Dagur - 25.05.1963, Page 2
2
Landbúnaðarsieína Framsóknarfl.
ÞRETTÁNDA flokksþing Fram-
sóknarmanna áréttar yfirlýsing-
ar fyrri flokksþinga um, að land
búnaðurinn verði ávallt einn
meginatvinnuvegur þjóðarinnar,
eins og hann hefur verið frá
upphafi byggðar á íslandi. Til
þess að svo geti verið, verður að
skapa honum þá aðstöðu að
hann verði ávallt samkeppnis-
fær við aðra atvinnuvegi um
vinnuafl og lífskjör.
Þýðing íslenzks landbúnaðar
fyrir þjóðina liggur aðallega í
því að framleiða holl og góð
matvæli, hráefni fyrir iðnað úr
íslenzkum landbúnaðarvörum,
skapa gjaldeyri með útflutningi
landbúnaðarafurða, og síðast en
ekki sízt að viðhalda og auka
þá þjóðlegu menningu, sem ver-
ið hefur aðalsmerki íslendinga
frá fyrstu tíð.
Flokksþingið leggur áherzlu á
eftirfarandi atriði:
1. Verðlagsmál landbúnaðarins.
Síðastliðin 15 ár hefur verð-
lagning búvöru farið fram sam-
kvæmt lögum um Framleiðslu-
ráð landbúnaðarins. Þau hafa
fært bændastéttinni öryggi um
skipulagningu og sölu landbún-
aðarframleiðslunnar og nokkra
hlutdeild í bættri afkomu þjóð-
ai’heildarinnar. Hins vegar hef-
ur komið í ljós, að þau tryggja
ekki hag bændastéttarinnar, svo
sem vonir stóðu til í upphafi.
Þá vill flokksþingið vekja
athygli á þeirri staðreynd,
að hag bændastéttarinnar hafi
stórhrakað siðustu fjögur ár, m.
a. vegna dýrtíðarflóðsins og ým-
issa annarra stjórnarráðstafana.
Tvennar gengisbreytingar,
vaxtahækkanir, takmörkun út-
lána o. fl. kemur harðast við þá
bændur, sem eru að heíja bú-
skap, eiga mikið ógert á jörð-
um sínum eða hafa orðið að ráð
ast í fjárfrekar framkvæmdir á
þessu tímabili.
Þingið telur nauðsynlegt, að
framleiðsluráðslögunum verði
breytt, svo að þau tryggi full-
komlega hlut bænda og að móta
beri stefnuna í því máli í sam-
vinnu við Stéttarsarpband
bænda. Gera þarf sérstakar ráð-
staíanir til að efla reikningshald
bænda, svo að full vitneskja fá-
ist um afkomu búskaparins, og
hver sé hinn raunverulegi fram-
leiðslukostnaður landbúnaðaraf-
urða. í því sambandi verði Bú-
reikningastofa ríkisins efld með
nægu fjármagni undir forystu
Búnaðarfélags íslands, til að
vinna fijótt úr þeim upplýsing-
um, sem búreikningar veita.
2. Fjármagnsþörf
landbúnaðarlns.
Landbúnaðurinn er þess eðlis,
að hann sem atvinnuvegur þarfn
ast mikils fjármagns til langs
tíma með vægum vöxtum. Til
þess að eðlileg uppbygging geti
átt sér stað, þarf því að sjá hon-
um m. a. fyrir fjármagni til eft-
irtalinna verkefna:
a. Það þarf að stórauka ræktun
frá því sem nú er og veita ríf-
legri ræktunarframlög og lán —
sérstaklega til þeirra, sem
skemmra eru á leið komnir í
ræktunarmálum.
b. Lán til vélakaupa, súgþurrk-
unar og bygginga í sveitum þarf
að auka stórlega, enn fremur að
auka styrk og lán til vélakaupa
ræktunarsambandanna.
c. Stofna þarf sérstakan veðlána
sjóð. Sá sjóður veiti frumbýling-
um og bændum, sem lítil bú
hafa, rífleg, hagstæð lán til
kaupa á jörð, bústofni og vél-
um. Mikil nauðsyn væri að slík
lán yrðu veitt afborgana- og
vaxtalaus fyrstu árin. Þetta er
sérstaklega mikil nauðsyn nú,
vegna þess hversu stofnkostnað-
urinn er orðinn hár, og eins
vegna þess, hversu mikill hluti
þess fólks, sem í sveitunum býr,
er í háum aldursflokki.
d. Lán út á landbúnaðarafurðir
þurfa að hækka svo mikið, að
bændur geti fengið andvirði af-
urða sinna greitt að fullu
skömmu eftir innleggsdag.
e. Flokksþingið mótmælir hin-
um rangláta söluskatti, sem
bændum er gert að greiða til
stofnlánadeildar landbúnaðar-
ins. Það vill benda á, að bændur
hafa engin umráð yfir þessu fé
og fá ekki neitt af því endur-
greitt í verði afurðanna. Gjaldið
verkar því sem beinn launaskatt
ur á bændur og upphæð þess fer
eftir framleiðslumagni hvers og
eins, án tillits til þess hvort
nokkur netto-arður er af fram-
leiðslunni eða ekki. Gjald þetta
greiða leiguliðar sem aðrir fram
leiðendur, þó að margir þeirra
geti ekki fengið stofnlán.
Flokksþingið leggur áherzlu
á, að gjaldið verði afnumið sem
fyrst, en Alþingi og ríkisstjórn
tryggi nægjardegt fjármagn til
stofnlána af sparifé þjóðarinnar
og eftir öðrum leiðum.
Jafnframt þessu leggur flokks
þingið áherzlu á, að bændasam-
tökin fái stjórn stofnlánasjóð-
anna að tveim þriðju hlutum í
sínar hendur.
3. Eign og ábúð jarða.
Flokksþingið telur nauðsyn-
legt að vinna að,því að sem flest
ar jarðir komist í sjálfsábúð eða
erfðaábúð. Þá telur flokksþing-
ið að brýn nauðsyn sé að komið
verði á skipulagningu í sölu
jarða.
X þessu sambandi skal bent á
2. tölulið c hér að framan og
nauðsynina á að auðvelda ungu
fólki að hefja búskap í sveit. Þá
sé með nýrri löggjöf stefnt að
því að eigendur reki bú sjálfir
a jörðum smum. Ríkið kaupi
þær jarðir, sem ekki seljast til
búskapar á frjálsum markaði,
og selji þær bændum eða leigi
til erfðafestu þegar eftirspurn
skapast.
4. Áburðarframleiðsla.
Flokksþingið telur rétt að á-
burðarverksmiðjan í Gufunesi
verði gerð að ríkisfyrirtæki.
5. Félagsmála- og
fræðslustarfsemi.
Flokksþingið telur að efla beri
til stórra muna Búnaðarfélag fs-
lands og búnaðarsamböndin fjár
hagslega, svo að þau geti aukið
og bætt leiðbeiningasíarfsemi
sína. Sérstaka áherzlu ber að
leggja á fjárframlög til eflingar
ungmennastarfsemi í sveitum
svo komið verði á fræðsluerind-
um, starfsíþróttum og námskeið
um, er miði að því að glæða á-
huga ungs fólks fyrir landbún-
aðinum og auka þekkingu þess
á sveitastörfum. Einnig ber að
styðja starfsemi kvenfélaga.
Auka ber fjárframlög til
bændaskólanna og Garðyrkju-
skólans, svo að þeir verði eftir-
sóknarverðir fyrir ungt fólk, og
endurskoðuð verði námsskrá
þeirra og námstími með tiliiti til
breyttra aðstæðna. Jafnframt
leggur flokksþingið áherzlu á að
sett verði löggjöf um háskóla-
menntun í búvísindum hér á
landi. Ennfremur telur flokks-
þingið nauðsynlegt að auka fjár
framlög til rannsókna og til-
rauna í þágu landbúnaðarins og
að sem nánust tengsl verði milli
tilrauna og leiðbeiningastarfsem
innar. Meðal annars telur þing-
ið nauðsynlegt, að rannsakaðar
verði til hlýtar ástæður fyrir kal
skemmdum í túnum og að reynt
verði að finna ráð til úrbóta.
6. Hlunnindi.
Tilraunir síðustu ára með
fiskirækt í ám og vötnum lofa
góðu um framtíðarmögulejka í
þeim efnum. Ber því að veita
rífleg framlög og lán til þessarar
starfsemi. Sérstaklega skal bent
á þörfina fyrir auknar leiðbein-
ingar meðal bænda um silungs-
rækt í vötnum og að veita sem
fyrst fjármágn til þess.
Æðardúnninn er ein verðmæt
asta búvara. Vitað er að æðar-
varp má auka allverulega víða
meðfram ströndum landsins.
Einnig þar skortir leiðbeiningar,
sem nauðsynlegt er að komið
verði á fót hið fyrsta.
7. Fóðuröflun.
Flokksþingið telur, að fóður-
skortur standi landbúnaðinum
fyrir þrifum og stafi það m. a.
af því að framræsla og ræktun
.hefur, dregizt .saman síðpstu ár
vegna stórhækkaðs ræktunar-
kostnaðar, en hins vegar hafa
ríkisframlög samkvæmt jarð-
ræktarlögum staðið í stað, þar
sem ríkisstjórnin hefur afnumið
að þau hækkuðu í samræmi við
verðlagshækkun og hefur ekki
fengizt til að breyta jarðræktar-
lögum til samræmis við breytt
verðlag.
Flokksþingið leggur ríka á-
herzlu á, að sett verði ný jarð-
ræktarlög, sem tryggi stórauk-
ið ríkisframlag til ræktunar,
nauðsynjegusfu byggingafram-
kvæmda og súgþurrkunar, og
framlögin verði greidd eftirleið-
is með vísitöluálagi. Stefna ber
að því að öflun allra heyja geti
faxáð fram á ræktuðu landi og
véltækum engjum. Súgþurrkun
og votheysgerð verði aukin og
að útbreidd verði sem bezt þekk
ing á öllu því, sem getur gert
fóðuröflun öruggari og hag-
kvæmari.
Telur þingið að rétt sé að
setja heildarlöggjöf um stuðn-
ing við innlenda kornrækt og
skapa henni jafnrétti við inn-
flutt kornfóður varðandi niður-
greiðslur. Þá verði komið upp
útsæðisræktun fyrir innlenda
stofna grasfræs og hentugra
korntegunda.
Með því að sannað er að hag-
kvæmt er að beita á ræktað
land, telur flokksþingið rétt að
stefnt sé að því að auka græn-
fóður og beitiræktun. Auka
þarf gróðurathuganir á afrétt-
um og skipuleggja aðstoð við
dreifingu áburðar á afréttar og
heimalönd-
Girðingarlög verði endur-
skoðuð og þeim breytt í sam-
ræmi við breytta þjóðfélags-
hætti.
8. Landgræðsla, ylrækt og skóg-
rækt.
Flokksþingið leggur áherzlu
á að stóraukin verði land-
græðsla á vegum sand-
græðslu íslands og til þess verði
varið hluta af söiugróða Afeng-
ísverzlunar ríkisins. Að þvi
verði stefnt að stöðva uppblást-
ur og að meira verði grætt ár-
lega en upp blæs.
Skógi-æktin verði studd ti\
hagsældar fyrir, framtíð þjóðar-
. innar og fjárframlög til hennar
aukin verulega,
Jafnframt lýsir flokksþingið
yfir stuðningi sínum við garð-
rækt og ylrækt, sem arðvænleg
an þátt í landbúnaðarframleiðsl-
unni.
9. Vélar og vélanotkun.
Flokksþingið leggur áherzlu á
að landbúnaðurinn fái á hvei'j-
um tíma þær fullkomnustu vél-
ar, sem völ er á. Til þess að
unnt sé að halda áfram vélvæð-
ingu landbúnaðarins, þarf verð
vélanna að vera eins lágt og frek
ast er mögulegt. Flokksþingið
leggur því til að afnumin verði
öll aðflutningsgjöld af landbún-
aðarvélum og varahlutura til
þeirra.
10. Samvinna um bústörf og
þorpamyndun í sveitum.
Vitað er að víða í sveitum
landsins á sér stað margs konar
samvinna milli bænda, sem létt-
ir bústörfin og færir öryggi í
líf syeitafólks.Telur flokksþing-
ið að hér sé stefnt í rétta átt og
að athugun eigi að fara fram á
því, hvernig hægt væri að auka
þetta samstai'f og efla í hinum
ýmsu byggðarlögum og jafn-
framt vei'ði athugað hvort með
löggjöf sé hægt að skapa að-
stöðu fyrir samvinnu eða félags-
búskap, svo að hann geti a. m. k.
að einhverju leyti tekið við af
einyrk j abúskap.
Flokksþingið vill ennfremuy
lýsa þeirri skoðun sinni, að eitt
af því, sem komið gæti í veg
fyrir að. byggðarlög eyðist, væri
það, ef þorp gætu myndazt til
og frá í dreifbýlinu, þar sem skil
yrði til slíks eru hagstæð og ein-
hvers konar iðnaður gæti v.erið
atvinna þorpsbúa og veitt fólki
úr sveitinni umhverfis vinnu,
þegar með þyrfti. Á þann hátt
myndu sveith'nar geta fremur
en nú haldið í unga fólkið. f
slíkum þorpum er einnig líklegt
að bændur gætu fengið vinnu-
afl þegar mest iægi við hjá
þeirn bæði við búskapinn og
byggingar.
Telur flokksþingið, að hafa
beri slíka þróun í huga ef gerð
verður framtíðaráætlun um
uppbyggingu og skipulagningu
atvinnuveganna í heild.
11. Tryggingaihál.
Flokksþingið telur nauðsyn-
legt að nákvæm athugun verði
látin fara fram á tryggingamál-
um landbúnaðarins. Kemur þar
einkum til greina lífeyristrygg-
ingar bænda og sérstákar trygg-
ingar til að bæta stærri tjón,
sem einstaklingar eða heil
byggðarlög verða fyrir í bú-
skapnum. p
íjþróttir og útilíf
FYRSTI leikur Akureyringanna
í 1. deild við Fram lauk svo
að Framarar unnu 1:0. Leikur-
inn var fremur þófkenndur á
báða bóga í fyri'i hálfleik, en í
seinni. hálfleik var leikur Ak-
ureyringanna mun betri þótt
þeir næðu ekki að skora. Það
má segja að úrslitin hafi valdið
yonbrigðum, ekki sízt þar sem
um var að ræða sjálfsmark hjá
Akureyrarpiltunum. Sanngjarnt
hefði þótt jafntefli. Fyrirliði var
Jón Stefánsson.
N.k. sunnudag fara Akureyr-
ingar til Akraness og leika við
í. A., en sá leikur vei'ður eflaust
„harður“ á báða bóga, en Akur-
nesingar unnu KR á firnmtu-
daginn 2:1 og virðast þeir vera
að ná sér á strik. Það mun þegar
auðséð að keppnin í fyrstu deild
muni verða mjög tvísýn og jöfn
og því horft í hvert stig.
S.l. fimmtudag kom hingað til
bæjarins bandarískur þjálfari
að nafni Robert H. Frailey, frá
Washington University, ásamt
Guðmundi Gíslasyni, sundkappa
úr Reykjavík. Þeir sýndu hér
kvikmyndir, kenndu og þjálf-
uðu sundfólk hér úr bænum og
var gerður góður rómur að ferð
þeirra. Allflestir íþróttakennar-
ar bæjarins fylgdust með æfing-
um. Því miður var dvöl þeirra
ekki nema tveir dagar, en slíkar
heimsóknir eru ætíð örvandi og
lærdómsríkar. G. Þorsteinsson.