Alþýðublaðið - 29.08.1967, Blaðsíða 16
Burt meö alla kumbalda
Húrra, bravó. Nú líkar mér lífið.
Svona á að hafa þetta. Loksins
er kominn verulegur skriður á
að rífa alla iþessa gömlu kumb-
alda, sem bærinn ihefur verið full
ur af á undanförnum árum og
Hiafa verið öllum framfarasinnuð-
um mönnum þyrnir í augum. Nú
ætlar Seðlabankinn að rífa Thors
Jensenshúsið við Fríkirkjuveg og
byggja þar járnbentar súlur með
glerumgjörð, og skulu menn
sanna, að þá verður eitthvað ann
að að sjá á Tjörninni á eftir. Svo
kemur væntanlega ráðhús úr
'gleri norðan við hana og raunar
út í hana.
Næsta skrefið verður svo að
selja Samvinnubankanum þennan
afgamla kumbalda, sem alþingi
Ihefur verið til húsa í og flytja
það í þjóðarhús úr gleri á Þing-
vöilum. Þar yrðu tvær myndar-
legar flugur slegnar í einu höggi:
hærinn losaður við afgamalt hús
og þingmenn settir á gras, eða a.
m. k. á hraun.
Svo er annað hús, sem endilega
þarf að hverfa, og það er hvar
raunar hluti af framtíðarplani
borgarinnar. Þetta er tukthúsið
við Skólavörðustíg, annar afgam-
ail kumbaldi, sem verið hefur
þyrnir í augum bæði vegfarenda
og þeim, sem inni hafa verið.
Og síðan er sjálfsagt að halda
áfram að rífa þessi gömlu tukt-
hús og taka fyrir tukthúsið við
Lækjartorg, þar sem stjórnarráð
íslands hefur verið til húsa. Það
er auðvitað ekki vanzalaust fram-
farasinnaðri þjóð að láta æðstu
stjóm landsins hírast í húsi frá
því fyrir aldamót, sem þar að
auki er ibyggt af dönskum. Nei,
allir íslendingar hljóta að geta
sameinazt um þá kröfu, að það
liús verði rifið og byggt voldugt
og verðugt hús yfir stjórnarráð-
ið, að sjálfsögðu úr ryðfríu stáli
og gleri.
Þegar þessu verkefni er lokið,
kemur svo að sjálfu sér að taka
til við Viðeyjarstofu. Það er auð
vitað ekkert vit í að láta svo gam
■alt og lélegt hús standa á næstum
tíu milljóna lóð. Nei, þarna þarf
að koma verulega virðulegt hús.
En það má með engu móti henda,
að það verði teiknað af erlendum
manni, því að sporin hræða. Ný-
lega var afhjúpað svo kallað nor-
rænt hús í Reykjavík og þá kom
í ljós, að það er svo sem ekkert
gler í húsinu, eða innréttingin.
Það er ekkert tekk eða palisander
í öllu húsinu heldur rétt og slétt
fura. Þetta hefst af því að vera
að fá útlenda til að teikna hús.
Nei, má ég þá heldur ibiðja um
hinn alíslenzka arkitekt sem sá
um að setja palisanderinn inman í
alþingishúsið. Það er sko maður,
sem veit hvað hann er að gera.
Það er heldur ekki vanzalaust
hve vel mönnum hefur tekizt að
gleyma enn einum gömlum kumb
alda hér í næsta nágrenni höfuð-
borgarinnar og verður að vinna
bráðan bug að Iþví að þar verði
um bætt. Hér er um að ræða af-
gamalt hús á Seltjamanesi, sem
heitir Nesstofa, eldgamalt hús,
sem að sjálfsögðu er ekki í nokkr
u samræmi við umhverfi sitt
lengur. Nei, þarna ætti að leyfa
Búnaðarbankanum að byggja sér
stórt útibú samkvæmt kröfum tím
ans, því að þarna er hálfgerð sveit
í kringum ennþá.
Loks ber að geta eins gamals
húss, sem sjálfsagt er að rífa,
enda er tími til komin, að jafn-
framsækin þjóð og íslendingar
sýni fram á, að hún hafi ráð á að
byggja sómasamlega yfir sinn
eigin forseta. Ég á að sjálfsögðu
við Bessastaði. Oft hefur maður
nú roðnað af að þurfa að segja
erlendum vinum sínum frá því,
að forsetiim þurfi að ihírast í ein
hverju elzta húsi landsins. Auð-
vitað má forsetinn ekki búa í lé-
legra húsi en þeir þegnar hans,
sem bezt búa. Þarf að vinda bráð
an bug á þvl að forsetinn fái vel
byggt og traust hús með stórum
gluggum gegnt suðri, bátaskýli og
öðru því, sem landsins ibeztu syn-
ir telja nú nauðsynlegt og sjálf
sagt af lífsþægindum.
Ég ætla nú ekki að hafa þessa
upptalningu lengri, en langar til
að benda Seðlabankanum á, að
norðan við Tjörnina, út með
Lækjargötunni í átt að Nordals-
íshúsi, á bankinn lóð. Ekki s*ro
að skilja, að líklegt sé, að stjórn-
endur bankans ihafi gleymt þeirri
eign sinni, því að sjálfsagt skipta
þeir stundum við þá á bílastöð,
sem aðsetur hefur á lóðinni, en
hins vegar fyndist mér að þeir
ættu að láta mála timburhjallinn,
isem á lóðinni stendur. Liturinn
gæti verið blóðrauður, ef þeir
væru í byltingarham, eða sauð-
svartur, ef þeir vaéru sálrænir
þann daginn.
FUNDI utanríkisráðherranna
nrun ljúka snemma í dasr, eft
ir því sem dr. Gunnar G.
Schram, ráðunautur utanrík-
isráðuneytisins, sagði í stuttu
ríðtali í gær. Dr. Gunnar sit-
ur fundinn fyrir íslanda
hönd auk utanríkisráftherra
•g- Agnars Klcmenz Jónssou-
ar ráðuneytisstjóra í utau-
ríkisráðuneytinu.
Vísir, 23. ágúst.
Ja, nú þykir mér skörin
vera fartn að færast upp í
bekkinn. í minu ungdæmi
var þetta nú kallað að hafa
hausavíxl á hlutunum.
Þetta er afleiðingin af þvi
sem koma skal, eins og gæ-
inn í stjórnarráðinu sagði. .
Þetta er sjálfsagt eftir regl
unni — þeir síðustu verða
fyrstir, og hinir fyrstu skulu
vera síðastir — Sælir eru
hógværir.