Alþýðublaðið - 01.10.1967, Page 16
<Stm/uie£aqt uM
ATVINNULEIKARA Á ÞING
Liðin vika hef-
ur um margt
verið mjög at-
hyglisverð, og
hafa fjölmargir
viðburðir- ver-
ið skráðir á
síður dagblað-
anna ti1 a ð
varðveitast handa fróðleiksfúsum
afkomendum okkar sem eksem-
plar um það sem efst var á baugi
hjá' þjóðinni þessa sjö daga og
nætur.
f upphafi vikunnar bar einna
Iiæst þá frétt, að ungur og snar-
ráður bankagjaldkeri hefði upp
á eigin spýtur handsamað mann,
sem vildi vildi skipta á einu ó-
nýtu blaði og mörgum ónýtum.
Fylgdi það sögunni, að fólk, sem
átti leið þar fram hjá liafi látið
stympingar þeirra tvímenninga
alveg afskiptalausar. Finnum við
á þeirri framkomu þá eina skýr-
ingu, að fólkið hafi álitið banka-
manninn útsendara Félags skóla-
stjóra og væri þetta nýjasta og
eina hugsanlega leiðin til að.
bæta úr kennaraskorti þeim,
sem er að gera aumingja skóla-
stjórana gráhærða, a.m.k. þá sem
eru ekki vaxnir upp úr hárinu.
Þá vakti ekki svo litla athygli
sú krafa skólastjórafélagsins, að
reka mætti þá kennara út á gadd-
inn, sem ekki stæðu í stöðu sinni.
Hins vegar kom það ekki fram í
álitsgerð þeirra fyrir kröfunni,
hvort fela ætti nemendum þetta
vald á hendur, en þó teljum við
að svo hljóti að vera, þar sem
engir vita betur skil á hæfni
blessaðra kcnnaranna, - nema ef
vera skyldi mæðurnar.
Af erlendum vet'röngum, eins
og til dæmis málfræðingur út-
varpsins mundi ekki segja, —
þykja okkur þær fréttir merk-
astar, að leikarar séu á hraðri
leið með að taka að sér hlutverk
Stjórnmálamannanna. Þykir okkur
hetta spor i rétta átt, enda ekki
aðrir liæfari til að fara með að-
SKOPMYND
VIKUNAR
Nú virðist Stalín vera farinn að
fá uppreisn æru austur í Sovét,
en I>á vaknar auðvitað spurning-
m: Hvað á að hafa hann stóran
að þessu sinni?
alhluverkin í þeirri tragikómedíu
verið sviðsett hjá öllum þjóðum
svo lengi sem menn muna.
Nú vill svo vel til, að hér á
landi eru aðeins tvö leikhús sem
eitthvað kveður að, Leikfélag
Reykjavíkur og Þjóðleikhúsið,
því teljum við, að hér sé alveg
gullvægt tækifæri til að koma á
því tveggja flokka kerfi, sem svo
margir hafa talið einu lausnina á
vandamálum okkar. Höfum við
reyndar lúmskan grun um. að
Leikfélag Reykjavíkur hafi séð að
hverju stefndi og því efnt til
hinnar miklu atkvæðagöngu og
sirkushalds í vikunni. Er það ekki
í fyrsta skipti, sem Leikfélagið
ÉG sé ekki betur en nú verði
að hætta við að taka upp
hægri handar aksturinn. Ekki
getum við farið að taka Svía
til fyrirmyndar í því efni, frek
ar en öðrum.
sem stjórnmál nefnist og hefur
skýtur Þjóðleikhúsinu ref fyrir
rass. Já, við Baksíðumenn lýsum
yfir eindregnum stuðningi okkar
við þessa þróun, enda ekki eðli-
legt, að á þingi sitji 60 ómennt-
aðir leikarar, þegar þjóð vor á
nægilega marga og vel mennt-
aða leikara til að leysa þá af
hólmi. Dettur til dæmis nokkru
ykkar það í hug, að einhver okk-
ar ágætu leikara hefði látið hafa
það eftir sér í alvöru, að nokkrar
frostnætur hefðu spaj|að ríkis-
sjóði milljónatugi? Vissulega
ekki, hann hefði verið talinn
gaga. En þetta var forsíðufréttin
í einu dagblaðanna nú í vikunni,
dagblaði, sem vill láta taka stjórn-
málaskrif sín alvarlega. Samkvæim
þessari kenningu gætum við á-
lyktað svo, að slatti af Kötlugos-
um og jökulhlaupum með stór-
brotnum jarðskjálftum til bragð-
bætis væri það sem þjóðin þarfn-
aðist til að hér kæmist á legg það
velferðarríki, sem við öll bíðum
eftir. ^
Að öðrum umtalsverðum atburð-
um, sem áttu sér stað síðari hluta
vikunnar og þótu prenthæfir, má
geta þess, að Loftleiðir neituðu
að fljúga eftir nótum SAS og
hrútur hengdi sig í Hafnarfirði.
Það er ekkert við þessu að gera. Vatnið var búið fyrr en eldurinn.
Stí spaki segir...
Vísindin liafa þotið svo ört á-
fram, að skynsemin er oröin
langt á eftir þeim.
/