Dagur - 27.04.1963, Side 8
8
sú, sem Perri-
Hafnargerð við Flafasker
Undanfarnar vikur hefur staðið yfir ensKunamsKeio a vegum isienz».-aiiieris».a iciagsms a anurcjn
sem lauk nú um páskana. Þáttaka var geysimikil og komust fserri að en vildu. Kennarar voru hjón-
in Audrey og Frank Perri frá Califomiu, en þau dveljast um þessar mundir hér á landi á vegum
Fulbright-stofnunarinnar í Bandaríkjunum í því augnamiði að kenna enskt talmál í íslenzkum fram
lialdsskólum og skipuleggja framhald slíkrar kennslu á komandi árum. Kennsluaðferð
hjónin styðjast við, er hin svonefnda „audio-lingual“ aðferð. Voru þáttakendur í námskeiðinu mjög
lirifnir af þeim árangri sem náðist. Myndin var tekin af Perri-hjónunum í Lesstofu íslenzk-amerízka
félagsins ó Akureyri við lok síðustu kennslustundarinnar. Þau hjón létu mjög vel af dvöl sinni hér.
Aðalfundur Skógrækfarfél. Eyfirðinga
Yfir 100 þ ús. plöntur til afhendingar í vor
AÐALFUNDUR Skógræktarfé-
lags Eyfirðinga var haldinn að
Hótel K. E. A., laugardaginn 20.
þ. m. Fundinn sóttu 26 fulltrúar
frá deildum félagsins.
Formaður félagsins, Guðm. K.
Pétursson, yfirlæknir, stjórnaði
fundinum og minntist í upphafi
fundarins Hannesar Davíðsson-
ar bónda að Hofi, sem lézt 16.
þ. m., en Hannes var traustur
stuðningsmaður skógræktar, var
sjálfur þátttakandi í gróðursetn
ingarstarfi í sinni sveit og gaf
stórgjáfir til skógræktar. Fund-
armenn vottuðu hinum látna
virðingu sína með því að rísa úr
rætum.
Útbýtt var á fundinum fjölrit-
aðri ársskýrslu.
Að lokinni greinargerð um
skýrsluna, beindi formaður-
þakkarorðum til allra, sem veitt
hefðu málefni félagsins stuðn-
ing og sérstaklega til bæjar-
stjórnar Akureyrar fyrir fjár-
liagslega aðstoð og góðan skiln-
ing á starfsemi félagsins.
Samþykkt var á fundinum
fjárhags- og framkvæmdaáætl-
un fyrir árið 1963 og skýrði
framkvæmdastjóri félagsins, Ár-
mann Dalmannsson hana fyrir
fundarmönnum.
Gert er ráð fyrir að gróður-
setja í sumar allt að 130 þús.
plöntur, þar af hjá Skógræktar-
félagi Akureyrar 33,500 plöntur,
í öðrum deildum félagsins 25-30
þús. plöntur og hitt í skógarreiti
Skógræktarfélags Eyfirðinga.
Áætlað er, að hátt á annað
hundrað þúsund plöntur verði
til afhendingar úr gróðrarstöð
félagsins á þessu ári.
Niðurstöðutölur fjárhagsáætl-
unar voru kr.. 500.000.00.
Úr stjórn félagsins áttu að
ganga Guðm. Karl Pétursson
og sr. Sigurður Stefánsson og
voru báðir endurkosnir. Aðrir í
stjórninni eru: Ármann Dal-
mannsson, Björn Þórðarson, sr.
Benjamín Kristjánsson, Helgi
Eiríksson og Þorsteinn Davíðs-
son.
Þá voru kosnir 8 fulltrúar á
aðalfund Skógræktarfélags ís-
lands, en sá fundur mun verða
á Akureyri um miðjan ágúst í
sumar.
Síðasta ár voru fast að 109
þús. plöntur gróðursettar hjá 8
deildum félagsins, einstakling-
um og í reitum þeim, sem Skóg-
ræktarfél. Eyfirðinga sjálft hef-
ur. En úr skógræktarstöð félags-
ins í Kjarnalandi voru nær 86
þús. plöntur afgreiddar. □
Engihlíð, Árskógsstr. 23. apríl.
í dag hófst undirbúningsvinna
við hinar nýju hafnarfram-
kvæmdir við Flatasker á Litla-
Árskógssandi. Guðm. Gunnars-
son verkfræðingur vitamála
skrifstofunnar, var hér í dag og
lagði síðustu hönd á áætlanir
framkvæmdanna.
En þær verða sem hér segir:
Frá sjávarbakka og fram í fjöru
verður byggður 30 metra langur
grjótgarður, malarfylltur. Þar
fyrir framan 43 metra langur
garður, með austurkant steypt-
an og steyptu gólfi. Breidd 9
metrar.
Framan við kemur svo álma
norðaustur, 30 metrar á lengd
og 10 metra breið með steypt-
um skjólvegg. Kostnaðaráætlun
er 2,2—2,4 milljónir króna.
í dag er hafin vegagerð
frá Flataskeri og vestur að Gils-
bakkaklöppum. En í þeim klöpp
um verður grjót tekið til fram-
kvæmdanna, stutt norðan við
Hinriksmýrarlæk.
Loftpressa og krani eru kom-
in á Gilsbakkaklappir og hefst
grjótnámið þegar vegurinn er
akfær.
Verkstjóri verður Guðmund-
ur Hjaltason, sem stjórnar einn-
ig hafnargerð þeirri í Hrísey, er
enn stendur yfir.
8—12 manns munu að stað-
aldri vinna við hafnarfram-
kvæmdir við Flatasker í vor og
fram eftir sumri.
Auk þessa er það helzt í frétt-
um, að Sævaldur fékk í gær 24
skippund í net eftir 2 sólar-
hringa og varð að skilja eftir.
Hann kom í dag með afganginn
og fisk úr lögninni úr þeim net-
um, sem lágu yfir nóttina og
var þá einnig fullhlaðinn. Línu-
bátar fá 5—8 skippund í róðri.
OLÍA f SJÓ VIÐ
AKUREYRI
MARGIR hafa hringt til blaðs-
ins og tjáð því, að olíu hafi ver-
ið dælt í sjóinn' nýlega við Odd-
eyri. í olíunni drepist fjöldi sjó-
fugla, einkum endur og æðar-
fugl, og sé leitt að þurfa að
horfa upp á hörmung þessara
fugla.
Hér er sannarlega verkefni
fyrir Dýraverndunarfélag Akur
eyrar og yfirvöld bæjarins —
og raunar ekki í fyrsta sinn, sem
lög eru brotin hér, í sambandi
við olíuflutninga.
Blaðið væntir þess, að mál
þetta verði upplýst, og þannig
að unnið, að slík spellvirki verði
ekki endurtekin.
Glæpir og slys hurfu í Svíþjóð
er bruggarar voru í verkfalli og áfengi þraut
„Geysi þvðingar-
i; miklar kjarabætur44! i:
MORGUNBLAÐIÐ segir, að |Í
í nýju tollaskránni felist „geysi i;
þýðingarmikil kjarabót fyrir
allan almenning, því að marg-1 í
ar vörutegundir munu lækka i >
í verði“. Síðan> bætir blaðið i >
við, að ekki muni bó vísitalan i I
lækka verulega, af því, eins
og blaðið orðar það, „að á tím-
um vinstri stjórnarinnar var !1
stöðugt verið að falsa vísitöl-; >
nnn “!
Skuldir uxu meira en innsfæður
DAGUR hefur nokkrum sinn-
um birt opinberar tölur um af-
komu landsins út á við og þær
hvergi verið hraktar. Tölur þess
ar sýna, að erlendar skuldir
þjóðarinnar hafa vaxið heldur
meira en innstæðumar síðan í
árslok 1958, er vinstri stjórnin
lét af völdum. Og þær eru tekn-
ar úr Fjármálatíðindum og einn
ig, þær síðustu, úr Ársskýrslu
Seðlabankans. Heimildirnar
ættu því ekki að teljast af verra
taginu.
Er. þrátt fyrir staðreyndir bera
stjórnarblöðin og jafnvel ráð-
herrar það sér í munn alveg
kinnroðalaust, að þessu sé ekki
þann veg farið, heldur hafi í
þessum efnum náðzt undraverð-
ur árangur! Já, árangur „við-
reisnarinnar“ er undraverður,
en á þessu sviði er hann nei-
kvæður og gaf þó sjávaraflinn
800 millj. kr. meira í aðra hönd
árið 1962 en hann gerði 1958.
Og engar stórframkvæmdir eru
gerðar í landinu undir „við-
reisn“.
Erlendar skuldir umfram inn
stæður voru í árslok 1958 kr.
1999 milljónir króna. Erlendar
skuldir umfram innstæður í árs-
lok 1962 voru 2031 millj. króna.
Báðar þessar niðurstöður eru
reiknaðar á sama gengi.
Á BANNÁRUNUM hér á landi
var mjög lítið drukkið, þótt um
algera þurrkun væri ekki að
ræða. Þá drukku að minnsta
kosti ekki konur eða börn. Þá
stóðu hinar litlu fanggeymslur
tómar, glæpir hurfu og áfengis-
slys voru fátíð. Um þetta vitna
opinberar skýrslur svo glöggt,
að ekki verður um villzt. Þeir,
sem áður beittu sér gegn bann-
inu, urðu að sætta sig við að
hafa reynzt falsspámenn í öll-
um aðalatriðum áróðurs síns
gegn banni.
Um þessar mundir eru merki-
legir hlutir að gerast í Svíþjóð.
Þar er að vísu ekkert bann og
Svíar eru ekki mjög bindindis-
samir. En svo stendur á, að
bruggarar tóku sig til og heimt-
uðu hærri laun fyrir vinnu sína
og hófu síðan verkfall. Þetta or-
sakaði þurrð vínfanga í verzlun-
um.
Fréttir herma, að mikill
straumur ferðamanna hafi legið
til Danmerkur vegna þessa á-
stands. En þangað lögðu þyrstir
Svíar leið sína til áfengiskaupa.
Um þetta hafa blöðin birt frétt-
ir. En það var fleira sem gerðist
í sambanda við áfengisvöntun-
ina í hinni svölu Svíþjóð. Um
það liggja fyrir opinberar tölur,
sem sumum blöðum finnst ekki
ástæða til að birta. Þessar töl-
ur sýna, að slysum fækkaði stór
lega, tala afbrota og glæpa hrap-
aði niður, unglingaupphlaup
hurfu með öllu og bifreiðaá-
rekstrum fækkaði mjög. Þetta
er eftirtektaverð reynsla, sem
sýnir, að þar eins og hér er á-
fengisneyslan mikill bölvaldur.
Ennfremur er ljóst, að vélanotk-
un og vínneyzla á ekki saman.
Hinar „geysi þýðingarmiklu ; ►
kjarabætur“ eru þó ekki meiri 'l
en svo, að áliti G. Th. fjármála : I
ráðherra, samkvæmt þing-!j
ræðu, að ekki nemur heilu !;
vísitölustigi framfærslukostn-1
aðar!
Hins vegar er ýmisleg sam- ;>
ræming tolla eflaust þörf og;!
til bóta. En sem kosningaplagg'!
^er hún engum stjómmála-f
engum
Hokki til framdráttar.
Afli glæðist hjá Eyjafjarðarbátum
HVARVETNA berast fréttir
um batnandi og góð aflabrögð
í verstöðvum við Eyjafjörð. f
Hrísey t. d. taldi fréttaritari
landburð af fiski 3 síðustu daga
vetrarins, Hauganesbátar fengu
líka ágætan afla einkum í net —
urðu jafnvel að skilja eftir.
Grenivíkurbátar fiskuðu mjög
sæmilega á línu og handfæri, en
eiga í erfiðleikum með að losna
við afla sinn.
í Grímsey var ágætur afli fyr
ir páskagarðinn og mikið af grá
sleppu veiðist hjá því eina út-
haldi, sem þær veiðar stundar.
Fiskur gekk inn í Ólafsfjörð
síðustu vetrardagana og smá-
trillur öfluðu vel. Þá fékk Ár-
mann 15 tonn einn daginn.
Þorskur gekk alla leið inn á.
Akureyrar-Poll og var þar góð-
ur afli nokkra daga, og loðna
hefur veiðzt þar. □
Tvö dvralæknishéruð
FRÁ 1. maí n. k. kemur til fram
kvæmda sú breyting, að hér
verða tvö dýralæknisumdæmi.
Ágúst Þorleifsson dýralæknir
hefur frá og með þeim tíma:
Saurbæjarhr., Ongulsstaðahr.,
Svalbarðsstrandarhr., Grýtu-
bakkahrepp, Grímsey og Háls-
hrepp í S.-Þing.
Guðmund Knutsen dýralækn-
ir hefur: Hrafnagilshrepp, Ak-
ureyri, Glæsibæjarhr., Oxna-
dalshr., Skriðuhr., Arnarneshr.,
Árskógshr., Svarfaðardal, Dal-
vík, Hrísey og Ólafsfjörð. □