Dagur - 09.09.1970, Síða 1

Dagur - 09.09.1970, Síða 1
FILMU HÚSIÐ Hafnarstræti 104 Akureyri Sími 12771 • P.O. Box 397 SÉRVERZLUN: LJÓSMYNDAVÖRUR FRAMKÓLLUN - KOPIERING Margir búasf fil fjárleifa Húsavík 8. sept. Slátrun mun hefjast hjiá Kaupfélagi Þingey- inga á Húsavík á þriðjudaginn 15. september. Áætlað er, að lógað verði’ 41 þús. fjár, og er það þrem þúsundum fleira en í fyrra. Göngur munu almennt hefj- ast í S.-Þing. um næstu helgi. Mývetningar leggja af stað í þriggja daga göngur n. k. laug- ardag, 12. september. Á laugar- daginn eru farnar svonefndar Veggjargöngur, en þá er smal- aður suðurhluti Austurfjalla, en á sunnudag og mánudag er geng inn norðurhluti Austurfjalla. í Mývatnssveit er svo réttað á þriðjudaginn 15. september. Þ. J. Óhöpp og ofbeldi í umferðirmi SAMKVÆMT upplýsingum lög reglunnar á Akureyri, eru nú bókaðir frá áramótum 388 árekstrar í umferðinni á Akur- eyri og í nágrenni. Eru það meiri umferðaróhöpp en viðun- andi er, og valda þau óhemju tjóni. Á föstudagskvöldið var ekið á hest hjá Litlagarði við Akur- eyri. Lóga varð hestinum og bíllinn skemmdist. Á laugardag inn fór bifreið út af vegi vestan LÝST EFTIR ÞJÓFUM LÖGREGLAN á Akureyri bið- ur þá, sem grunsamlegra manna ferða hafa orðið varir nálægt Tjarnarhól nú undanfarið, að láta hana vita. En þar var stolið tveim i'afgeymum úr dráttar- vélum, er þar stóðu, og þeim þriðja úr dráttarvél, er var í skúr þar. Kemur blaðið þessu hér með á framfæri. flugvallar, hafnaði á girðingu og valt. Ökumaður var grunað- ur um ölvun. Þá fór bíll út af vegi norðan við Skjaldai'vík, valt og skemmdist, en fólk sak- aði ekki. Það var á sunnudag. Tilkynnt var á laugardag inn- brot í Búvélaverkstæðið á Gler- áreyrum. Var brotist inn um glugga, peninga leitað og stolið 200 krónum í skiptimynt. Þá bar það til kl. 3 á mánu- daginn, að ölóður aðkomumað- ur réðst á stúlkur tvær, er sátu í kyrrstæðum bíl í Hafnarstræti. Yfirgáfu þær bílinn og leituðu aðstoðar lögreglunnar. Kom hún fljótt á vettvang og elti þann ölóða, sem hafði setzt undir stýri og ekið burt. Króaði lög- reglan hann af í Ásvegi og tók hann í sína vörzlu. Sama dag urðu þrír bifreiða- árekstrar á Akureyri á tímabil- inu 12—15 og urðu þar enn tölu verðar skemmdir á farartækj- um. □ Forsetahjónin heimsóttu Dani FORSETAHJÓNIN, herra Krist ján Eldjárn og frú Halldóra Eld járn, fóru í opinbera heimsókn til Danmerkur í boði dönsku konungshjónanna 2. september, ásamt föruneyti. Þau fengu hvai-vetna virðulegar og hlýjar móttökur hjá hinni gömlu vina- þjóð og var hvarvetna hinn mesti sómi sýndur. Forseta- hjónin, sem eru hinir ágætustu fulltrúar þjóðar sinnar,. voru væntanleg heim til íslands síð- degis í gær. □ Göfurnar sfeyptar í Ólafsfirði Hraðbraut m Vaðlaog þjóðbraut um Víkurskarð? Á SÍÐASTA vetri tóku ýmsir Suður-Þingeyingar að beita sér fýrir ákvörðunum um framtíðar veg austur frá Akureyri. Voru þar saman komnir oddvitar nokkurra hreppa í vestanverðri S.-Þingeyjarsýslu, svo og bæjar stjórar Akureyrar og Húsavík- ur. Á sunnudaginn var voru þessi mál enn rædd á fundi á Akureyri og voru þai' þá við- staddir þingmenn kjördæmisins nema Björn Jónsson. Þar var um það rætt af ýmsurn eins og nýjan þjóðveg austur frá Akur- áður, að æskilegt væri að leggja eyri um Vaðla, norðan flug- brautar og austur um Víkur- Bjarni Jónsson listmálari sýnir hér Á LAUGARDAGINN opnaði Bjarni Jónsson sýningu í Lands bankasalnum á Akureyri. Verð- ur sýningin opin daglega frá kl. 14 til 22, fram til sunnudags- kvölds 13. september. Myndir þær, sem eru á sýn- ingunni, hafa verið valdar með það fyrir augum að sýna sem flestar hliðar á lrst Bjarna Jóns sonar. Þai' er að finna olíumál- verk, vatnslitamyndir og teikn- ingar. (Framhald á blaðsíðu 4) Ein af myndunum á sýningunni. skarð. Talið var að Vegagerð ríkisins, Flugmálastjórn, skipu- lagsyfirvöld ríkisins og bæjar og byggðarlög austan og vestan Vaðlaheiðar yrðu að samræma sjónarmið sín við ákvörðun framtíðarvegar. Fulltrúar sveit- , arfélaganna ákváðu, að óska eftir því við samgöngumálaráð- herra, að skipuð yrði nefnd til að gera ákveðnar tillögur um vegarstæðið, og var gert ráð fyrir, að í nefndinni yrðu fimm menn: Frá Vegagerð ríkisins, Flugmálastjórn, skipulagsyfir- völdum, Akureyrarbæ og einn tilnefndur af sveitarfélögum austan Eyjafjarðar. Nú nýlega hefur verið frá því skýrt opinberlega, að tekin verði mörg hundruð milljóna að láni erlendis til vegagerðar og er sú lántaka bundin við þá þjóðvegi, sem í vegalögum nefn ast hraðbrautir. Hraðbrautir þessar eru einkum á Suðvestur- landi, út frá höfuðborginni. Alls teljast hraðbrautir 330—340 km. að lengd. Af þeim eru aðeins 14—15 km. hér á Norðurlandi og er það vegurinn frá Mold- haugahálsi að vegamótum vest- an Vaðlaheiðar. En sjálfsagt er, að Norðlendingar geri nú þegar kröfu til að fá hluta hins erlenda láns til hraðbrautar- gerðar hér, og á það ekki að líðast að hraðbrautin hér sé sett hjá, undir því yfirskyni, að ekki sé búið að ákveða vegiwstæðið. (Framhald á blaðsíðu 5). Ólafsfirði 7. sept. Verið er að steypa 200 metra kafla á aðal- götu bæjarins, og er langt kom- ið að steypa aðra akreinina. Hér er um að ræða götuna frá félags heimilinu suður undir kirkju- garð. Á meðan vonda veðrið stóð yfir, var fremur dauft yfir athafnalífinu, því að bátarnir gátu ekki róið á meðan. En nú munu þeir að fara eða farnir á miðin, og landa einhverjir þeirra síðar í vikunni. Flestir eða allir bændur eiga hey úti og sumir eiga eftir að slá. Mikið vantar á viðunandi heyfeng. Lítil silungsgengd hefur verið í ánni í sumar. Lágheiði tepptist vegna snjóa, en er nú fær. B. S. Miklu verður logað á Dalvík Dalvík 8. sept. Hinn 20. sept. fara menn í göngur og rekið til Tunguréttar 21. sept. Flestir bændur eru enn að heyja, eiga hey úti og eiga jafn- vel eftir að slá. Hver sláandi blettur er sleginn. Slátrun stórgripa stendur yfir og er talið, að margir muni fækka í fjósi. Síðan hefst sauð- fjárslátrunin og verður mörgu lógað eða um 4 þús. fleira en í fyrra eða allt að 13000 fjár. Bændur hafa keypt nokkurt heymagn úr Eyjafirði og Ólafe- firði og flutt heim til sín. J. H. Mjólkursala á sunnudögum ÁKVBEK3 keiir verið, að Ný- lenduvörudeilil KEA hafi opin þijú af útíbúum sínum á sunnu dögum. Útibú Nýlewduvörudeildar höfðu fyrir nokkrum árum opið í 2 tíma á sunnudögum, en vegna örðugleika á útvegun vinnukrafts á þessum dögum varð að hætta þessum opnunai'- tíma. Fram úr þessurn vanda hefir nú verið ráðið og munu útibúin við Brekkugötu 1, Höfðahlíð 1 og Byggðaveg 98 hafa opið milli kl. 10 og 12 f. h. á sunnudögum til afgreiðslu á öllum vörum, sem þar fást ai jafnaði. Við öll þessi útibú eru góS baastæéi, einkum tvö þau síðastn«&ridu. Það er v®» forráðamanma KEA, að þetta fyrirko«auL»g gefci haldist, ef vel reynist, •£ að með þessu sé stigið enn eitt skref til bættrar þjónustu fyrir félagsmenn og aðra viðskipta- vini kaupfélagsins. □ BÆNDUR frá Skarði og Höfða í Grýtubakkahreppi hafa heyað 500 hesta heys í Hrísey. Ei’ búið að þurrka það en eftir er að vél binda það og flytja til lands. Heyvinnuvélar voru fluttar til eyjarinnar. □

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.