Dagur - 27.08.1931, Blaðsíða 2

Dagur - 27.08.1931, Blaðsíða 2
162 DAGUK 42. tbK RÚMSTÆÐI allt frá KR. 17.00. Járn- og trérúm fyrir börn og fullorðna — fjöl- breytt úrval. TRÉSTÓLAR, nýkomnir. Kaupfélag Eyfirðinga. Járti- og glervörudeildin. My ndastof an Oránufélagsgötu 21 er opin aila daga frá ki. 10—6. Gaðr. Funch-Rasmussen. almennings. Er það efiaust það naprasta háð, sem nokkur stjórn- máiaflokkur hefir nokkru sinni gert að sjáifum sér. íhaldsmönnum er hægra að kenna heilræðin en halda þau. Peir for- dæma það með hinum sterkustu orðum, að andstæðingar þeirra nefni þá þvi heiti, sem þeir sjálfir vöidu sér, en um leið ganga þeir freklega fram í því að uppnefna andstöðu- fiokk sinn og einstaka menn innan flokksins og það á þann napra hátt í sinn eigin garð, sem hefir verið bent á hér að iraman, ----0---- Alþingislitið. Eftir að þingfundir höfðu verið haidnir i báðum deildum þingsins á mánudaginn, var lokafundur í sameinuðu þingi, og var Alþingi slitið þann dag kl. 5 e. h. Hafði þá sumarþing þetta átt setu í 41 dag, en bæði vetrar- og sumar- þingið til samans í 100 daga. Er það iitið eitt iengri timi en Alþingi stendur vanaiega yfir. Verður þvi aukakostna ui sá, sem ieiddi af þingrofinu, c^ki tilfinnanlegur. Eínar Ama^on var kosinn forseti sameinaðs þings í stað Ásgeírs Ás- geirssonar, sem nú er orðinn fjár- málaráðherra. En milliþingaforseti var kosinn Bjarni Ásgeirsson. I menntamálaráð hlutu kosningu: Ragnar Ásgeirsson, Barði Ouð- mundsson, Ingibjörg H. Bjarnason, Árni Pálsson og Stefán Jóh. Stefáns- son; allir endurkosnir nema Barði, Sem kosinn var í stað Sig. Nordais. I útflutningsnefnd einkasölunnar voru kosnir tii næsta nýjárs: Einar Árnason, Böðvar Bjarkan og Björn Lindai. í kjördæmaskipunarnefndina voru kosnir: Tryggvi Pórhallsson, Bergur Jónsson, Jón Porláksson, Pétur Magnússon og Jón Baldvinsson. Meðal þeirra laga, sem afgreidd voru undir þingiokin, má nefna lög um hafnargerð á Akranesi, Sauðár- króki og Dalvfk, lög um breytingu á sildareinkasöiuiögunum, iög um útflutning á kældum fiski, lög um einkasölu á tóbaki, lög um ríkis- bókhald og endurskoðun, lög um framlenging á dýrtiðaruppbót em- bættismanna; ennfremur fjáraukalög fyrir árin 1929 og 1930, lög um samþykkt á landsreikningnum 1929 og fjárlög fyrir árið 1932. o Brot úr m Alpinyis. (Niðurl.). Frumvarpið, þannig breytt, sam- þykkt með 7 gegn 3 atkv. í efri deild og 18 gegn 1 atkv. i neðri deild. Pó að ekki séu nefnd fleiri mál hér, mætti margt upp telja, sem Framsóknarflokkurinn hefir unnið að vegna sjávarútvegsins. Mætti þar nefna aukna landhelgisgæzlu, vitabyggingar, sjómannalög og fl. í skýrslum þeim, sem ríkísstjórnin hefir birt, um framkvæmdir siðustu ára, má fá frekari upplýsingar um þau efni. Togaravökuiögino Á Alþ. 1919 ber Jörundur Bryn- jólfsson fram frv. til laga um að tryggja sjómönnum á togurum 8 st. hvíld á sólarhring. Eftir miklar umræður og eftir að búið var að færa fram dæmi þess að gengið væri afarnærri þreki sjó- manna með þeim vökum, sem tíðkuðust á togurunum, var frumv. fellt með 17 gegn 8 atkvæðum. í Tfmanum 7. ágúst sama ár voru ákveðin meðmæli með málinu i grein eftir Jónas Jónsson, og síðar, þegar búið var að fella frv., var Tíminn allþungoröur um aídrif þess. Á Alþingi 1921 tekur Jón Bald- vinsson frv. upp í lítið eitt breyttu formi. Var því vísað til sjávarút- vegsnefndar. Nefndin klofnar. Vili meirihluti hennar, þeir Jón Bald., Magn. Kristj. og Porl. Jónsson samþykkja það, en minni hlutinn, P. Ottesen og Einar Porgilsson, vill fella það. Með frv. mæla, auk nefndarmanna, Sveinn Ólafsson og Pétur Pórðar- son, en á móti Jón Porláksson, Hákon Kristófersson og Jón A. Jónsson. Voru þeirtveir síðastnefndu, að þeir sögðu, ekki andvígir nema einstðkum atriðum. Komuþeirmeð breytingartillðgu þess efnis að tak- marka þann tíma, sem lögin giltu, við tímabilið frá 1. marz til 15. júní. Var sú tillaga felld, en frv, samþ. með 14 gegn 12 atkv. og sent efri deild, sem samþ. það með litlum breytingum. Kom það því aftur til neðri deildar. Par gerir Jakob Mðller tilraun til að fella það með rökstuddri dag- skrá. Tillagan var felld með 15gegn 11 atkv. og frv. síðan samþ. með 15 gegn 11 atkv. Á Alþ. 1927 ber Héðinn Valdi- marsson fram þá breytingartillögu við togaravökulögin, að hvíldartím- inn sé ákveðinn 8 stundir f sólar- hring í stað 6 áður. Á móti því mælir Jón ólafsson óg vill fella það strax við 1. umr. Segir hann meðal annars: >Mér hefir alltaf verið illa við þessi lög, því þau eru einn liðurinn í því að smeygja sér inn á þá braut að heimta mikið kaup fyrir litla vinnut. Héðinn Valdimarsson vill ekki viðurkenna, að það sé lítil vinna að vinna 16 tima i sólarhring, eins og frv. gerir ráð fyrir að orðið geti. Frv. var vísað til 2. umr. með 11 gegn 9 atkv. íhaldsmanna. Átta þingmenn voru fjarverandi. Sjávarútvegsnefnd klofnaði um frv. Meiri hiutinn, Héðinn Vi( Bernharð St. og Sveinn Ól., vill samþykkja það, en minni hlutihn, Ól. Thors og Sigurjón Jónsson, vill fella það. Frv. var fellt með 13 atkv. íhalds- manna gegn 12 atkv. Framsóknar- og jafnaðarmanna. Prír þingmenn voru fjarverandi. Á næsta þihgi, 1928, bera allir þm. Alþýðuflokksins í neðri deild fram sama frv. Hreyfði Jón Olafsson strax mótmælurn gegn því, en þó var því vísað til sjávarútvegsntfndar og 2. umr. með 16 samhlj. atkvæðum, Nefndin klofnaði. Vildi meiri hlut- inn, Sveinn Ól. Jörundur Brynj. og Sigurj. Ól., samþ. það, en minni hlutinn, Ól. Th. og Jóhann Jós., fella það. Urðu um það miklar umræður og mæltu íhaldsmenn á móti því, en Framsóknar- og jafnaðarmenn með því. Frv. var vísað til 3. umr. með 16 gegn 10 atkv. íhaldsmanna. Til efri deildar var frv. afgreitt með 15 gegn 8 atkv. í efri deild klofnaði sjávarútv.nefnd um málið. Erl. Friðj. og Ingvar P. vildu samþykkja það, en Halldór Steinss. feila það. Var frv. samþykt þar með 8 gegn 5 atkv. ihaldsmanna. Húsnœðismál verkamanna. Á Alþ. 1923 ber Jónas Jónsson fram í efri deild frv. til laga um að takmarka hve há húsaleiga megi vera i kaupstöðum landsins. Sem rök fyrir því færir hann, að húsa- leika sé meginorsök dýrtiðar i kaup- stöðum landsins og þó sér i iagi i Reykjavík. Alit hafi fallið í verði, én dæmi séu til að húsaleiga sé enn tífðld, borið saman við fyrir stríð. Frumv. var vísað tii allsherjar- nefndar. Vill hún visa málinu frá með rðkstuddri dagskrá með tiiiiti til þess, að bæjarstjórn Rvikur sé EFHABEROAR-VBRÖR eru þekktar um allt Iand, vörugæði og verðlag viðurkennt aí öllum sem reynt hafa. íslendingar! Kaupið íslenzkar vörur. Umboðsmaður vor á Akureyri er Eggert Stefánsson Brekkugötu 12. — Sími 270. H|f Efnagerð Reykjavíkur. að hugsa um að framkvæma lög frá 1921 um heimild til að setja hámark á húsaieigu í Reykjavík. Pá fær flutningsmaður málið tek- ið út af dagskrá, unz séð verði hvað bæjarstjórn Rvk. geri í málinu. Nokkru seinna er málið tekið fyrir aftur; hafói bæjarstjórnin ekk- ekkert gert, og telur flutningsmað- ur því gagnslaust að treysta á að- gerðir hennar. Málið sé líka iands- mál, þar sem það nái tíl fleiri kaup- staða en Reykjavíkur. Frv. var fellt með 6 gegn 6 atkv. Já sögðu Quðm, Ólafson, Jónas Jónsson, Karl Einarsson, Sigurður Jónsson, Eínar Árnason og Halld. Steinsson. — Nei sögðu Hjörtur Snorrason, ingibjðrg H. Bjarnason, Jóh. Jóh., Jón Magnússon, S. H. Kvaran og Björn Kristjánsson. Fjarstaddir voru Quðm. Quðfinns- son og Sig, Eggerz. Á Alþingi 1928 ber Héðinn Vald. fram í neðri deild frv. til laga um opinberan styrk til verkamanna- bústaða. Aðalákvæðin eru þess efn- is að: »Rikissjóður leggi fram Vio hluta kostnaóar, sem styrk til íbúðar- húsabygginga með þessum skil- yrðum: a. að bæjarfélagið komi upp bygg- ingunum; b. að húsin séu sambyggingar, gérðar úr varanlegu efni, með aðallega tveggja herbergja íbúð- um auk eldhúss. c. að íbúðifnar séu falar verkafólki til kaups fyrir það verð, sem þær kosta uppkomnar, á- lagningslaust, að frádregnum ríkissjóðsstyrknum gegn 20 prc. útborgun, en eftirstöðvar kaup- verðsins hvíli á eigninni með 1. veðrétti og ávaxtist og ' endur- borgist með jöfnum greiðslum, þannig að árlegt gjald sé 5 prc. af allri iánsupphæöinni í 42 ár; d. að byggingarnar séu reistar á leigulóðum, sem kaupstaðirnir eiga, og sé ársleigan metin á 5 ára frestic. Einnig er ákvæði um stofnun byggingarsjóða og tekjur þeirra, sem eru vextir og afborganir seldra íbúða og leiga eftir þær, sem bæj- arfélagið hefir ekki þá selt. Bæjar- félagið skal og leggja í sjóðinn gjald, sem svarar 2 kr. fyrir hvern íbúa kaupstaðarins. Petta frv. var svo seint fram kom- ið, að það varð ekki útrætt, en á næsta þingi, 1929, ber sami þm. frv! fram aftur óbreytt. Var þvi vís- að til alisherjarnefndar. Nefndin klofnaði um málið. Meiri hiutinn, Magn. Torf., Qunnar Sig. og Héðinn V., vili samþykkja frv., en gengur inn á breytingartillögur frá Tryggva Pórhallssyni. Um þær segir nefndin:

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.