Dagur - 10.07.1924, Blaðsíða 1

Dagur - 10.07.1924, Blaðsíða 1
DAGUR Keinur úf á hverjum flmtudegi, Kostar kr. 6.00 árg. Ojalddagi fyrlr 1. júlí. Innhelmtuna annast Arnl Jóhannsson í Kaupfél, Eyf. VII. ár. Akureyrí, 10. júlí 1924. AFOREIÐSLAN er hji Jónl J>. I>ór. Norðorgðtu 3. Talsiml H2 Uppsðgn, hundln vlð áramðt sé komln tll afgretðslumanns fyrlr 1. des. j 27. blaö Mega bændur eiga blöð? Álit Valtýs „áveitufræðings“. IV. Vegna áöur talinna öröugleika hefir samvinnublöðunum ekki nema aö nokkru leyti tekist, að ná því marki, er þau hafa sett sér: — að koma fuflu lagi á innheimtu bfaða- gjaldanna. Bændur landsins hafa þvi um tvent að veija: að eiga á hættu að engin blöð haldi uppi vörn og sókn i málefnum landbúnaðarins og sveitamenningarinnar, ellegar að halda viö eftir þörfum hóflegri og sparsamlegri blaðaútgáfu, þar til blöðin hafa náð því marki, að bera sig sjálf, sem ætla má að verði í náinni framtíö. Sfðasti aðaifundur Sambandsins, þessa víðtækasta skipuiags bænda, sem nú hefir náð fótfestu i öllum landshlutum, hefir sýnt, að hann skildi ástæðurnar og veikst á réttan hátt við þessari hlið á þörfum bænda- stéttarinnan þetta viðvik hefir komiö mjög óþægilega við kaun andstæð- inganna, eins og vænta mátti. Upp af þvf er vaxin grein Valtýs «áveitu- fræöings" í Mbl. 21. júni s. I., sem nú skal litiö eitt athuguð. Oreinin er í sjálfu sér næstum því alveg ónýt, iika irá sjónarmiði jafnvel skamsýnna og grunnfærinna andstæðinga okkar. En hún er við- leitni eftir þeim kröftum og hæfi- leikurn, sem til er að dreifa. Hún verður þvi að metast eftir viljanum fremur en verknaðurinn. Um Ieiö knýr hún næstum því, til þess að lita á höfundinn. Pær meginástæður liggja og til þeirrar nauðsynjar, að Valtýr hefir gerst hinn versti svikari Framsóknarflokksins. Valtýr er sonur Stefáns skólameist- ara Stefánssonar. Stefán er þjóökunn- ur maður, sem vann mjög þjóðnýtt starf í kenslu og vísindum. Hann átti mjög veigamikinn þátt f að leggja grundvöll að visandalegri rannsókn á gróðrarriki landsins (Flóra íslands). Honum var ræktun landsins og þekking á gróðri þess svo hugarhaldiö mál og svo hjart- fólgið, að enginn þáttur var jafn sterkur f lifi hans og störfum, enda beindi hann orku sinni i þá átt með slikum alhug, að telja má til hinna beztu fyrirmyndar. Son sinn, Valtý, setti Stefán til þeirra menta, er hann taldi, að helzt mættu veröa til áframhalds og þrifnaðar þessu hjartans máli hans. Stefán gerði þvi það, sem hann gat. Það er naumast annað hægt, en að finna til með honum dánura yfir þvf, að vonir hans um soninn skuli bregðast svo átakanlega, sem orðiö er. Pvi fylgir alt af nokkur sársauki, vegna fram- tíðarvonanna, þegar menn af góðu foreldri, gerast svo aumir ættlerar. Valtýr varð, fyrir tilstuðlun föður síns, áveitufræðingur, sá fyrsti, er þá nafnbót hefir hlotiö hér á landi. Bændur gerðu sér miklar vonir um hann. Forvigismenn Framsóknar- flokksins og samvinnufélaganna tóku hann upp á arma sina og veittu honum þá tiltrú, stuðning og við- urkenningu, sem unt var (Flóaáveit- an). Það gefur hugraynd um vald fjármunanna, sem áður var á minst, að þrátt fyrir aila þá örlagaþætti, sem að réttum rökum hefðu átt að binda Valtý við Framsóknarflokkinn ræktunarmálin, bændamenninguna, hefir hann nú á snöggan og óvænt- an hátt gerst liðhlaupi og yfirgefið ræktunarhugssjón föður sins, mál- efni bændanna, tiltrú velgerðamanns síns og samverkamanna sinna. Hann hefir nú gengið á málá hjá Fenger, Berléme og öðrum þeim útlending- um, er nú vilja gerast drottnar yfir þjóðarsálinni fslenzku. Og verkefrii hans er að ofsækja og niða Jónas frá Hriflu, alpm., Samvinnublöðin og þann stjórnmálafiokk, er ber málefni bænda og sveitanna sérstaklega fyrir brjósti og um leið þann fiokk, er skilur gerst og beitir sér einkum fyrir framkvæmdum á hugsjóna- raálum föður hans. Það gæti orðið dálítið merkilegt rannsóknarefni fyrir þá, sem vildu gera sér far um að skilja slikt, hvað hefir getað komið Valtý, til þess að láta sér hugkvæmast, að hann væri fær um, að ráða stjórnmáialegum niöurlögum Jónasar frá Hriflu. Fyrst og fremst hefir hann stórkostlega mismetið sitt eigið gáfnafar. I öðru lagi sést honura yfir það, að æska landsins, einkum í sveitunum og um leið sú kjarnbezta, sprettur ár- tega upp til fylgdar við þennan langmerkasta hugsjónamann þjóðar- innaíT á siðustu áratugum. Maður, sem leigir sig aðallega, til þess aö níða hann, fær eins og nú er háttað engu áorka. Til þess þyrfti Jónasi að fara stórkostlega aftur, en þjóðin að vaxa að hugsjónum. En Jónas er einn af þeirri tegund manna, sem verða alt af fremstir í flokki leiðtoga sinnar þjóðar. Ættlerar eins og Valtý, sem skortir líka hæfileika, til þess að rita, svo viöunanlegt geti talist, er það ofætlun að ætla sér að vinna honum geig. Þess vegna verður sú íllkvitnislega grein Valtýs, sem um er getið, og sem er einkum stefnt gegn Jónasi frá Hrifiu, áhrifalaus, Viö grein Valtýs er þó rétt að gera eftirfarandi athugasemdir: 1. Valtýr segir það vísvitandi ósatt, að ritstjórar samvinnublaðanna hafi borið upp vandkvæði sfn á Sambandsfundinum. Bóndi einn átti frumkvæði að og gerðist flutnings- maður þessa tnáls á fundinum. Bóndi sá mun vera í hópi þeirra manna, er hafa fyrir löngu gert sér grein fyrir því, að bændur landsins, bjarg- vættir sveitamenningarinnar, geta ekki verið án biaða. Hann mun vera nógu greindur, til þess að skilja, að engir aðrir en bændur muni sjá fyrir því, að slik málgögn séu til, og nógu djarfur, til að krefjast þess, að þeir geri það. 2. Þá reynir Valtýr að draga dár að tilraunum samvinnublaðanna i þá átt að koma skipulagi á innheimtu blaðagjaldanna og útrýma gamalli óskilsemi manna við biöðin. Hann hefir enga hugmynd um, hversu örðugt það er, að sjá borgið blaða- fyrirtæki hér á landi. Hann er leigð- ur tii að skrifa nfð og skammir um vissan mann og vissan flokk manna. Honum eru rétt upp f hendurnar hærri laun, en Búnaðarfélag íslands var fært um aö gjalda. ‘ Þessi laun fær hann greidd, þar til eigendum Mbl. verður Ijóst, aö hann er ekki hafandi við skriftirnar og honum verður fylgt út fyrir skrifstofudyrnar. Hann getur því i fullu ábyrgðar- leysi nítt og hæðst að öllu, sem miðar til bóta, eins og hann er lítill maður til, þar til augljóst verð- ur, að hann er líka of litiil fyrir núverandi húsbændur hans. 3. Umrædd tillaga var á, Sam- bandsfundinum samþykt, eins og áður er sagt, mótatkvæöalaust og með því nær öllum atkvæðum. Val- týr skýrir svo frá, að hún hafi verið samþykt með »eins atkvæðismun". Valtýr er leigöur til að blekkja og segja ósatt, þegar það þykir við eiga, og frá sjónarmiði Berlémes, Fengers & Co. er vitanlega nauð- synlegt að segja vísvitandi ósatt um félagsskap bænda og blöð þeirra, til þess að ófrægja hvorttveggja. Æðardúi) kaupir /ón Stefánsson. Strandgötu 35. Sími 23. Vitanlega eru nobkrir örðugleikar á því, fyrir eigendur blaðsins, að finna menn til slfkra starfa; — þó hefir það nú tekist um sinn. 4. Valtýr telur það ekki heillaráð að bændur bindist samtökum um, að út komi hér á landi blað, sem sé „stjórnað af manni, er ómótmæl- anlega er frumkvöðull félagsskapar, sem stendur á beinum svikaáðum* við efnalegt sjálfstæði og sjálfsbjörg þjóðarinnar". í skýringargrein neð- anmáls er þess getið, að hér sé átt við félagið, sem sendi Jón Bach til Englands í fyrra, en það var „Sjó- mannafélagið». Áldrei hefir heyrst að Jónas hafi haft ein eða önnur af- skifti af þeim félagsskap. Sé Vallýr hér að seilast Iengra eftir einhverju, er hann telur sínum mönnum henta sem níð og rógur og vilji enn hanga á gömlum og slitnum brigzl- yrðum um þátttöku Jónasar f verka- manna samtökum, er rétt að benda honum á, að slikt hefir nú mist gildi sitt. Jónas hefir f Tfmanum tekið skýra afstöðu til jafnaðarmann- anna islenzku. Bændur Iandsins vita það nú orðið yfirleitt, að maður, sem hefir átt höfuðþáttinn i, að byggja upp stjórnmálaflokk þeirra og höfuðmálgagn hans. veitt sam- vinnufræöslu þeirra forstöðu í ræðu, riti og ketislu, verið einn af nánustu samverkamönnum Hallgrfms Krist- inssonar og fjölda annara fremstu manna bændastéttarinnar, og hefir langtfmum saman unnið dag og nótt í þágu þessa skipulags og fram- faraviðleitni, án þess að spyrja um kaup; — hann situr ekki á svikráð- um við samtfð sfna. Það er höfuð- skömm, að aukvisi ættar sinnar og liðhlaupinn Valtýr leyfi sér að bera fram þau brigzlyrði. V. Vitanlega verður ekki litið á það með neinni' vinsemd af hálfu Valtýs og húsbænda hans, að það skuli nú vera betur trygt en áður, að einhverjir sitji í andófi gegn þeim straumi, er stendur af athöfnum óg * Hingað til htfir islenzk raálvenja veriðs »að sitja á syikráðum*.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.