Dagur - 04.09.1934, Side 2
276'
D AGUR
101. tbl.
Gagnfræðaskoli Akurep
verður settur mánudaginn 15. október, kl. 2 síðdegis.
liarnafræðsluskírteini er inntökuskilyrði í 1. bekk.
Skólavist er ókeypis fyrir bæjarnemendur. Utanbæjarpiltar greiða
80 kr. kennslugjald á ári, en utanbæjarstúlkur 40 kr. og greið-
ist helmingur í byrjun skólaárs,
Keiinslugreinar eru ísl., danska, enska, reikningur, [s-
Iands- og mannkynsaga, landafræði, dýrafræði, grasafræði, líkams-
og heilsufræði, Ieikfimi, sund og söngur.
Umsókiiir eiga að vera komnar mér í hendur fyrir 1. okt.
Þeir nemendur skólans, er gagnfræðaprófi hafa við hann lokið,
eru beðnir að gera mér aðvart um hæl, hvort þeir
myndi hugsa til framhaldsnáms í vetur, færi svo að 3. bekk
yrði bætt við í haust, en joað yrði sennilega gert, fengizt nógu
margir nemendur.
Sigfús Halldórs frá Ilöfiimii,
skólastjóri.
vinnu í kaupstað svona rétt
til vara. Alltaf kynni þó að vera
hægt að ná sér í atvinnubóta-
vinnu.
Þegar þess er gætt, hve
skemmtilegt það er að búa í nýj-
um og glæsilegum húsum, nálægt
kaupstöðum, geta fyrirhafnar-
laust tekið þátt í samkvæmislífi
stórbæjanna, þá er ekki að furða,
þótt mönnum finnist leiðinlegra
til dalanna, þar sem ekki er ann-
að til skemmtunar en »fífil-
brekka, gróin grund> grösug hlíð,
með berjalautum«, eða þá hrika-
leg fjöll, með tindum og gnýpum,
sem líkjast voðalegum nátttröll-
um. ó, sá munur! Háreistir salir,
með glymjandi »músik« í kaup-
stöðunum.
Til eru þeir menn, sem þykjast
ekki vita, hvar bændur geti tekið
byggingarkostnaðinn. Þeir vita
ekki, að fyrir öllu hafa hinir bú-
hyggnu menn séð; kostnaðinn all-
ann á ríkissjóður að greiða, þegar
hann hefir peninga fyrirliggj-
andi, sem sennilega enginn þarf
að efa.
Komist þessi ráðagerð til fram-
kvæmda, telja þessir búhyggnu
menn öruggt ráð fundið, til þess
að halda fólkinu í sveitunum, og
að þá verði hægt að reka búskap-
inn með ágóða og ánægju.
Éins og nú horfir við, er ekki
sjáanlegt annað, en að minnsta
kosti dalajarðir allar fari í eyði,
enda margar þegar komnar það.
Aðalástæðan til þess, að bændur
flytja burt af jörðunum, er að
þeirra sjálfra sögn sú, að sam-
göngur séu svo erfiðar. Þeir segj-
ast vera hræddir um, að dráttur
verði á bílvegalagningu til veru-
legra nota fyrir þá, fyrr en um
seinan. Það er og mjög eðlilegt,
að menn vilji dragast þangað,
sem samgöngur eru góðar, því
góðar samgöngur eru með réttu
Árið 1938 skorti ríkissjóðinn 1
millj. og 200 þús. kr. til þess að
geta greitt gjöld sín af eigin tekj-
um. Þetta var greiðsluhalli ríkis-
sjóðs á árinu. Mismunurinn var
jafnaður með lántökum.
Á árunum 1932 og 1933 hafa
ríkisskuldirnar aukizt um 2 millj.
og 790 þús. kr., en þá eru ekki
reiknað með gengisgróða á falli
dönsku krónunnar.
Aðkoma nýju stjórnarinnar að
fjárhirzlunni er því allt annað en
glæsileg.
Ástæðurnar á yfirstandandi ári
bæta heldur ekki úr skák. Fjárlög
ársins 1934 eru afgreidd frá Al-
þingi með 480 þús. kr. tekjuhalla.
Þar við bætast svo greiðslur sam-
kvæmt sérstökum lögum og aðrar
óumflýjanlegar greiðslur, sem
ekki hafa verið teknar upp á fjár-
taldar vera lífæð búnaðar og þá
um leið bændanna. Það kemur
líka Ijóslega fram, því einmitt
þaðan, sem samgöngur eru erfið-
ar, flytur fólkið mest. Það væri
fullkomin þörf á aö koma sem
fyrst vegakerfi landsins í viðun-
andi horf, því líkur eru til, að
sambýlahugsjónin dragist eitt-
hvað að komast í framkvæmd.
Þessir nýbýlahugsjónarmenn
segja: Látum allar sveita- og
dalajarðir fara í eyði, flytjið ykk-
ur í grennd við kauptúnin í ný-
býlasambúð; sleppið allri hinni
gömlu og úreltu sveitamenningu,
en takið ykkur til fyrirmyndar
nýtízku kaupstaðamenningu. Lát-
ið allt ræktað land dalajarðanna
fara. Þið verðið ekki lengi að
rækta aftur nýbýlin í sameiningu.
Vonandi verður mál þetta athug-
að á næsta þingi; má þá vænta
heppilegra úrslita, þar sem svo
margir búfróðir menn eru saman-
komnir og þar sem mestur hluti
þeirra er búsettur í Reykjavík.
Reynandi væri að senda eitthvað
af atvinnulausu fólki úr kaup-
stöðum landsins upp til sveita og
dala og lofa því að hirða eitthvað
af hinu mikla grasi á eyðijörðun-
um.
Mín ynnileg ósk er sú, að öll
býli fram til fjalla og niður til
stranda mættu blómgast og verða
að stórbýlum með góðri húsaskip-
un og mörgu dugandi fólki; allt
láglendi yrði að ræktuðu landi,
en fjallshlíðar klæddust fagur-
blaktandi skógarlaufi, þar sem
hin yngri kynslóð gæti baðað sig
í yndislegum skógarlundum og
notið fegurðar náttúrunnar í rík-
um mæli. Þetta verður, ef þjóðin
vill vinna að því með einbeittum
vilja og atorku.
Blessun guðs hvíli yfir íslenzku
þjóðinni.
Stefán Bergsson.
lögin, svo sem lögbundnar greiðsl-
ur vegna kreppuráðstafana,
greiðslur vegna jarðskjálftatjóns-
ins, sem var ófyrirsjáanlegt, og
100 þús. kr. til sundhallarinnar í
Reykjavik, sem síðasta þing á-
kvað að greitt yrði. Er talið að
lögbundnar, óhjákvæmilegar
greiðslur utan fjárlaga muni
nema alls V/o millj. kr. á árinu,
og verður það þá í reyndinni
sama sem fjárlögin fyrir árið,
sem nú er að líða, hafi verið af-
greidd með 2 millj. kr. greiðslu-
halla.
Enn bætist hér við óhagstæður
verzlunarjöfnuður þjóðarinnar
við utlönd á þessu ári. Að hálfn-
uðu árinu eða í júnílok var inn-
flutningurinn til landsins orðinn
8,4 milj. kr. meiri en útflutning-
urinn, en á sama tíma í fyrra
var munurinn ekki nema 640 þús.
kr. Er hér sýnilegur voði á ferð-
um fyrir þjóðina, ef ekki er tek-
ið snar'plega í taumana með tak-
markaðan innflutning. Að vísu
minnka tolltekjur ríkissjóðs við
það. En ekki er það annað en fá-
sinna að stuðla að auknum tekj-
um í ríkissjóð á þeim grundvelli
að þjóðin geri innkaup um efnl
fram. Tollgreiðslur, sem fengn-
eru með síversnandi verzlunar-
jöfnuði, eru í reyndinni ekki ann-
að en erlendar ríkislántökur, þar
sem þjóðin eykur skuld sína út á
við um miklu hærri upphæð en
þá, sem fer í ríkissjóðinn. Það,
sem ríkissjóður missir af toll-
tekjum vegna sparnaðar þjóðar-
innar við innkaup sín, verður að
útvega honum með nýjum, heil-
brigðum tekjustofnum. Menn
verða að hafa það hugfast, að
þjóðin er ekki til vegna ríkis-
sjóðsins.
Af framangreindu má það ljóst
vera öllum, er skilja vilja, að
nýja stjórnin hlýtur að eiga við
mikla fjárhagsörðugleika að
stríða. í þessu falli hefir hún tvö-
fallt verkefni að leysa og hvort-
tveggja örðugt. Það verður að
koma í veg fyrir framhaldandi
greiðsluhalla á á ríkisbúskapnum.
Lántökur til daglegra útgjalda ár
frá ári eru alveg óverjandi og
leiða til glötunar. í öðru lagi
verður að koma viðskiptajöfnuði
þjóðarinnar við útlönd á réttan
kjöl. í sambandi hér við verður
að finna nýja tekjustofna, sem
réttlátir eru og þjóðarheildinni
til hamingju en ekki til skaða.
Ónauðsynleg eða lítt nauðsýnleg
útgjöld verður að fella niður eða
takmarka eftir þörfum.
Lausn þessara verkefna verður
vissulega erfið og óvinsæl meðal
ýmsra, sem litlu eða engp vilja
fórna af persónulegum þægind-
um og stundarhagnaði vegna al-
mennrar velferðar. Engu að síður
mun hin nýja stjórn, og sá þing-
meirihluti, er að henni stendur,
leggja hiklaust út á þá braut að
leysa þessi erfiðu verkefni, þó það
kosti baráttu, illt umtal og magn-
aðar ófrægingar frá hálfu and-
stæðinganna.
Frihöfn i Triest.
Ákveðið hefir verið að Triest
skuli vera fríhöfn fyrir Austur-
ríki, Yugo-Slavíu og ítalíu.
Gullverð
hækkaði vikuna sem leið á kaup-
höllum um heim allan.
Dánardxgwr. Síðastliðna sunnudags-
nótt andaðist í Reykjavílc Jón Jóhann-
esson, bóndi að Munkaþverá. Hafði
hann legið heima lengi sumars illa
haldinn af innvortis meinsemd, var
fluttur suður fyrir nokkrum tíma, ef
ske kynni að hann fengi heilsubót, en
svo varð eigi.
Jón heitinn var kvongaðuy ^Margréti,
dóttur Júlíusar heitins Hallgrímssonar
bónda á Munkaþverá, og konu lians,
Kristínar Jónsdóttur. Lifir Margrét
mann sinn. Bjuggu þau á nokkrum
hluta jarðarinnar Munkaþverá og farn-
aðist vel. Ekki varð þeim barna auðið.
Jón sál. var nokkuð innan við fimm-
tugt að aldri. Hann var frábærlega
hagur maður til starfa, og mátti segja,
að hvert verk léki í höndum hans. Hitt
var þó enn meira um vert, að hann
var drengur hinn bezti og i því hvers
manns hugljúfi, er honum kynntist.
Hefir orðið mikill híbýlabrestur á
Munkaþverá við fráfall hans.
Halldóra Bja/pnad6ttirt leiðbeinandi
aimennings í heimilisiðnaðarmálum, er
nýlega komin hingað norður og verður
hér út septembermánuð til að sjá um
útgáfu »Hlínar«. Halldóra hefir verið
á ferðalagi um Norðurlönd í sumar til
að kynna sér skóla, heimilisiðnað og
lieimavinnu vegna atvinnuleysis. Hún
var ásamt frú Sigrúnu P. Blöndal á
Hallormsstað fulltrúi íslands á nor-
rænu heimilisiðnaðarþingi í Finnlandi.
Fréttaritstjóri:
Sigfús Ilalldórs frá Höfnunl,
Ritstjóri: Ingimar Eydal.
Prentsmiðja Odds Bjömssonar.
Greiðsluhalli rikissjóðs á síðasta
ári 1 milljón og 200 þúsund kr.
Aukning rikisskulda tvö síðustu ár
nemur 2 milj. og 790 þús. kr.