Dagur - 24.05.1945, Blaðsíða 1
DAGU
XXVIII. árg;
Akuréyri, fimmtudaginn 24. maí 1945
21. tbl.
Ný herferð braskaraliðsins gegn samvinnufé
lögunum í aðsigi?
Morgunblaðið tekur undir tillögur komm-
únista um tvískiptingu kaupfélaganna
Aðalmálgagn Sjálfstæðisflokksins dróttar atvinnukúg-
un, fölsunum, fjárdrætti og svikum að félögunum og
þó sér í lagi að Kaupfélagi Eyfirðinga og telur nauðsyn
bera til, að sparif járstarfsemi þess verði sett undir opin-
bert eftirlit. Á sama tíma styrkja Sjálfstæðismenn eftir
beztu getu kommúnista til valda í KRON og öðrum
kaupfélögum, þar sem þeir fá því við komið, í því
trausti, að stjórn þeirra komi félögunum á kné.
Morgunblaðið heimtar, að stjórnarandstæðingum verði
refsað á sama hátt og ófriðarþjóðirnar hegna nú stríðs-
glæpamönnum, enda reki þeir ,,skipulagða skemmdar-
starfsemi“, hvar sem þeir komi því við í landinu!
Sveinn Björnsson verður sjálfkjörinn forseti ís-
lands næsta kjörtímabil
Tilkynnt hefir verið, að Sveinn Björnsson verði
sjálfkjörinn forseti íslands næstu fjögur ár, þar
sem enginji annar frambjóðandi verður í kjöri og
öllum ákvæðum gildandi kosningalaga um fram-
boð og kjör forseta hefir verið fullnægt.
—
ANNALL
DAGS
———
17. MAÍ. Hákon Noregskon-
ungur og Nygaardsvold forsætis-
ráðherra flytja ræður í tilefni af
þjóðhátíðardegji .Norðmanna. —
Georg konungur Rreta sendir
norsku þjóðinni ávarp. Eden tel-
ur, að góður árangur muni nást
á San Fransisco-ráðstefnunni. —
Brezk flugvél flýgur yfir norður-
skautið, frá íslandi og til baka
aftur.
18. MAÍ. Reuter segir Japana
hafa leitað samninga um frið og
boðist til, að skila aftur her-
numdum löndum. Tiilboðinu
samstundis hafnað. Ekkert nema
skilyrðislaus uppgjöf tekin til
greina. Bretar sökkva japönsku
stórbeitiskipi. Bretar leyfa fisk-
veiðar á Dogger Bank í Norður-
sjó. Verkföll bönnuð í Belgíu í
3 mánuði.
19. MAÍ. Buhl, forsætisráð-
herra Danmerkur, sendir Is-
lendingum kveðju og þakkar
samúð og vinarkveðjur. Christ-
mas Möller flýgur til Bornholm,
en hernám Rússa á eynni vekur
ugg og athygli á Norðurlöndum.
Alexander marskálkur birtix
boðskap um Trieste-deiluna.
Telur framferði Júgóslafa líkjast
aðferðum Möndulveldanna. Stór-
kostlegar 'loftárásir á Japanseyjar.
20. M4Í. Tito mótmælir boð-
skap Alexanders um Trieste-
málið. Júgóslafar tilkynna, að
þeir murai flytja her sinn á brott
frá Kentern-héraði í Austurríkíi.
Þýzkar borga- og héraðsstjórnir
taka til starfa undir leiðsögn
Bandamanna. Kínverjar taka
hafnarborgina Fouchow, gegnt
Formosa. Leopold Belgíukon-
ungur sagður hættulega veikur.
21. MAÍ. Churchill gerir það
að tillögu sinni, að flokkasam-
steypan í stjórninni haldi áfram,
þar tifl japanska stríðinu er lokið.
Verkamannaflokkurinn, á árs-
þingi í Blackpool, hafnar tilboð-
inu, æskir kosninga í haust.
Churchill vill kosningar í júlí að
öðrum kosti.
22. MAÍ. Friðsamlegri horfur
en áður taldar í deilunmi milli
Júgóslafa og ítala. Tito tilkynn-
ir, að her hans verði fluttur burt
úr nokkirum héruðum Austur-
ríkis.
23. MAÍ. Líkur taldar til, að
þingkosningar fari fram í Bret-
landi um miðjan júlí. Viðsjár
byrjaðar milli dönsku ríkisstjóm-
arinnar og verkamannaflokk-
anna. Búlizt við, að fundi Churc-
hills, Stalins og Trumans verði
frestað um óákveðinn tíma
vegna kosninganna í Bretlandi.
Eimskip kaupir nýtt
flutningaskip
Eimskipafélag íslands h/f. hef-
ir keypt e/s. Kötlu af Eimskipa-
félagi Reykjavíkur. Er það 1657
smál. skip, byggt 1911, kaupverð
kr. 2.350.000.00. Eimskip hefir,
að sögn, leitað fyrir sér að undan-
förnu um kaup á nýjum skipum
frá Ameríku, en aðeins fengið 2
tilboð, sem hvorugt var talið að-
gengilegt. Félagið mun nú vera
að leita fyrir sér um skipakaup í
Svíþjóð og Danmörku.
pÁÐAMENN Morgunblaðsins I
og Sjálfstæðisflokksins liafa
nú gert hin endemislegu skrif
„óþekkta riddarans með niður-
felldu andlitshlífina", eins og
Sá kallar sig sjálfur, sem ritað
hefir „hundaþúfu- og Kengálu-
greinarnar", að sínum orðum,
með því * að endurprenta aðal-
innihald þeirra ásamt gengdar-
lausu skrumi og lofræðum um
höfundinn í ritstjórnarspjalli
blaðsins. Svo sem kunnugt er fær
4kureyrarbær gefur
25 þús. kr. til Norður
landasöfnunarinnar
Á bæjarstjórnarfundi sl. þriðju-
dag var samþykkt, samkv. tillögu
fjárhagsnefndar kaupstaðarins,
að gefa 25 þús. kr. til lýorður-
landasöfnuunar þeirrar, sem rík-
isstjórnin beitir sér nú fyrir.
Samkv. upplýsingum póststof-
unnar hér . höfðu í fyrrakvöld
safnazt 13 þús. kr. hér í bænum
og nágrenninu, er greiddar
höfðu verið inn til pósthússins.
Þá mun ennfremur vera væntan-
legt tillag frá Kaupfélagi E-yfirð-
inga og fleiri stofnunum hér í
bænum, en ekki hefir enn frétzt
um ákveðna rupphæðir frá þeim
aðilum. — í gær fóru skátar um
bæinn innan Grófargils í erind*
um söfnunarinnar, en í dag
munu þeir heimsækja bæjarbúa
á svæðinu norðan gilsins. Er jress
að vænta, að þeim verði alls stað-
ar vel tekið, og málefnið ekki
látið gjalda þess, að ríkisstjórnin
hefir að ómaklegu gleymt í þessu
sambandi einni Norðurlanda-
þjóðanna, Finnum, en þeir
munu raunar ekki síður hjálpar-
þurfi en hinar frændþjóðirnar,
sem nú eru í nauðum staddar.
Kaupfélag Eyfirðinga ' og for-
ráðamenn þess sérstaka kveðju í
greinum þessum. „Eyfirzkir1
bændur eru nauðbeygðir til að
vera félagsmenn í KEA. vegna 1
atvinnu sinnar" stendur þar, en í
félaginu eru þeir ,,skattlagðir“
og „arðrændir" í þágu búðan
manna og skrifstofuþjóna félags-
ins, sem „taka inneignir eyfirzkra
bænda til þess að kaupa slíka
stóla (þ. e. mjúka hægindastóla)
undir rassinn á sér“. Auk þess
eru bændur „rændir stofnsjóðs-
inneign sinnt, sem nemur 3% af
öllum viðskiptunr“ o. s. frv., o. s.
frv. Allt er á sörnu bókina lært
hjá KEA. um atvinnukúgun,
falsanir, fjárdrátt og svik, að því
er segir í þessum þokkalegu
greinum. Jafnvel skýrslur félags-
ins um félagatöluna og skiptingu
félagsmanna til sjávar og sveita
hljóta að vera falsaðar, stendur
þar! „Þannig er farið með ís-
lenzka bændur á 20. öld“, and-
varpar blaðið að lokum og getur
naumast vatni haldið vegna
brjóstgæða sinna og umhyggju
fyrir hag aumingja sveitafólksins,
sem er svo skammarlega leikið af
kúgurum sínum í KEA. og öðr-
um kaupfélögum landsins!!
þAÐ ER SÝNT að á tvo strengi
skal aðallega leikið í þessari
hinni nýju herferð braskara-
flokksins gegn samvinnufélögun-
um. í fyrsta lagi er hér gerð hat-
ramleg tilraun til þess að rægja
saman starfsmenn kaupfélaganna
annars vegar og viðskiptamenn
þeirra hins vegar. Blaðið talar
mikið um „yfirgang búðar-
manna og skrifstofuþjóna" fé-
laganna. „Hver og einn pjakkur
getur rétt aðkeyptar vörur út yf-
ir búðarborðið/ ‘segir í Kengálu-
greininni, en þó á að „innræta
fólki þá trú, að það að vigta út
(Framhald á 3. síðu.
Sýningin um
baráttu Dana
Ljósmyndasýningin .frá bar-
áttu Dana á hernámsárunum
1940—1945, sem haldin hefir
verið í Reykjavík að undan-
förnu, var opnuð í gagnfræða-
skólahúsinu hér sl. mánudag. Á
sýningunni eru um 150 ljós-
myndir frá baráttu danskra föð-
urlandsvina heima fyrir, með
herjum Bandamanna''og á höf-
um úti. Varpa þær flestar skýru
ljósi á það, að frelsisandinn átti
öruggt vígi í brjóstum dönsku
þjóðarinnar og staðfesta það,
sem þegar er alkunna, að þjóðin
var reiðubúin að fórna lífi sona
sinna fyrir það, sem dýrmætast
er, frelsið. Sérstaka athygli vekja
myndirnar frá vörn danskra lög-
reglumanna og borgara fyrir
framan konungshöllina, er Þjóð-
verjar reyndu að hernema hana
og myndirnar frá því, er danska
flotanum var sökkt til þess að
hann félli ekki í hendur innrás:
arhersins. Þá eru sýnishorn ag
leyniblöðunum dönsku á sýning-
Kappreiðar Léttis í
Stekkjarhólma n.k.
sunnudag
Margir gæðingar verða reyndir.
Eins og auglýst er á öðrum stað
í blaðinu, efnir hestamannafélag-
ið Léttir til kappreiða á hinum
nýja skeiðvelli sínum vestan
Eyjafjarðarár, sunnan við brýrn-
ar, kl. 4 næstk. sunnudag. Búast
má við, að þar komi fram margir
glæsilegir gæðingar héðan af Ak-
ureyri og úr Eyjafjarðar- og
Þingeyjarsýslum.
Veðbanki verður starfræktur í
sambandi við kappreiðarnar, og
er það nýmæli hér nyrðra.
unni. Þau voru orðin mjög mörg
og útbreidd og áttu sinn mikla
þátt í að hvetja þjóðina til dáða
og halda frelsisanda hennar vak-
andi.
Sýningin mun verða til þess að
auka virðingu okkar á hinni
frjálslyndu, friðsömu og stað-
föstu bræðraþjóð.