Dagur - 25.05.1963, Blaðsíða 5

Dagur - 25.05.1963, Blaðsíða 5
4 Dagur Mikið félagsstarf ungmennafé- r Ohagkvæm fmidaliöld A FIMMTUDAGSKVÖLDIÐ var hélt Framsóknarflokkurinn fund á Dalvík, og mættu þar fjórir efstu menn B-listans. Rétt eftir að sá fundur hafði verið boð- aður, m. a. með prentuðum útiauglýsing- um á staðnum, byrjuðu erindrekar Sjálf- stæðisflokksins að festa upp aðrar aug- lýsingar um fund D-listans á Dalvík kvöldið eftir, og sá fundur var haldinn eins og til stóð. I kvöld, á laugardag, halda svo Sjálf- stæðisflokksmenn fund í Ólafsfirði, sem er víst öðrum þræði skemmtisamkoma, en fundur Framsóknarmanna í Ólafsfirði verður á sunnudag. Þetta er aðeins dæmi um fundahöldin hér í kjördæminu. Flokkarnir koma, einn og einn, hver eftir annan til Húsavíkur, Grenivíkur, Raufarhafnar, Þórshafnar, í Skúlagarð o. s. frv. og hafa fundi, þar sem frambjóðendur eins lista eru máls- hefjendur og tala mikinn hluta fundar- ins, en hinir eru ekki til andsvara. Kjós- endur, sem vilja hlusta á málflutning allra flokka, þar sem þeir boða allir til fundar, verða að fara á fjóra fundi, og það á mesta annatíma ársins í sveitunum, og á þeim tíma, þegar vegir eru sumstað- ar illfærir eða næstum ófærir. Niðurstað- an verður, að margir láta sér nægja að fara á einn fund, ef þeir þá á annað borð komast að heiman. Þetta fyrirkomulag, sem í raun og veru tekur engu tali, miðar að því, eins og Þrándur á Aðalbóli sagði á Laugum, að torvelda almenningi lýðræðisleg vinnu- brögð. Val kjördagsins, 9. júní, var út af fyrir sig hneyksli, a. m. k. út frá norðlenzku sjónarmiði. Um það skal ekki nánar rætt. En Framsóknarmenn lögðu til, að haldn- ir yrðu sameiginlegir fundir, t. d. tólf í kjördæminu, þar sem mættir væru sam- an til rökræðna fulltrúar allra listanna. Þessu var neitað af hálfu allra hinna flokkanna, Sjálfstæðisflokksins, Alþýðu- flokks og Alþýðubandalags. Hinsvegar varð samkomulag um tvö rökræðukvöld í útvarpi. En eins og bóndi í Eyjafirði sagði: Það lítur út fyrir, að andstæðingar Framsóknarflokksins hafi ekki þorað að horfa framan í kjósendurna á meðan þjóðmálin eru rökrædd! Eins og fyrr hefur verið getið um hér í blaðinu, samþykkti sambandsþing Fram sóknarfélaganna hér í kjördæminu á kjör dæmisþinginu á Laugum í fyrra áskorun um sameiginlega framboðsfundi. Sú álykt un studdist við óskir margra. Stjómmála- fundir, þar sem mál eru sótt og varin, hafa jafnan vakið áhuga fólks a. m. k. víðast hvar hér á Norðurlandi og verið vel sóttir yfirleitt, ef menn hafa átt heim- angengt. A því er lítill vafi, að slíkir fundir glæða þjóðmálaáhuga almennt, þótt eitthvað kunni að mega að þeim finna. j Óánægjan við frambjóðendur þríflokk- anna fyrir að hafa neitað að mæta á sam- eiginlegum rökræðufundum er mikil og almenn víða í kjördæminu og þá ekki síður óánægjan út af kjördeginum. Ekki væri úr vegi, að þeir sem neituðu, yrðu eitthvað varir við þá óánægju, þeg- ar talið verður upp úr atkvæðakössunum. □ laga við Eyjafjörð Rætt við formann UMSE Þórodd Jóhannsson DAGUR hitti nýlega Þórodd Jóhannson, formann Ungmenna sambands Eyjafjarðar, og bað hann að segja lesendum blaðs- ins frá starfi ungmennafélag- anna og sambands þeirra, skammstafað U. M. S. E. Varð hann vel við þeim tilmælum. Þóroddur er sveitamaður að ætt og uppruna, vann jöfnum höndum flest landbúnaðarstörf, gerðist síðan mjólkurbílstjóri í Arnarneshreppi, strætisvagnbíl- stjóri á Akureyri, lögregluþjónn, útibússtjóri hjá KEA um skeið, nú sölumaður hjá Valgarði Stef- ánssyni heildsala. Formaður Ungmennafélags Möðruvallasóknar var hann 1953—1958 og formaður UMSE frá 1957 og er enn. Þóroddur neytir hvorki tó- baks né víns, er góður íþrótta- maður, vel máli farinn og með afbrigðum vinsæll, enda mikill áhugamaður um mörg þau mál, sem til heilla horfa. Leggjum við svo spurningarnar fyrir for- manninn. Viltu segja lesendum Dags frá ungmennafélögum við Eyja- fjörð? Innan Ungmennasambands Eyjafjarðar eru nú 14 félög með rúma 800 félagsmenn. Þær radd- 3r hafa heyrzt, að störf ung- mennafélaganna hafi dvínað á seinni árum og þau jafnvel horf- ið frá sumum stærstu upphaf- legu hugsjónum sínum. Ég ætla ekki að gera samanburð á störf- um félaganna þá og nú, en vert er að geta þess, að þrátt fyrir stórstígar framfarir á ýmsan hátt, hefur orðið fólksfækkun í sveitunum og þá sérstaklega af ungu fólki. Hefur það eitt kom- ið hart niður á félagslífi ung- mennafélaganna. Svo er annað, að mörg sér-félög hafa risið upp, sem ekki þekktust- á fyrri árum ungmennafélaganna, s. s. leik- og skógræktarfélög. En verkefn- in eru næg enn, enda eru starf- andi ungmennafélög í öllum hreppum sýslunnar, nema í Grímsey og Hrísey. Mörg þeirra eru öflug og rækja hlutverk sitt myndarlega. Starfið hjá þeim á nýliðnum vetri hefur verið með fjölbreyttasta móti. T. d. hafa mörg þeirra sviðsett sjónleiki. Sérstaka athygli vekur, að umf. Oxndæla, í hreppi, sem hefur ekki nema um 80 íbúa, æfði og sýndi Hreppstjórann á Hraun- hamri við góðar undirtektir, án þess að leita út fyrir raðir fé- laga sinna með starfskrafta. Þá hafa mörg félög staðið fyrir nám skeiðum í föndri, íþróttum og dansi, svo og gengizt fyrir inn- ansveitarsamkomum með ýmsu sniði. Eitt félag á sambands- svæðinu kom á námskeiði í fund arstjórn og ræðumennsku, með góðum árangri. En víða skortir á hjá ungmennafélögum að þeir taki nógu virkan þátt í fundar- störfum. Er sérstök starfsáætlun samin fyrir félögin? Á síðasta þingi U. M. S. E. var lögð fram áætlun um starfið á yfirstandandi ári. Bar þar hæst á bindindis- og íþróttamál- um. Ákveðið var að efla fræðslu á sambandssvæðinu um áfengis- mál, m. a. með því að koma á bindindisviku í samvinnu við barna- og unglingaskóla héraðs- ins. Mun sú starfsemi koma til framkvæmda í haust. Einnig er hugmyndin að koma á nokkrum fræðslukvöldum um sama efni fyrir fullorðið fólk, enda mun þess full þörf, því margir eru haldnir fullkomnu sinnuleysi gagnvart því stóra böli sem sam fara er í flestum tilfellum notk- un tóbaks og áfengis. Hvað er helzt framundan nú í sumar, Þóroddur? í sumar verður aðalstarfið í sambandi við íþróttir. Hafa þeg- ar verið fastráðnir tveir íþrótta- kennarar sem munu ferðast um sambandssvæðið og leiðbeina í hinum ýmsu íþróttagreinum. Á undanförnum árum hafa æfing- ar hjá íþróttakennurunum verið • mjög vel sóttar, og þá notið til- sagnar þeirra, fleiri en félags- menn, t. d. börn, og hefur þeim stundum áreiðanlega verið vel varið fyrir þau. Það er skoðun mín, að rétt uppbyggð iðkun í- þrótta sé holl einstaklingum bæði andlega og líkamlega. Auk þess eiga íþróttirnar, og hafa stuðlað að, góðum félagsanda, reglusemi og drengskap í leik og starfi. Segja má að aðstaða til íþrótta iðknana í héraðinu sé erfið, bæði úti og inni, en standi til bóta. Aðeins einn sæmilegur íþrótta- völlur er til á öllu sambands- svæðinu, en undirbúningur og vinna er hafin við nokkra. Sund laugar tvær og aðrar tvær í byggingu. íþróttahús eða salir hvergi, nema í sambandi við suma barnaskólana og þá víðast ófullkomnir. Enda efast ég um, að leikfimiskennslan í mörgum barnaskólunum sé í eins góðu lagi sem gert er ráð fyrir í fræðslulögunum. Nú er ákveðið að ungmenna- sambandið og félög innan þess sjái um útgáfu á örnefnasafni því úr sýslunni, sem ekki hefur komið út áður. Jóhannes Óli Sæmundsson námsstjóri hefur unnið mikið að þessum málum á undanförnum árum og verður einnig aðalmaður í lokaáfangan- um. Ætlið þið að fara að ráða sér- stakan framkvæmdastjóra? Mörg mót er áætlað að hafa í sumar t. d. í frj.íþróttum, knatt spyrnu, sundi, handbolta, starfs- íþróttum, koma á bændadegi í héraðinu o. fl. Allt þetta, og fleira sem ótalið er, krefst mik- illar vinnu, ef vel á til að tak- ast. Það er því hugmyndin að ráða hæfan mann sem framkv. stjóra ungmennasambandsins, ef fjárhagur leyfir. Hefur nú verið leitað til allra hreppsfélaga í sýslunni til stuðnings því mál- efni. Ef af þessari hugmynd yrði, er ætlunin að þessi maður myndi vinna að skiplögðu æsku lýðsstarfi í héraðinu. En málið er á byrjunarstigi og óvíst um undirtektir. Hvað viltu segja um skemmtana lífið? Enginn vafi er á því að opin- bert skemmtanahald er ekki með því menningarsniði, sem ætti að vera samfara glæsilegum húsakynnum. Áengisneyzla er alltof mikill þáttur í skemmtana lífi eldri og yngri, karla og kvenna. Sorglegast er að sjá kornungar, efnilegar stúlkur verða áfenginu að bráð. Þess eru mörg dæmi og því miður, þeim fer fjölgandi. Það er víta- vert athæfi af fullorðnum mönn um, að ota áfengi að óhörðnuð- um unglingum eins og mörg dæmi eru til um. Þeim mönnum ætti að refsa duglega. Það er ekki nóg að taka dauðadrukkna unglinga úr umferð, um stundar sakir, og láta svo málið niður falla. Það verður að komast að því, hver veitti þeim áfengið og láta þann, sem það gerði, bera ábyrgðina. Unglingar innan 16 ára hafa ekkert að gera á opin- berum dansleikjum eins og þeir eru nú. Nauðsynlegt er því að koma á fullkominni vegabréfa- skyldu unglinga á öllu landinu, til að auðvelda eftirlitið. Ung- lingar, eins og annað fólk, verða að fá tækifæri til að skemmta sér á heilbrigðan hátt, t. d. á danssamkomum, en þá teldi ég það eðlilegt að efnt væri öðru hvoru til dansleikja fyrir ung- linga frá 14—18 ára eingöngu, þar sem reglusemi væri í fyrir- rúmi. Skemmtanalífið verður ekki bætt með löggæzlu einni saman, miklu fremur með sterku almenningsáliti, gegn neyzlu áfengis, og þegar það er fengið, mun verða betri blær yfir samkomuhaldinu. Unga fólkið leitar alltaf úr strjálbýlinu? Ekki er hægt að loka augun- um fyrir þeirri staðreynd, að ungt fólk kýs frekar að leita sér atvinnu og staðfestu í þéttbýl- inu en í sveitunum, enda fjöl- breyttara atvinnulíf þar og oft fljótfengnari gróði. Mín skoðun er að hið opinbera þyrfi að koma meira til móts við þá, sem vilja stunda landbúnaðarstörf. Á þetta þó sérstaklega við um ungt fólk sem er að hefja bú- skap í sveit. Það er talið að meðaljörð með bústofni, nauð- synlegum vélum og verkfærum, kosti nær 1 milljón kfóna, og sjá allir að efnalítil ung hjón sem hleypa sér í slíkt fyrirtæki, geta ekki með góðu móti staðið Æska landsins og viðreisnarsfefnan KOSNINGASPJALL Þóroddur Jóhannsson. straum af þeim útgjöldum sem óhjákvæmileg verða. í slík- um tilfellum væri æskilegt m. a. aðv veita lán til langs tíma með hóflegum vöxtum og afborg unum. Það er þjóðarnauðsyn, að landbúnaðurinn eflist og blómg- ist í samræmi við aðrar atvinnu greinar í landinu. í því sam- bandi vil ég benda fólki á að lesa vel hinar rökstuddu og hóg- væru greinar Hjartar á Tjörn, sem birzt hafa í Degi nýlega. Viltu taka eitthvað fram um skólamál? Ég vil lýsa fullum stuðningi mínum við tillögu Ingvars Gíslasonar á Alþingi um stofn- un héraðsskóla hér í sýslunni. Það blandast engum hugur um nauðsyn slíks skóla fyrir æsku þessa byggðarlags og annarra ungmenna, sem hans nytu. Bæði héraðsskólamir og gagnfræða- skólarnir í bæjunum eru orðnir yfirsetnir. Myndi því alþýðu- skóli á góðum stað í sýslunni bæta úr brýnni þörf. Reynslan hefur sýnt, að í mörgum tilfell- um er hagkvæmt að staðsetja skóla í dreifbýlinu. Nægir að benda á Laugarvatn og Bifröst því til vitnis, segir Þóroddur Jó- hannsson að lokum og þakkar Dagur viðræðurnar. Q Stuðningsmenn Framsóknarfl. ! eru góðfúslega minntir á söfn ! unina í kosningasjóð. Skrif- ; stofan er í Hafnarstræti 95 ; (Goðafoss). Símar 1443 og ! 2962. □ - Ósannindi íslendings (Framhald af blaðsíðu 8) ég „muni hafa neyðzt til að játa“, að fundarskýrslan hafi verið samin af okkur Framsókn armönnum. Ég tók það fram í upphafi máls míns, án gefins til- efnis frá nokkrum fundarmanni. Fundarskýrsluna er samþings mönnum okkar guðvelkomið að sjá hjá mér, og telja hana síðan ranga, ef þeir geta. Furðulegt má heita, að Magn- ús Jónsson, alþingismaður, sem vitað er að um þessar mundir leggur hönd að verki hjá íslend- ingi og fylgist vel með því, sem blaðið flytur, skuli láta blað sitt fara með svona lágkúrulegt ósanninda-slúður. 24. maí 1963. Karl Kristjánsson. SÉRHVERT þj óðfélag sem eigi er haldið andlegri blindu, gerir sér far um að greiða götu æskunnar, þegar þeim áfanga er náð, að hún þarf að stofna sitt eigi, heimili, og kemur inn í þjóðhfið sem fullgildur athafn- akraftur. Viðreisnarstefnan ís- lenska sem í tíma og ótíma gumar af óheillaverkum sínum hefir búið þannig að æskunni, með óðaverðbólgu hagkerfisínu, að þegar að því kemur að hún þarf að byggja sitt eigið heimili, þá rekst hún á óyfirstíganlegan múrvegg viðreisnarinnar, sem er bygður úr vaxtaokri, óðaverð- bólgu, lánsfjárskorti og öðru slíku góðgætti, viðreisnarstefn- unnar. Viðreisnarstefnan hefir búið æskunni þessa sömu aðstöðu til heimilismyndunar, hvort heldur er til sjávar eða sveita. Þó mun mega segja að enn verra sé æskumanni og konu að byggja sér nýbýli í sveit, þar sem gert er ráð fyrir að kostnaðurinn við slíka nýbýl- ismyndun, fari nokkuð á aðra miljón króna, og mun vaxta- okrið eitt nálgast um kr. 100 þúsundir, árlega fyrir utan afborganir, aðkeypt vinnuafl, áburð, og fóðurbæti og m.m. fleira sem fjarmagnslausri æsku er ógerlegt að ráða við. Þannig hyggst viðreisnarstefn- an þróa íslenskt þjóðlíf framtið- arinnar. Margt bendir til að æskan eigi að vera leiguliðar, stórkapitals- ins, til sjávar og sveita. Það á að leigja henni afmarkað rúm í fjöldaíbúðarhúsum kaupstaða og bæja, líkt og stórakapitalið, hefir gert í nærliggjandi borgum margra nágrannalanda vorra. Fjöldi æskumanna sem höfðu á því fullan hug, að koma sér upp nýbýli í sveit, hafa gefist upp, er þeir fóru að reikna kostnaðinn og afraksturinn af slíkri nýbýlamyndun, við þær aðstæður er viðreisnarstefnan hefir búið þeim í hendur. Þessir sömu æskumenn, hafa svo yfirgefið sveitina sína, leitað til þéttbýlisins, til margþættra starfa, en vonsviknir yfir að þurfa að yfirgefa sín heitustu hugðarefni, sökum stjórnar- stefnu, er gleymdi því í óðaverð- bólgu viðreisnarhagkerfi sínu, að dýrasti stjóðurinn sém hvert þjóðfélag á, er sú æska sem á að taka við og erja og erfa landið. Æska þessa lands mun hugsa sig oft um áður en hún ljær þeirri stjómarstefnu fylgi sitt, sem með óðaverðbólguhag- kerfi sínu, hefir lagt jafn stór björg í götu hennar og núver- andi viðreisnarstjórnarstefna hefir gert. Sennilegra væri hitt, að mörgum æskumanni konu og karli, hlypi kapp í kinn, og héti því með atkvæði sínu, að heppta þá stjórnarstefnu, sem íllu heilli hefir farið með völdin í landinu síðastliðið kjörtímabil, og vinna á þann hátt að því að skapa stjórnarfar, sem vill koma til móts við æsku landsins, í við- leitni hennar til heimilismynd- unar og staðfestu í margþættum störfum til eflingar íslensku þjóðlífi. Framsóknarflokkurinn er sá stjórnmálaflokkur, í íslenskri þjóðfélagsbaráttu, sem lang líklegastur er til að rétta hlut æskunnar, í því máli sem hér hefir verið drepið á. Hann er sá stjórnmálaflokkur, sem öll þjóðin, ber í mjög vaxandi mæli, mest traust til, og væntir mest af. Æska landsins bæði hér og í öðrum löndum, yfirgefur öfgaflokkana til hægri og vinstri, og skípar sér í raðir frjálslyndra umbótaflokka, hlið- stæðra Framsóknarflokknum, sem skilja veg hennar og vanda. Ríkisstjórnarflokkarnir, litli og. síóri, hafa nú þegar löngu fyrir kosningar, skilið þá hættu, sem þeim stafar af vaxandi gengi Framsóknarflokksins, og segja má að blaðakostur stjórn- arflokkanna, verji mestöllu sínu rúmi til árása á Framsóknar- flokkinn. Sama máli gegnir um blöð flokksins, sem altaf er að skipta um gæru, þar hrykktir einnig í stoðum og margir þver- brestir sýnilegir. Það ér kanske mesti sigur Framsóknarflokksins, til þessa, að vera þess meðvitandi, að æska landsins, vil rétta honum örfandi hönd, til verðugs sigurs í kosningunum sem fram fara 9. júní n.k. Æskumaður. LITIÐ I BÆJARBLÖÐIN JAKOB Ó. PÉTURSSON rit- stjóri Islendings hefur nú fengið liðsauka að sunnan. Honum til aðstoðar við að skrifa blaðið et nú kominn ungur, upprcnnandi Heimdellingur og Magnús Jóns- son frá Mel, bankastjóri og al- þingismaður, sem hér er nú enn í framboði. „Pólitík“ blaðsins er nú miklu meiri að vöxtum en hún hefur verið hjá Jakob ein- um, en mikið vafamál að hún hafi batnað. í síðasta blaði, sem út kom 24. maí, eru þeir félagar mjög glaðhlakkalegir (og að því er virðist innilega þakklátir) yíir því, að Dagur skuli hafa svo mik ið við þá, að virða þá svars, og segja, að það sé „góð auglýsing“ fyrir fslending. Rétt er það, að það getur ver- ið nokkur auglýsing fyrir lítið útbreitt blað, eins og fslending, að Dagur, sem er víðlesinn, nefni nafn hans, og harmar Dag- ur það ekki. Fólk hér hefur ekki verra af því að lesa íslending Jakobs, sem er þó norðlenzkt bláð, en stórframleiðslu Morg- unblaðsins á reykvískri auð- valds-, stórborgar- og stórvelda- dekurspólitík, sem vill skóinn ofan af Norðurlandi. Nærvera Magnúsar Jónssonar á skrifstofu fslendings segir til sín, m. a. í því, að hann er nú aftur farinn að fást við „tening- inn“ í Degi! En „teningurinn“ í Degi, sem Magnús er að kljást við, Jítur svona út □ og á að vera í lok hverrar greinar til að sýna, að viðkomandi grein sé lokið. Þetta virðist Magnús ekki vita eða skilja, en heldur að hér sé um höfundarmerki að ræða eða dulnefni! Sannleikurinn er sá, að hér er um að ræða greinarmerki, sem sum blöð og tímarit hafa tekið upp og svo hefur það ver- ið í Degi um langt skeið. Að þess um upplýsingum fengnum, getur Magnús Jónsson væntanlega hætt að glíma við greinarmerki. Magnús verður að viður- kenna, að Múlavegur sé ekki nefndur í framkvæmdaáætlun ríkisstjórnarinnar fyrir árin 1963—'66, en segir það vera af því að hann sé svo „ódýr“, sam- anborið við Strákaveg og Ennis- veg á Snæfellsnesi, að ekki hafi tekið því að geta hans í svo göfugu plaggi, sem áætlun þessi er. Samt eigi hann að koma, helzt á næsta ári! Varla má skýr ing þessi lélegri vera til að hægt sé að birta hana á prenti. f tækniskólamálinu verður þeim fslendingsmönnum, sem von er, erfitt um svör; höfðu enda spillt illa sínum málstað með framhleypni sinni í því máli og tilefnislausri áreitni við þingmenn, sem unnið höfðu það eitt til saka, að gera skyldu sína. „Það er rétt, að formlegur þing- mannafundur var ekki haldinn um málið“, segir fslendingur, „en það skiptir engu máli“(!) «. s. frv. Þetta heitir á íslenzku að berja höfðinu við steininn og er þeim sjálfum verst, sem það gera. Það er rétt, sem Verkamaður- inn segir í gær, að Hjörtur á Tjörn kaus sér sjálfur 4. sætið, baráttusætið á B-listanum. Hann kærði sig ekki um að verða kos- inn á þing, nema glöggt kæmi fram, að þess væri óskað af kjós- endum í kjördæminu. Bændur við Eyjafjörð og í Þingeyjarsýsl- um munu nú segja álit sitt á því, hvort þeir telji nauðsynlegt, að bóndi úr kjördæminu verði einn af þingmönnum þess. Nú segir Verkamaðurinn (eða Amór) í gær, að Alþýðubanda- lagið hafi 1959 vantað 931 at- kvæði til að fá frambjóðandann í öðru sæti listans kjörmn. Þetta er tóm endaleysa. Af þingmönn- um, sem komust að, var Magn- ús Jónsson lægstur með 1322 !4 atkvæði og var í öðru sæti á sínum Iista. Ef annar maður á Iista Alþýðubandalagsins átti að íella hann, þurfti sá að fá a. m. k. 2646 atkvæði, en fékk 1373. Vantaði því 1273 (en ekki 971). Þurfti með öðrum orðum að auka fylgi sitt um meira en 95%, (Fransh. á bls. 7.) f ALÞINGISKOSNINGUNUM 25.—26; okt. 1959 voru í Norð- urlandskjördæmi eystra 10936 kjósendur á kjörskrá, en 9698 greiddu atkvæði. Þátttakan var 88.7%, en hæsta kosningaþátt- taka í landinu 93.2%. Auðir voru 98 seðlar og 30 ógildir. Gild atkvæði, samtals 9570, skipt ust þannig milli flokka: Framsóknarflokkur 4166 atkv. Sjálfstæðisflokkur 2645 — Alþýðubandalag 1373 — Alþýðuflokkur 1045 — Þjóðvarnarflokkur 341 — Atkvæðatölur 4 efstu sætanna hjá hverjum flokki, sem nú hef- ur lista í kjöri, voru samkvæmt hlutfallskosningareglunum sem hér segir: Fr am sókn arf lokkur: 1. sæti..........4166 atkv. 2. — ............. 2083 — 3. — ............. 1388% — 4. — .............104iy2 — Sjálfstæðisflokkur: 1. sæti.......... 2645 atkv. 2. — ............ 13221/2 — 3. — ............... 881% — 4. — ............. 6611/4 — Alþýðubandalag: 1. sæti.......... 1373 atkv. 2. — ............. 6861/2 — 3. — ............... 457% — 4. — ............. 3431/4 — Alþýðuflokkur: 1. sæti.......... 1045 atkv. 2. — ............... 522% — 3. — ............... 348% — 4. — .............. 26iy4 — Þessi sæti á listunum urðu þá þingsæti kjördæmisins: 1. sæti Frams.fl. 4166 atkv. 1. — Sjálfst.fl. 2645 — 2. — Frams.fl. 2083 — 3. — Frams.fi. 1388% — 1. — Alþýðub. 1373 — 2. — Sjálfst.fl. 1322% — Lægstu atkvæðatöluna hlaut 2. sæti Sjálfstæðisflokksins, og er því, miðað við 1959, líklegast til að tapast, ef úrslit, að því er þingsæti varðar, verða önnur nú en þá. En næstu tölur höfðu 1. sæti Alþýðuflokksins (1045) og 4. sæti Framsóknarfl. (10411/2), og mega heita jafnar. En hér er sá mikli munur á, að Alþýðu- flokkurinn er nú, að því er virð- ist, að tapa fylgi í landinu, en almennt viðurkennt, að Fram- sóknarflokkurinn muni auka fylgi sitt í þeim kosningum, sem nú fara í hönd. Þjóðvarnarflokkurinn hefur ekki lista í kjöri að þessu sinni. Talið er, að vísu, að 2—3 Þjóð- varnarmenn séu hér á lista, en sá listi er boðinn fram í nafni Alþýðubandalagsins. Engin á- stæða er til að ætla, að þeir, sem kusu Þjóðvarnarflokkinn 1959, kjósi nú almennt Alþýðubanda- lagslistann vegna þessara manna. Um frambjóðandann í 2. sæti listans er ekki kunnugt, hvar hann hefur talið sig í flokki undanfarið. í vorkosningunum 1959, þegar kosið var um kjördæmamálið, fékk Framsóknarfl. samtals í þeim 4 þáverandi kjördæm- um, sem nú mynda Norðurlands kjördæmi eystra, nálega 4700 (4696) atkvæði. Mun reynslan oftar hafa verið og verða sú, að flokkurinn er líklegur til að hækka til muna atkvæðatölu sína, þegar kosið er um óvenju- leg mál og stór. Þá telja margir til lítils að efla smáflokka, eða flokksbrotasamsteypur og gera það þá upp við sig fyrst og fremst, hvort þeir kjósi frernur að auka áhrif Framsóknarflokks ins eða Sjálfstæðisflokksins til úrslita í þjóðmálum næstu ára. En hvernig eru líkur til að fari um uppbótarsæti? munu sumir spyrja. Þar er að verulegu leyti um eins konar happdrætti að ræða. Kjósandi hér, sem greiðir lista atkvæði í því skyni að koma ákveðnum, föllnum fram- bjóðanda í uppbót, getur átt það alveg eins víst, að hann sé í raun og veru að koma að upp- bótarmanni frá sama flokki, á Suður-, Austur- eða Vestur- landi. Það mun þó mega telja víst nú, eftir fyrri tölum að dæma, að ef núverandi hjördæm iskosinn þingmaður, úr öðrum flokki en Framsóknarflokknum, félli að þessu sinni hér í kjör- dæminu, kæmist hann að sem uppbótarmaður fyrir flokk sinn. í bæjarstjórnarkosningunum í fyrra jók Framsóknarflokkur- inn atkvæðatölu sína á Akur- eyri um rúmlega 300 atkvæði eða 30%, miðað við bæjarstjórn arkjör 1958, og á Húsavík um nál. 25%. Sjálfstæðisflokkurinn tapaði þá rúml. 200 atkvæðum á Akureyri, stóð í stað á Húsavík. Það, sem nú hefur verið sagt, er hér fram tekið, vegna spurn- inga, sem blaðinu hafa borizt öðru hverju um ýmislegt varð- andi síðustu kosningar og álykt- anir, sem af þeim megi draga, svo og ýmsu, sem síðan hefur gerzt. □ STOKUR Á AUKAÞINGINU sumarið 1959 (þegar ráðið var til lykta kjördæmabyltingunni) kusu Al- þýðubandalagsmenn ásamt stjórnarflokkunum Bjarna Bene diktsson fyrir forseta sameinaðs Alþingis. Þá rétti Karl Krist- jánsson Hannibal Valdimarssyni miða með þessari stöku: Oft á lífsins Langadal leiðar- breytist -stjarna. Hreystimennið Hannibal hefur nú kosið Bjarna. Daginn eftir kaus Sjálfstæðis- flokkurinn óskiptur Einar Ol- geirsson fyrir íorseta neðri deildar Alþingis. Þá kvað Karl: Þó að lengi lon og don lystina fyrir særi, gleypti hann Einar Olgeirssort eins og hunang væri.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.