Dagur - 10.02.1971, Blaðsíða 4

Dagur - 10.02.1971, Blaðsíða 4
I 5 ggmmmmmmmMm Skrilstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri Símar 1-11-66 og 1-11-67 Ritstjóri og ábyrgðarmaður: ERLINGUR DAVÍÐSSON Auglýsingar og afgreiðsla: JÓN SAMÚELSSON Prentverk Odds Björnssonar h.f. Astæða til bjarfsýni FJÁRHAGSÁÆTLUN Akureyrar hefur verið samþykkt og gefur margt til kynna. Hún er há og sýnir, að brúttótekjur borgaranna hafa hækk- að um 30%. Útsvörin hækka þar af leiðandi um 35—40%. Hinar miklu tekjur bæjarbúa, sem mi er lagt á, eru m. a. árangur af framkvæmda- stefnu bæjarstjórnar á síðasta kjör- tímabili, þegar Framsóknarmenn voru þar fjölmennastir og mótuðu stefnuna. Eitt þeiira stórmála, sem framund- an eru, er bygging skólans í Glerár- hverfi. Framkvæmdir við hann áttu að liefjast í sumar, en nægan undir- búning vantaði þá. Nú lítur út fyrir, að bygging hans verði hafin í sumar, eftir samning við menntamálaráðu- neytið, er nú stendur fyrir dyrum. — Byggingin verður boðin út. Fjárhagsáætlunin gerir ráð fyrir auknum gatnagerðarframkvæmdum, enda er þeirra full þörf, en væntan- leg og sérstök framkvæmdaáætlun bæjarins skýrir þá framkvæmd og aðrar nánar í einstökum atriðum. Búið er að sækja um lán til að ljúka þeim áfanga hafnarinnar, sem að hefur verið unnið, og áherzla verður lögð á að ljúka einnig dráttar- brautinni. Þá hefur verið sótt um lán til vatnsveituframkvæmda. Er þar um stórframkvæmd að ræða, er ekki verð ur mikið lengur skotið á frest. Er um tvær leiðir að ræða: aðveitu úr Hörgárdal eða hreinsistöð við Glerá. Ef lán fæst, hefjast framkvæmdir í sumar. Áætlað er, að hefja byggingu dag- heimilis fyrir börn nú í sumar, og mun að því stefnt, að gera það fok- helt á árinu. Fast er sótt eftir því við yfinöld- in, að lagður verði nýr vegur, hluti hraðbrautar, frá Höphner að flug- velli og að unnt verði að byrja á hon- um í vor, og að bærinn fái aukafjár- veitingu til að byggja nýja Glerár- brú. Atvinnuleysi er ekki á Akureyri, nema það, sem af stöðvun togaraút- gerðar stafar, svo heitið geti. Verið er að semja um togarsmíði við Slipp- stöðina á Akureyri. Leit að Iieitu vatni verður væntanlega fram haldið í samráði við sérfræðinga. Skipu- lagning kaupstaðarins er hafin. Meðaltekjur á Akureyri voru nú í fyrsta sinn hærri en í Reykjavík, eða 217.500 kr. á hvern framteljanda hér, en 214.757 kr. í Reykjavík. Og liér á Akureyri varð veruleg fólks- fjölgun s.l. ár. Með þetta allt í huga er ástæða til bjartsýni í höfuðstað Norðurlands, þrátt fyrir erfiðleika af illu stjórnarfari. □ -----N-t;8 rj l'll f I f 11'n ---- Isl. hafarnarsfofninn á í vök að verjasf EINS og undanfarin ár var á vegum Fuglavei-ndarfélagsins og Náttúrufræðistofnunarinnar haft nákvæmt eftirlit með haf- arnarstofninum 1970. Á árinu komust upp 6 ungiair úr 5 hreiðrum. Sumarið 1970 var auk þess vitað um 19 hjón, sem héldu sig við varpsvæði og af þeim gerðu 11 tilraun til várps, sem misfórst af ýmsum orsökum. Reynslan hefur sýnt að haf- örninn er með viðkvæmustu varpfuglum íslands. Varp heppnast því aðeins að fuglinn verði ekki fyrir neinu ónæði og að alls ekki sé komið inn á varpsvæðið fyrr en í júlímán- uði, en þá fer eftirlit fram. Á íslandi er nú 51 fullorðinn örn, 10 ungir ernir auk þeirra 6, sem upp komust 1970, talan er því alls 66 ernir. Síðan 1964 hafa komizt upp 70 arnarungar, flestir 1967, þá 17. Dr. Finnur Guðmundsson, for stöðumaður Dýrafræðideildar N áttúruf ræðistof nunarinnar, hefur lokið ýtarlegri skýrslu um dauða erni, sem borizt hafa síðan 1940. feað ár voru á safninu 2 emir, sem báðir voru skotnir 1897, annar upp í Mosfellssveit, hinn við Klöpp í Reykjavík, og keypti safnið þá á fimm krónur hvom. Frá 1940 til 1970 hafa borizt 25 arnarhræ. Um örugg- ar dánarorsakir er þetta að segja: 1 fórst í umferðarslysi, 1 flaug á háspennulínu, 1 flaug á símalínu, 5 fundust dauðir við eitrað hræ, 1 var skotinn. Var hann sendur til Bretlands til rannsóknar þar eð hann var nýdauður er hann kom á safn- ið. Hafði hann verið skotinn með riffli cal. 22. Hafði kúlan farið gegnum kviðarhol fugls- ins og valdið miklum innvortis blæðingum frá lifrinni. Það vakti athygli að minna magn var af skordýraeitri í fuglinum, heldur en í nokkrum þeirra rán fugla, sem rannsakaðir hafá ÞRIÐJU tónleikar Tónlistar- félags Akureyrar á þessu starfs- ári verða n. k. sunnudag, 14. febrúar, í Borgarbíói og hefj- ast kl. 21.00. Þar koma fram Ruth Magnússon aUtsöngkona, Jósef Magnússon flautuleikari og Guðrún A. Kristinsdóttir píanóleikari. Jósef Magnússon leikur sónötu fyrir flautu eftir J. S. Bach og þrjú íslenzk þjóðlög eftir Árna Björnsson. Rut Magnússon syngur laga- flokkinn Frauenliebe und Leben eftir R. Schumann og lagaflokk eftir spænska tón- skáldið Manuel de Fælla, ís- lenzk þjóðlög og lög eftir Benja min Britten, Igor Stravinsky, FRAMBODSLISTI FRJÁLSLYNDRA FRAMBOÐSLISTI Samtaka fi-jálslyndra og vinstri manna í Norðurlandskjöi'dæmi eystra hefur verið birtiu-. Er hann þannig skipaður: Björn Jónsson, Benóný Arn- órsson, Hjalti Haraldsson, Jón Helgason, Freyr Bjai-nason, Hilmar Ágústsson, Bergljót Frí- mann, Höi'ður Aðólfsson, Hi'afn Ragnarsson, Jóhann Hermanns- gpn og Tx'yggvi Helgason. □ < < i f :• verið hjá brezka Náttúruvernd- arráðinu. Sá, sem ber ábyrgð á dauða þessa fugls er ófundinn. Málið var rannsakað af viðkom andi sýslumanni, en örninn farmst við alfaraleið. Líklegar dánarorsakir: 4 hreiðurungar dóu af vosbúð vegna truflana af mannavöldum. 1 lenti í olíu eða gi-út í fjöru. 1 var líklega skotinn. Erfitt var að greina dánarorsök hinna, þar eð oft var um sjórekin hræ að ræða eða langt um liðið síðan fugl- inn drapst. Af 20 fuglurn er aldui'sgreining þessi: 8 kyn- þi-oska fullorðnir. 6 ungir ókyn þroska, en eldi i en 1 árs. 5 ung- fuglar á fysta ári. 1 ógreindur. Siglufirði 9. febrúar. Atvinnu- lausir ei'U hátt á öðru hundrað- inu, enda niðurlagningarverk- smiðjan ekki starfrækt, verður það ekki fyrir eða um næstu mánaðamót. Á 50 ái-a afmæli Siglufjarðar- kaupstaðar 1968 gaf Siglfirðinga félagið í Reykjavík og nágrenni siglfirzki-i æsku kr. 250 þús., sem veija átti til bættrar að- stöðu til skíðaiðkunar. Var þá þegar sérstaklega talað um skiðalyftu. Meðal annars vegna þessarar höfðinglegu gjafar, svo og for- ENSKUR togari kom fyrir helg ina til viðgerðar á Akureyri. Kvöld eitt leystu skipverjar landfestar, en skipstjóri svaf. Hafnsögumaður lagði skipinu að bryggjunni aftur og einnig var kallað á lögreglu bæjarins tál að koma í veg fyrir fleiri flónskuverk drukkinna sjó- manna. Hinir ensku sjósettu einnig björgunarbát. Fannst Paul Hindemith og Atla Heimi Sveinsson. Guðrún A. Kristinsdóttir ann ast undirleik á tónleikum þess- um. □ (Framhald af blaðsíðu 81. lenzku þjóðinni til hreinnar skanunar. Bótaþegar geta hvorki lifað eða dáið af þeim smánarlaunum, sem þehn er ætlað úr tryggingarkerfinu, sem þeir hafa greitt í frá 16 ára aldri. Var einhver að tala um velferðarþjóðfélag?“ DÝRT GAMAN Það er dýrt gaman að eiga bíl. Kostar það hvorki meira né minna en 120 þús. kr. á óri, sam kvæmt útreikningum Félags ís- lenzkra bifreiðaeiganda. En FÍB gerði áætlun imi reksturs- kostnað Wolkswagen-bíls í haust, og komst þá að þessari niðurstöðu. Er þetta raunar ótrúleg tala, en þeir, sem haldaí saman öllxun nótum, er bílinn snerta í eitt ár, vita, að þetta er ekki út í bláinn, ekki ótrú- legt, miklu fremur áhyggjuefni, MIKILL INNFLUTNINGUR BIFREIÐA Bráðabirgðayfirlit um bifreiða- innflutninginn í fyrra sýnir, að Auk þess er vitað um 1 full- orðinn öi-n, sem fóx-st í dýra- boga, en hræið týndist. 2 fugl- um var hins vegar bjargað ósködduðum úr boga. Næstu ái-atugi verður reynt eftir megni að hefta alla umferð um vaipsvæði ax-na og það opin bera má ekki leyfa útburð eit- urs af neinni tegund, en aðeins með stx-öngustu fi-iðunaraðgerð- um mun hafarnarstofninum tak ast að komast úr þeii-ri lægð, sem hann hefur verið í síðan eitrunarhei'ferð var hafin gegn honum á áx-unum 1880 til 1910 eða reyndai' til 1964. | göngu Skíðasambands íslands og velvilja íþi'óttasjóðs, ábyi'gð- ar bæjarsjóðs Siglufjarðar, hafa nú verið keyptar tvær skíða- lyftur til Siglufjarðar. Önnur lyftan, sem er færanleg og disil- drifin, hefur verið staðsett í Hólshyrnu, þar sem íslandsmót- ið í svigi og stórsvigi er venju- lega haldið. Vai' hún foi-mlega tekin í notkun sl. sunnudag. Seinni lyftan verður staðsett nær kaupstaðnum, en sökum þess hve snjólétt er hér í vetur, hefur ekki' verið aðstaða til að setja hana upp enn. J. Þ. hann síðan skammt fi-á, en mannlaus, en lögreglan hafði þá hafið leit, því álitið vax-, að í bátnum væru tveir skipvexjar. Kvartað hefur verið og kæi-t yfir ferðum óboðinna manna í bústað hjúkrunarnema við Spítalaveg. Hafði þar ýmislegt hoi-fið. Lögreglan hefur nú haft hendur í háx'i tveggja manna, sem játað hafa þjófnað á þess- um stað og víðar. Þriggja ára dx-engur varð fyrir bíl á Þórunnarstræti fyrir helgina. Marðist hann á höfði, en var óbrotinn. Daglega eru bifreiðaslys, stundum mörg á dag, en án slysa á fólki. □ um 4.700 bifreiðir, nýjar og notaðar, liafa verið fluttar til landsins árið 1970, og er inn- flutningsverðmæti þeirra um 610 niilljónir króna. Þetta er uni fjórum sinnum meiri bif- reiðainnflutningur en árið 1969, en þó ekki nærri eins mikill og árið 1966, en þá munu liafa ver- ið fluttar um sex þúsund bif- reiðir til landsins. HÁTT BENZÍNVERÐ í fréttatilkynningu frá FÍB seg- ir að samanburður hafi verið gerður á benzínverði á Norður- Iöndunum í október 1970. Kom þá í Ijós, að verkamaður á fs- lándi er 8.1 mínútu að vinna fyrir einimi lítra af benzíni, en sænskur verkamaðu-r er . 3.8 mínútur að vinna fyrir honum, danskir 4.4 mínútur og norskir verkamemi 4.9 mínútur. Ef þessu er breytt í prósentur, kemur' í ljós, að benzínverð á fslandi er 65.3% hærra en í Dasf mörku, 84.1% hærra en í Nor- egi og 113.2% hærra en í Sví- þjóð. Þriðju tónleikar TA (Fréttatilkynning) Tvær skíðalyffur á Siglufirði Djarffækir í búsfað hjúkr.nema SMÁTT & STÓRT LlNA LANGSOKKUR NIÐURÁVIÐ ENN! í gi-einai'gerð frá Áfengis- verzlun í-íkisins um áfengissölu á síðastliðnu ári (1969), kemur í Ijós að áfengi hefir vei'ið selt á þvi ári fyrir tæpar 800 millj- ónir króna, en hækkun útsölu- verðs rúmar 100 milljónir, frá næsta ári á undan. Þessi hækk- un liggur bæði í verðhækkun á áfengi, og einnig í því að neyzla á mann, af hi-einum vínanda, hefir aukizt. Þetta eru ógnvekj- andi tölur, og þó einkum það sem á bak við þær liggui’, allt það böl, siðspilling, slysfarir og önnur óhamingja, sem þessi áfengisneyzla hefir leitt af sér. Kristinn Stefánsson áfengis- varnaráðunautur telur að á ís- landi séu 2.300 algerir áfengis- sjúklingar! Hvað skyldu þeir verða orðnir mai'gir um næstu aldamót, með svipaðri eða lík- lega öllu heldur sívaxandi hlut- fallsaukningu, verði ekkert að gert? Ti-eysta menn sér til að hugsa þá hugsun til enda? Aðgerðir í áfengismálum eru yfii-leitt á þann veg að þær leiða til aukinnar neyzlu, svo sem t. d. fjölgun útsölustaða. Það er margsönnuð reynsla, að því hægai*a sem er að ná í áfangið, þess meiri vei'ður neyzlan. Okkur hx-ýs hugur við að heyra þær fréttir, sem daglega berast utan úr heimi af skæi'u- hernaði, sem virðist nú vera móðins á sviði hernaðar. En mættum við ekki líta okkur nær, er ekki rekinn skæruhern aður í okkar eigin landi, rekur ekki Bakkus konungur hér skæruhernað, og hefir rekið lengi, og það með fullu sam- þykki og stuðningi sjálfs ríkis- valdsins. Eru þau ekki orðin æði mörg mannslífin sem hann verður að standa reikningsskap af, slysin og auðnuleysið sem hann hefir valdið. Mjög mikinn meirihluta afbrota, má vafa- laust tengja við hans nafn. Upp lausn heimila, siðleysi, eyðilagt lif fjölda manna, samanber tölu þá, sem nefnd var hér að fram- an, o.. fL o. fl. Já, hver endist til að telja upp allt það böl, sem af áfengisneyzlunni leiðir, það verður aldrei allt fulltalið. En er þá ekkert gert, til að vinna á móti þessum ósköpum? Jú, sem betur fer vinna bæði einstaklingar og ýmis félög að því að spyrna á móti, en fá því miður lítið að gei't, en að sjálf— sögðu ber að þakka og meta alla viðleitni til úrbóta. Mest áber- andi, og líklega áhrifaríkust, eru frjáls samtök, sem ýmis ung mennafélög, og fleiri aðilar hafa gert, um samkomuhöld án áfengis, má segja að þar sé um stórmerkilega framkvæmd að ræða. Hafa þessi samkomuhöld yfirleitt tekizt vel, að því er sagt er. Er þetta mjög mikil- vægt spor í rétta átt, og á von- andi eftir að láta mikið gott af sér leiða, Mikið er talað o'g ritað urn aukna fræðslu um skaðsemi áfengis, eihkum í 'skólum, er það auðvitað ágætt, og allrar virðingar vert, en því miður hætt við að það reynist ekki nægilega' haldgott þegar út í lífið kemur. Þó maétti vera að aukin fræðsla og áróður mætti orka því að breyta smátt og smátt hugsunarhættinum og al- menningsálitinu, en það er það afl sem mestu mundi fá áorkað, tækist bindindismönnum að virkja það í þjónustu sína. Þá er mikið talað og ritað' um rannsóknir á verkunum áfengis, i)1- -,M vísindalegar rannsóknii-, einnig rannsóknir á áfengissjúkling- um. Ekki skil ég þetta nú al- mennilega, * eða hverju það má bjarga. Áhrif áfengisins eru öll- um augljós, og þarf ekki rann- sóknir til. Það væi’i þá helzt að það væxá í því augnamiði að finna upp eitthvað lyf, éitthvert móteitur, sem hefði þau áhrif að dx-aga úr löngun manna í áfengi, eða að lækna að einhverju leyti þá sem orðnir væi'u áfengis- sjúklingar. Annars er' afengis- vandamálig nú óðum að færast yfir á þann grundvöll að drykkjuskapurinn sé „sjúkdóm ur“, sýnist mér það viðhorf mjög vel til þess fállið að slæfa, eða milda, viðhorf manna til áfengisrteyzlunnar, miða að því að menn fari að sýna henni um burðalyndi. Það er erfitt að sak fella menn, þó þeir taki veiki, sem gengur yfirl! Ég held það sé rnjög hættulegt að þetta við- hoi-f nái að móta hug martna til vínnautnarinnar. Vínnautnin er löstur, sem menn þurfa að taka höndum saman um að uppræta, löstur, sem með ýmislegri i-óm- antík hefir tekizt að skapa um einskonar ævintýraljóma. En hans innsta innræti er grátt og grimmlynt, og á því fá flestir að kenna fyrr eða síðai-, að meii-a eða rtiinna leyti, ef þeir láta villa sér sýn, og ganga honum á hörtd. Þrátt fyrir þær aðgerðir gegn áfengisneyzlunni, sem getið var hér að framan, og ýmislegt fleira, sem ekki var getið um, og ber þar auðvitað langhæst templarastarfið, er áfengisneyzl an vaxandi. Það er því augljóst mál, að þörf er stærri átaka, eigi árangur að nást, og vörn að snúast í sókn. Það sem þarf að gera nú þeg- ar, ásamt auðvitað mörgu fleiru er: " - — 1. Halda áfram sókn, með sam komur án áfengis, ekki aðeins einu sinni á ári, heldur svo oft og víða sem mögulegt er, sann- færa þannig unga sem~ gamla um að það er hægt að skemmta sér án áfengis, já miklu betui’. Áfengið er samkomuspillir, það setur á þær stimpil ómenningar og siðleysis. 2. Vinna að því, eftir öllum tiltækum leiðum, að mun meix-i áherzla sé á það lögð, en verið hefir hingað til, að hafa hendur í hári þeírra, sem veita eða selja unglingum áfengi, og að þeir séu látnir sæta þungum viður- lögum. 3. Hefja markvissa sókn fyrir því að fá lögfest að ekki sé veitt vín í veizlum sem ríkisstjórn og opinberir starfsmenn rikis og bæja standa fyrir. 4. Vinna að því, eftir öllum hugsanlegum leiðum að breyta hugsunarhættinum og almenn- ingsálitinu -hindindinu í vil. Fellur að’ sjálfsögðu undir þann lið öll fræðsla úm eðli áféngis, og afleiðíngár af neyzlu þess. Eri þó vel og dyggilega verði unnið gegn áfertgisbölinu getur þó áldi-eífnáðst nema takmark- aður' áTangur méðán vínsala er leyfð með svipuðu sniði og nú • ef. Þvf hlýtur lokatakmarkið að Verá það' að útrýma áfengi algerlega úr landinu, og að því marki verður áð stefna. Á síð- astliðnú, ári birtist grein eftir undirritaðarirt hér í blaðinu, þar sem lagðar- voru fram ákveðnar rökstuddar tillögur um það efrii. Þár sém þáð yrði of langt mál að cndur-taka það hér, verð ég að láta nægja, að þessu sinni, að vísa til þessara tillagna. Þegar forseti íslands, herra Kristján Eldjárn, fór í opinbera heimsókn til Noi'ðurlands á síð astliðnu sumri, lét hann það boð út ganga að hann óskaði þess að vín yrði ekki um hönd haft, þar sem móttökur færu fram. Þetta var honum til stór- mikils sóma, og hefir of lítið verið á lofti haldið. „Eftir höfð- inu dansa limirnir“, segir gam- all málsháttur. Mætti það í þessu tilfelli verða að áhríns- orðum, væri vel. Stefán Kr. Vigfússon. Bamaleikrit eftir ASTRID LINDGREN. Þýðandi GUNNVÖR BRAGA SIGURÐARÐÓTTIR. Leikstjóri ÞÓRHILDUR ÞORLEIFSDÓTTIR. LEIKFÉLAG AKUREYR AR hefir tekið upp sem fastan iið í starfsemi sinni, að sýna eitt barnaleikrit á vetri. Þetta ber að þakka, og þó mér sé vel ljóst, að lítil gróðavon sé af þessum sýningum, er þetta hugulsemi við yngx-i kynslóðina, og von- andi sér félagið sér fært að halda þessu áfi'am í fi'amtíðinni. Verði aðgöngumiða er stillt í hóf, svo vonandi þarf ekkert barn að vei-ða af þessum sýn- ingum þess vegna. Enginn má Mðrleinn SigurSsson KVEÐJA flutt við útför hans í Akureyrarkirkju 5. febrúar 1971 Nú hefur verið lagt á hulin miS cg horfið er að baki vetrarsvið. Og liandan skýja fagur röðull rís og rósir nýjar græðir vorsins dís. Þér hugir vina fylgja um Fögrubrú — þeir fylgja þér í heitri þökk og trú. Þín minning okkur yl og blessun ber, svo bjartan geisla döggvað auga sér. Þú hörpu lífsins höndum mildum straukst og heimi fögrum tíðum upp þú laukst með hugarhlýju, er æ var söm við sig og sumargróður breiddi í kring urn þig. Við brúði þinni brosir fagurt Ijós, hún ber við hjarta minninganna rós. Nú beð þinn signir mildust bróðurmund og mynd þín ljúf fær yljað systurlund. Þér fylgir vinarkveðja klökk og heit, þá hvíla búin er í friðarreit. Nú eru rofin tímans rökkurtjöld og reifar árdagssól þinn hreina skjöld. Jórunn Ólafsdóttir frá Sörlasíöðum. samt halda sertr svo, að allt sé nógu gott handa böi-num, þvert á móti. Börn eru næm áð firma misfellur, en börn eru líka yndislegir áheýréndur og áhorf endur. Barnaleikúrinn Lína langsokkur er vinsæll leikur, fullur af gáska, með skemmti- legum ævintýrablæ, atbux-ða- rásin hröð og skemmtileg. Þetta á alls ekki að vera neinn leik- dómur, heldur langar mig til að, vekja athygli á þessari sýriingu, hún er fyllilega þess verð, og er öllum er standa að henni til sóma. Sérstaklegn eru allar stað setningar á sviði skemmtilegar og eðlilegar, og ber að - þakka leikstjói'anum, frú Þói'hildi Þor leifsdóttur, vandvrtkni í allri uppsetningu. Tjöldin eru mjög skemmtileg hjá Arnari Jóns- syni, og kemur leiksviðsþekk- ing hans að góðum notum. Þó get ég ekki annað en minnst hér á einn leikarann, Bergþóru Gústavsdóttux-, sem leikur þenn an ærslabelg, Línu langsokk. Bei-gþói'a lék með L. A. að mig minnir fermingaxv'oi'ið sitt, og síðan nokkur hlutverk seinna. Nú er Bei'gþóra alls enginn tán ingur lengur, en svo sannarlega mega táningar í dag öfunda hana. Hún hefir svo skemmti- lega og óþvingaða framkomu, sem fáum er gefið, og væri ósk- andi að Leikfélagið gæfi henni tækifæri seinna, því þarna eru ótvíræðir hæfileikar. Hafðu kæra þökk fyrir Bergþóra. Sömuleiðis vil ég vekja athygl' á framkomu barnanna, þau voru dþvinguð og elskuleg. Sal- urinn var skemmtilega skreytt- ur með myndum eftir börn mec' teikningum úr Dimmalimm, og setti svip á sýninguna. Ég vii endui-taka þakklæti mitt til L. A. fyi'ir þessa sýningu og hveii alla foreldra að lofa börnun. sínum að sjá Línu langsokk, Þökk fyrir skemmtunina. Leilihúsgestur. - Mývetningar undir búa hitaveitu (Framhald af blaðsíðu 1). um og húsum, en að sjálfsögðt1. er það nauðsyn að hverfa tri. allri olíunotkun við Mývatn, er. nota þess í stað jai'ðhita og rai- magn. Frú Guðrún Pálsdóttir Höfða í Mývatnssveit hefur með gjafabréfi afhent Skutu- staðahi-eppi meginhluta þesa Iands, er Höfða fylgdi þá ev Héðinn Valdimarsson keypt. hann, eða alls 6—8 ha. En þax. er landslagið sérkennilegt svc - að mörgum þykir þar eim. fegursti staður Mývatnssveita,. Urn síðustu mánaðamó; drápu Mývetningar sex tófui', flestar eða allar með hjálp vel- sleða. Og ennfremur næst mini: ur öðru hverju. Einkum er þaö Guðmundur Jónsson á Hofs' stöðum, er meindýrum eyðxr, og hefur hann minkahunda. (Samkvæmt viðtali við Petu.’ í Reynihlíð). Námskeið í Húsmæðraskólanum á Akureyri (Framhald af blaðsíðu 8). í skólanum, skýrði stai'fsemi skólans og sýndu húsakynni. En tvær kennslustofur og stórt eldhús hefur Gagnfræðaskólinn til sinna nota. Verið er að gera margvíslegar endui'bætur á kjallara hússins. Námskeið þau, sem nú standa yfir í Húsmæðraskólanum og á hans vegum eru: Saumanámskeið: Kennai’i Ingunn Bjöx-nsdóttir, fastur kennari. Hálfsmánaðar nám- skeið tvisvar í viku (kvöldnám- skeið) og geta konur komið með sniðnar flíkur e'ða fengið sniðið, ef þær vilja. Fimm vikna námskeið bæði kvöld og dag- námskeið. Matreiðslunáinskeið: Þriggja daga námskeið fyrix- húsmæ’ður. Fimm vikna námskeið fyrir ungar stúlkur. Þau vei'ða þrjú kvöld í viku. Einnig fyrii-huguð sýnikeimsla í matx-eiðslu. Kenn- ari er frk. Guðrún Sigui'ðar- dóttir. Vefnaðamámskcið: Kexmarl Ólöf Þói'hallsdóttii'. Dag- og Ólöf Þórhallsdóttir. Dag- og kvöldnámskeið. Einnig nam- skeið fyrir gi-indvefnað. Fönduraámskeið: Frú Ragr:.- heáður Valgarðsdóttir mun a næstunni verða með íöndui- kennslu. Þá munu og verða á næsr- unni leiðbeiningafyrirlestrai’ um ýmis efni, svo sem heilsu- vernd, mataræði, hjúkrun heimahúsum, meðhöndlun þvottaefna o. fl. Einnig ei'u meö vorinu fyrirhuguð gax'ðyrkju- námskeið sem verður á veguxn Sambands norðlenzki'a kvenna, Húsmæðraskólinn er rekimr af bæ og ríki. Námskeiðin eru öll samtímis og komast þv; magar konur að, er þessara kennslugreina vilja njóta. Skólí i nefnd hefur áhuga á að koma á fimm mánaða námskeiði, rti þess að búa konur undir nám :i Húsmæðrakennaraskóla ís- lands. □ Almennur fundur ungra Framsóknarmanna á Ak. ALMENNUR fundur Félags ungra Framsóknarmanna á Ak- ureyri um stöðu og framtíð vinstri hreyfingar og Samband ungra Framsóknarmanna verð- ur haldinn í Borgarbíói laugar- daginn 13. febrúar n. k. Fram- sögumenn verða Ólafur Ragnar Grímsson, Baldur Óskarsson og Hákon Hákonarson. Að loknum framsöguerindum verða almenn ar umræður og fyrirspurnir. Allt áhugafólk er hvatt til að fjölinenna og nota þetta ein- staka tækifæri. Fundarstjóri verður Hákon Eiríksson formaður Félags ungra Framsóknarmanna. □ Stjórn FUF, Akureyri. Ólafur Ragnar Grímsson. Baldur Óskarsson, Hákon Hákonarson.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.