Dagur - 13.08.1966, Qupperneq 7
7
W^'4'ö'*Sfc'4*©'<Sfc>&^'f'v&'4'S2?'fS£'4'£?'tfS&'4'S2?'tfSfc'4'S2?'íS&'4'S2?'íS,£'4'S2?'íS&'4'£?-'íSfc'4'í!?'tfSfc'4«
•f
I
I
I
í
I
*
«£
I
i
f
I
I
I
I
4
fí»
13*
Yor í Mývatnssveit
Hingað konia þúsundir að' vatninu á vorin
vegmóður, en trúarljósið gefur fyrirheit.
Hér er einnig kærleikur og ást í brjósti borin.
Nú boðar tímans gestur: Vor í Mývatnssveit.
f sveitinni við vatnið menn frá mörgum þjóðum
mála eða fiska, en það er lieimsins list.
Suma heillar fuglinn með söng og ástarljóðum
en sólin getur alla með geislum sínum kysst.
Ég sofnaði. Mig dreymdi að væri ennþá vetur
og vorgyðjan að koma með söng — og hörpuslátt-
En jörðin sem að vakir, með sólskininu setur
sumarlit á byggðina og perluvatnið blátt.
Auðsæ sköpun drottins allskyns mál og myndir
hinn mikli þýði andi, sem yfir vatnið fer
silunga og eggjamæður, tæran læk og lindir
í listigarði unaðssemda — komið fyrir liér.
Háborg öræfanna, málleysingja og manna
meðal þúsundánna, sem eru í gæfuleit.
Og gæfuhnossið ljúfa engin boðorð banna,
sem barn að njóta vorsins hér í Mývatnssveit.
H. F.
<3
•5-
y/-
?
e
•v
3
<3
*
f
<3
t
I
t
•3
-V
«3
-?-
iV-
<■
3
■>
Garðyrkjuskóli
ÞAÐ ER að vakna brennandi á-
hugi lyrir pví, að koma á fót garð-
ýrkjuskóla á Norðurlandi. Um-
ræður hafa verið og samþykktir
gerðar á -Alþingi um þetta mál.
Askoranir koma úr öllum áttum.
Vonandi verður þetta merka mál
íkki látið þæfast lengi milli
nefnda og stjórna. Þörfin er svo
brýn.
Gróðrarstöðin á Akureyri þykir
sjálfsagður staður fyrir þennan
Úr mótaskrá ÍBA 1966
a g ú s T
íþróttavöllur Ak. 13. og 14.
ág. Meistaramót Ak. í frjálsum
íþróttum kl. 14.00 — FRA.
Iþróttavöllur Ak. 17. ág. Akur
eyrarmót í knattspyrnu m.fl.
kl. 20.00 — KA. ' •’ '
Malarvöllur 25. ág. Akureyr-
armót í knattspyrnu 2. fl. kl.
20.00 — KA.
íþróttavöllur Ak. 28. ág. ís-
landsmót I. deild ÍBA—Valur
kl. 16.00 — KSÍ. □
- Laiiílbúnaðarmál
(Framhald af blaðsíðu 4).
leiðendum sínum fullar eft-
írstöðvar mjólkurverðsins
frá árinu 1965, vegna þess
liversu mfkið fé var bundið í
smjörbirgðunum, en bank-
arnir höfðu dregið úr afurða
íánum vegna birgðasöfnun-
arinnar um 14.5%. . . □
á Norðurlandi
skóla. Þar var á sínum tíma merki-
legur garðyrk juskóli, þó í smáum
stíl væri, undir stjórn Guðrúnar
Þ. Björnsdóttur frá Veðramóti,
sem lauk prófi við Reistad garð-
yrkjuskóla í Noregi 1915, og út-
skrifaði írá sínum litla skóla martr
ar stúlkur, sem ferðuðust svo uni
landið og leiðbeindu á heimilum.
Unt skólann segir Jón Rögnvalds-
soon, garðyrkjumaður: „Þessi litli
vísir að garðyrkjuskóla, sem við
höfðum hér um árabil undir
stjórn Guðrúnar Þ. Björnsdóttur,
gerði ótrúlega mikið gagn og vakti
áliuga fyrir ræktun og fegrun
heimilanna út um sveitirnar."
Eitt sumarið voru þær 8 stúlk-
urnar, sem ferðuðust til og frá um
landið og stunduðu garðyrkjuna á
heimilum landsins. Ekki voru þær
allar lrá s'kólanum í Gróðrastöð-
inni, sumar byggðu á langri
reynslu, suniar höfðu lært erlend-
is. Búnaðarfélögin og kvenfélögin
styrktu þessar ferðir. Konurnar
elskuðu „litlu garðyrkjukonurnar"
sínar, og liörmuðu það, að starf
þeirra lagðist niður.
Þó Gróðrarstöðin á Akureyri
hafi nú um tíma verið í niður-
níðslu, mun duglegur maður,
lærður, geta reist hana úr rúst, svo
að hægt verði að koma þar upp
vísi að Garðyrkjuskóla.
Mætti svo verða með Guðs og
góðra manna aðstoð, og það sem
lyrst.
Blönduósi um heyannir 1966.
Halldóra Bjarnadóttir.
- MIKIÐ SALTAÐ
(Framhald af blaðsíðu 1.)
daga. Sildin , sem þarna veiðist
er sæmileg til söltunar. Sildar-
fólki er smalað saman á Héraði
og víðar.
Síldarverksmiðjan á Raufar-
höfn hefur tekið á móti 30.500
tonnum og saltaðar hafa verið
28.319 tunnur á móti 20 þús. í
fyrra á sama tíma og 13 þús.
tonnum í bræðslu.
11 ára drengur veiddi nýlega
mink á stöng við Deildará hjá
Raufarhöfn. H. H.
- Aðalfundi frestað
(Framhald af blaðsíðu 1)
Verði þá á þeim fundi tekin
afstaða til, hvað unnt væri að
gera, ef ríkisvaldið neitaði mála
leitan Stéttarsambandsins um
framlag til þess að fullt varð-
lagsgrundvallarverð náist og
hvort rétt væri að undirbúa
sölustöðvun á mjólk“.
Ennfremur var eftirfarandi
ályktun um verðlagsmálin sam
þykkt í einu hljóði:
„Aðalfundur Stéttarsambands
bænda haldinn í Bændahöllinni
8. og 9. ógúst 1966, telur það
ástand óviðunandi, að bænda-
stéttin skuli ár eftir ár vera
lægst launaða stétt þjóðfélags-
ins, eins og opinberar hagskýrsl
ur sýna.
Fundurinn leggur því áherzlu
á, að við verðlagninguna i haust
verði bætt úr þessu, svo að
bændur nái því marki, að hafa
sambærilegar tekjur við aðrar
vinnandi stéttir, svo sem lög
mæla fyrir.
Við uppbyggingu næsta verð
lagsgrundvallar verði lögð
áherzla á eftirfarandi:
1. Við ákvörðun á kaupi
bóndans og skylduliði hans
verði tekið fullt tillit til hinnar
miklu vinnu þeirra við búrekst
urinn og nætur- og helgidaga-
vinna verðlögð á sama hátt og
gert er í öðrum atvinnugrein-
um. Þyki ekki þau gögn, er fyr-
ir liggja um vinnumagnið full-
nægjandi, þá verði í þetta sinn
stuðzt við launaúrtak viðmiðun
arstéttanna með áorðnum kaup
breytingum, svo sem áður hef-
ur verið.gert.
2. Fjárfestingarmannvirki
landbúnaðarins verði metin til
kostnaðarverðs í sambandi við
verðlagninguna og afskrifuð í
samræmi við það, eins og gerist
í sjávarútvegi og iðnaði.
3. Tekið verði fullt tillit til
vaxtargreiðslna búsins, bæði af
stofnfé og vegna reksturskostn-
aðar.
4. Þess verði gætt, að magn
rekstrarvara í verðlagsgrund-
vellinum verði í sem réttustu
hlutfalli við afurðamagn bús-
- Minningarathöfn
(Framhald af blaðsíðu 8).
Á mánudaginn var byrjað að
reyna vélar og tæki í hinni nýju
síldarverksmiðju á Þórshöfn,
sem byggð var þar í vetur.
. Lax er nú genginn í árnar í
Þistilfirði og hefur veiðzt vel
undanfarna daga. Ó. H.
Minningarathöfn um son okkar og bróðir,
JÚLÍUS TRYGGVA,
sem fórst laugardaginn 23. júlí, fer fram í Grundar-
kirkju mánudaginn 15. þ. m. kl. 2 e. h.
Guðrún Kristjánsdóttir, Þórir Valdimarsson
og systkini.
MUNIÐ minningarspjöld Elli-
heimilis Akureyrar. Fást í .
Skemmunni.
Af hverju senda Akur-
eyringar ekki B-lið í
Bikarkeppni KSÍ?
HÉRAÐSMÓT UMSE í
frjálsum íþróttum verð-
ur haldið á íþróttavell-
inum að Laugalandi 27.
og 28. ágúst n. k.
FIMMTUGSAFMÆLI á 15.
ágúst Hrólfur Sturlaugsson
rafvirkjameistari Strandgötu
35 Akureyri.
BIKARKEPPNI KSÍ er nú haf
in og scnda öll I. deildarliðin
B-lið til keppni, nenia Akur-
eyringar? Akureyringar hafa
ekki á undanförnum árunt not-
fært sér það, að senda B-lið í
Bikarkeppni KSÍ, og er nú sann
arlega tími til kotninn, að það
ntál sé athugað gaumgæfilega,
því furðulega lítið hætist við á
hverju ári af góðurn knatt-
spyrnumönnum hgr í bæ, en
ntargir segja að það sé því að
kenna, að það fái ekki aðrir að
spreyta sig í keppni, en þeir 15
menn, sem eru í úrvalsliðinu.
Bikarkeppnin er því valið tæki
færi til að gefa öllum, sem æfa
með ÍBA-úrvalinu kost á að
leika. □
- Fréttir úr N.-Þing.
(Framhald af blaðsíðu 1).
Kópaskeri. Á þessum- fundi
mættu oddvitar, formenn eða
fulltrúar skólanefnda, fræðslu-
ráðsmenn, fræðslumálastjóri,
Helgi Elíasson, þámsstjcuihn,
Valgarður HaraJdgsQn- o. fl. Á
þessum fundi var rætt um fram
kvæmd skyldunámsins í sýsl-
unni og héraðsskóla þann, sem
nú hefur hafið starfsemi sína.
En við þann skóla fór fram
gagnfræðapróf og landspróf í
fyrsta sinn í vor. Aðalforgöngu
maður héraðsskólamálsins hef-
ur verið Björn Haraldsson
bóndi og fyrrverandi kennari,
en skólastjóri er Aðalbjörn
Gunnlaugsson. Fundurinn gerði
ályktun um þau mál, sem til
umræðu voru.
Daginn eftir, 12. júlí, komu
nýkjörnir sýslunefndarmenn
saman til sýslufundar á Kópa-
skeri, en í sýslunefndinni eiga
sæti 8 menn auk oddvitans, Jó
hanns Skaptasonar sýslumanns.
Héraðsskólamálið var líka eitt
af aðalmálum sýslufundarins,
en sýslan ér stofnandi skólans
og leggur fram fé til hans ásamt
ríkissjóði. En mörg önnur mál
voru til meðferðar þ. á. m. fjár
hagsáætlun sýslunnar. Sýslu-
fundurinn ákvað að senda Þór-
halli Björnssyni fyi'rverandi
kaupfélagsstjóra á Kópaskeri
og sýslunefndarmanni kveðju
sína, þar sem honum v.oru þökk
uð ágæt störf og hörmuð brott-
för hans úr héraðinu.
Nýkjörið fræðsluráð hélt
fund í Austurgörðum í Keldu-
hverfi 23. julí sl. Var-þarrætt
héraðsskólamálið óg’ ýmis 'önn-
úr skólamál í syslunni, m. a.
bygging heþn^vistarb^ineskóla
austan heiðar. ^ G.
ÁTTRÆÐUR verður næstkom-
andi þriðjudag 16. þ. m. Frey
steinn Sigurðsson Suður-
byggð 3 Akureyri.
BÆNDUR!
Vanti ykkui' góða girðing-
arstaura get ég bætt
úr því. — Greiðslulrestur
eftir samkomulagi.
Guðmundur Halldórsson,
Kvíslarhóli, Tjörnesi.
TIL SÖLU:
Lítil Goblin-þvottavél
og barnarúm í
Norðurbyggð 15.
TIL SÖLU:
Vörubílsgrind fyrir liey-
vagn, .með hásingu, fjöðr-
um, dempurum og
felgum.
Bragi Guðmundsson,
Hlíð við Akureyri.
TIL SÖLU
úr Chevrolet vörubíl,
árg. ’55 B, framrúða, drif,
drifskaft o. fl.
Dekk 825x20.
Bragi Guðmundsson,
Hlíð við Akureyri.
TAÐA TIL SÖLU
200 krónur hesturinn.
Bragi Guðmundsson,
Hlíð við Akureyri.
HLJÓÐFÆRA-
LEIKARAR!
Áríðandi fundur í AI-
þýðuhúsinu í dag (laugar-
dag) kl. 1 e. h. Mætið vel
og stundvíslega.
Stjórnin.
m
) Peysusett (
- ULLAR -
í mörgum litum.
Verð kr. 583.00.
MARKAÐURINN
SÍMI 1-12-61