Dagur - 28.03.1962, Blaðsíða 1
Ji MAu;a<;n Framsók.narmanna
!í. lírj<")Ri: ÍpU.INGlJR Davíosson
; Skru.'mui a i Hai narsir i íi !I0
Shn 1 !()(>, So.ningu oc i‘iu;ntiín
A.VNAST 1’RK.NI VKKK ÖnijS.
B)!)KNSS0NAR 11.1. ÁKUKKVlU
..___
XLV. árg.
— Akureyri, niiðvikudaginn 28. marz 1962 —
15. tbl.
mm
^.‘Í > 11' ■#' » > -rr
ÚELS |on SáM” so.\ . ÁrC.ANOO^INN KOS [ \M
i.t< i 00.00 . Gjai.ddaoi r,R ; júúi
Ih \t )1Ö K’KV.KH Á MKJVIÍvUÐÖC-
! •T'.CAR \m t l>A M KIR i 11
Sfdrfsfræðsludagtirinn a sunnud.
Veittar verða leiðbeiningar í Barnaskólanum
EINS OG FRÁ var sagt í síð-
asta blaði verður starfsfræðslu-
dagurinn á Akureyri á sunnu-
daginn kemur, og eins og áður
á vegum Æskulýðsheimilis
| HÆTTULEG BRÚ |
DAGUR hefur nokkrum sinn-
um bent á nauðsyn þess að gera
þannig við elztu brúna á Glerá
við Akureyri, að ekki stafaði
stórhætta af.
Það er vítavert að flytja fólk
í bifreiðum yfir brú þessa og
þarf að gera annað tveggja:
Gera við brú þessa eða banna
fólksflutninga yfir hana.
Hér með er skoi'að á ytirvöld
bæjarins að bíða ekki með að-
gerðir þar til óbætanleg slys
hafa orðið.
Töluverð umferð er um þessa
biluðu brú. Á skíðalandsmótinu
í vor verður mjög mikil um-
ferð um þetta handriðalausa
brúárskrifli. Ætti það að vera
hvatning til að gera nauðsyn-
legar úrbætur. □
templara ög haldinn í Barna-
skóla Akureyrar. Þessi starfs-
fræðsludagur er sá þriðji í röð-
inni hér, en hann hefur verið á
tveggja ára fresti hér í bæ en
ekki annars staðar á Norður-
landi.
Starfsfræðsla er ekki höfð í
skólum hér á landi, svo sem
víða annars staðar er gert. Er
því bætt úr brýnni þörf, að svo
miklu leyti sem það nær. Starfs
greinar eru svo margar í þjóð-
félagi okkar og stöðuval svo
erfitt, að nauðsyn er að veita
ungu fólki sem haldbeztar leið-
beiningar í þessu efni til að auð-
velda valið.
Olafur Gunnarsson sálfræð-
ingur skipuleggur fræðsluna
hér, eins og áður. En hann er
forystumaður starfsfræðslunn-
ar. Hann mun flytja ávarpsorð
í Barnaskólanum á sunnudaginn
ásamt Eiríki Sigurðssyni skóla-
stjóra og Magnúsi E. Guðjóns-
syni bæjarstjóra. Sú athöfn
hefst kl. 1,20 en starfsíræðslan
kl. 2. Barnakór mun syngja við
(Framhald á bls. 7)
Sjúkraflug til Vopnafjarðar
ÖÐRU HVORU er sjúkraflug- Á laugardaginn fór Tryggvi
vél Norðlendinga á ferðinni og Helgason í sjúkraflug til Vopna
oft í mjög þýðingarmiklum er- fjarðar og með honum Gissur
indum. Þegar vélin lendir, bíð Pétursson læknir. Sótti hann
ur sjúkrabíllinn tilbúinn og eft unga konu, er búin var að þjást
ir litla stund er hinn sjúki kom í 3 daga en gat ekki fætt.
inn í umsjá góðra lækna. Lágskýjað var og éljadrög
Hversu mörgum mannslífum flogið var með ströndinni og
sjúkraflug hafa bjargað hér á gekk ferðin vel. Síðar um dag-
landi veit blaðið ekki, en vissa inn fæddist 19 marka strákur á
er fyrir, að þau mannslíf eru sjúkrahúsinu, eftir keisara-
mörg. skurð og heilsast báðum vel.
Hinn myndarlegi vopnfirzki sveinn í höndum Ingibjargar Björns-
dóttur, yfirljósmóður á fæðingardeild Fjórðungssjúkrahússins hér.
(Ljósmynd: E. D.)
Skipbrotsmenn um borð í Salvator. Skipstjórinn er sjötti frá hægri.
Fjórtán skipbrofsmenn !il Akureyrar
Skip norskra selfangara sökk á fáum mínútum
NORSKA eftirlits- og björgun
arskipið Salvator kom til Akur
eyrar í gær með 14 skipbrots-
menn af nórska selfangaranum
Sunnmöringen norðan úr hafi.
Selfangari þessi var, ásamt 8
öðrum, fastur í ísnum, sem í
ár er mjög þéttur. Veður var
gott en straumar þrengdu ísn-
um að skipinu (,,skrúfuís“), svo
jaki gekk inn í skipshliðina og
sökk skipið á 15—20 mínútum.
Þá var klukkan 8 á laugardags-
kvöld. Áhöfnin bjargaði sér öll
í SÍÐUSTU viku varð enn einn
stór bruni í frystihúsi og var
það í Kópavogi við Fífuhvamms
veg og varð af milljónatjón.
Árið 1957 brunnu 4 frystihús
og síðan eitt á ári. En frá 1951
hafa 14 frystihús brunnið.
Borgarafimdurinn
ER A FÖSTUDAGSKVÖLD-
IÐ kl. 9 í Samkomuhúsinu á Ak
ureyri.
Eysteinn Jónsson og Ilclgi
Bergs tala um Efnahagsbanda-
Iagið. Öllum lieimill aðgangur á
meðan liúsrúm leyfir.
Bændaklúbhsfundur
VERÐUR haldinn mámidaginn
2. apríl á venjulegum stað og
tíma. Umræðuefni: Fóðurtil-
raunir á sauðfé og heyrannsókn
ir. Fnunmælandi: Pétur Gunn-
arsson tilraunastjóri.
út á ísbreiðuna og lagði af stað
gangandi til næsta skips. Voru
þeir hálfan annan klukkutíma á
leiðinni. /
íslendingar hafa ekki áhuga á
selveiðunum, þótt styttra sé að
sækja á þau mið héðan en frá
Noregi. Selveiðin gefur þó oft
mikið í aðra hönd, jafnvel mið-
að við uppgripatekjur svo sem
'hér eru oft við sjósókn. Vegna
þess hve ísinn var þéttur voru
skipin ekki komin nógu langt
norður, þangað sem veiðivon er.
Starfandi frystihús eru um
84, eða svo var á síðasta ári.
Eldvarnir frystihúsanna eru
ekki nægilegar og þar um ekki
nægileg ákvæði laga. Hið gifur-
lega frystihúsatjón af eldsvoð-
um er meira fjárhagsspursmál
og raunar einnig skömm en svo,
að við svo búið megi standa.
Bárður Daníelsson verkfræð-
ingur ferðaðist á vegurn Bruna
bótafélagsins milli allra frysti-
húsa landsins fyrir nokkrum ár
um og gerði tillögur til auk-
inna brunavarna. Hann lét svo
um mælt að ferð lokinni, að
frystihúsin myndu brenna inn-
an 20 ára, ef ekki yrðu gerðar
róttækar ráðstafanir. Tillögur
Bárðar munu hafa borið minni
árangur en þörf var á.
Vera má að hægt verði að
„venjast því“ að það brenni eitt
til tvö frystihús á ári hér á
landi, en það er slík sóun verð-
mæta, að með engu móti verð-
ur afsökuð.
Salvator var alllangt frá, því
að hann vildi ekki hætta sér inn
í ísinn. En hann sendi kopta til
að sækja skipbrotsmennina. —
Gekk það að óskum og voru all
ir heilir á húfi.
Selveiðin var rétt að hefjast,
en hún stendur frá 20. marz til
5. maí ár hvert.
Skipherra á Salvator er
Tryggvi Gaas, leiðangursstjóri
Torger Oristland.
Skipstjóri á selfangaranum
er Arnolf Sandvik. Hann mun
halda heimleiðis eftir fáa daga
ásamt mönnum sínum. Fátt
vildi hann um slysið segja, en
fagnaði því þó, að allir voru
heilir á húfi.
Norsku sjómennirnir styttu
sér stundir við spil í gær. Þeir
voi’u ekki fengsælir að þessu
sinni og þó munu þeir fagna
heimkomunni eftir slíka háska-
ferð. Og við óskum þeim góðr-
ar heimkomu og þökkum þeim
góða viðkynningu. □
BÆNDAHÖLLIN OG
FLUGFÉLAGIÐ
UM ÞESSAR mundir er verið
að taka nýju Bændahöllina í
Reykjavík í notkun.
Það er Flugfélag íslands, sem
fyrst flytur þangað, og tekur
það heila hæð á leigu, fjórðu
hæðina, og sameinar þar skrif-
stofur sínar, sem áður hafa ver
ið dreifðar um bæinn.
Hið mikla og góða húsnæði er
þegar eftirsótt og enginn vafi
talinn leika á því að hægt verð-
ur að leigja það út, sem bænda
samtökin sjálf þurfa ekki til
sinna nota og eftir því sem á-
stæður leyfa. □
Hinir tíSu fryslihúsbrunar