Alþýðublaðið - 29.08.1967, Side 14
KVENFÉLAGIÐ EINING
HÖFÐAKAUPSTAÐ 40 ÁRA
ÞANN 27. 3. 1967 var Kvenfé-
lagið Eining Höfðakaupstað 40
lára. Félagið var stofnað 27. 3.
1927. í fyrstu stjóm þess voru
þessar konur:
Formaður: Emma Jónsdóttir,
Spákonufelli; ritari: Björg
Berndsen, Skagaströnd og gjald
keri Karla Helgadóttir, Skaga-
strönd.
Ávallt 'hefur félagið haft á
stefnuskrá sinni að vinna að
framfara-, menningar- og líkn-
armálum hér heima fyrir og
víðar. Fyrstu árin náði félags-
svæðið yfir 2 hreppa, Skaga-
strönd og Vindhælishrepp. Var
þó oft langt að sækja á fundar
staði, en konum í þá tíð hraus
ekki hugur við þótt þær þyrftu
að ganga allt að 10 km vega-
lengd, ef mannúðarmálefni var
á dagskrá. Félagið stóð fyrstu
árin fyrir lestrarkennslu smá-
Ibarna og saumanámskeiðum
stúlkna hér í kauptúninu meðan
ekki var annað en farkennsla á
iboðstólum og var hvort tveggja
unnið af félagskonum endur-
gjaldslaust. Nú á síðari árum
ihafa verið haldin námskeið fyrir
konur og ungar stúlkur, í saum
askap, matreiðslu og vefnaði. Á
námskeiðum þessum hafa kennt
bæði konur hér heima og að
fengnir kennarar,, og húsrúm
lánað endurgjaldslaust fyrir
námskeiðshaldið. Scuna árið sem
kvenfélagið var stofnaff var
tyrjað að reisa íkirkju hér í
kauptúninu. Var hún fullgerð
1928. Áður var hún á Spákonu-
felli. Ávallt hefur kirkjan verið
eftirlætisbarn félagsins og hef-
ur það fært henni margar nyt-
'samar og fagrar gjafir, sem þó
skulu ekki taldar upp hér. Fyrir
síðastliðin jól gengust félags-
konur fyrir því að kirkjan var
máluð og gengu stjórnarkonur
um og söfnuðu fé. Er því kirkj-
an orðin bæjarprýði okkur fé-
iagskonum og öðrum til mikillar
gleði. Einnig hefur félagið stýrkt
mörg fyrirtæki með peningagjöf
um svo sem: Kristneshæli,
Hallveigarstaði, Björgunarskútu
Norðurlands, Kvennaskólann í
'Blönduósi, Hér.hælið á Blöndu-
ósi og fl.. Árið 1946 stofnaði fé-
lagið sjúkrahússjóð og margar
góðar gjafir hafa borizt sjóðn-
um. Stærsta gjöfin er frá Árna
Sveinssyni (er dvaldist hér um
um tíma) krónur 5.000.00, svo
gaf hann krónur 10.000.00 minn-
ingargjöf um látna konu er
það Ingibjargarsjóður.
Hugmyndin var, þegar sjúkra-
hússjóður var stofnaður að hér
yrði starfandi læknir í framtíð-
inni og hér væri sérstakt læknis
hérað. Læknir var svo settur
hér árið 1953 en fór eftir 11
ára dvöl. Síðan hefur verið hér
læknislaust, og hefur það vald
ið miklum erfiðleikum. Sama ár
og læknir kom hér, keypti Kven-
félagiff gegnumlýsingartæki,
sem kostuðu rúmar 30.000.00 kr.
Efri röff f. v.: Guðrún Valdimarsdóttir, Dómhildur Jónsdóttir,
Björk Axelsdóttir, Helga Berndsen, Soffía Lárusdóttir og Margrét
Konráffsdóttir.
Sjúkrahússjóður greiddi tækin
að mestu.. Einnig gaf félagið
sjúkrakörfu og Ijósalampa, há-
fjallasól, og hefur hann verið
starfræktur fyrir :börn staðarins
árlega. Ýmislegt fleira hefur fé
lagið gefið svo sem jólagjafir,
ferðir og fl. og fl. Til fjáröflunar
farið með eldra fólkið í skemmti
fyrir félagið hafa verið farnar
ýmsar leiðir, s.s. skemmtisam-
komur, leiksýningar, hlutavelta,
þorrablót, kaffisala, útsala á
heimasaumuðum munum barna
sem konur hafa unnið og gefið,
Merkjasala árlega fyrir sjúkra-
hússjóð og fl. Að öllu þessu
starfa félagskonur og sýna með
iþví mikla fórnfýsi og dugnað.
Fyrir alla hjálp, vinarhug og
gjafir erum við félagskonur
mjög þakklátar og metum mik
ils það traust sem okkur hefur
verið sýnt.
Eins og áffur segir var kven-
félagið 40 ára síðastliðið vor.
Var þá áður haldinn fundur og
rætt um hvernig minnast skyldi
þessa afmælis. Útkoman varð sú
að gleðja konu -í kauptúninu
með peningagjöfum. En hún
varð fyrir stórri sorg er fullorð
inn sonur thennar drukknaði á
síðastliðnu vori. Lét hann eftir
sig 2 ung börn. Jafnframt er eig
inmaður áðurnefndrar konu
sjúklingur.
Margar ágætar konur hafa
starfað í félaginu frá ibyrjun
og fram á þennan dag. í>ær hin
ar eldri mörkuðu leiðina með
fórnfýsi og áhuga í starfi. Nokkr
ar af þeim konum eru nú horfn-
ar yfir móðuna miklu, við minn-
umst þeirra trneð virðingu og
þakklæti. Aðrar standa enn í
önn dagsins og lífið heldur á-
frám. Nú eru félagar 34 og 4
heiðursfélagar. í vörzlu félags-
ins eru þessir sjóðir: Kvenfélaga
sjóður, Sjúkraliússjóður, Ingi-
bjargarsjóður, Félagsheimilis-
sjóður og Gullbrúðkaupssjóður,
sá síðastnefndi að uppliæð 10
000.00 kr., tíu þúsund krónur.
var gefin í tilefni 40 ára afmæl
is félagsins. Stjórn félagsins
skipa nú: Form. Soffía Lárus-
dóttir, ritari Margrét Konráðs-
dóttir, gjaldkeri Helga Bernd-
sen,. Meðstjórnendur: Dómhild
ur Jónsdóttir, Björk Axelsdóttir
og Guðrún Valdimarsdóttir.
Skagaströnd 3. 8. 1967,
Margrét Konráðsdóttir.
Langhelle
Framhald af bls. 3.
58 og aðalforseti 1958-65 og svo
aftur varaforseti. Langhelle var í
fimm ár forstjóri Noregsdeildar
SAS og hann átti sæti í nóbel-
nefnd Stórþingsins.
Hin hörmulega frétt um skyndi
Iegan dauða Nils Landhelle kom
eins og reiðarslag yfir okkur alla.
svo mikillar virðingar og vináttu
Sjaldan hefur nokkur maður notið
margra, sagði Bernt Ingvaldsen,
forseti norska Stórþingsins í dag.
Steingrímur
Frh. af 2. síðu.
Líf og list, lifði ég og hrærð-
ist í list og í heimi listamanna,
varð gegnsósa í því andrúms-
lofti. — Af erlendum málurum
er ég hrifinn af frönsku im-
pressionistunum svo og nútíma
expressionistunum, svo sem Ma
tisse, sem ég hef ef til vill
hvað mest dálæti á, ítalanum
Modigliani — konumyndunum
— Chagall, Picasso, Bretanum
Turner, Munch og af íslenzk-
um Mugg og Kjarval. — Mað
ur lærir ótrúlega mikið af því
að stúdera þessa meistara.
— Það sem ég leitast við að
sýna er fegurðin fegurðin í til-
verunni, hún birtist í mörgum
myndum. Mér dytti aldrei í
hug að mála ljótleikann —
nema sem andstæðu við feg.
urðina. Hérna er t. d. mynd.
Ljómun heitir hún. — Þar eru
börnin þrjú, Landakotskirkja,
en á himni skín stjarna — jóla
sfjarnan? — og stráir geislum
sínum yfir láð.
— Ég er að hugsa um að
láta gera jólakort af henni.
Þessi heitir á hinn bóginn
14 29. ágúst 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Heilinn f boxaranum Cassiusi
Clay, máluð á íþróttasíðu Mogg
ans, ég var enn við Vísi þá!
Hann er að vísu ekki sem frýni
legastur, en honum er kannski
ekki alls varnað samt!
— Og þessi litla mynd heit-
ir Bakkus, hún var á sýning-
unni síðast, en seldist ekki,
þótti dýr. Ójá, Bákkus er nokk
uð dýr, segir Steingrímur og
glottir við.
— Landslagsmyndin hérna,
Heim að höfuðkirkjunni, er dá-
lítið einkenni-legt sambland af
áhrifum að norðan og sunnan,
víðáttan gæti verið Rangár-
vellimir — Oddi? —, en gróð-
urinn og fjöllin bera ósvikinn,
norðlenzkan keim. Og svo er
hérna attribútið mitt, lampi
með andlit, hann fylgir mér á
hverja sýningu, mér líður allt-
af vel, þegar ég er búinn að
kveikja á honum. — Þetta er
mystiskur lampi með prími-
tívan svip, gæti verið afrískur
svertingjaguð.
— Málaralistin veitir manni
óskaplega mikið. — Hún étur
mann í vissum skilningi, en
gefur þeim mun meira í stað.
inn. En maður verður að hafa
frið — bæði næði og innri sál
arró, annírs kemst ekki á þetta
samspil tilfinninga og skyn-
semi — balance — sem er
nauðsynlegt allri listiðkun á-
samt vissri spennu og sköpun-
arólgu.
Nú er Steingrímur farinn að
ókyrrast og líta á klukkuna, því
að í mörg horn er að lita og
mörgu ólokið, áður en hann
heldur norður. — Á leiðinni
niður fræðir liann okkur á því
að fyrir jólin sé væntanleg eft
ir hann bók, „afrakstur síð-
ustu 7 ára“. — Að svo mæltu
kveður hann okkur úti- á hlaði
að góðum og gömlum norð-
lenzkum sið.
Arabar
Framhald af bls. 3.
danska tillögu, sem miðar að því,
að bundinn verði éndi á stríðið í
Jemen. Forsætisráðiherra Súdan,
Mohammed Ahmed Mahgoub, á
að taka þátt í þessum umræðum.
Síðari fréttir. 1 kvöld var víst,
að fjórir af 13 þjóðarleiðtogum
Araba mundu ekki korna til fund
arins. Þeir eru þjóðhöfðingjar
M'arokkó, Túnis, Libyu og Alsír.
Alþýðublaðið
óskar að ráða 2 drengi til sendiferða nú þegar.
Skilyrði að þeir hafi reiðhjól til umráða.
Uppl. hjá afgreiðslu blaðsins að Hverfisgötu
8-10.
Keflavík Keflavík
Börn óskast til að bera blaðið til áskrifenda í
Keflavík.
Talið við afgreiðsluna. — Sími 1122.
Alþýðublaðið.
Móffir okkar, tengdamóðir og amma,
SIGURBÁRA D. ÁRNADÓTTIR,
frá Saurbæ,
andaðist á Landspítalanum 28. ágúst.
Eyjólfur Einarsson.
Vilhelmína Einarsdóttir.
Kjartan Iljálmarsson og barnabörn.