Dagur - 14.06.1928, Page 3
20. tbl.
DAGUB
103
Bændur og bæjarbúar.
Til hægðarauka fyrir þá, sem vilja fara út í sveitirnar um
helgar og í bæinn, verða fyrst um sinn fastar ferðir sem hér
greinir: Frá B. S. A. á hverju Laugar- og Sunnudagskvöldi kl.
8 fram að Hleiðargarði og vestur á Þelamörk (fram undir Bægisá)
og frá sömu stöðum til baka að vestan kl. 9 og frá Hleiðargarði
kl. 9,10 báða dagana. Sætið er kr. 2.00 vestur og kr. 2.50 fram.
eftir aðra leið, og styttri vegalengdir eftir hlutföllum. Til ferðanna
verða hafðar 1. flokks Buick bifreiðar.
Bifreiðastöð Akureyrar.
Kr. Kristjánsson.
Leiksýningar
Haralds Björnssonar.
Haraldur Björnsson leikari fór
utan 3. þ. m. eftir að hafa starfað
hér heima að leiksýningum öy2
mánuð. Mátti sá tími heita einn ó-
slitinn sprettur fyrir hann. Er þetta
í fyrsta sinni að íslenzkur sérfræð-
ingur í leiklist ferðast um landið í
þágu hennar. Er þetta allmikill við-
burður í sögu íslenzkrar leiklistar, ■
og óhætt má fullyrða að þessi för H.
B. hafi verulega þýðingu fyrir fram-
þróun listarinnar í landi hér, því
leiksýningar hans hafa vakið eftir-
tekt almennings og örfað og ýtt við
hálfsofandi leikkröftum hér heima.
Hér á Akureyri sýndi H. B.
Galdra-Loft og Dauða Natans Ket-
ilssonar. Á ísafirði sýndi hann Lén-
harð fógeta , Gjaldþrotið (eftir
Björnson) og síðast Galdra-Loft,
og í Reykjavík Villiöndina, á Ibsens-
hátfðinni. Eru þetta samtals 43 leik-
sýningar, eða til jafnaðar nálega 7
sýningar mánaðarlega. Til merkis
um dugnað H. B. má geta þess, að
hann æfði Galdra-Loft á ísafirði á
aðeins 10 dögum, og þótti þó leik-
urinn takast injög vel.
Auk leiksýninganna hefir Harald-
ur haft upplestur 6 sinnum á þessuin
tíma og enn gekkst hann fyrir að
koma á fót hátíð Jóh. Sigurjónsson-
ar hér á Akureyri.
Af framangreindu er það ljóst, að
H. B. hefir ekki legið á liði sínu
þann tíina, sem hann hefir starfað
hér heima, og er þess að vænta að
ísland eigi eftir að njóta óskiftra
krafta hans og hæfileika í þjónustu
leiklistarinnar.
------o-------
Á víðavangi.
Lítilmenska ísl.-ritstjórans.
Á öðrum stað hér í blaðinu birt-
ist yfirlýsing frá stjórn Útgáfufé-
lags Dags, út af þvaðri ritstjóra ísl.
uin brottför Þórólfs Sigurðssonar
frá Degi. Yfirlýsing þessi, sem jafn-
framt er leiðrétting á skrökum
Tryggva ritstjóra, átti upphaflega
að birtast í íslendingi sem eðlilegt
var, en ritstjórinn reyndist þá það
lítilmenni að synja henni rúms í
blaðinu, kvaðst ófáanlegur til þess
að birta hana, nema hann yrði
knúður þar til með dómi, en þeir,
sem að yfirlýsingunni standa, vildu
ekki hafa svo mikið við ritstj. að
beita á hann fógetaúrskurði; þess-
vegna flytur Dagur yfirlýsinguna.
En hversvegna fékst yfirlýsingin
ekki birt í Islendingi?
Svarið liggur beint við:,
Það er af því, að yfirlýsingin af-
sannar og gerir að engu ófrægingu
um einn af andstæðingum ihaldsins.
Slík blaðmenska dæmir sig sjálf.
ófrumlegur.
Ritstj. ísl. kallaði brottför Þórólfs
Sigurðssonar úr bænum »sorp-
hreinsun«. Ekki er ritstjórinn frum-
legur. Kunnugir vita, að þetta er
eftirstæling þess, sem einn mesti
gáfumaður þjóðarinnar sagði, þegar
G. Tr. sté á skipsfjöl og fór til
Ameríku. Þá fórust honum svo orð:
»Þetta var landhreinsun«.
Bregða mundi þeim manni í brún,
ef hann mætti nú líta upp úr gröf
sinni og sjá óhroðann hafa verið
gerðan að innflutningsvöru.
------o—'----
Simskeyti.
Rvík 13. Júní.
Kingsbay: Vissa er fengin fyrir
þvi, að pólfarinn Nobile hefir sent
loftskeyti til ítalska skipsins Citta
di Milano, sem er við Svalbarða.
Hann hefir lent loítskipi sínu 25 km.
austan við Foyneyju, en 45 km.
norðan við Svalbarða. Loftskipið er
e)'ðilagt. Síðustu fréttir af Nobile
segja, að förunautar hans hafi skift
sér í þrjá flokka. Nobile fylgir aðal-
flokknum; er það sjö manna flokk-
ur. Tveir þeirra fótbrotnuðu í lend-
ingunni. Annar flokkurinn er 30 krn.
austan við Nobileflokkinn, en sá
þriðji er lagður af stað til lands.
Flestir eru kalnir á höndum og fót-
um. Matvælaforðinn er orðinn HtiII,
og ísinn næstum ófær, því liann er á
stöðugu reki.
Moskwa: Rússastjórn hefir á-
kveðið að senda stærsta ísbrjót sinn
til hjálpar Nobile og mönnum hans.
Áttunda þing Alþýðusambands
íslands stendur yfir. Á dagskrá
þingsins er meðal annars frumvarp
um stjórnarskrá Alþýðuflokksins.
Borgbjerg ritstjóri flutti ræðu við
setning Alþýðusambandsþingsins.
----o————
17. júní og sundíþróttin.
»Enga að kunni íþrótt menn eru
þjóðarlýti« kvað Grímur Thomsen.
Allir vita, að sundíþróttin er ein-
liver hin fegursta, heilnæmasta og
nytsamasta íþrótt, sem menn geta
iðkað. Engir munu þó skilja þetta
betur en ungmennafélagar. Því var
það, að Ungmennafélag Akureyrar
átti frumkvæði að byggingu sund-
stæðis hér í bænum. Hefir félagið
fylgt sundmálinu frá byrjun og lagt
fram vinnu og peninga því til styrkt-
ar. Hefir sundlaugin smásaman tek-
ið endurbótum, en sá aðalgalli er
þó enn á henni, að vatnið i henni er
kalt og ekki seni geðslegast. Stend-
ur þetta sundíþróttinni og hollustu-
háttum bæjarbúa nokkuð fyrir þrif-
um. Vill fyrgreint félag ekki skiljast
við þetta mál, fyr en sundlaugin er
orðin svo úr garði gerð, að ungir og
gamlir geti iðkað þar sund jafnt
sumar sem vetur, en til þess þarf
auðvitað heita og yfirbygða sund-
laug. Til þess að þetta komist i
framkvæmd, þarf eðlilega mikið fé.
Ungmennafélagið hefir ákveðið að
beita kröftum sínum aðallega til
fjársöfnunar i þessum tilgangi. Á
síðasta sumri hélt félagið 17. Júní
hátíðlegan til fjársöfnunar fyrir
þetta mál. Fé því, sem þá safnaðist,
vai varið til rannsókna á heitri upp-
sprettulind í Glerárgili og til spreng-
inga við lindina. Á sunnudaginn
kemur (17. Júní), efnir félagið enn
til hatíðahalds og fé því, sem þá
safnast, á að verja til framhaldandi
rannsókna og enn frekari fram-
kvæmda, eftir því sem fé verður
fyrir höndum.
Akureyringar! Styðjið gott mál-
efni með öflugri þátttöku og höfð-
inglegri framkomu.
---:—o-------
F r éttir.
Dáncurdægur. Hinn 7. þ. m. andaðist
hér í bænum frú Guðný Marteinsdóttir,
kona Hallgríms Einarssonar mynda-
smiðs. Bar dauða hennar mjög skjótlega
að höndum; veiktist hún af krampa að
morgni þessa dags og var liðin að af-
líðandi nóni sama dag. Hún var 42 ára
að aldri, þrýðilega látin myndarkona.
Við lát hennar hafa 6 börn, öll á unga
aldri, orðið á bak að sjá ást og um-
hyggju móðurinnar. Hve þungan kross
ekkillinn hefir að bera, geta menn far-
ið nærri um.
Sama dag andaðist hér á sjúkrahús-
inu Oddur vélstjóri Ólafsson járnsmiðs
Jónatanssonar. Hann var maður í blóma
lífsins, skamt yfir tvítugt. Banameinið
var tæring.
Á Föstudaginn var andaðist á Krist-
neshæli ungfrú Katrín ísleifsdóttir
smiðs Oddssonar, 24 ára gömul.
Veitingu fyrir sýslumannsembættinu
í Barðastrandasýslu, hefir Bergur Jóns-
son, settur sýslumaður þar, 'nú fengið.
Sundkensla byrjaði hér í bænum á
Laugardaginn var. Sundkennarinn er
eins og áð'ur Ólafur Magnússon frá
Bitru.
Fundin mannabein. Holræsi var ný-
lega grafið gegnum hestaréttina á
Möðruvöllum í Hörgárdal. Var þá kom-
ið niður á mannabein. Réttin liggur
fast við kirkjugarðinn.
»Súlan« kom fljúgandi hingað til bæj-
arins um nónbil á Mánudaginn og hafði
ferðin gengið ágætlega. Þrír farþegar
úr Rvík voru með henni, voru það
blaðamennirnir Skúli Skúlason og Árni
Óla og ennfremur Sesilía Fjeldsteð
símamær. Nokkum póst hafði skipið
meðferðis. Það flaug aftur á stað áleið-
is til Rvíkur eftir tveggja stunda við-
dvöl og hafði sömu farþega til baka og
auk þeirra tðk Ingvar Guðjónsson út-
go rðarmaður sér far með því til Siglu-
fjarðar. Ferðin suður gekk fljótt og vel.
Vélbilun sú, er fyrir kom í síðustu
ferð og getið var í síðasta blaði, er tal-
Tapasf hafa:
RauB hryssa, mark fjöður fr.
v., klofið fax, ójárnuð.
RauBur hestur skaflajámaður,
grár undan klöfum. — Hver sem
kynni að verða hrossa þessara var,
geri svo vel að gera aðvart Sigurði
Gíslasyni, Höepfners verzlun eða
Jóni Benediktssyni prentara Akureyri.
in lítilfjörleg og engin lífshætta henni
samfara. .
Síra Siguröur Stefánsson á Möðru-
völlum var settur inn í embætti sitt á
Sunnudaginn var af prófasti Stefáni
Kristinssyni.
Fiskafli hefir nú um tíma verið góð-
ur hér við Eyjafjörð. Þilskipin afla
vel.
Upplestur. Frú Soffía Kvaran las
upp í Samkomuhúsinu á Sunnudaginn
var. Fyrst las hún kvæðið »Spunakon-
an eftir Guðm. Kamban, síðan smásög-
una »Leggur og skek eftir Jónas Hall-
gímsson, þá tvö kvæði eftir Davíð Stef-
ánsson, voru það kvæðin »Litlu hjónin«
og »Dalakofinn«, og að lokum 2. og 3.
þátt leiksins »Veislan á Sólhaugum«
eftir Ibsen. Hefir frúin áður leikið eitt
stærsta hlutverkið í 'þeim leik, húsfreyj-
una á Sólhaugum og þótti takast af-
burðavel. Aðsókn að upplestrinum var
góð og skemtu áheyrendur sér ágæta
vel, enda les frúin upp af mikilli list,
og talin er hún bezta leikkona á landi
hér.
* Gagnfræðaskólinn á Akureyri er að
ljúka störfum að þessu sinni. Á morgun
(Föstudaginn 15. Júní), kl. 5 síðdegis
verður skólanum sagt upp. Þá verða og
þeir, er gengið hafa undir stúdentspróf,
útskrifaðir.
Napur norðankuldi hefir verið nú um
sinn og stundum frost á nóttum. Gróð-
urinn, sem áður var orðinn lífvænlegur,
stendur nú í stað.
Sambandsþing íslenzkra bamakennara
hefst hér á Akureyri 29. þ. m.
Þá verður og þing Stórstúkunnar háð
hér á Akureyri að þessu sinni, og hefst
það 5. næsta mán.
Skólanefnd bamaskóla Akureyrar hef-
ir samþykt að hraða svo undirbúningi
nýrrar barnaskólabyggingar, að hægt
verði að hefja það verk á næsta ári.