Dagur - 12.02.1918, Blaðsíða 1

Dagur - 12.02.1918, Blaðsíða 1
DAGUR kemur úí tvisvar í mán- ’uði og kostar 2 kr. árg. Gjaldd. 1. júlí. DAGtni ^K# Ritstjóri: Ingimar Eydal. AFGREIÐSLU- og innheimtumaður: Ráðhússtíg 4. Lárus J. Rist. Talsími 31. I. ár. 777 lesendanna. Til skamms tíma hafa íslendingar skipast í stjórnmálaflokka eftir af- stöðu þeirra til deilumálanna við Dani. Á þeim dögum stóðu sam- bandsmál og stjórnarskrármál efst á blaði hjá forgöngumönnum flokk- anna. Á þessu hefir orðið breyting á allra síðustu árum. Þó að gömlu flokkanöfnin sjeu enn við líði.þá eru þau ekki annað en dauður bókstaf- ur, er enga þýðingu hefir fyrir stjórnmálalífið í landinu. Gömlu deilumálin eru úr sögunni, að minsta kosti fyrst um sinn. Fyrir rás viðburðanna er það verslunarmálið í víðustu merkingu, sem öðrum málum frernur er orðið að þungamiðju í ræðu og riti. Pað mál sýnist ætla að verða grundvöll- ur nýrrar flokkaskipunar í landinu, þó enn sjeu þeir ftokkar ekki form- lega fastir. Að nokkru leyti er það styrjöld- in mikla, sem þessu veldur. Lands- verslunin, þetta nauðsynlega bráða- birgða fyrirkomulag, er til varð að grípa á þessum neyðartímum, er ein af afleiðingum ófriðarins. í raun og veru eru ekki nema tveir flokkar hjer í Iandi nú sem stendur. Annarsvegar eru flestir kaupmenn og þeirra fylgifiskar í skoðunum, sem er illa við lands- verslunina og í nöp við samvinnu- stefnuna. Hinumegin eru þeir, er telja lands- verslunina þjóðarnauðsyn, meðan stríðinu ekki slotar, og þeir sem unna samvinnuhugsjóninni. Pessar tvær ólíku hugarstefnur, Akureyri 12. febrúar 1918. sem hjer hefir verið vikið að, setja mót sitt á meðferð og framkvæmdir flestra mála á þessum ttmum, þó þau heyri ekki beint undir verslun- armálið. Má þar til nefna dýrtíðar- ráðstafanir og margt fleira. Einhvernveginn hefir það atvik- ast þannig, að flest blöðin hafa hneigst til fylgis við kaupmanna- stefnuna. Par á meðal eru bæði Akureyrarblöðin. Ýmsir áhugasamir menn hjer norðanlands, sem ekki geta felt sig við hugsunarhátt kaupmannasinna, hafa fundið sárt til þess, hve baga- legt það væri að eiga ekki ráð á blaði hjer á Akureyri, er þeir gætu birt skoðanir sínar í. Hefir þeim fundist þeir stæðu varnarlausir gegn árásum á stefnu þá, er þeir aðhyll- ast. Samtök hafa myndast í því skyni að ráða bót á þessu. Árangur þeirra samtaka er blað það, er hér birtist Pað er ekki litlum vandkvæðum bundið að ráðast í útgáfu blaðs á þessum tímum. Verðfall peninganna kemur niður á blöðunum ekki síð- ur en annarsstaðar. Pappír og prent- un hafa stigið gríðarlega í verði eins og vænta má. Til þess að reisa sjer ekki hurðarás um öxl, hefir það ráð verið tekið að láta blaðið fyrst um sinn koma út á hálfsmánaðar fresti og hafa það í litlu formi. Megn pappírsskortur veldur þó ekki minstu hjer um. Ganga má að því vísu, að margir muni meðal annars finna það að þessu blaði, hvað útgáfa þess sje í smáum stíl. En vel eru þeir sömu beðnir að athuga erfið- leikana, sem hjer er drepið á. Beðnir eru menn líka að minnast blaðanna, er út voru gefin hjer á landi fyrir 1. blað. ekki lengri tíma en 20 tii 30 árum. Pá voru þau ekki mikil fyrirferðar og ljetu menn sjer þó nægja. Menn verða að temja sjer nægjusemi nú á þessum erfiðu tímum. Nokkur huggun ætti það líka að vera les- endum blaðsins, að einhvernveginn leg9t það í aðstandendur þess, að kaupmenn finni ekki hjá sér sterka hvöt til að styðja það með auglýs- ingum, svo að rúm þess mun að mestu upp tekið af almennu Iesmáli. Með þessu er þó alls ekki gefið í skyn, að tilgangur þessa blaðs sje sá að sýna kaupmannastjettinni neinn fjandskap, því það vill ræða hvert mál ofsalaust, en þó með fullri hrein- skilni og einurð, hver sem í hlut á. Tekið skal það hjer fram, að svo virðist sem landstjórn sú, er nú sit- ur að völdum, verði á stundum fyrir mjög ónærgætnum, ómildum og jafnvel algerlega röngum dómum og ásökunum úr ýmsum áttum, fyrir framkvæmdir sínar og ráðstafanir. Petta verður að teljast illa farið, og mun því blað þetta bera hönd fyrir höfuð stjórnarinnar, þegar hún er höfð fyrir rangri sök eða gerðir hennar rangfærðar eða lagðar út á verri veg. En átalið mun á hinn bóginn það, er henni ferst óhönd- ulega. Að öðru leyti skal hjer ekki fjöl- yrt um stefnu blaðsins. Hún kemur smásaman í Ijós í greinum þeim, er blaðið flytur. Lesendum mun líka skiljast af því, sem nú er fram tek- ið, hver stefnan muni vera um það, er flestum þykir mestu máli skifta nú sem stendur. Pað gefur að skilja, að rúm blaðs- ins leyfir ekki að flytja langar rit-

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.