Dagur - 14.02.1962, Síða 8
8
Bóndinn er í blóði margra Akureyringa
Og töluverður búskapur er rekinn á Akureyri
Þessi þrílemba Jóhanns Einarssonar ber vott um góða fóðrun. En
fóðrun og hirðing búpenings á Akureyri er undantekningarlítið
mjög góð, segir forðagæzlumaður.
SAMKVÆMT upplýsingum
Þórhalls Guðmundssonar forða
gæzlumanns á Akureyri, sem
Dagur átti nýlega viðtal við, er
enn töluvert mikill landbúnað-
ur stundaður á Akureyri, svo
sem lengi hefur tíðkazt. Ber
margt til að svo er. Hið fyrsta
að bóndinn er í blóði fjölmargra
bæjarbúa, enda eiga margir
þeirra barnasporin í sveit. Ak-
ureyri er veðursæl og grösugar
lendur allt í kring og blómleg
býli. Og á Akureyri er fjöldi
heimilisfeðra í reglubundinni
vinnu heima allt árið og eiga
•••iiiiiliillilliiiiiiiliiiiiii
l•llll■lllllllllllll•ll•ll•llllll•lllllllllll■lllllll•■■lll•llll•IIIIIKI•l•••l•l•■•l••llll■••■•l••l•lll•l•l••ll•lll•••l••••••••
■IIIIIIIIII11111111111111111
Sölumiðstöð liraðfrystiSiúsanna
! Fulltrúar bankanna sendir vestur um haf til að athuga f járreiður
SNEMMA í þessum mánuði
vitnaðist það að bankamenn frá
Útvegsbankanum og Lands-
bankanum höfðu verið sendir
til Bandaríkjanna til athugunar
á fjármálum Sölumiðstöðvar
hraðfiystihúsanna, eða nánar
tiltekið dótturfyrirtæki hennar,
Coldwaters, sem er sölufyrir-
tæki vestra.
Ástæðan var almenn óánægja
hi aðfrystihúsaanna hér heima
yfir viðskiptunum við S. H., svo
og uppsögn tveggja stai-fsmanna
þess, er gert höfðu. athuga-
semdir. Sagt er, að frystihúsin,
sem í samtökum þessum eru,
hafi ekki fengið greiðslu árs-
framleiðslu sinnar.
Mál þetta hefur mjög vex-ið
rætt í blöðum og á Alþingi.
í fyrra var á Alþingi flutt til-
„Rógburðurinn'
SÍÐASTI „íslendingux-“ birtir
grein undir „rógbui-ðar“yfir-
ski-ift og virðist tæpast eiga
nógu kröftug skammaryrði yfir
því, að Dagur Ijósti-aði upp
hvei-nig íhaldið í bæjai-stjórn
Akureyrar brást við félags-
heimilisbyggingu verkalýðsfé-
laganna.
í greininni segir m. a. svo:
„Engiim bæjai-fulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins hefur nokkru
shmi lagzt gegn því, að verka-
lýðsfélögin fengju lóð undir
starfsemi sína.“
Þetta staðhæfir íhaldsblaðið,
þótt bæjarfuHtrúi þess, Jón G.
Sólnes, hafi bæði í bæjarráði og
í bæjarstjói-n gi-eitt atkvæði
gegn umsókn vei-kalýðsfélag-
anna um lóð sunnan Strand-
götu fyrir væntanlegt félags-
heimili. Jón G. Sólnes óskaði
það meira að segja bókað í
fundargerð bæjarráðs, að liann
hafnaði nefndi i umsókn. Og þar
æpir bókun hans gegn stað-
hæfingum og stóryrðum rit—
stjói’a „íslendings".
Hér er rétt að beina þeirri
spurningu til þremenninganna,
sem voi!u á móti tillögu bæjar-
ráðs, um að hraða skipulagn-
ingu á téðu svæði, hvers vegna
þeir voru það? □
laga um rannsókn á starfsemi
S. H., en stjórnarvöldin vísuðu
henni frá.
Ef réttar eru ásakanir, er
fram hafa komið opinberlega
um rekstur S. H., er um gífur-
legar fjárhæðir að ræða, sem
eflaust skipta hundruðum
milljóna króna, og þá hafa
bankar landsins búið slæ-
lega um hnúta í þessu sambandi
við lánveitingar.
Hin megna óánægja hrað-
frystihúsaeigenda hefur nú
leitt til þess, að á ný er farið
fram á opinbera rannsókn í
máli þessu. Nauðsynlegt er, að
hið sanna komi í ljós. □
•iiiiiiiiiliiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiMiiiiiiiiiiiiiiii«ii»i»»iiiiiiiii*i|ii",,,,",",,,",""i,i,,,,,",,,,,,i
„ÍSLENDINGUR“, sem út kom
á föstudaginn, talar um okur-
vextina, sem eins konar bjarg-
ráða. Ríkisstjórnin hefur heykzt
á því máli og var neydd til að
lækka vextina, þegar sýnt var,
að enginn atvinnuvegur á ís-
landi gat undir þeim risið.
Okurvextirnir leika fleiri
grátt en atvinnuvegina og fram
leiðsluná. Einstaklingar, sem
leggja þurfa í einhverja fjár-
festingu, svo sem íbúðanbygg-
ingu eða annan kostnað, sem
ritstjóri „íslendings“ kallar
„fjárfestíngaræði“, eru lamaðir
af vaxtaokrinu.
Ritstjóri „íslendings“ veit
ofur vel, eins og aðrir lands-
menn, að okurvextirnir, sem
hér voru lögfestir og hvergi
þekkjast hliðstæðir, voru ekki
upp teknir lil að rétta hlut
sparifjáreigenda, heldur áttu
iþeir að vera framfarasinn-
uðu fólki fjötur um fót í öllu
athafnalífi, og það hafa þeir
verið. Þeir hafa verið hlekkir á
hinu frjálsa framtaki einstakl-
higsins. • „ .
Tvær gengisfellingar í tíð nú-
SKÁKKEPPNI
INGI R. JÓHANNSSON, skák-
rneistari.úr. Raykjavík, er vænt-
i anlegnr til bæjarins um næstu
helgi, í boði Skákfélags Akur-
eyrar.
Mun hann töfla við 10 beztu
skákmenn bæjarins kl. 2 e. h. á
laugardaginn; Fer. sú keppni
fram' í Ásgai’ði. Á sunnudag
képpiFIhgi fjöltéfli við bæjar-
menn í Landþþankasalnum kl. 2
e. h. Er ollum heimil þátttaka,
en menn verða að hafa með sér
töfl. -í ’ :
xtirnir |
verandi íhaldsstjórnar, sem
hvor um sig rýrði innstæður
sparifjárins, og þar með hlut
sparifjáreigenda, var dulbúinn
þjófnaður. Þennan verknað lof-
syngur „íslendingur11. □
Þórhallur Guðmundsson.
því hægt með að stunda smá-
búskap ásamt aðalvinnu sinni,
bæði sér til skemmtunar og til
einhvers tekjuauka fyrir heim-
ilið. Ennfremur eru um 20 lög-
býli á Akureyri, þar sem bú-
sKapur er aðalatvinna. Loks má
nefna tvö bú hins opinbera,
annað á Galtalæk á vegum Til-
raunaráðs ríkisins, en hitt að
Lundi á vegum SNE og eru þar
framkvæmdar merkilegar af-
kvæmarannsóknir.
Fjáreigendur á Akureyri eru
145 og eiga þeir 2543 ær á fóðr-
um, 469 lömb og 92 hrúta. Líf-
lömbin eru á þriðja hundrað
færra en í fýrra, en fjártalan að
öðru leyti svipuð. Samtals á
fóðrum 3012 kindur, og á fjalli í
sumar um 7000 fjár.
a
Skátahreyfingin minnist 50 ára afmælis síns
SKÁTAR minnast í sumar 50
ára starfs á íslandi með veglegu
landsmóti á Þingvöllum og
hefst það 28. júlí. Búizt er við
að þangað komi allt að 2000
skátar, þar af fjölmargir er-
lendir, sem þegar er vitað um,
svo sem 100 brezkir, 80 norskir
og 60 sænskir.
Allir skátarnir dvelja í tjald-
ibúðum, sem flokkaðar verða
niður og merktar. Landsmótið á
að standa 10 daga með marg-
breyttum hátíðahöldum. Þar
verða stórir leikvangar og varð
eldasvæði, enda fyrirhugaðar
margar sýningar.
Ennfremur verður farið í
nokkur ferðalög, bæði gangandi
og akandi. Þá verður ferðum
hagað á þann hátt fyrir erlenda
skáta, eftir landsmótið, að þeir
kynnist landinu nokkuð, eða
suð-vesturhluta þess.
Aðalmótstjórn skipa: Páll
Gíslason, mótstjóri, Aðalsteinn
NÝ FLUGVÉL
LOFTLEIÐIR hafa nú fest kaup
5. Cloudmasterflugvélinni, en
hinar heita, Þorfinnur karlsefni,
Leifur Eiríksson, Snorri Sturlu
son og Eiríkur rauði.
Júlíusson, Guðmundur Ástráðs
son, Erna Guðmundsdóttir og
Elín Káradóttir. □
Kýr eru 355 talsins og annar
nautpeningur 220, eða samtals
575 nautgripir, og er það svipuð
tala og árið áður.
Hross eru 200 á fóðrum í
bænum, og er það fleira en áð-
ur. Auk þess eiga bæjarbúar
stóðhross, sem höfð eru annars
staðar.
Heyfengur í sumar var 19000
hestb. Auk þess var töluvert af
gömlu heyi, þótt af því vseri selt
í sumar. Engjaheyskapur ér
loks alveg lagður niður. Hey
urðu minni nú en árið áður og
verkuðust verr en þá.
Forðtgæzlumaður sagði énn-
fremur, að yfirleitt væru skepn
ur mjög vel fóðraðar, þó væri
jafnan einhverjir of fákunnandi
í fóðrun og fengju.þeir ábend-
ingar u,m það, hvað betur mætti
fara.
Öflug girðing var í sumar seft
upp frá Glerá að Hömrum, suð-
ur yfir svonefnda Breiðumýri.
Setja þyrfti upp aðra frá Glerá
og norður, ofan bæja.
Ein bújörð, Kífsá, er í eyði.
Sú jörð er nú í eigu bæjarins.
Dagur þakkar Þórhalli fyrir
upplýsingarnar. □
POSTUR OG SIMI
f FEBRÚAR 1960 var afnota-
gjald af sínia 360.00 kr. árs-
fjórðungslega, '6n er nú kr.
500.00.
Langlínusamtöl yfir 350 km.
kosttiðu kr. 17, en nú 24 krónur
hvert viðtalsbi'l. Á 25—100 km.
vegalengd kostuðu símtölin 8
krónur, en riú 13 krónur.
í febrúar 1960 kostaði kr. 2.25
undir almennt sendibréf, en nú
kr. 3.50.
Þessar “tölur eru staðfestar af
Braga Kristjánssyni rekstrar-
stjóra pósts bg síma.
Það virðast ekki vandkvæði á
því fyrir" þessar stofnanir að
hækka gjöld fýrir þjónustu sína
við almenning.
Örn Indriðason skautameistari Ak. (Ljósmynd: E. D.).