Alþýðublaðið - 01.06.1968, Qupperneq 8
'PfvítasutifTubfað
StlELL - SMURSTÖÐ
AICÖREYRI
er við Tryggvabraut, sími 96-21325.
SMYRJUM — ÞVOUM — BÓNUM — BÆTUM
Við þvoum og bónum með nýjum háþrýstitækjum
en handbónum einnig ef þess er óskað.
Opið mánud., miðvikud. og föstud, frá 8-22.
Opið þriðjud. og fimmtud. frá 8-19
Opið á laugardögum frá 8 18.
Opið oft á sunnudögum.
SHELL-SMURSTÖÐIN blasir við augum þegar komið er
inn í bæinn að vostan.
FÖLICSBIFREIÐADEKK
á flestar tegundir bifreiffa
J EPPAEIG EN DU R
grófir og fínmunstraðir hjólbarðar fyrir liggjandi á
BRÖNCO WILLYS
LANDROVER - GIPSY
og SKOUT JEPPA
Sendum í póstkröfu um allt land.
HJófbarðaverkstæði
SI6URJÓNS GÍSIASONAR
Laugavegi 171 — Sími 15508
ekiff inn frá Hátúni.
foiiqsgla
SUÐMUNDAR
Bergþórugötu 3.
Símar 19032 og 20070.
Fjórðungsmót
hestamanna
Á VEGUM Búnaðarfélags ísl. og Landssambands hestamanna verð-
ur haldið fjórðungsmót á Austurlandi dagana 27. og 28. júlí á
sumri komanda.
Eru það hestamannafélögin á Austurlandi, sem að mótinu standa,
hestamannafélgið Freyfaxi á Fljótdalshéraði sér um framkvæmd
mótsins nú í þriðja sinn, en form. Freyfaxa er hinn þekkti hesta- og
h'rossaræktarmaður Pétur Jónsson Egilsstöðum.
Félagið hefur kosið undirbún
ingsnefnd, sem starfa mun í sam
vinnu við stjórn félagsins að
móti þessu, en ef'cirtaldir menn
skipa nefndina ásamt form. fé-
lagsins.
Jónas Magnússon, Uppsölum.
Gúnnar Egilson, Egilsstaðakaupt.
Jón Bergsson, Ketilstöðum.
Ástráður Magnússon, Egilsst.
kaupt.
Sigfús Þorsteinsson, Egilsst. k.
t., en Sigfús er jafnframt formað
ur nefndarinnar.
Undirbúningur á vegum nefnd
arinnar hófst s. 1. sumar með
byggingu sýningarsvæðis og
hlaupabrauta örskammt frá fé-
lagsheimilinu Iðavöllum, hvar
Freyfaxi hefur haslað sér völl og
fengið land til umráða.
Þetta land var brotið, grætt og
girt, gefur hlaupabrautin mögu
lerka á allt að 1000 m. hlaupi á
sem næst beinni braut, en sýning
arhringurinn ag sýningarsvæðið
sjálft er við suðurenda brautar
innar undir skemmtilegum börð
um, sem gefa hið ákjósanlegasta
útsýni yfir allt, sem fram fer á
svæðinu.
Með þessum framkvæmdum
er Freyfaxi einnig að búa sér í
liaginn fyrir ókomin ár því á
Vallanesinu og bökkum Gríms-
ár eru hin ákjósanlegustu skil-
yrði til hestamennsku og verður
þarna framtíðarathafnasvæði
hestamanna á Fljótdalshéraði,
jafnframt í gullfallegu umhverfi.
Til að koma þessu öllu í kring
þarf meira fjármagn, en lítið fé
lag hefur yfir að ráða, hefur því
verið efnt til happdrættis í fjár
öflunarskyni og hestamannafé-
lögum víðsvegar um landið send
ir nokkrir miðar til sölu, er það
von félagsins og ósk að þau
bregðist vel við þeirri málaleit
an.
Aðalvinningur er 7 vetra gæð
ingur, en hinir vinningarnir
trippi og folald, dregið verður
að kveldi seinni mótsdags.
Á mótinu verða sýnd kynbóta
hross, stóðhestar og hryssur, þá
verður góðhestakeppni og kapp
reiðar, keppt verður í eftirtöld-
um hlaupum:
250 m. 300 m. 800 m og 250 m.
Pétur Jónsson.
skeiði, verðlaun verða há t. d. kr.
10,000.00 1. verðlaun í 800 m. og
250 m. skeið.
Unnnið er að því að mótið
verði sem skemmtilegast fyrir
unga sem aldna og aðstaða verð
ur líka hin ákjósanlegasta fyrir
aðkomumenn og hross, tjald
stæði á bökkum Grímsár, hesta
geymsluhólf og hestaverðir, veit
ingasala og félagsheimilið Iða-
vellir verður til þjónustu fyrir
mótsgesti.
Þess ber eins að geta, að hin
ir landsfrægu Gautar frá Siglu-
firði skemmta og leika fyrir
dansi mótsdagana.
BARNALEIKTÆKI
tyrir allskonar leiksvœði barna,
bocÓi við sambýlishús, sumarbústaði,
leikvelli o.11.
ÍÞRÓTTATÆKI
fyrir íþróttasali og íþróttavelli.
Leitib upplýsinga
Vélaverkstœði
BERNHARÐS HANNÍSSONAR sf.
Suðurlandsbraut 12, Reykjavík
Slmi 35810
m