Dagur - 14.02.1962, Side 1
Ií JV1Au;a<;n Framsóknarmanna
*R.ítsrjÓKi: Ew.incuk Davíhsson
SKKiKsroFA í Hafnarstu.k.íi 90
SÍMI 1 H)6 . Sl l NINUU OG FRENTUN
AN.NAST l’RENTVERK 0»1)S
Björnssonar h.f. Akurkyki
XLV. árg. — Akureyri, miðvikudaginn 14. febrúar 1962 — 7. tbl.
' ™ ""
Aur.i’isiM. vvrjóKi: Jó\ Sam-
úkx.sson . Akoanookinn ko.siar
K'<. : 00.00 . Gjai.ddagi k.r'1. júu
isl.ADH) KEMIÍR I ! Á MIDVIKUDÖr,-
l'M Of. Á I AI.GARDÖGUM
M.GAR ÁílVKÖA ÞYKTR TJL
ELLIÐI 06 SKARÐSVÍK SUKKU
Tveir sjómenn á Elliða frá Siglufirði fórust
ÞAU SVIPLEGU tíðindi spurð
ust á laugardagskvöldið, 10. þ.
m., að togarinn Elliði frá Siglu-
fii'ði hefði sokkið í vestanroki
25 sjómílur norð-vestur af
Öndverðarnesi.
Leki kom að skipinu um kl. 6,
svo að lestar fylltust af sjó og
tók það þá að hallast. En á floti
hélzt það á fimmtu klukku-
stund, eftir að það var lagzt á
hliðina.
Gúmbátar reyndust ýmist
bilaðir eða þá sleit frá skipinu.
Tveir menn, Egill Stein-
grímsson og Hólmar Fi-ímanns-
MÖRGNÖF-N |
Á RÁNSFENG |
RÍKISSTJÓRNIN tók 120— í
140 milljón króna gengisfell- i
ingartekjur af vörubirgðum i
sjávarútvegsins sl. sumar. f
Slíkt er að áliti ýmsra lög- i
fræðinga algerlega óhcimil i
fjártaka. |
En Gunnar Thoroddsen i
hefur þessa fúlgu handa á i
milli og nefnir ýmsum nöfn- 5
um, svo sem „greiðsluafgang i
ríkissjóðs“, „innstæðu ríkis- i
sjóðs hjá Seðlabankanum“ eða i
„ríkisábyrgðasjóð“, allt eftir i
því við hverja talað er, en i
einnig sennilega í því skyni að i
þrefalda hinn miður fengna i
sjóð í augum almennings til að i
auglýsa snjalla fjármálastarf- i
semi. □ 1
son, báðir frá Singlufirði, höfðu
komizt í gúmbát, sem slitnaði
frá skipinu. Þeir létust .báðir af
kulda, því að báturinn fannst
ekki fyrr en um hádegi á
sunnudag.
Elliði hafði stöðugt loft-
skeytasamband við land og
Slysavarnafélagið lét þegar
hefja leit.
Togarinn Júpíter bai'g 26
mönnum af Elliða, eða öllum
nema þeim, er að framan getur.
Fáum mínútum síðar, eða um
kl. 11, sökk Elliði. Hann var 630
smálesta skip, 15 ára gamalt. —
Skipstjóri var Kristján Rögn-
valdsson. En skiþstjóri á
Júpíter Bjarni Ignimarsson.
Á sunnudaginn kom mikill
leki að Skarðsvík, en hann var
meðal margra leitarbáta. Óðinn
kom festum í bátinn og hélt til
lands. En ekki var unnt að
stöðva lekann og sökk báturinn
um kl. 6 e. h. En Stapafell hafði
tekið 6 manna áhöfn hins bilaða
báts um borð hjá sér, rétt áður
en Skarðsvík hvarf í djúpið. □
Fært til Raufarhafnar
ENN ER LOKUÐ landleiðin til
Reykjavíkur. Öxnadalsheiði
hefur ekki verið fær bifreiðum
þrjár síðustu vikur. Eftir helg-
ina lokaðist Holtavörðuheiði.
Á laugardaginn fór bíll frá
Vegagerðinni frá Akureyri til
Raufarhafnar og gekk vel. Þetta
var vörubíll með framdrifi. —
Vegir innanhéraðs eru færii'
Jakob Frímannsson framkvæmdastjóri flytur félagsráðsfundi árs-
skýrslu Kaupfélags Eyfirðinga. (Ljósmynd: E. D.)
Á félagsráðsfundi KEA. Frá vinstri í efri röð: Jónas Jónsson, Jón Bjamason, Bjöm Jóhannsson, Jón
Jónsson og Jón Jónsson frá Dalvík. — Neðri röð: Jóhannes Kristjánsson, Stefán Stefánsson, Angan-
týr Jóhannsson, Magnús Árnason og Jónas Þórðarson. (Ljósmynd: E. D.).
Vörusalð K. E. A. eyksf enn í krónuiali
Framleiðsla innlendra vara hefur aukizt veru-
lega í öllum greinum á síðastliðnu ári
Á MIÐVIKUDAGINN, 7. fe-
brúar, var félagsráðsfundur
Kaupfélags Eyfirðinga haldinn
að Hótel KEA á Akureyri. —
Fundarmenn voru 35, fulltrúar
frá 16 félagsdeildum, stjórn
KEA, framkvæmdastj., nokkrir
deildarstjórar og gestir.
Brynjólfur Sveinsson, stjórn-
arformaður KEA, setti félags-
ráðsfundinn. Eiður Guðmunds-
son var kjörinn fundarstjóri, en
ritarar Ingimar Brynjólfsson og
Ármann Dalmannsson.
Ilraðvirkar bókhaldsvélar.
Jakob Frímannsson fram-
kvæmdastjóri fluttí ársyfirlit
um hag og rekstur Kaupfélags
Eyfirðinga á síðasta ári, að svo
miklu leyti, sem nú liggui' fyr-
ir. En hinar nýju og mikil-
virku bókhaldsvélar munu inn-
an skamms gera kleift að hraða
svo bókhaldslegu yfirliti að það
liggi ljóst fyrir í öllum aðal-
greinum strax úr hverjum
áramótum.
Vörusalan óx erm.
Heildarvörusala KEA jókst
um 12% árið 1961, en ekki
nema um 6% árið 1960. Telja
má, að vörumagnssalan hafi
ekki dregizt saman, en að verð-
hækkanir og söluaukning í
krónutölu haldist nokkurn
veginn í hendur. En að sjálf-
sögðu var þetta mjög misjafnt í
hinum einstöku deildum. Ný-
lendvörudeildin jók sölu sína
um 10 milljónir, seldi fyrir 53
milljónir, en undir hana féll nú
útibúið í Ránargötu, sem áður
var útibú frá Kjötbúðinni. Ný-
lenduvörudeild KEA hefur nú
vörusölu í 10 búðum í bænum.
Vefnaðarvörudeild jók sína sölu
í 8,7 milljónir króna, Járn- og
glervörudeild seldi fyrir 3,8
miUjónir, og er það yfir 20%
aukning, Skódeildin seldi 34%
meira en árið áður og nálgaðist
sailan 5 milljónir. Sala Bygg-
ingavönideildar varð 16 millj.
og stóð nokkurn veginn í stað,
en mun minna er byggt nú en
undanfarið og gildir það sér-
staklega um íbúðarhús í sveit-
um og einnig hér á Akureyri.
Vörusala Véla- og búsáhalda-
deildar jókst töluvert, eða upp
í 17 miltjónir.
Þessar 6 deildir, sem saman
eru á Vörureikningi, juku sölu
sína samtals um 16 milljónir kr.,
eða 18%, að útibúinu í Ránar-
götu meðtöldu.
Síðan rakti framkvæmda-
stjórinn nokkuð sölu ann-
arra deilda, sem flestar seldu
fyrir meiri upphæð í krónutölu,
en mjög mismunandi. Þá gat
hann um sameignarverksmiðj-r
urnar. Þar hefur Sjöfn aukið
framleiðslu sína langmest og
seldi fyrir á 13. milljónir. Er þar
bættist, eins og kunnugt er, ný
framleiðslugrein við, sem náð
hefur mikllum vinsældum, og er
'þar um að ræða nokkrar teg-
undir af málningu og skyldum
vörum.
Þá gat framkvæmdastjóri
þess, að afkoma félagsins í
heild mundi ekki verða lakari
en á fyrra ári. Félagið hefði
ekki fjölgað fólki við verzlun-
(Framhald á bls. 2)
Sitjandi: Brynjólfur Sveinsson, Eiður Guðmundsson, Ingiinar Brynjólfsson, Helgi Símonarson, Björn
Jónsson, Daníel Páhnason og Stefán Ingjaldsson. (Ljósmynd: E. D.).