Dagur - 14.09.1963, Side 8

Dagur - 14.09.1963, Side 8
8 Samþykkfir aðalfundar Sféifarsambands bænda Gerðu skyldu þína I Fiindurinn fór fram í Reykjavík 4.-6. sept sl. EFTIRFARANDI samþykktir voru gerðar á aðalfundi Stéttar- sambands bænda, sem lauk föstudaginn 6. b. m.: Verðlagsmál. „Aðalfundur Stéttarsambands bænda 1963 vill enn á ný ítreka fyrri samþykktir um að verð- lagsgrundvöllur undanfarinna ára um verð landbúnaðarvara fullnægi ekki þörf landbúnaðar- ins um eðlilega uppbyggingu og framþróun, og hafi ekki gefið bændastéttinni þær tekjur, sem henni eru ætlaðar samkvæmt 4. grein laga um framleiðsluráð landbúnaðarins o. fl. Telur fundurinn að landbún- aðurinn sé kominn í varanlega hættu verði framhald á þessari þróun. j Með tilliti til þeirra almennu verðhækkana hjá öllum almenn ingi, gerir fundurinn kröfu til þess að laun bænda verði stór- hækkuð á þessu hausti. Fundurinn telur, að tillögur fulltrúa framleiðenda í 6-manna nefnd, sem nú eru framkomn- ar, séu of lágar miðað við það hvað bændur eru orðnir langt á eftir öðrum stéttum í landinu. Hann vill benda á, að ýmsir liðir þess verðlagsgrundvallar eru of lágt áætlaðir, þar á með- al stofnfé búsins og fyrningar og.vextir af því. Á þetta sérstak lega við um húsakost og véla- kost. Viðhald húsa í víða vanrækt vegna fjárskorts bænda. Við- hald og fyrning ræktunar hefur ekki verið tekin til greina á und anförnum árum. Fleiri reksturs kostnaðaratriði mætti nefna, sem of lágt eru áætlaðir. Þá vill fundurinn leggja sér- staka áherzlu á launaliðinn. Sérstaklega vekur hann athygli á: 1. Að kaup bóndans sé áætl- að of lágt miðað við þá gildandi kauptaxta, sem það er miðað við, svo og með tilliti til þeirra HINN upprennandi svarfdælski tenórsöngvari, Gestur Guð- mundsson, sem dvelur hér á landi í tveggja mánaða sumar- leyfi, mun halda söngskemmt- anir á nokkrum stöðum norðan- ]ands á næstunni. Hann hefur stundað söngnám í Mainz í Þýzkalandi undanfarin þrjú ár, en hyggst enn stunda söngnám a. m. k. eitt ár í viðbót, og þetta síðasta ár í Stokkhólmi. Fyrsta söngskemmtun Gests Guðmundssonar verður á Blönduósi n. k. sunnudag síð- degis, síðan á Dalvík fimmtu- daginn 19. sept. og síðast á Ak- ureyri, sennilega þriðjudaginn 24. sept. Undirleikari verður Kristinn Gestsson, kennari við Tónlistarskóla Akureyrar. Þá munu þeir félagar halda launahækkana annarra þjóðfé- lagsþegna, sem þegar hafa ver- ið viðurkenndar. Ennfremur viil fundurinn vísa til þeirrar stað- reyndar, að bændur vinna alla helgidaga ársins án þess að nokkurt ráð sé gert fyrir því í kaupliðnum. Lágmarkslaun bóndans telur fundurinn að þyrftu að vera kr. 150 þús. 2. Að í úrtaki því, sem við er miðað um laun annarra stétta, eru ekki taldar tekjur barna innan 16 ára aldurs né kvenna og ekki heldur tekjur af eignum. í þessu efni er því stórlega hallað á bændur, þar sem konur þeirra og börn vinna meira og minna að búrekstrin- um, án þess að þeim séu ætluð sérstök laun fyrir þá vinnu og ennfremur eru leigutekjur af eignum, svo sem hlunnindum, taldar til launa bænda. í þessu felst misrétti, sem krefjast verð ur leiðréttingar á. Á AÐALFUNDI Sléttarsam- bands bænda, skoraðist Sverrir Gíslason eindregið undan kosn- ingu, en hann hefur verið for- maður Stéttarsambands bænda í 18 ár eða frá stofnun þess. Á fundi nýkjörinnar stjórnar sam bandsins, sem lialdinn var í gær, var Gunnar Guðbjartsson, bóndi á Hjarðarfelli, kosinn for maður þess. Stjórnarkosningin var sein- asta verk fundarins. Hin nýja stjórn var kosin einróma, en hana skipa: Gunnar Guðbjarts- son, Hjarðarfelli (varamaður Ingimundur Ásgeirsson, Hæli), Einar Ólafsson, Lækjarhvammi (varamaður Ólafur Andrésson, Sogni), Páll Diðriksson, Búr- felli (varamaður Jón Helgason, Seglbúðum), Bjarni Halldórs- son, Uppsölum (varamaður Ingi konsert í Reykjavík, einn eða fleiri. □ 3. Að bændur bera ábyrgð á áhættusömum rekstri og oft verða áföll í búrekstrinum, sem engar tryggingar ná til og gera þarf því ráð fyrir að það fáist bætt í verðlaginu. Ennfremur vill fundurinn benda á þann stórfellda aðstöðu mun, sem bændur búa við í ýms um efnum og alveg sérstaklega til þess að koma börnum og ung lingum til náms.“ Aðstöðujöfnun milli sauðfjár- og mjólkurframleiðenda. „Aðalfundur Stéttarsambands bænda 1963 telur að þróunin í landbúnaðinum undanfarin ár sýni, að afkoma sauðfjárfram- leiðenda hafi verið mun lakari en mjólkurframleiðenda. Stækk un búanna er miklu meiri þar sem mjólkurframleiðsla er stunduð, en grisjun byggðanna er hins vegar miklu meiri, þar sem sauðfjárrækt er stunduð. Af þessum sökum leggur fundurinn áherzlu á, að við verð lagningu á þessu hausti komi (Framhald á bls. 5.) Tryggvason, Kárhóli), Vilhjálm ur Hjálmarsson, Brekku (vara- Gunnar Guðbjartsson. maður Þorsteinn Sigfússon, Sandbrekku). Sömu menn og skipa stjórn- ina voru einnig kosnir í fram- leiðsluráð landbúnaðarins. Bjarna Bjarnasyni á Laugar- vatni og Páli Metúsalemssyni á Refstað voru þökkuð störf þeirra. Eftir stjórnarkosninguna tóku margir til máls og þökkuðu Sverri Gíslasyni fyrir farsæla forystu. Einnig öðrum fráfar- andi stjórnarmönnum. Q Ófeigsstöðum 12. september. í gær var réttað í smáréttum, en í dag eru aðalréttir í Fells- rétt. Til hátíðabrigðis varð hreppstjórinn okkar, Sigut'ður Geirfinnsson á Landamóti, sjö- tugur í dag. En hann er einn af beztu hreppstjórum okkar Þing- eyinga. Sigurður situr enn að búi sínu og gekk að heyskap í sumar, sem ungur væri. -Og í kvöld vonum við að vera með STUNDUM er skýrt frá því í útvarpi, að barn hafi dottið í sjóinn, og röskur sjómaður hafi stungið sér fram af bryggjunni og bjargað lífi þess. Sundið hefur oft bjargað mannslífum. Það er gagnleg íþrótt. Á íslandi er sundskylda og öll börn og unglingar þessa bæj ar læra að synda í sundlaug bæj arins. Bæjarbúar telja ekki eftir þau útgjöld, sem ganga til að efla sundíþróttina í bænum. En hvað gerir unga fólkið til að endurgjalda ánægjustundirn ar í Sundlauginni? Nú stendur yfir sundkeppni milli Norðui'landanna. ísland er fremst þeirra með almenna sundkunnáttu. Það getur sigrað í þessari keppni, ef. . .. Já, ef allir gera skyldu sína. Norrænu sundkeppninni lýk- ur næstkomandi sunnudag. Þátt takan er fremur dauf hér í bæn um. Talið er að margir, sem eiga létt með að ynna þessa skyldu af hendi fyrir föðurlandið hafi enn ekki gert það. Þetta er of mikið tómlæti og lýsir lítilli ræktarsemi við land og þjóð. Það ber vott um ein- hverja veilu í þjóðaruppeldinu. Foreldrar! Stuðlið að því að börnin ykkar geri skyldu sína í þessu efni. Og nú sný ég máli mínu til æsku bæjarins. Það er sagt, að margt ungt fólk eigi eftir að synda í norrænu sundkeppninni. Sennilega stafar þetta af áhuga- leysi, sem enn er hægt að bæta úr. Nú er aðeins endaspretturinn eftir og æska bæjarins getur séð svo um, að hann verði góður. Húsavík 12. sept. Á Reykjaheiði fundu gangnamenn úr Aðaldal fé í fönn. Þeir sneru við vegna ófærðar. Áætlað er að lóga 35 þús. fjár á Húsavík í haust. Slátrun hefst úr næstu helgi. Nýja kjötfrysti- húsið verður notað í haust, en að öðru leyti notazt við fyrri aðstöðu. Berjaspretta er mjög lítil og og berjaveður sjaldan. Nú erum við búnir að fá nýja prestinn, séra Björn H. Jónsson og fjölskyldu hans. Hann er ung honum í kaffisamsæti, sem hald ið er honum til heiðurs í hinu forna félagsheimili í Yzta-Felli. í Kinn og Bárðardal snjóaði ekki, svo sem víða annars stað- ar. Gangnamenn okkar eltust við 50 kindur í Haugstorfu, sem er yzt í Náttfaravíkum og náðu þeim með harðheitum, norður í landi Fnjóskdæla. Þaðan sáu þeir 6 kindur í Hvanndölum og fleira fé gat verið þar. Q Jafnframt vil ég minna unga fólkið á það, að þetta er jafn- framt sundkeppni milli Akur- eyrar, Reykjavíkur og Hafnar- fjarðar. í síðustu norrænu sund keppni sigraði Akureyri. Það er á valdi bæjarbúa, sem eftir eiga að synda, hvort svo verður að þessu sinni. Æska Akureyrar! Ég treysti því að þú gerir skyldu þína við bæ þinn og fósturjörð, og eng- inn gleymi því að koma við í Sundlauginni og synda þar 200 metrana — fyrir sunnudags- kvöld. Eiríkur Sigurðsson. GÓÐ SILUNGSVEIÐÍ Ólafsfirði 12. sept. Lágheiði varð ófær minni bílum einn dag. Enn er hvítt af snjó niður í mið fjöll. Bræla hefur verið undanfarna daga, en nú er snjó laust orðið. Hér er átta og hálfsmánaðar skóli og byrjar smábarnakennsl an sennilega á þriðjudaginn kemur. Hér er ekki kennara- skortur að öðru leyti en því, að handavinnukennari stúlkna, sem hér ætlaði að vera, hverfur að öði'u og er það skarð ófyllt. Heyskapurinn gekk sæmilega. Örlítið er þó úti af heyjum, en víðast búið að hirða allt fyrir nokkru síðan. Slátrun hefst upp úr 20. sept. og verður sennilega lógað um 2000 fjár. í sumar var óvenjulega góð silungsveiði í ánni, en laxlaus er hún ennþá. Einn lax fékkst í net í vatninu fyrir skömmu. Tveir bátar voru að koma hingað inn með slatta af síld í bræðslu. (Q ur að aldri, og vonum við að þurfa ekki á næstunni að standa í fleiri prestskosningum, og að sér Björn verði lengi meðal vor. Héðan er nýfluttur Helgi Hálf dánarson lyfsali, en Sigurður Jónsson kom í staðinn og ann- ast lyfsöluna. Q NÝR OG ÓVÆNTIIR DAGSKRÁRLIÐUR FYRIR nokkrum dögum var dagskrá heimsóknar varaforseta Bandaríkjanna, L. B. Johnson, birt. En síðan hefur bætzt við nýr og óvæntur dagskrárliður. Samtök hernámsandstæðinga hafa ákveðið útifund síðdegis á mánudaginn við Háskólabíó, þann sama dag og hinn tigni gestur stígur hér á land. En í þeim húsakynnum mun varafor setinn sitja boð ýmsra aðila. Að fundi loknum munu sam- tökin afhenda varaforsetanum mótmæli gegn fyrirætlunum um herstöðvar í Hvalfirði og hernámsstefnunni yfirleitt. Q Svarfdælski fenórsönrjvarinn Gestur Guðmundsson, heldur söngskemmtanir Nýr formaður Stéffarsambandsins Lítil berjaspretta - Slæmt veður

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.