Dagur - 27.04.1963, Side 4

Dagur - 27.04.1963, Side 4
4 Einstaklingsfram- takið þarf að efla ÁRIÐ 1958 hafði þjóðin náð þehn áfanga í þrotlausri og árangursríkri baráttu, að búa við betri lífskjör en annars staðar í Evrópu. Þá var 8 stunda vinnudagur lagð ur til grundvallar sæmilegum lífskjör- um. Þá höfðu stórframkvæmdir verið gerðar, svo sem Sogsvirkjunin síðasta, Áburðarverksmiðjan var tekin til starfa og sementsverksmiðjan byggð á Akra- nesi. Árið 1958 voru byggðar 1700 íbúðir í landinu, ræktað meira en nokkru sinni fyrr, enda stórvirkari tæki til landþurrk- unar og jarðvinnslu komin til, bátar og skip bættust í flotann, aðstaða var sköp- uð til að nýta betur síldaraflann, einkum á Norð-Austurlandi — og að öllu þessu og því, sem framkvæmt var af stórhug þá og árin á undan býr þjóðin síðan. AUt er þetta kunnara en frá þurfi að segja og einnig það, að fáum útvöldum bar ekki lofið og dýrðin í þessu efni, heldur fjöld- anum, sem við þáverandi stjórnarhætti naut hæfileika sinna og dugnaðar, bæði einstaklingar og samtök fólksins. Stjórnarstefnan fyrir síðustu stjómar- skipti mótaðist af þeirri hugsjón og nauð- syn, að þjóðfélagsheildin styddi sem flesta einstaklinga til þess að eignast þak yfir höfuðið, hjálpa sem flestum til að hafa sjálfstæðan atvinnurekstur í sveit og við sjó, útiloka skort, skipta þjóðar- tekjum réttlátlega, og styðja heilbrigt fé- lagsmálalíf. Á árinu 1958 áttu fleiri íslendingar eig- in íbúðir, hlutfallslega, en í nokkru landi öðru, og fleiri stunduðu sjálfstæðan at- vinnurekstur, einnig hlutfallslega, en ann ars staðar þekktist. Allt er þetta nijög umhugsunarvert nú, eftir að ný stjómarstefna, sem upp var tekin eftir 1958 og kölluð „viðreisn'1, er farin að raska mjög lífskjörum fólks. Svo mjög er sköpum skipt í þessu efni frá 1958, þegar 8 stunda vinnudagur var raunverulegur, að strax á fyrsta valdaári núverandi stjórnarflokka eða 1959, eftir stýfinguna, þurfti verkaniaðurinn að vinna 8 stundir alla virka daga ársins, 2 yfirvinnustundir á dag og 17 stundir í næturvinnu á ári, til að lifa af, samkv. útreikningi Hagstofunnar. Nú þarf ís- lenzkur verkamaður að vinna 8 stundir virka daga ársins, 2 eftirvinnust. á dag og 414 stundir í næturvinnu að auki, til að lifa af, samkvæmt útreikningi Hag- stofunnar. Svona mikið vantar á, að framfærslukostnaður og kaupgjald hald- ist í hendur. Samhliða þessu hefur fram- förum og uppbyggingu miðað mun hæg- ar síðan 1958, bæði hjá ríki og einstak- lingum á flestum sviðum. Einstaklings- framtakið hefur verið sett í bönd „við- reisnarinnar“. Eða hve miklu torveldara er ekki nú að hefja búrekstur, byggja hús yfir fjölskylduna, kaupa bát eða stofnsetja iðnað, en það var áður en „við- reisnin" kom til sögunnar? Því getur hver svarað fyrir sig. Og allt þetta gerist á sama tíma og útflutningsframleiðslan eykst að vöxtum og selzt fyrir hærra verð erlendis en áður var. Því miður er þess engin von, að úr rætist í efnahagsmálum, ef núverandi stjórnarflokkar fá áframhaldandi valda- aðstöðu eftir kosningar, því „viðreisnar- stefnan“ felur beinlínis í sér þann kjama, að gera þá riku ríkari en allan fjöldann háðan peningavaldi hinna útvöldu. Hraðvaxandi greiðslur vegna ríkisábyrgða ÞEGAR Gunnar Thoroddsen tók við embætti fjármálaráð- herra, var mikið yfir því látið að gerðar yrðu ráðstafanir til að koma í veg fyrir að greiðslur féllu á ríkissjóð vegna ríkisá- byrgða. Hefur áður verið að þessu vikið hér í blaðinu. Gunnar Thoroddsen beitti sér fyrir því m. a. að sett voru lög um ríkisábyrgðir og ríkis- ábyrgðasjóð, sem raunar er ekki sjóður nema að nafninu til, og virðist helzt vera stofnaður til þess að geta látið hann taka lán, til að inna af hendi greiðslur, er annars hefðu verið taldar méð útgjöldum ríkissjóðs og eiga að vera það. Nú alveg nýlega eru fram komnar á Alþingi glöggar upp- lýsingar um útgjöld ríkisins vegna ábyrgða hin síðustu ár. Eru þær prentaðar í áliti minni- hluta fjárhagsnefndar neðri deildar Alþingis, og dagsettar 8. þ. m. Þessar upplýsingar sýna svart á hvítu, að fjármálaráðherra hef ur gersamlega mistekizt að draga úr greiðslum ríkissjóðs vegna vaxta og afborgana af lán um, sem fallið hafa á ríkissjóð, heldur hafa þessar greiðslur þvert á móti stórhækkað og jafn vel margfaldazt í ráðherratíð hans. Samkvæmt þessum upplýsing um hefur ríkið greitt af lánum, sem það er í ábyrgð fyrir, ár hvert þessar upphæðir undan- farin 7 ár: vegna ábyrgða á lánum hrað- frystihúsa og annarra fisk- vinnslustöðva aukizt stórkost- lega, og tala þeirra fyrirtækja, sem reka þá starfsemi, en hafa ekki getað staðið í skilum með greiðslur af lánunum, hefur margfaldazt. Fiskafli hefur auk- izt mjög síðustu árin, og starf- semi fiskvinnslustöðvanna vaxið að sama skapi. Hefði því mátt vænta þess, að rekstrarafkoma þeirra fyrirtækja hefði verið þannig, að þau gætu staðið í skil um með greiðslur af stofnlánum ekki síður en áður. En stóraukn ar greiðslur ríkisins af þeim lán um benda til þess, að hagur fyr- irtækjanna sé nú þrengri en áð- ur. Vaxtahækkunin og fleiri efnahagsráðstafanir á síðustu ár um hafa orðið þeim þungbærar. Á árunum 1959—1960 tók rík- ið á sig ábyrgð á útlendum lán- um til kaupa á 5 nýjum togur- um, að upphæð samtals um 17.6 millj. þýzkra marka. Vegna þess ara ábyrgða hefur ríkið orðið að greiða stórar fjárhæðir síð- ustu 2 árin. Árin 1962 námu þær greiðslur yfir 30 millj. króna. Um síðustu áramót voru ó- greiddar eftirstöðvar af þessum ríkisábyrgðalánum tæpar 15 millj. þýzkra marka, eða um það bil 162 millj. króna.“ Hægara er að kenna heilræð- in en að halda þau, má því segja um frámmistöðu G. Th. í þessu ríkisábyrgðamáli. □ Hafnarskilyrði í Kelduhverfi Ár 1956 — 1957 — 1958 — 1959 — 1960 — 1961 — 1962 18.3 millj. kr. 21.2 — — 23.9 — — 28.9 — — 49.9 — — 75.5 — — 113.3 — — Um þetta segir m. a. í nefndar álitinu: „Skýrslur sýna m. a., að síðan 1960 hafa greiðslur ríkisins SJÖ norðlenzkir þingmenn hafa flutt á Alþingi þingsályktunar- tillögu um rannsóknir hafnar- skilyrða í Kelduhverfi í N.-Þing. Framsögumaður var Gísli Guð- mundsson. Tillagan er á þessa leið: Alþingi ályktar að fela ríkis- stjórninni að láta á næsta sumri (1963) rannsaka hafnarskilyrði í Kelduhverfi og leggja niður- stöður rannsóknarinnar fyrir Alþingi, áður en ákvörðun verð ur tekin um fyrstu vatnsvirkjun vegna stóriðju hér á landi. Greinargerð. Eðlilegt er og sanngjarnt vegna jafnvægis í byggð lands- ins og af fleiri ástæðum, að fyrsta vatnsvirkjun til stóriðju, sem ráðizt verður í hér á landi, verði við Jökulsá á Fjöllum. Fyrir tveim árum fól Alþingi ríkisstjórninni að láta hraða gerð fullnaðaráætlunar um virkjun Jökulsár og að láta fara fram athugun á framleiðslu- möguleikum í því sambandi. Framkvæmd þessarar ályktun- ar Alþingis frá 22. marz 1961 er enn ekki lokið, svo að þinginu VETTVANGUR SAMVINNUNNAR I ORÐUM þeim, sem Jakob Frímannsson flutti á fræðslu- og skemmtifundi hjá Akureyrar- deild KEA, þann 8. apríl sl., ræddi hann lítillega um Stofn- sjóð Kaupfélags Eyfirðinga. Hann sagði að auk þess að stofn sjóðsinnstæða félagsmanna væri greidd út við þær aðstæður, er upp væru taldar í samþykktum félagsins, hefði sú verið venjan síðustu árin, að félagsmenn sem nytu ellilauna eða örorkubóta, gætu fengið stofnsjóðsinnstæðu sína eða hluta af henni útborg- aða undir sérstökum kringum- stæðum, og þyrftu félagsmenn að sækja um þessar útborganir tU stjómar kaupfélagsins. Það getur haft geysimikla þýðingu fyrir aldna félagsmenn, að hafa þama aðgang að ein- hverjum varasjóði til að grípa til, ef kringumstæður gera slíkt nauðsynlegt, og þetta ætti að vera þeim yngri hvatning til aukinna viðskiuta við félag sitt, og hlúa að starfi þess. Mögulegt væri að taka saman hve miklu útborgunin úr Stofn- sjóði KEA nemur vegna þcssara aðstæðna, en ég tel að krónu- fjöldinn skipti ekki máli, heldur það, að þessi leið til útborgun- ar á stofnsjóðsinnstæðu er opin þeim, sem vegna sérstakra á- stæðna þurfa á peningum að halda, enda séu þeir komnir á þann aldur að þeir njóti elli- launa eða fái örorkubætur. S. J. sé kunnugt. En síðan hún var samþykkt, hefur miklu fé verið varið til „samanburðarrann- sókna“ á öðrum fallvötnum, hvað sem af því kann að leiða. Rannsókn hafnarskilyrða í sam- bandi við iðjuver virðist hins vegar enn ekki langt á veg kom- in. Einn þeirra hafnarstaða, sem sjálfsagt er að gefa gaum, er Fjallahöfn í Kelduhverfi og um- hverfi hennar. Þangað er stytzt að sjó frá Dettifossi, landrými nóg, lágt land og slétt, jarðhiti einnig fyrir hendi, en lítt rann- sakaður. Fjallahöfn hefur oft borið á góma í umræðum um hafnamál og jafnvel verið uppi tillögur um „lífhöfn“ á þeim stað. Nú ber svo til, að kunnur útlendur sérfræðingur í hafna- gerð og sandburði með strönd- um fram mun dveljast hér í sumar á vegum hafnarmála- stjórnarinnar. Væri æskilegt að grípa einmitt þetta tækifæri til að láta rannsókn á hafnarskil- yrðum í Fjallahöfn og umhverfi hennar fara fram. En í sam- bandi við Jökulsármálið hafa verið uppi raddir um, að ekki megi láta rannsóknina á þessum stað undan falla. SKOÐANAKONNUN ÞAR SEM í ljós hefur komið, að ekki næst samkomulag milli bíóanna í bænum um breyting á kvöldsýningartíma í kl. 9, yfir sumarmánuðina, mun Borgarbíó fyrst um sinn hafa sama sýning- artíma og áður, eða kl. 8.30, en lætur jafnframt fara fram skoð- anakönnun meðal bíógesta með- an myndin Fanný er sýnd, og fylgir því hverjum miða seðiU, þar sem menn geta látið í ljósi vilja sinn í þessu efni. Stórmyndin Fanný var aug- lýst sem sumarmálamynd bíós- ins, en vegna mistaka í flugsend- ingu gátu sýningar á henni ekki hafizt á sumardaginn fyrsta, en hún verður sýnd í fyrsta sinn í kvöld (laugard. 27. apríl) kl. 8.30. 5 SMÁTT OG STÓRT Hafið kallar Harmi þungum hugir lostnir — hjartna innstu strengir brostnir. Tóm í ranni — tregasár. Hafið gefur, hafið tekur, hafið enn sem fyrrum vekur mannleg rök um feigð og fár. Þegar hinzt var lagt frá landi lognslétt hafið! Sérhver grandi þekktist blíðlynt báru-hjal. Sjá, hin máttka undiralda yfir líður djúpið kalda. — Enginn veit hvað verða skal. Fyrr en varði bráður bylur byrgir sólu — fleyin skilur. Hylur sortinn fjöll og fjörð. Bátinn litla — brims á skafli — brestur þol í lífsins tafli, — við stjórn þó traustur standi vörð. Hjálparboðun berst af hafi — brims úr skugga myrku trafi — ljósvakans á öldum heim. Þjóðin hlustar, þráir, biður, þrunginn kvíða tímans niður. Mundi björgun berast þeim? Heyr — hve sér er fréttin feigðar. Fölvar drjúpa greinar beygðar. þjóðarmeiðs, er styrkur stóð. Til hinztu stundar ættjörð unnu, æðstu fórn þeir gefa kunnu: lífið sjálft — sinn lausnar-óð. Mörgum tregt um tungu að hræra. Trega-andvörp bylgjur færa, — líkt og tíminn staðni’ um stund. Þá — á lífsins stærstu stundum — styrkan mátt þess-'tíðast fundum, þann, er græðir allífs-und. Senn mun norðlenzk vornótt vaka, vinir loftsins frjálsir kvaka — faðma Gjögra geisla-tröf. Minjalönd í tíbrá titra, — trega — höfg þar leiftra, glitra vinar tár á votri gröf. K. V. FRÁ BÆJARSTJÖRN Á BÆJARSTJ ÓRNARFUNDI þeim, sem haldinn var 23. apríl, voru fá mál til umræðu og af- greiðslu. Helzt var það úthlut- un lóða, eða þær aðferðir, sem hafðar eru við hana, en aðallega er viðhafður útdráttur. Kom fram tillaga um að leggja þann hátt niður, en aðrir telja útdrátt arformið eðlilegast og bezt. Al- menningi mun þó þykja eitt- hvað hæpin útdráttaraðferðin, því að nú er svo óeðlilega mikil eftirspurn eftir umsóknareyðu- blöðum, að augljóst þykir, að senda eigi inn margar umsókn- ir fyrir hverja eina, sem meint er að byggja eftir. Hafa verið afgreidd 250 umsóknareyðublöð síðustu daga. Telja verður þó, að þetta bendi til þess, að marg- ir hugsi sér til hreyfings með íbúðabyggingar, enda alkunn- ugt að mjög mikill skortur er á íbúðarhúsnæði hér í bænum. Rætt var um að taka lóðaúthlut- unarmálin til gagngerðrar end- urskoðunar, en þó verður ekki að því að sinni. Golfvallarmálið var nú end- anlega afgreitt þannig, að fram lengt verður stöðuleyfi núver- andi golfvallar um 15 ár, en á því tímabili skal undirbúið nýtt svæði til þessarar íþróttastarf- semi. Lagðir voru fram reikningar Húsmæðraskóla Akureyrar fyr- ir árið 1962. Sýndu þeir, að rekstrarútgjöld skólans höfðu numið kr. 170.723.25 þetta ár. Haldin höfðu verið 7 námskeið í skólanum í vefnaði, matreiðslu og saumum. Kennarar voru þrír. Samþykkt var áskorun til Al- þingis frá bæjarráði um að til- vonandi tækniskóli verði stað- settur á Akureyri. Samþykkt var ráðning nýs starfsmanns frá 1. maí n. k. Er hér um að ræða Magnús Hall- grímsson, byggingaverkfræðing. (Framh. á bls. 7.) „BÖLMÓÐUR BÆNDANNA“ Páll Kolka fyrrum læknir sagði margt vel á mánudaginn í þættinum „um daginn og veg- inn“. Sveitarrómantik vill hann eiga, stórbýli vill hann hafa og nytja vill hann láta landið, inn til dala og út til nesja af milljón um íslendinga framtíðarinnar. Menntun vill hann meiri í bændastétt og ríflegri metnað. AHt er nú þetta gott og blessað hjá ræðumanni. En hann ræddi líka um bölmóð bændanna og taldi hann svo óeðlilega mikinn, að hann orsakaði flótta úr sveit- unum. Hér fatast ræðumanni stórlega og verður að víta þessa grunnfærni harðlega. Sannleik- urinn er sá, að í dag er ekki hag fræðilegur möguleiki fyrir venjulegt, efnalítið fólk að hefja búskap í sveit, hversu fegið sem það vill. Þetta er mergurinn málsins. Og það er af þessum á- stæðum, sem fólk flýr sveitir. Bæði fólk og fjármagn hverf- ur úr dreifbýlinu. Fjármagnið ávaxtast betur í öðrum grein- um og snýr ekki aftur til land- búnaðarins fyrr en stór breyt- ing verður á, sú breyting, að það sé fyrst og fremst mögulegt að hefja búskap og að það sé arð- vænlegt að stunda hann. Þá leit- ar fjármagnið sér jafnvægis á ný. Menning, menntun, metnaður, rausn og rómantík fylgir ekki ætíð fjármagni, en hvergi þó fremur en í sveitum. Mun f jármagn því hvergi bera eins ríkulegan ávöxt og þar, þegar á allt er litið. En það er flónska að ætlast til þess, að reisn bændastéttar, rómantík, framfarir, menntun og efling stéttarinnar yfirleitt, verði fram tíðareinkenni hennar, nema nýr og betri skilningur þjóðfélags- ins komi til. ÞRJÚ MÁL OG ÞRÍR FINGUR Þrjú voru þau málin, sem í- hald og kratar hömpuðu einna mest fyrir síðustu kosningar: Stöðvun verðbólgunnar, bætt lífskjör almennings og varð- veizla landhelginnár. Og um þessi mál voru þau loforð gefin, sem þjóðin vildi, svarið og sárt við lagt í blöðum, útvarpi og í ræðum ábyrgra aðila, að efnd- imar myndu ekki bregðast. STÖÐVUN VERÐBÓLGUNN- AR. var efnd á þann veg, að vísitala vöru og þjónustu er nú hækk- uð úr 100 (frá marz 1959) í 149 stig. Ýmsar neyzluvörur hafa þó hækkað um fullan helming. Það fór illa með efndimar í þessu höfuðmáli. „LEHMN TIL BÆTT RA LÍFSKJARA ..." brást einnig gjörsamlega, svo sem all- ir þekkja. Nýlega haldin ráðstefna Al- þýðusambands Norðurl. segir: „Raunveruleg kauplækkun mið- að við vísitölu framfærslukostn aðar frá jan. 1959 þar til nú, nemur 18%. Og ritstjóri Alþýðu blaðsins segir nýlega, að hver, sem láti sér nægja 8 stunda vinnudag, hlyti að verða hung- urmorða eins og nú er háttað verðlagsmálum hér á landi. Þessir vitnssburðir æítu að vera sæmilega glöggir um efndirnar á loforðum um bætt Jífskjör. LANDHELGIN, fjöregg þjóð- arinnar, var lofað að varðveita, hvern einasta þumlung Iand- grunnsins, út að 12 mílum. Þetta var efnt á þann veg að leyfa Bretum mikilvæg veiði- svæði til þriggja ára og afsala íslendingum jafnframt einhliða útfærslurétti fiskveiðilandhelg- innar um aldur og ævi. — Loforðin þrjú voru falleg og meiri hluti þjóðarinnar treysti þeim, enda voru þau íram borin af núverandi stjóm- arflokkum með þrjá fingur á lofti. En öll voru þau svikin á hinn herfilegasta hátt. Er nokkur ástæða fyrir meiri- hluta kjósenda að fela sömu að- ilum forsjá þjóðmála á ný? GRAFIÐ EFTIR GULLI OG GERSEMUM. Enn eru leitarmenn komnir á fjörur Skeiðarársands, 19 km. vestur af Ingólfshöfða, með tæki til að finna málma í jörð. Fyrir nær 300 árum strandaði á þessum slóðum hollenskt skip, 1600 lestir að stærð, sem flutti dýmiætan farm frá nýlendum HoIIendinga. Ballest skipsins var t. d. klukkukopar og kop- arfallbyssur. En með skipinu var einnig gull, demantar og aðr ar gerseniar, sem aldrei komust til heimahafnar, en bárust að fslandsströnd í ofviðri. Verð- mæti farmsins er talið hafa num ið 1 milljarð ísl. króna. Enginn veit hverju bjargað var og hvað varð eftir um borð, er skipið grófst í sandinn. Vera má, að skipið finnist í sandinum lítið skemmt, spölkorn frá sjó. Að áætluðum stað hins forna skips er engum farartækjum íært nema beltavélum, og þangað er jafnvel ekki fært á liestum. Leit armenn hafa því gott næði til síarfa, enda mun þeim ekki af (Framhald á bls. 7.) SEXTUGAR KONUR HINN 15. apríl átti Sigríður Jónsdóttir á Okrum í Reykja- dal sextugsafmæli. Hún er dótt- urdóttir Benedikts Jónssonar frá Auðnum, missti Ásvald Þor- bergsson, mann sinn, 1949 frá 8 börnum þeirra hjóna, sumum ungum, en hélt áfram búskap með börnum sínum. Sigríður dvelur nú hjá syni sínum og tengdadóttur á Ökrum. Hinn 18. apríl varð Dagbjört Gísladóttir, Jónssonar frá Hofi í Svarfaðardal sextug. Hún kom í Reykjadal er húsmæðraskól- inn þar tó ktil starfa og var kennslukona við hann. Síðan giftist hún Áskeli Sigurjónssyni frá Litlu-Laugum. Þau byggðu nýbýlið Laugafell fyrir 20 árum og búa þar enn og eiga 6 upp- komin börn. Sigríður og Dagbjört eru vin- sælar konur í Reykjadal og vel metnar. Fréttaritari. Á ÁRINU sem nú er að líða, munu nálega 4800 íslendingar skynja dagsins ljós í fyrsta sinn. Tala bamsfæðinga hér á landi er um þessar mundir ca. 2,6% af íbúatölunni. Nú nýlega fékk ég hjá Guð- jóni Hansen tryggingafræðingi í Reykjavík tölu 14 ára bama ár hvert íram til 1970, samkvæmt Kkindareikningi. Ætla má, að þær tölur reynist nálægt lagi. En samkvæmt þessum reikningi verða 14 ára böm á íslandi 1. des. ár hvert sem hér segir: Ár 1963 3656 (fædd 1949) Ár 1964 3938 (fædd 1950) Ár 1965 3859 (fædd 1951) Ár 1966 3948 (fædd 1952) Ár 1967 4194 (fædd 1953) Ár 1968 4178 (fædd 1954) Ár 1969 4332 (fædd 1955) Ár 1970 4443 (fædd 1956) Hinn elzti af þessum átta „ár- göngum“ fermingarbarna kemst í tölu fullgildra þjóðfélagsborg- ara á árinu 1970, með öllum þeim skyldum og réttindum, er því fylgja, og síðan hver af öðr- um. Margt af þessu fólki verður þá búið að stofna eigin heimili í landi sínu og byrjað að bera á- byrgð á annarra lífi. Margt er það, sem veldur á- hyggjum í þjóðmálum um þess- ar mundir, og þá ekki sízt þetta: Hvað verður úr öllum þessum börnum eða unglingum, sem ná fermingaraldrinum á þessu ári — eða næstu árum? Hvemig munu þau sjálf, vandamenn þeirra, menntastofnanir og sam- ferðamenn búa að hæfileikum þeirra og þroskamöguleikum næstu árin? Hversu tekst þeim að inna af hendi ævistarf sitt? Hvemig þetta tekst skiptir ekki aðeins máli fyrir þau sjálf, heldur einnig fyrir framtíð liinnar íslenzku þjóðar, því að hið dýmiætasta, sem landið á, er fólkið, sem elzt upp í skauti þess. Með uppvaxandi kynslóðum býr kraftur, sem ekki verður mældur. Við vitum, að sá kraft- ur notast aldrei til fulls. En það þykjumst við sjá, að hann notist misjafnlega. Margt er það, sem því veldur. Hvert tímabil á sín vandamál á þessu sviði. í stað skorts og drepsótta fyrrum, koma nýjar plágur, sem leggja hömlur á þroska mannsins. Á margra vörum brennur í dag sú spurning, hvernig helzt megi stuðla að því, að mannleg verð- mæti spillist ekki, heldur njóti sín sem bezt. Ef þetta tekst, mun margt annað takast, segja spakir menn. Nú nýlega hafa skólastjórar barnaskólanna á Akureyri birt þarflegar hugvekjur um þessi mál, sem áreiðanlega hafa orðið mörgum umhugsunarefni. Akureyri er mikill skólabær og hafa margir ágætir skóla- menn starfað þar fyrr og síðar. Ræður þær, sem skólameistar- arnir og aðrir skólastjórar hafa flutt þar við skólasetningar og skólaslit ár hvert í undanfarin 50 ár og margar hafa birtzt á prenti, eru mikilsvert framlag til uppeldismálabókmennta. Fleira mætti nefna í þessu sam- bandi og ýmislegt annað, sem styður þá skoðun, að höfuðstað- ur Norðurlands hafi skilyrði til frumkvæðis og forystu á þeim vettvangi. En því nefni ég þetta hér, að mér sýnist sem leik- manni í uppeldisfræðum, að á því geti verið nokkur hætta, að úrræði hins opinbera í æsku- lýðsmálum miðist um of við að- kallandi vandamál þeirrar einu stórborgar, sem nú er að mynd- ast hér á landi og er á góðri leið með að bera ægishjálm yfir landsbyggðina. Verður mörgum á, að leita einhliða fyrirmynda frá erlendum stórborgarbyggð- um. Ennþá er fsland ekki orðið borgríki við Faxaflóa. Ennþá er landsbyggðin mikils megnug, sé hún ekki haldin þeirri minni- máttarkennd, sem lamar stór- hug og dirfsku. Er ekki ástæða til þess fyrir þá, sem þar hafa með höndum forsjá uppeldismála, að vara þjóðina við því að þyrpast sam- an á einn stað, í eina borg, í stað þess að nota sér eftir föngum þau hollu uppeldisáhrif, sem landið með olnbogarými sínu og fegurð hefur að bjóða og mörg borgarbörn vildu fegin njóta, ef þau ættu þess kost. Er ekki þörf á að vara við snöggsoðnum nú- tímakreddum um samband bama og unglinga við líf og starf? Hin fámenna íslenzka þjóð verður að kosta kapps um, að sem allra ílest af börnum henn- ar komist á fullorðinsaldur með heilbrigða sál í hraustum Iík- ama. Og einhvern veginn þarf að vera hægt að innræta sem flestum að kröfur Kfsins til ein- staklinganna og einsíaklinganna til lífsins eiga hvor tveggja sinn rétt. Við getum kallað þetta fé- lagshyggju — eða eitthvað ann- að, ef okkur þykir það betur henta. Nú skal þess næst getið, að lokum, að prentvillupúkinn hef- ur komið nokkuð við sögu á tveim stöðum í síðustu grein minni, xmdir fyrirsögninni „Land og þjóð“. Á fyrri staðnum átti að standa: „Og þótt fjölmenni væri hér ekki meira en sumstaðar í einu borgarhverfi, en landshættir og landsbyggð ólíkt því, sem al- mennt gerðist, töldu margir (Framhald á bls. 7.)

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.