Dagur - 04.05.1963, Page 4

Dagur - 04.05.1963, Page 4
4 Dagur Norðlenzk viðhorí ÞAÐ VAR engin tilviljun, að norðlenzki bóndinn og samvinnuleiðtoginn, sem á morgni aldarinnar sat stofnfund Sam- bands íslenzkra samvinnufélaga á heim- ili sínu, varð fyrsti ráðherra Framsókn- arflokksins í ríkisstjórn íslands. Það var engin tilviljun, að liinir þjóðkunnustu brautryðjendur flokksins í öndverðu, þrír af fjórum forsætisráðherrum hans til þessa dags og allir ráðherramir í stjórninni, sem kom til valda eftir hinn fræga kosningasigur 1927, voru synir Norðurlands eða norðlenzkra heimila. Það var engin tilviljun, að fyrsta stjórn- in sem Framsóknarflokkurinn myndaði,, lét það verða eitt af sínum fyrstu verk- um, að verða við áskorun Norðlendinga um stofnun menntaskóla í höfuðstað þeirra. Það er engin tilviljun, að stærsta landsmálablað landsbyggðarinnar utan Rvíkur hefur verið gefið út nál. 46 ár af norðlenzkum Framsóknarmönnum og er jafnframt eina blaðið utan höfuðstað- arins, sem hefur útbreiðslu og áhrif sam- bærileg við borgarblöðin. Skýring alls þessa er sú, að Framsókn- arflokkurinn er að verulegu leyti upp- runninn á Norðurlandi eða sprottinn úr norðlenzkum jarðvegi, og að norðlenzk viðhorf og norðlenzk félagshyggja átti frá fyrstu tíð drýgstan þátt í að móta störf hans, enda þótt hin ákveðna og þjóðlega stefna hans til framfara í þágu almenn- ings aflaði honum skjótt fylgis um land allt, í fyrstu einkum í strjálbýlinu, síðar einnig mikils og vaxandi, í hinum stærri kaupstöðum og kauptúnum. Andstæðingar Framsóknarflokksins, sem eiga höfuðvígi sitt í Reykjavík, hafa þrívegis á þremur áratugum tekið hönd- um saman til að breyta kjördæmaskipun landsins og jafnan lýst yfir því, að þeir gerðu það til að minnka áhrif Framsókn- arflokksins á löggjöf og landstjóm. Það, sem þeir í rauninni gerðu, var að minnka áhrif landsbyggðarinnar, því að Fram- sóknarflokkurinn hefur aldrei haft nein lögvemduð sérréttindi. Það voru einmitt hinir flokkarair, sem öðluðust slík rétt- indi með stjórnarskrárbreytingunni 1933, er þeim var fenginn réttur til sérstakra þingmanna (uppbótarsæta), hliðstæður þeim rétti, sem kjördæmum var ákveð- inn í öndverðu. En á Framsóknarflokkn- um hefur þessi samblástur engan bug unnið. Styrkur hans byggist ekki á því, að undir hann hafi verið rennt stoðum innlends einkaauðvalds eða pólitískra trúboðsstöðva úti í heimi, heldur fyrst og fremstáþvi að honum hefur tekiztaðefla og endurnýja Iífsþrótt sinn og tilverurétt með því að gera sér grein fyrir og helga sig af alhug þeim viðfangsefnum, sem brýnust eru með þjóðinni á hverjum tíma, og að varðveita þann eld ókulnað- ann, sem tendraður var af norðlenzkum félagshyggjumönnum á sínum tíma. Framsóknarflokkurinn gerir sér grein fyrir því, að viðfangsefni líðandi stundar em mörg og mikilsverð — stundum tíma- bundin —, en að mál málanna á komandi árum er að byggja landið og hvemig það verði gert. Og norðlenzkum Framsókn- armönnum er það sér í lagi ljóst, að Norðlendingar hafa öðmm fremur skil- yrði og ber skylda til að taka forystu þeirra mála í sínar hendur. í kosningun- um, sem í hönd fara, er tækifæri til að taka þessa forustu þannig, að vel dugi, og munað verði með því að fylkja sér um (Framhald á blaðsíðu 7). Fimmtíu ára starf hjá K. E. A. Viðtal við Halldór Á HINN FYRSTA MAÍ sl. átti Halldór Ásgeirsson 50 ára starfs afmæli hjá Kaupfélagi Eyfirð- inga og á hann lengri starfsdag að baki hjá því fél'agi en nokkur annar núlifandi starfsmaður þess. En næstan starfsaldur eiga sennilega Jakob Frímannsson og Arnheiður Skaftadóttir. Allir bæjarbúar og Eyfirðing- ar þekkja Halldór Ásgeirsson, enda fer þar sérstæður persónu- leiki þar sem hann er. Hann er manna mestur á velli, einarður í framkomu, gleðimaður og sagnasjór, er þekktur veizlu- stjóri þar sem mest þykir við þurfa, orðheppinn maður í við- ræðum og á mannamótum, kunn ur kjötbúðarstjóri, sláturhús- stjóri og sölustjóri, svo nokkuð sé nefnt, og gegnum þessi störf hefur hann kynnzt gífurlegum fjölda manna og gleymir eng- um, er hann hefur einhvern tíma haft viðskipti við eða orð- ræður. En í tilefni af 50 ára starfsaf- mælinu hitti blaðið hann snöggv ast að máli og bað hann að svara nokkrum spurningum. Þú ert borinn og barnfæddur Eyfirðingur? Ég er fæddur í Dagverðar- tungu 5. ágúst árið 1893, en var þar ekki lengi, því að foreldrar mínir voru á ýmsum bæjum í bernsku minni, en lengst þó á Sjávarbakka í Amarneshreppi. Þar vorum við til ársins 1903. Við vorum þar í þurrabúð, eins og kallað var, áttum enga kú, en faðir minn kom sér strax upp kartöflugarði og höfðum við því nógar og góðar kartöfl- ur. Var ekki víða þröngt í búi á þeim tímum? Jú, svo sannarlega, og þurfti að halda spart á, svo ekki sé meira sagt. Ekki vorum við svöng á Sjávarbakka, því fisk höfðum við nógan. Það var borð aður fiskur og aftur, fiskur, lif- ur, hrogn, fugl, selur og kart- öflur. Konurnar í sveitinni kenndu í brjósti um okkur krakkana fyrir mjólkurleysið og sendu okkur stundum mjólk í tveggja eða þriggja potta kút- um. Það var vel þegið. En hvernig sem á því stóð, þrifumst við vel, bræður, og okkur varð aldrei misdægurt, þótt mörg „mjólkurbörnin“ væru þunn á vangann þegar líða tók á vetur. í þá daga var róið á nokkrum árabátum frá Sjávarbakka. Oft voru bændur viku eða svo við róðra á haustin til að safna sér fiski til vetrarins. Svo fluttirðu frá sjónum? Þegar faðir minn dó, flutti ég að Miðhúsum í Hráfnagils- hreppi. Þar lauk mjólkurhungr- inu, því að þar var nóg mjólk og mjólkurmatur. En ég saknaði nýja fisksins, og þar voru kart- öflumar smátt skammtaðar. Ég veit svei mér ekki hvort betra sgeirsson sölustjóra var. Svo flutti ég til Akureyrar árið 1907. Jæja, en nú ertu búinn að vinna í 50 ár hjá KEA? Já, og hef ekki kært mig um vistaskipti. En fyrsta árið mitt hér í bænum vann ég sem send- Halldór Ásgeirsson. ill hjá verzluninni Edinborg. En kaupfélagsbúðin var opnuð árið 1906. Þá var mikið talað um Kristinssynina, Hallgrím og Sigurð, og þá lagði ég hlustirnar við, því að mér fannst þetta vera sveitungar mínir og var stoltur af þeim. Þeir voru jafnan mjög vel klæddir og vöktu eftirtekt hvar sem þeir komu, og það lá eitthvað óvenjulegt í loftinu í kringum þá og hina nýju kaup- félagsbúð. Ég skal nefna eitt hið allra minnsta atvik frá þessum tíma. Ég sópaði gólf í Edinborg á hverju kvöldi, en ekki voru þau þvegin nema á laugardögum, og þannig mun þetta hafa verið víðast. En kaupfélagsbúðin var , þvegin hvert kvöld og mikið talað um og þótti sumum ekki gróðavænlegt. En af því ég var „gólfsópari“ og hreinlæti í verzl unum mér því ekki alveg óvið- komandi, man ég þetta mjög vel, og einnig hvað um var rætt út í frá, og stoltur af því vegna tengsla minna við sveitina. Svo hófstu samvinnustarfið, Halldór? Já, og var við ýms störf til að byrja með. Fór svo í kjötbúðina til Ólafs Ólafssonar kjötbúðar- stjóra 1913 og var þar til ársins 1924, síðan kjötbúðarstjóri í 10 ár og sölumaður verksmiðjanna síðan, og allt til þessa dags. Svo hefur maður gripið í ýms verk eftir því sem þurft hefur, segir Halldór, og mun það ekki of- mælt, því þau störf eru mörg, utan þeirra, sem nefnd hafa verið. Til dæmis hefur Halldór verið yfirkjötmatsmaður á Norð urlandi síðustu 10 árin eða lengur. Hvað viltu segja mér um ey- firzku samvinnuleiðtogana, sem þú hefur unnið hjá? Það vill svo til, segir Halldór, að ég hef unnið undir stjórn allra fjögurra kaupfélagsstjóra KEA, þeirra Hallgríms Krist- inssonar, Sigurðar Kristinsson- ar, Vilhjálms Þór og Jakobs Frímannssonar. Og margt gæti ég sagt um þá alla, því þeir voru og eru óvenjulegir menn fyrir margra hluta sakir. Hallgrímur Kristinsson var mestur foringi þeirra allra. Um hann má e. t. v. segja í sam- bandi við þetta hérað, eins og sagt var um Jón Sigurðsson, að hann kom þegar „Fróni lá allra mest á“. Hallgr. var leiftrandi mælskur ræðumaður. Hann hreif fólk til fylgis við sam- vinnustefnuna. Um Sigurð bróð ur hans og Vilhjálm mátti segja, að þeim félli aldrei verk úr hendi. Þeir fóru með bækurn ar heim með sér á kvöldin og unnu fram á nætur. Sigurður vann svo mikið, að það gekk mjög nærri heilsu hans. Allir. vita hver dugnaðarforkur Vil- hjálmur var, og þannig var hann strax strákurinn, þegar hann hóf störf hjá KEA. Og ekki veit ég betur en að Jakob Frímannsson vinni fyrir KEA og samvinnustefnuna frá því hann opnar augun á morgnana, og hann er maður árrisull, og þar til hann gengur til náða á kvöldin. Það er mín hjartans sannfær- ing, sem ég get rökstutt hvenær sem er, að allir þessir fjórir kaupfélagsstjórar hafa unnið mest allra sinna starfsmanna hver í sinni forstjóratíð. Þeir hafa þá líklega ekki ætlazt til lítils af öðrum? Vissulega gerðu þeir miklar kröfur, og þær kröfur var ljúft að uppfylla vegna þess, að á þeim árum, á meðan starfsfólk- ið var fátt, var hver maður öðr- um áhugasamari um samvinnu- mál og velgengni félagsins. Starfsmennirnir mynduðu sam- stilltan áhugamannahóp, sem daglega starfaði í nánum tengsl- um við framkvæmdastjórann. Hin daglegu störf og framtíðar- verkefni kaupfélagsins voru hin sígildu umræðuefni. Með þessu er ég enganveginn að kasta rýrð á núverandi starfsfólk, síður en svo. En afstaða þessi til félags- ins er allt önnur nú, eftir að starfsfólkið er orðið eins mörg hundruð og tugir áður. Nokkur eftirvinna í þann tíð? Það var ekki talað um eftir- vinnu. Það var talað um það, sem þurfti að gera, hvort sem það tók lengri eða skemmri tíma. Ég man ekki til þess, að nokkur hafi talað um eftirvinnu í hagnaðarskyni fyrir sjálfan sig. Eftirvinna og eftirvinnukaup voru lítið þroskuð hugtök hjá starfsmönnum samvinnufélaga fyrstu áratugina, eða svo var það hér að minnsta kosti. (Framhald á blaðsíðu 7). HJÖRTUR E. ÞÓRARINSSON: Tækniskólamál Norðlendinga Alþingi samþykkti tillögu Ingvars Gíslasonar um lausn málsins Landbúnaðarmál SVO SEM kunnugt er hefur að undanförnu verið uppi hreyf- ing hér í bænum um að koma upp tækniskóla (teknikum). Er það almenn skoðun þeirra, sem um það hafa fjallað, að nauð- synlegt sé að íslendingar eign- ist slíkan skóla og að hann væri ekki verr staðsettur á Akureyri en t. d. í Reykjavík. Einn þeirra, er hér koma mest við sögu, er Sveinbjörn Jónsson, kunnur norðlenzkur hugsjóna- og at- hafnamaður, sem hefur á marg- víslegan hátt hvatt til stofnunar tækniskóla hér og hefur átt mik inn þátt í að vinna málinu fylgi meðal áhugamanna um tækni- mál og ráðamanna í bænum. Undir lok síðasta Alþingis bar HINN 26. marz lézt á Fjórðungs- sjúkrahúsinu Snorri Hannesson bóndi í Hleiðargarði, eftir frek- ar stutta dvöl þar, en langa van- heilsu. Snorri var fæddur að Hleið- argarði 25. marz 1901 og var því 62 ára daginn áður en hann lézt. Foreldrar hans voru Hannes Jónsson bóndi og fræðimaður í Hleiðargarði og fyrri kona hans Jóníná Jóhannsdóttir frá Gauts stöðum á Svalbarðsströnd; gáf- uð kona og glæsileg (d. 1921). Hannes bjó í Hleiðargarði á ár- unum 1896—1936 (d. 23. marz 1957) og munu ættmenn hans hafa búið þar síðan á 18. öld. Móðir hans og kona Jóns Jó- hannessonar bónda þar, var Sig- ríður dóttir Ólafs Guðmundsson ar og Þórbjargar Jónsdóttur, er lengi bjuggu í Hleiðargarði, var Þorbjörg dóttir Jóns Vigfússon- ar bónda í Litladal, en móðir Þorbjargar og kona Jóns var Sigríður dóttir Jóns Ámasonar í Hleiðargarði, en móðir Sigríð- ar var Þorbjörg, dóttir Sigurðar Jónssonar, er fyrstur af þeirri ætt mun hafa búið í Hleiðar- garði. Snorri ólst upp í Hleiðargarði og fór rúmlega tvítugur í Sam- vinnuskólann í Reykjavík og var síðan um tíma við ýmis störf, bæði á sjó og landi. Laust fyrir 1930, eða vorið 1928, fór Snorri að búa í Hleiðargarði, menntamálaráðherra, Gylfi Þ. Gislason fram frumvarp til laga um Tækniskóla fslands. Skyldi skólinn staðsettur í Reykjavík, og ekki var í frumvarpinu neitt ákvæði um tækniskóla eða heimild til tæknikennslu á Ak- ureyri. Nokkrar umræður urðu þegar við 1. umræðu málsins og lýstu allir þingmenn, sem til máls tóku, ánægju sinni yfir því að ætlunin væri að stofna tækni- skóla á íslandi, en hins vegar gerðu flestir nokkrar athuga- semdir við frumvarpið eins og það var úr garði gert, og skal það ekki rakið hér að öðru leyti en því, að Ingvar Gíslason taldi það ekki rétta stefnu að fyrst á litlum hluta, en síðan á hálfri jörðinni (þ. e. Hleiðar- garði I). Var bú hans lítið í fyrstu, en var orðið allstórt síð- ari ár, blómlegt og afurðagott. Fyrir sjö árum byggði hann mjög gott og vistlegt íbúðarhús á jörðinni. Snorri var mjög vel greindur maður, sem hann átti kyn til. Hann gaf sig ekki mikið að op- inberum málum í sveitinni, en var prýðilega liðtækur ef hann gaf kost á sér til starfa. Þó var hann meðal annars endurskoð- andi reikninga mjólkurflutn- ingabílanna í hreppnum, enda var hann reikningsglöggur. Hann skrifaði mjög fallega rit- hönd, og aldrei sá ég neitt flýt- isverk á skriftinni, ætíð jöfn og áferðarfalleg. Hann myndaði sér grundaða skoðun í málum, öfga- laus, skýr í hugsun og rökfast- ur. Hann var jafnan hæglátur og ekki mikill ádeilumaður, en glaður með kunningjum og gat þá oft verið kíminn. Öll umgengni við bústörfin bar vott um hirðusemi og lag- tækur var hann í bezta lagi og útsjónarsamur við verk hvernig þau yrðu bezt unnin. Fyrir nokkru fór heilsan að bila og gekk hann margan dag ekki heill til skógar, en hann hlífði sér lítt, en í vetur ágerð- ust svo veikindi hans að hann varð að hætta störfum. Eftirlifandi kona hans er Sig- ríður Jóna Jóhannsdóttir ættuð af Árskógsströnd, dugnaðarkona og mjög hirðusöm og hefur heim ilið ævinlega verið snyrtilegt og þrifalegt. Synir þeirra eru þrír. Sá elzti, Jóhannes Hleiðar, býr suður í Ytri-Njarðvík, kvæntur Helgu Egilsdóttur. Hinir yngri Arnaldur og Jón eru nú heima. Að endingu minnist ég með þakklæti góðrar viðtöku á heim- ili þeirra hjóna til margra ára. Ég minnist með þakklæti góðrar kynningar við Snorra á liðnum árum frá því hann var ungur. Leiðir lágu oft saman, en eru nú skildar að sinni. P. K. staðsetja skólann í Reykjavík, heldur kæmu aðrir staðir til greina og þá fyrst og fremst Ak- ureyri, enda væri þar uppi hreyfing um stofnun tækni- skóla. Gísli Guðmundsson tók eindregið undir þetta álit Ing- vars Gíslasonar. Menntamála- ráðherra lýsti þá yfir því, að honum væri kunnugt um áhuga Akureyringa á þessu máli og kvaðst mundu vilja vinna að því að Akureyringum opnaðist leið til tæknikennslu. Kvaðst ráðherrann vilja beita sér fyr- ir því, að stofnuð yrði „undir- búningsdeild“ á Akureyri og e. t. v. 1. bekkur tækniskóla, en lagði hins vegar áherzlu á, að Tækniskóli íslands yrði í Reykjavík, þó að hann gerði ráð fyrir, að undirbúningskennsl an á Akureyri yrði fyrsti vísir til fullkomnari tæknifræði- kennslu þar. Að 1. umræðu lokinni var málinu vísað til menntamála- nefndar neðri deildar til frek- ari athugunar. Sama dag og þessar umræð- ur áttu sér stað á Akureyri, en að þeim loknum, átti mennta- málaráðherra fund með alþing- ismönnunum Friðjóni Skarp- héðinssyni og Ingvari Gíslasyni og Steindóri Steindórssyni menntaskólakennara, sem send- ur hafði verið suður af hálfu iðnskólanefndar Akureyrarbæj- ar til þess að ræða tækniskóla- málið við ráðherrann syðra. Upphaflega var ráð fyrir því gert, að Sigurður Óli Brynjólfs- son bæjarfulltrúi yrði með Steindóri í þessari för, en af því gat ekki orðið sakir veikinda (Framhald á blaðsíðu 2). REIÐUR MAÐUR í ÞjÓÐVILJANUM Magnús Kjartansson ritstjóri Þjóðviljans og 5. maður á land- skjálftalistanum er reiður við Framsóknarflokkinn (samanber Þjóðv. 27. apríl). Vorkunnarmál að vísu, en ekki getur Framsókn arflokkurinn gert að því, þó að ýmsir, sem fyrrum studdu Sósía listaflokkinn eða Alþýðubanda- lagið, geri það nú ekki lengur. „Því valda þeir Þorvaldur kroppinskeggi og Kolur“, þ. e. þeir, sem einfaldastir eru í sinni þjónustu við múmíurnar í Moskvu og Peking, að svo er komið, sem komið er. Á meðan Magnúsi þessum er að renna reiðin gæti hann dund að við það t. d. að velta fyrir sér þessum spurningum 1. Hvemig greiddi formaður Alþýðubandalagsins, Hannibal Valdimarsson, atkvæði á Al- þingi, þegar varnarsamningur- inn við Bandaríkin var afgreidd ur þar árið 1951? 2. Hvað gerði formaður Sósía- listaflokksins, Lúðvík Jósefsson, til að koma hernum úr landi á meðan hann var ráðherra t. d. veturinn 1956—1957? Sagði hann kannski af sér ráðherra- embættinu í mótmælaskyni? 3 Hver var það, sem var því opinberlega fylgjandi fyrir 25 ámm, að Bandaríkjaher væri beðinn að vernda ísland gegn hættu frá meginlandi Evrópu? 4. Getur hugsazt, að þeir, sem hér eiga hlut að máli, hafi gert „hræsni“ að „sérgrein sinni“.? í SÍÐUSTU grein var því haldið fra;n, að ekki mætti dragast að rétta landbúnaði okkar örvandi hönd, ef framleiðslan eigi að fylgja efíir hraðvaxandi ís- lenzkri þjóð næstu áratugina. Ekki er þar með sagt að all- flestir bændur landsins séu á vonarvöl eins og stundum heyr- ist fullyrt. Sem betur fer hafa margir bændur góða afkomu. Það eru þeir, sem standa á göml um merg fjárhagslega, hafa stór bú á vel hýstum jörðum og njóta gamalla lána. Ef slíkur bóndi getur afhent barni sínu jörðina á vægu verði, t. d. fast- eignamatsverði eða vel það, og telur sig ekki knúinn vegna ann arra barna sinna til að krefjast hæsta mögulega verðs, þá getur í S>-> g>-> 5 | ÞRIÐJA CREIN nýr bóndi hafið búskap með nokkurri von um sæmilega greiða leið til bjargálna. Eru þar með upptaldir þeir möguleikar sem um er að ræða til að stofna til búskapar á íslandi í dag. Hin leiðin, að byrja með láns- fé að öllu eða mestu leyti, eins og nú þarf til að hefja búskap, hálfa til heila milljón eftir því, hvort sjálf jörðin er keypt eða ekki, sú leið er lokuð ókleifum múr í formi lánsfjárskorts og hárra vaxta. Stóra meinið í landbúnaðin- um er þetta: Hann megnar ekki að ávaxta stofnfé sitt. Samtímis ber fé, sem lagt er í útgerð, margs konar iðnað og verzlun víða viðunandi og sums staðar ríkulegan ávöxt. Meðan svo er flýr fjármagnið landbúnaðinn, en það jafngildir dauðadómi fyr ir búskap nútímans. Engin lækn ing við meinsemd landbúnaðar- ins er hugsanleg nema unnt verði að ráða bætur á þessu á- standi, annaðhvort með leiðrétt- ingu á verðlagsgrundvellinum þannig að ætlað sé miklu betur fyrir vöxtúm og fyrningu en nú er, eða með stjórnaraðgerðum, sem beinist að því að lækka raunverulega vissa útgjaldaliði landbúnaðarins, þ. á. m. og ekki sízt vextina. Auðvitað þarf þetta hvort tveggja að koma til ef vel á að vera. Eitt hið lakasta sem gerzt hef- ur í búskap okkar undanfarið er misþróun hans eftir héruð- um. Stéttarsamtök okkar og rík isvald hafa varla gert það, sem unnt hefði verið að gera til að fyrirbyggja þessa misþróun, og er þetta öllum þeim hið mesta shyggjuefni, sem um þessi mál hugsa og vilja landbúnaðinum vel. Nú mundi hækkun verð- lagsgrundvallarins út af fyrir sig ekki vinna gegn tvískipting- unni í þróuð og vanþróuð héruð eða þróuð og vanþróuð býli inn- an hverrar sveitar. Hækkun vaxtaliðarins mundi t. d. koma öllum jafnt til góða, ekkert síð- ur vel stæða bóndanum sem ekkert skuldar heldur en hin- um, sem er skuldum vafinn. Raunveruleg lækkun vaxta af stofnfé landbúnaðarins mundi hins vegar styðja við hinn síð- arnefnda án þess að skaða hinn fyrrnefnda og þannig stuðla að jöfnuði. Yfirleitt má segja, að það kerfi verðlagningar, sem landbúnaðurinn býr við, leiði til gífurlegrar samkeppni innan bændastéttarinnar og auki stöð- ugt á aðstöðumun innan henn- ar. Það er leitt til þess að vita, að stækkun kúabúanna hér við Eyjafjörð og aukning mjólkur- framleiðslu okkar skuli síðar meir þurfa að koma fram sem rýrnandi tekjur annarra bænda, sem ekki geta fylgt jafnhratt eftir með sína framleiðsluaukn- ingu, jafnvel sauðfjárbænda í fjarlægu héraði. Þjóðin gerir alltaf vaxandi kröfur til landbúnaðarins um meiri og ódýrari framleiðslu. Það má ekki krefjast þess að sveitafólkið vinni meira en nú, það vinnur þegar allt of mikið, en það má krefjast meiri hag- kvæmni í rekstri og fullkomn1 ari nýtingar framleiðsluþátt- anna. En engar slíkar kröfur eru réttlátar ef ávinningurinn af umbótunum á allur að renna til þeirra, sem vörurnar kaupa, en enginn til framleiðandans éins og nú gerist. Verðlagningarkerfi okkar er að sigla í strand. Það hefur hald ið út í fimmtán ár og reyndist okkur vel framan af. Það nær ekki lengur þeim tilgangi sín- um að tryggja hvort tveggja í senn, neytendum næga og góða innlenda búvöru og bændum tekjur á móts við aðrar vinnu- stéttir. Hið síðara hefur mistek- izt og verði það ekki leiðrétt mun hið fyrra einnig tapast. Það hefur bætzt ofan á áskap- aða annmarka þessa kerfis, að viðsemjendur okkar bænda, launþegafulltrúar í Reykjavík hafa reynzt ákaflega örðugir í samningum. (Líklega mundu nást réttlátari samningar, ef við fengjum að fjalla um þá hér norðanlands. Sunnanmönnufn virðist margt betur gefið en hæfileikar til samningagerðar!) Hér verða því einhverjar úrbæt- ur að finnast og þar verður stétt arsamband okkar að hafa for- ystuna. En alveg er það víst, að breyt- ingar á verðlagsmálunum einar sér nægja ekki til að lagfæra allt það sem lagfæra þarf í land- búnaðinum. Þær munu ekki bæta samkeppnisaðstöðu vanþró uðu jarðanna svo að þær heltist ekki úr lest byggðra býla og þær munu ekki létta byrjunar- örðugleika ungu bændanna nægilega mikið. Fleira verður að koma til. Aukning ræktunar og byggingarstyrkja til vanþró- uðu jarðanna er óhjákvæmileg og er raunar á döfinni nú. í rétta átt miðar líka lækkun tolla á tækjum og öðrum rekstrarvör um landbúnaðarins og ættu þeir að afnemast með öllu. En fram- ar öllu öðru þarf að sjá land- búnaðinum fyrir nægum, löng- um og ódýrum stofnlánum, svo og rekstrarlánum, þar með talin afurðalán til sölufyrirtækja bændanna. Ekkert eitt er örugg- ara með að gagna landbúnaðin- um í heild, en greiður aðgangur að hagkyæmu lánsfé. Það verð- ur aldrei of vel undirstrikað. Hinir fyrri lánasjóðir landbún aðarins urðu gjaldþrota við tví- fellingu gengis krónunnar 1960 og 1961, sem frægt er orðið. í stað þeirra er risinn upp nýr stofnlánasjóður, sem m. a. er séð fyrir starfsfé með skattlagn- ingu á bændurna sjálfa. Nú ríður á því öllu öðru frem- ur, að þessi sjóður reynist vand- anum vaxinn. Það skiptir meg- inmáli að hann eflist svo vel og svo fljótt, að hann geti hið fyrsta leyst stofnlánaþörf landbúnaðar ins til fulls, bæði gagnvart bygg- ingum og ræktun, svo og til jarðakaupa, véla- og jafnvel bú- stofnskaupa. Það getur verið prófsteinn á hug hvers stjórn- málaflokks og hverrar ríkis- stjórnar til landbúnaðarins, hvað hún vill í verki gera stofn- lánasjóðnum til framdráftár og hvemig hún vill beita honum landbúnaðinum til eflingar. Málefni landbúnaðarins eru ofarlega í margra huga um þess- ar mundir; bæjarbúa ekki síður en sveitafólksins sjálfs. Varla líð ur sá dagur að nýr maður komi ekki fram á ritvöllinn eða í út- varpið til að leggja orð í þann belg. Það stafar af því, að land- búnaðurinn stendur á krossgöt- um og þetta sjá allir þeir, sem vilja sjá. Annaðhvort liggur veg- urinn fram á við — til aukins blóma og nýtingar þeirra feikna möguleika, sem hér eru fyrir hendi í skauti moldarinnar, eðá hann liggur þvert af þeirri leið til kyrrstöðu og síðan hrörnun- ar. Möguleikarnir eru tveir og það er undir þjóðinni sjálfri komið hvor verður fyrir valinu. Við bændur ætlum stéttarsam- tökum okkar mestan hlut í að tryggja hag atvinnuvegar okkar í framtíðinni. Og þau samtök eru og eiga að vera ópólitísk. En hitt er jafnvíst að léttari verð ur sá róður ef Framsóknarflokk urinn má sín nokkurs í stjórn landsins og því léttari, sem hann ræður meiru, eini stjórnmála- flokkurinn sem á fylgi nokkurn veginn jafnt í bæ og byggð allt umhverfis landið. □ Tjörn, 1. maí 1963. Auglýsingar þurfa að berast fyrir hádegi dag- inn fyrir útkomudag. Snorri Hannesson NOKKIJR MINNINGARORÐ

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.