Dagur - 04.05.1963, Blaðsíða 8

Dagur - 04.05.1963, Blaðsíða 8
8 Pálmi EA 21 er 18 tonna bátur, sem nýlega var afhentur eigend- uin sínum á Árskógsströnd. Pálmi er smíðaður í Slippstöðinni h.f. eftir teikningu Þorsteins Þorsteinssonar skipasmíðameistara og undir hans stjóm. Hér er báturinn að leggja frá landi í reynsluför. (Ljósmynd: E. D.) LAUGASKOLA SLITIÐ Laugum, 2. maí: Prófum í tveim neðri bekkjum Laugaskóla lauk 29. apríl s.l., en nemendur voru kvaddir og prófskírteini afhent 30. apríl. Prófi luku 67 nemend- ur, 24 í yngri deild og 43 í eldri deild. Auk þess voru 13 í smíða- deild skólans, er höfðu smíðar fyrir aðalnám. Og enn búa 32 nemendur sig undir landspróf og gagnfræðapróf. í eldri deild hlutu hæstu eink unnir: Guðrún Jóhannesdóttir, Ytri-Tungu, Tjörnesi, 8.71, Er- lingur Sigurðsson, Grænavatni, Mývatrissveit 8.69 og Tryggvi Jónsson, Garðsvík á Svalbarðs- strönd 8.33. í yngri deild hlaut Þorbjörg Jónasdóttir, Þórðarstöðum í Fnjóskadal 8.83, Bragi Vagnsson Hriflu í Ljósavatnshreppi 8.78 og Elín Baldvinsdóttir, Arnar- stöðum í Bárðardal 8.62 og skip uðu þrjú efstu sætin þar. Heilsufar nemenda var heldur (Framh. á bls. 7.) SMÁTT OG STÓRT Tónlislarfélag Akureyrar tullugu ára Það hefur haldið um 90 hljómleika, oft með mjög þekktum listamönnum HINN 4. maí 1943 var Tónlistar- félag Akureyrar stofnað af 12 mönnum. Formaður þess var kjorinn Stefán Ág. Kristjánsson og er það enn. Og enn er sama tala hinna eiginlegu félaga, þótt styrktarfélagar séu hins vegar margir. Tónlistarfélagið hefur unnið þarft starf í Akureyrarkaupstað, með því að gangast fyrir hljóm- leikahaldi í bænum, þar sem þekktir og jafnvel heimsfrægir listamenn hafa komið fram. Ak- ureyringar hefðu áreiðanlega farið á mis við margar ógleyman legar stundir hljómleikanna, ef Tónlistarfélagið hefði ekki kom- ið til. Og þar sem þessi félagsskapur er nú að verða tvítugur hafði blaðið sem snöggvast tal af for- manninum, Stefáni Ág. Krist- jánssyni forstjóra, og lagði fyrir hann nokkrar spurningar. Hvernig ætlið þið að minnast afmælisins, Stefán? Við höfðum fengið Sigurveigu Hjaltested til að syngja hér. En vegna veikinda getur hún ekki komið að sinni. Ekki er enn þá búið að taka ákvörðun um, á hvern hátt félagið minnist af- mælis síns. Annar konsert er ákveðinn í Ak Ilvað á Skíðahótelið í Hlíðarf jalli að heita? ÍÞRÓTTARÁÐ hyggst nú gefa Skíðahótelinu í Hlíðarfjalli fram tíðarnafn. Leitar það eftir til- lögum bæjarbúa í þessu efni, eða uppástungum um nafn, er síðan verða athugaðar við val framtíðarnafsins. Blaðið mun fúslega taka á móti uppástungum af þessu tagi og koma þeim til réttra aðila. □ ureyrarkirkju úr miðjum maí og leikur þar hinn heimsfrægi orgánleikari frá Bandaríkjun- nm Pnwpr Rrrffffs. vissu, segir Stefán, en þeir munu vera um 90 talsins og að mörgum þeirra hefur verið mik- ill ávinningur, þar sem um heimsfræga listamenn hefur ver ið að ræða er tæpast hefðu lagt I hvaða formi starfar svo félag- ið? Það hefur frá upphafi átt sinn vissa hóp af styrktarfélögum eða áskrifendum að hljómleik- unum, og greiða þeir visst ár- gjald, sem nú er gert ráð fyrir að verði innheimt fyrir fyrri árs helming í maí og fyrir síðari árs helming í september. Auðvitað geta menn svo greitt fyrir allt árið fyrirfram og fá menn þá tvo aðgöngumiða að hverjum hljómleikum. Að gefnu tilefni sé ég ástæðu til að benda á, að áskrifendurn- ir verða að greiða sitt fasta gjald yfir árið, en geta eðlilega (Framhald á bls. 7.) Stefán Ágúst Kristjánsson. Eru fleiri hljómleikar í undir- búningi? Já, í haust höfum við fengið tilboð um að hingað komi Erling Blöndal Bengtson, sem Akureyr ingum er að góðu kunnur frá fyrri árum, en verður nú nýr gestur og kærkominn. Þá er ráð gert að hingað komi fyrsti norski óperusöngvarinn, Olav Erikson. Árni Kristjánsson pi- anoleikari mun aðstoða báða þessa síðasttöldu listamenn ef til kemur. Þá langar ókkur til að fá hingað pianoleikara til að leika á hinn ágæta flygil félags- ins í Borgarbíói, en ekki er það mál komið á það stig ennþá, að vert sé að nefna nokkur nöfn. Hvað hafið þið í Tónlistarfé- laginu gengizt fyrir mörgum hljómleikum í heild? Ekki veit ég það alveg með Ólafur Thors forsætisráðherra sagði sl. gamlárskvöld: „Hins- vegar játa ég hispurslaust, að enn liefur ekki tekizt að ráða niðurlögum verðbólgunnar . . .“ Og hann bætti við: „En takist ekki að sigrast á verðbólgunni, gleypir hún ávexti þess, sem bezt hefur tekizt. Er þá unnið fyrir gýg og beinn voði fyrir hondum . . . .“ Nú dylst engum framar, að verðbólgan og dýrtíðin fer hrað- vaxandi. „Viðre^snin“ er strönd- uð og með tilliti til 'jafnvægis. í verðlagsmálum, unnin „fýrir gýg“, eiris og Ólafur Thors hefiir sjálfur játað. Og nú er að vonum margur sár, sem viðreisnin hefur komið illa við. FULLYRÐING, SEM EKKI STÓÐST. Tveim árum áður, á gamlárs- kvöld 1960, talaði þessi sami for- sætisráðherra í útvarp til þjóð- arinnar. „Viðreisnin“ hafði þá staðið yfir í 9—10 mánuði. Ráð- herrann var drjúgur og kampa- kátur. Hann sagði: „Ef við ekki verðurn fyrir nýjum áföllum, er fram undan tímabil stöðugs verð lags . . . .“ Þetta sagði hann þá. Nú er allt unnið fyrir gýg í hans munni. Það er satt. VAR SÍLDARAFLINN „ÁFALL?“ Þegar Ólafur Thors, á gaml- árskvöld 1960, lofaði „stöðugu verðlagi“ og meira að segja heilu tímabili „stöðugs verð- lags“, hafði hann þann fyrir- vara, að þetta gæti að vísu brugðizt, ef ,við‘ yrðum fyrir „nýj um áföllum.“ Varla er hægt að telja, að hin mikla síldveiði og metafli á sjónum síðan í árslok 1960 hafi verið „áfall“ fyrir þjóðina. Væntanlega þvert á móti. FLETT OFAN AF SKRUMI SJÁLFSTÆÐISMANNA. „Tekjuöflun Stofnlánadeildar- innar (í Búnaðarbankanum) er Jú, jú, það er gaman að koma í bæinn. Og það er að hvíla sig svolítið, segja þessir snáðar, sem komu nýlega með pabba sínum til Akureyrar. (Ljósmynd: E. D.) þannig upp byggð, að bændur greiða 2 krónur á móti hverri 1 krónu frá ríki og neytendum. Samkvæmt áætlun ríkisstjórnar innar greiða bændur þannig á næstu 14 árum 618 milljónir króna til deildarinnar. Helming ur af þessari uppliæð er til kom inn vegna vaxtaliækkunar og sérskatta á bændur, en hinn helmingurinn svarar þeim vöxt- um, sem áður voru . . . .‘‘ (Ur ræðu Ásgeirs Bjamason- ar alþm. og bónda í Ásgarði, á Alþingi 17. apríl s.l.) ÞRÁTT FYRIR TOLLANÁ. „Rekstrarvörur landbúnaðar- ins liafa stórhækkað, fóðurmjöl um 40% síðan 1958, kjamaáburð ur um 34%, fosfóráburður um 70% og kalí um 91%. Ferguson standard 35 dráttarvél hefur hækkað um 36 þúsundir kr. síð- an 1958, eða um tæp 66%, EF REIKNAÐ ER MEÐ NÝJU TOLLSKRÁNNI og kostar nú kr. 88.500.00. En þessi vél var mun dýrari undanfarin 3 ár.“ (Ur sömu þingræðu. — Letur- breyting Dags). KEMST EKKI í BAKKASEL. Friðjón Skarphéðinsson lauk eldhúsdagsræðu sinni í þing- lok með þessum orðum skálds- ins: „Það er annað að kveðja í Kotum, en komast í Bakkasel.“ Hann er líklega við því húinn, að komast ekki í Bakkasel 9. júní í vor. BROTTFLUTNINGUR AF JARÐSKJÁLFTASVÆÐI. Tíminn flytur 27. apríl svo- hljóðandi frétt: „Menn hafa veitt því athygli, að Nobelsverðlaunaskáldið okk- ar, Halldór Kiljan Laxness, hef- ur dregið sig til baka úr heiðurs sætinu á framboðslista Alþýðu- bandalagsins í Reykjavík, en við margar undanfarnar kosn- ingar hefur hann prýtt lista Sósíalistaflokksins og síðan Al- þýðubandalagsins. Þetta kemur reyndar ekki á óvart. Upp á síðkastið hefur Kiljan lýst því yfir, við ýms tækifæri, að hann sé ekki komm únisti. Sagði hann það síðasta í þessa átt fyrir tveim dögum á blaðatnannafundi í Khöfn. Þá sagði Kiljan: „Marxismi, Freud- ismi eða hvað það heitir, leiðist mér. Ég er ekki heimspekingur, en ég áskil mér rétt til að hugsa, og ég er á kafi í sígildri nor- rænni hugsun.“ Það hafa orðið kommúnistum mikil vonbrigði, að Nobelsskáld ið fékkst ekki á lista flokksins þessu sinni. Bætir það ekki ástandið innan flokksins, að Nobelsskáldið snýr nú við hon- um baki. I FLOKKNUM LEIKUR ALLT Á REIÐISKJALFI, eins og kunnugt er, þótt MoskvuUð- ið hafi öll tögl og hagldir. Þyk- ir ýmsum ve! til fundið hjá flokknum að hafa jarðskjálfta- sérfræðing í námunda við það (Framhald á blaðsíðu 7).

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.