Dagur - 04.05.1963, Síða 2

Dagur - 04.05.1963, Síða 2
2 Ýmsar fréttir úr Svarfaðardal Svarfáðardal 1. maí 1963. Snjór kom hér allmikill í aftakaveðr- inu sem hófst þann 9. f. m. Þann snjó hefur nú leyst allmikið, einkum á láglendi og að vestan- verðu í dalnum. Skaðar urðu ekki svo teljandi væri, nema 2 ær mun hafa far- izt á einum bæ og 1 á öðrum. Nú síðustu dagana hefur aft- ur brugðið til norðanáttar og verið hríðarveður þrjá síðustu daga, með 2—3 stiga frosti, þar til nú í kvöld er frostið komið í 7 stig. Fönn hefur ekki komið svo teljandi sé, þó er hvítt yfir að líta. í dag fóru fram skólaslit á Barna- og unglingaskólanum á Húsabakka. Skólastjórinn, Þórir Jónsson, flutti skólaslitaræðu og afhenti prófskírteini. Var ræða hans öll hin athyglisverðasta. Lagði hann megin áherzluna á samvinnu heimila og skóla. Taldi að börnin þyrftu að vera nokkuð læs og skrifandi og kunna einföldustu aðferðir í reikningi þegar þau kæmu í skól ann, 10 ára. Ennfremur að heim- ilin fylgdust með framförum þeirra, glæddu skilning þeirra á gildi skólans og kenndu þeim að taka tillit til annarra. Hæstu einkunnir hlutu þessir nemendur: í eldri deild ung- linga Stefanía Snævarr 8.42, í yngri deild unglinga Árni Hjart- arson 8.14, í eldri deild barna Vignir Sveinsson 8.88, og var það jafnframt hæsta einkunn yf- ir allan skólann, í yngri deild barna Ingibjörg Snævarr 8.15. Bókaverðlaun veitti skólinn þeim nemendum, sem sköruðu fram úr í íslenzku. Formaður skólanefndar, sr. Stefán V. Snæ- varr, afhenti þau. Þessir nem- endur hlutu verðlaunin: Svana Halldórsdóttir og Stefanía Snæ- varr, er báðar höfðu einkunnina 7.8, Árni Hjartarson 7.0, Gunn- laugur Snævarr 9.1 og Ingibjörg Snævarr 8.0. Þá hlaut Jóhanna Einarsdóttir verðlaun fyrir mesta einkunnarhækkun á ár- inu. Ennfremur veitti Lionsklúbb- urinn á Dalvík bókaverðlaun þeim, sem hæsta einkunn höfðu af unglingum og börnum, eða þeim Stefaníu Snævarr og Vigni Sveinssyni. Jafnhliða skólauppsögninni var sýning á handavinnu nem- enda. Sýndar voru um 90 teikn- ingar, allt að 100 munum gerð- um af stúlkum (saumur alls konar og prjón) og um 75 smíð- isgripir drengja. Margt var þarna af vel unnum munum og furðulegt hve miklu nemendurn ir hafa komið í verk á jafn skömmum tíma sem um er að ræða. Kennarar, auk skólastjóra, voru: Björn Daníelsson, Hjalti Haraldsson og Helga Þórsdóttir. Tvö þau síðastneíndu kenndu handavinnu. Nemendur í skólanum voru alls 73. □ - Tækniskólamál Norðlendinga Varanleg gatnagerð AÐALFUNDUR Gatnagerðar- innar sf. var haldinn miðviku- daginn 17. þ. m. í Reykjavík. Formaður félagsstjórnarinnar, Jónas Guðmundsson, gerði grein fyrir starfsemi félagsins á liðnu ári. Félagið keypti mal- bikunartæki, malbikunarstöð, þjappara og dráttarbifreið, til að draga tækin á milli staða, þar Fáein orð um mém mann STEFÁN JÓNSSON, forstjóri Elliheimilisins í Skjaldarvík, varð 75 ára í gær. Um fortíð hans veit ég ekki mikið, þó það, að hann var áður klæðskeri á Akureyri og rak þar saumastofu í eigin húsi. En fyrir um það bil 20 árum hóf hann að reka á eignarjöi'ð sinni, Skjaldarvík, hæli fyrir elli- hrumt' fólk og örvasa. Sá mikli fjöldi gamalmenna, sem þar hef- ir leitað hælis, hefir bezt sýnt, hve brýn var þörfin á slíkri stofnun. í áföngum liefir Stefán komið upp hæli, er rúmar 70 vistmenn, sömuleiðis íbúðarhúsi fyrir starfsfólk sitt. Þegar litið er yfir byggingar hælisins í Skjaldarvík, þá getur naumast hjá því farið, að áhorf- andanum finnist til um þann dugnað, sem frumkvöðull og framkvæmdastjóri fyrirtækisins - Morgunblaðið játar (Framhald af blaðsíðu 1) en í árslok 1958, um það lcyti, sem vinstri stjórnin lét af störf- um. Þessi skýrsla Morgunblaðsins gefur til kynna, sem rétt er, að mjög mikil skuldaliækkun Iiafi orðið á Emils-árinu (1959) og á fyrsta ári „viðreisnarinnar11, en síðan hafi skuldimar lækkað 1961—62 (vegna hins mikla sjáv arafla) og hafi þó um síðuslu áramót verið nokkru hærri en þær voru í árslok 1958 eins og Dagur hefur skýrt frá en blöð stjórnarinnar hér hafa ekki -viljað írúa. .... ... □ hefir sýnt, og ekki hvað sízt, þeg ar þaS er hugleitt, að þessu kem ur Stefán í verk, þegar hann er kominn á það tímabil ævinnar, er starfsdegi margra tekur að halla eða ljúka. Stefán er þó meira en for- stjóri elliheimilis, hann er líka bóndi, sem rekur drjúgan bú- skap á jörð sinni, og hann er einnig húsbóndi, sem fylgist vel með öllu, er fram fer á heimili hans. En það, sem mér finnst sérkennilegast við Stefán, er hin óeigingjarna, beina þjónusta hans við gamla fólkið. Ég sé hann í anda fyrir mér, er hann, klæddur f hvítsf sloppinn, geng- ur um hælið, bæði möðón aði'ir eru að störfum, og einnig á þeim hluta sólai-hringsins, sem aðrir nota til að hvílast og sofa, hjúkr andi þeim, er þarfnast líkrar þjónustu og börn í vöggu. • Stefán er engiim hávaðamað- ur og virðist ríkur að rósemi og þolinmæði. Þeir eiginleikar hans hafa átt drjúgan þátt í því að skapa kyrrlátt andrúmsloft heimilisins ásamt með því, að staðurinn liggur fjarri ys og skarkala bæjarlífsins. Stofnun- inni hefir líka orðið það styrkur, að Stefán hefir verið maður hjúasæll að gömlum sið, svo að sumt af starfsfólkinu hefir verið þar árum saman. Stefán er vel ern og undra- vert starfsþrek, sem honum er gefið, þegar þess er minnzt, að hann er nú orðinn hálf-áttræður. Megi hann njóta þess sem lengst og enn geta lengi hlynnt að þeim, sem minni máttinn hafa. G. P. sem unnið yrði að malbikun. Á árinu var unnið að malbik- un með tækjum félagsins í Hafn arfirði, á ísafirði, á Sauðárkróki og á Selfossi og malbikaðar ak- brautir á þessum stöðum sam- tals 9117 fermetrar. Olíumöl var hrærð í tækjunum og lögð á 1080 fermetra akbraut á Sauðár- króki, og því malbikað og olíu- borið á árinu 10.197 fermetrar. Auk þess að reka malbikun- artæki annast félagið milligöngu um kaup á sementi til gatnagerð ar samkvæmt samningi við Se- mentsverksmiðju ríkisins. Á seinasta ári voru steinsteyptar götur á Akranesi, í Borgarnesi, á Ólafsfirði, í Neskaupstað og í Hveragerði samtals um 18.000 fermetrar, þar af voru um 10.000 fermetrar á Akranesi. Þannig voru á árinu 19.62 steyptar og malbikaðar akbraut ir á vegum félagsins að flatar- máli um 28.000 fermetrar. Unnið er nú að undirbúningi gatnagerðar í nokkrum kaup- túnum á komandi sumri og jafn framt er í athugun að festa kaup á stærri og afkastameiri malbik- . unarvél. . í stjórn félagsins voru kosnii;: Jónas Guðmundsson, formaður Sambands íslenzkra sveitarfé- laga, Hafsteinn Baldvinsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, Hálf- dán Sveinsson, bæjarfulltrúi á Akranesi, Magnús E. Guðjóns- son, bæjarstjóri á Akureyri og Sigurður I. Sigurðsson, oddviti á Selfossi. F ramk væmdast j óri f élagsins hefur verið ráðinn Stefán Gunn laugsson fyrrum bæjarstjóri í Hafnarfirði. í félaginu eru 19 kaupstaðir og kauptún. (Fréttatilkynning frá Gatna- gerðinni sf.). (Framhald af blaðsíðu 5). hans. Á ofannefndum fundi var einnig mættur Sveinbjörn Jóns- son. Niðurstaða fundarins varð sú, að ráðherrann kvaðst enn vilja stuðla að því, að komið yrði á fót undirbúningsdeild tækni- skóla á Akureyri og öðrum deildum skólans, eftir því sem fært væri, enda skyldi hann beita áhrifum sínum til þess að menntamálanefnd legði til breyt ingu á framkomnu frumvarpi um Tækniskóla íslands, er opn- uðu leið til fullkominnar tækni fræðikennslu á Akureyri. Fund armenn undu þessum málalok- um eftir atvikum og treystu því, að á frumvarpinu yrðu gerðar þær breytingar, sem opnuðu Ak ureyringum leið til sjálfstæðrar tæknifræðikennslu, — „Tækni- skóla Akureyrar“. Menntamálanefnd neðri deild- ar tók frumvarpið til ýtarlegrar athugunar og án þess að það verði frekar rakið hér, þá er skemmst frá því að segja, að nefndin fann marga agnúa á frumvarpinu og varð af nefnd- aráliti ráðið, að málið væri illa undirbúið af hálfu þeirra, sem að því höfðu unnið. Lagði nefnd- in fram margar breytingatillög- ur við frumvarpið (lagði fyrst og fremst til, að lögin yrðu heimildaijög) og bætti inn á- kvæði um heimild til þess að starfsækja undirbúningsdeild á Akureyri. Jafnframt lýsti nefnd- in yfir því í prentuðu áliti, að hún teldi, að með því væri kom- inn „vísir" að tæknifræði- kennslu á Akureyri. Áður en þetta varð hafði bæj- arráð Akureýrar samþykkt á- skorun á Alþingi um að ákveða skólanum stað á Akureyri. Sendi bæjarráð samþykkt þessa til menntamálanefndar, svo og einstakra þingmanna, en ekki treystist nefndin til þess að fylgja fram þeirri áskorun og gat hennar að litlu eða engu í áliti sínu. Hins vegar fluttu neðrideildarmenn Framsóknar- flokksins úr Norðurlandskjör- dæmi eystra, Ingvar Gíslason og Gísli Guðmundsson, í samein- ingu breytingartillögu um að Tækniskóli íslands skyldi stað- settur á Akureyri, enda var það í samræmi við þá skoðun, sem þeir höfðu lýst þegar við 1. um- ræðu málsins. Ingvar Gíslason mælti fyrir þessari tillögu við 2. umræðu málsins og sýndi fram á það, að Akureyri hefði ekki upp á að ‘þjóða lakari skilyr.ði. sem aðset- ursstaður ' tækniskólans en Reykjavík og hvat.ti eindregið til þess að tillaga þeii-ra Gísla yrði samþykkt. Kvaðst Ingvar harma það, að menntamálanefnd hefði í engu reynt að koma til móts við óskir Akureyringa um tæknifræðikennslu og kvaðst leggja lítið upp úr heimild um starfrækslu undirbúningsdeild- ar einnar saman sem „vísi“ að tækniskóla á Akureyri, þrátt fyrir allar fromar yfirlýsingar um að svo skyldi verða. Kvað Ingvar það lágmark, að í lögun- um fælist ákvæði er heimilaði starfrækslu einstakra bekkjar- °g skóladeilda á Akureyri, og að skýrt væri tekið fram, að stefnt væri að stofnun sjálfstæðs tækniskóla á Akureyri. Frá aðalfundi Mjólkurbús Flóamanna (Framh. af bls. 1). sem búið heídur eftir eða greið- ir fyrir bændur, er mjólkurverð ið eða nettoverð á kg. kr. 4.28.4 og pr. líter kr. 4.41.4 og er það verð 12,01% hærra en árið áður. Grundvallarverð fyrir árið 1962 er kr. 4.90 pr. líter. Til þess að það verð náist að þessu sinni vantar um hálfa milljón króna. Mjólkurbússtjóri er Grétar Simonarson. □ Benedikt Gröndal, formaður og framsögumaður menntamála nefndar, kvaðst hafa litið svo á, að óskum Akureyringa væri full nægt með ákvæðinu um undir- búningsdeild á Akureyri, og menntamálaráðherra tók í sama streng og lagði mikla áherzlu á, að nauðsynlegt væri að stofn- setja tækniskólann í fyrstu í Reykjavík, þó að hann hins veg- ar teldi það eðlilega þróun, að tækniskóli risi síðar á Akureyri. Jónas Rafnar kvaðst fylgjandi tillögu menntamálanefndar um „undirbúningsdeild“ á Akureyri og liti hann svo á, að með því væri kominn „vísir“ að tækni- skóla. Taldi hann eðlilegt, að tækniskóli væri staðsettur í Reykjavík og færði fram ýmsar ástæður fyrir því, m. a. að það væri erfitt fyrir Reykvíkinga að sækja skóla á Akureyri. Liti hann svo á, að með samþykkt frumvarpsins væri þó stefnt að því, að upp risu tveir tækni- skólar í landinu, í Reykjavík og á Akureyri. Ingvar Gíslason og Gísli Guð- mundsson andmæltu ýmsu af því, sem fram hafði komið f ræðum ofannefndra þingmanna, einkum því að undirbúnings- deild undir tækniskóla næði til þess að verða vísir til sjálfstæðs skóla, án skýrari lagafyrirmæla. Síðar tók Benedikt Gröndal aftur til máls og kvaðst skyldi athuga það við menntamála- nefnd, ef það mætti verða til málamiðlunar, að tekið yrði upp í frumvarpið ákvæði, sem heim- ilaði, auk undirbúningskennsl- unnar, starfrækslu annarra bekkjardeilda tækniskóla. Ingvar Gíslason tók eindregið undir það, að menntamálanefnd tæki málið fyrir að nýju. Kvaðst hann raunar hafa haft í huga, ef tillaga þeirra Gísla Guð- mundssonar yrði felld, að flytja. varatillögu er hljóðaði svo: „Heimilt er að starfrækja und- irbúningsdeild á Akureyri, svo og aðrar bekkjar- og skóladeild- ir tækniskóla, enda sé að þvf stefnt, að á Akureyri rísi sjálf- stæður tækniskóli." Umræðunni var síðan frestað og átti Benedikt Gröndal viðræð ur utan fundar við þá Ingvar og' Gísla og hét að beita sér fyrir því í menntamálanefnd, að hert yrði á ákvæðunum um tækni- skóla á Akureyri gegn því, að þeir tækju aðaltillögu sína aft- ur. Samþykktu tillögumenn það, þó með því skilyrði, að breyting- artillagan rúmaði efnislega það, sern Ingvar hafði stungið upp á í hugsanlegri varatillögu. Gekk Benedikt að þessu og flutti, með stuðningi samnefndarmanna sinna í menntamálanefnd, breyt- ingartillögu, er hljóðaði svo: „Einnig er heimilt að starfrækja aðrar bekkjar- og skóladeildir tækniskólans á Akureyri, enda sé að því stefnt, að þar rísi sjálf- stæður tækniskóli.11 Var ákvæði þetta samþykkt mótatkvæðalaust. Þessum úrslitum ber að fagna á Akureyri. Það er nú þegar lögákveðið, að stefnt sé að stofn un tækniskóla á Akureyri, svo sem almennur vilji er fyrir í bænum, og þó að margir eigi sinn þátt í því að málinu miðaði áfram stig af stigi, réð í þetta sinn úrslitum afstaða þeirra al- þingismanna, sem með fullri einurð héldu fram hlut Akur- eyrar og Norðurlands í þessu máli í umræðum á Alþingi og tókst með lægni að beita sér fyrir viðunandi lausn. Að gefnu tilefni, m. a. í Al- þýðumanninum, er meðferð málsins á Alþingi rakin hér að framan.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.