar kom fyrsta plat-
an okkar út, heldur Jón Pétur
áfram og nokkru seinna fórum
við í okkar fyrsta ferðalag um
landið, þvert og endilangt. En
svo skeður það snemma á þessu
ári, að Hilmar hættir. Þá hætt-
um við í u. þ. b. þrjár vikur og
hugsuðum, hvað gera skyldi. En
það leið ekki á löngu þar til við
höfðum fengið nýjan mann —
Magnús Magnússon.
— Skömmu seinna er síðari
platan tekin upp, segir Rúnar
og um svipað leyti og Karl kem-
ur í hljómsveitina, kemur plat-
an á markaðinn. En þ'á voru
Dátar í fyrsta sinn með orgel-
leikara og ailt var eins gott og
það gat verið, þangað til Karl
ákveður að fara úr hljómsveit-
inni.
— En í guðanna bænum taktu
það fram, skýtur Jón Pétur inn
í, að þó að við séum skiljanlega
ekki í sólskinsskapi yfir þessu,
þá sé langt frá því að við séum
búnir að missa móðinn.
Það er sorglegt, að topp
„beat“-hljómsveit eins og Dátar
skuli þurfa að draga sig út úr
sviðsljósinu, einmitt á þeim
tíma, er þeim vegnar hvað bezt
og það er vonandi að nafnið
Dátar eigi ekki eftir að falla í
gleymsku fyrir fullt og allt. Við
megum ekki við því að missa
eins góða hljómsveit og Dátar
Kópavogur
Alþýðtfblaðið vantar börn til blaðburðar í
Austurbæ.
Upplýsingar hjá afgreiðslu blaðsins í Kópa-
vogi í síma 40753. í
AlþýöublaðiÖ
Þorvaldur á nýrri
hljómplötu
ÚT er komin ný hljómplata með
hinum vinsæla, norðlenzka
söngvara, Þorvaldi Halldórssyni.
— Þetta er mjög athyglisverð
plata, m. a. eru tvö laganna eft-
ir Þorvald og það er auðvitað
Hljómsveit Ingimars Eydal, sem
aðstoðar.
Lögin heita „Höldum heim“,
gamall sjóaraslagari. Textinn er
eftir Ómar Ragnarsson. Þá er
„Skást er sinni kellu að kúra
hjá“, texti eftir Kristján fbá
Djúpalæk. Næstu tvö lög eru eft
ir Þorvald Halldórsson, bæði
mjög athyglisverð: „Ég er 18
ára“ og ,,i nótt‘. Það er ekkert
vafamál, að þessi hljómplata á
eftir að gera mikla lukku.
Póló og Bjarki senda frá
sér sína fyrstu hljómplötu
ENN ein hljómplatan er komin
á markaðinn. — Hér er um að
ræða fjögurra laga plötu með
Póló og Bjarka frá Akureyri og
er þetta þeirra fyrsta plata.
Þátturinn hringdi norður um
síðustu helgi og náði tali af for-
svarsmanni hljómsveitarinnar,
Pálma Stefánssyni, og gaf hann
okkur upp eftirfarandi:
— Lögin heita „Lási skó“,
textinn er eftir Valgeir Sigurðs-
son. Þá er „Vonin, sem brást“
eða „Realease me“ eins og það
heitir á frummálinu, og hér á
Valgeir einnig heiðurinn af text-
anum. „Glókollur" er íslenzk
framleiðsla að öllu leyti: Lag og
texti eftir Birgi Marinósson. Að
lokum er „Stígðu dans“, Valgeir
Sigurðsson samdi textann.
Hljóðritunin fór fram hjá Rík-
isútvarpinu og erum við mjög
ánægðir með útkomuna, svo og
pressunina, en ihana annaðist
His master voice í London. Plat-
an er gefin út af Parlaphone
merkinu, en Tónabúðin, Akur-
eyri stendur allan straum af
kostnaðinum.
Þátturinn vonar, að þessi plata
þeirra norðanmanna eigi eftir
að ganga vel.
ÁRS ÁBYRGÐ
tækin henta sveitum
landsins.
Með einu handtak.i má
kippa verkinu innan úr
tækinu og senda |iað á
viðkomandi verkstæði
— ekkert hnjask með
kassann — auóveldara
í viðhaldi.
Radionette-verzlunin
Aðalstræti 18 sími 169 95
Aðalumboð: Einar Farestveit & Co. hf. Vesturgötu 2
MUNID
H.A. B.
•eru.
29. ágúst 1967 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ 7