Dagur - 31.03.1971, Side 8
8
Keppendurnir: Haukur, Svandís og Tónias.
KEPPMSFÖR TIL AMERIKIJ
5INS og áður hefur verið getið,
: óru sigurvegarar í „Loftleiða-
: nótinu“ á skíðum er haldið var
Hlíðarfjalli 6.—7. marz sl. til
Bandaríkjanna til að æfa og
íeppa á skíðum. Af því tilefni
,neri blaðið sér til fararstjór-
ms, Leifs Tómassonar, og
::nnti hann eftir ferðinni og fara
:>vör hans hér á eftir.
Hvenær og livert var farið?
Akveðið liafði verið að fljúga
il Reykjavíkur síðdegis þriðju
daginn 16. marz en vegna snjó-
Hver vill réíla
hjálparhönd?
SINS og kunnugt er af fréttum
brann bærinn Krossnes í Ár-
leshreppi á Ströndum til
Aaldra kola þann 17. marz sl.
>ar bjuggu hjónin Eyjólfur Val
geirsson og Sigurbjörg Alexand
ersdóttir, bæði heilsulítil, ásamt
2 börnum, 6 og 9 ára. í brunan-
um misstu þau allt sitt og varð
engu bjargað. Var það allt mjög
ítið vátryggt. Ástæður þessar-
ar fjölskyldu eru því hinar bág-
bornustu. — Krossnes er lítil
jörð, harðbýl og afskekkt og á
undanförnum árum hefir bú-
skapur verið þar erfiður vegna
mikils grasbrests. Þrátt fyrir
jað, vill fjölskyldan, ef mögu-
egt reynist, endurreisa bæ
sinn, en efni eru lítil. Þess
vegna heitum við undirritaðir
a alla góða menn og konur að
nlaupa undir bagga og rétta
purfandi fólki hjálparhönd. Sýn
nm það í verki að andi sam-
njálpar og kærleikur ríki enn
a meðal okkar. — Vikublaðið
Dagur hefir lofað að taka á
móti samskotum.
Akureyri 30. marz 1971.
í Freyr Ofeigsson,
Rúnar Sigmundsson,
I Sigmundur Guðmundsson,
i Haraldur Sveinbjörnsson,
'l Ármann Dalmannsson,
Erlingur Davíðsson,
Árni Bjarnarson.
AÐALFUNDUR Fegrunarfé-
lags Akureyrar var haldinn
fimmtudaginn 25. marz sl. að
Hótel Varðborg. Formaður fé-
lagsins, Jón Kristjánsson, sagði
frá störfum félagsins á síðasta
ári. Veittar voru viðurkenning-
ar til nokkurra bæjarbúa fyrir
vel hirtar lóðir. Þá var forráða-
mönnum bæjarins o. fl. boðið
að vanda í skoðunarferð um
bæinn, á síðasta sumri.
Úr stjórn félagsins áttu að
ganga Helgi Steinar, sem verið
hefur í stjórn félagsins frá upp-
komu var það ráð tekið að fara
með Norðurleið til Reykjavík-
ur, því fljúga átti, með Loftleið-
um til New York næsta dag og
gekk sú ferð vel.
Lagt var af stað frá Keflavík
kl. 5 e. h. fimmtudaginn 17.
marz og flogið beint til New
York með DC-8 þotu Loftleiða.
Flugið var hið ánægjulegasta
og höfðu unglingarnir mjög
gaman að sjá hafísinn undan
ströndum Grænlands og hið
hrikalega fjallalandslag þess.
Einnig sást vel til jarðar er flog
ið var yfir Labrador og norð-
austurhluta Bandaríkjanna.
Komið var til New York kl. 6
e. h. sama dag, þ. e. a. s. við
höfðum seinkað klukkunni um
5 klst.
En hvað tók þá við?
Frá New York var flogið til
Boston ög tóku á móti okkur
Harry Pollard og Mr. Gusselin
en þeir eru báðir Rotary-félag-
ar í Portsmouth og klúbbur
þeirra stóð að heimboði okkar.
Óku þeir okkur til heimabæjar
þeirra.
Hvernig leið svo ykkar fyrsti
dagur í Portsmouth?
Okkur var ekið í skoðunar-
ferð um bæinn og var m. a.
komið við í tveim útvarpsstöðv
um. En þar fóru fram viðtöl við
okkur um ferðina. í viðtölun-
um var komið víða við. Spurt
var um tilgang fararinnar, ís-
land og íslendinga, aðstöðu til
skíðaiðkana o. fl. o. fl. Þá var
einnig farið í heimsókn í einn
af gagnfræðaskólum bæjarins
þar sem unglingar beggja þjóða
skiptust á skoðunum. Snæddur
var hádegisverður með gest-
gjöfum okkar, Rotary-klúbb
Portsmouth, og síðan átti frétta
maður dagblaðs borgarinnar
viðtal við okkur.
Hvenær hófust svo skíða-
iðkanir?
Frá Portsmouth var okkur
ekið til Bristol, sem er lítill bær
ca. 100 km. norðar. Þar um-
hverfis eru allmargir góðir
skíðastaðir. Á föstudagsmorgun
kl. 8 vrorum við komin á skíði
í Ragget Mountain. En daginn
eftir var keppt þar í stórsvigi.
hafi, og Halldór Jónsson. Þeir
gáfu hvorugir kost á sér til
endurkjörs. í þeirra stað voru
kosnir þeir Gunnar Finnboga-
son og Odðgeir Árnason.
Þakkar stjórn félagsins þeim
Helga og Halldóri löng og giftu-
drjúg störf í þágu félagsins.
Fundurinn samþykkti ein-
róma að þakka þeim Jóni og
Kristjáni Rögnvaldssonum fyr-
ir vel unnin störf í þágu garð-
ræktar og fegrunar í bænum og
sérstakan áhuga og alúð við
Lystigarð Akureyrar.
f stúlknaflokki voru keppendur
36 og varð Svandís Hauksdóttir
no. 3 í sínum flokki á 101.89
sek. Sigurvegari varð Stacy
Weston á 94.36 sek. í eldri
drengjaflokknum voru keppend
ur 53. Haukur Jóhannsson varð
í 3. sæti á 90.61 sek. Sigurveg-
ari varð David Benedict á 89.08
sek. Keppendur í yngri drengja
flokknum voru 45 og varð Tóm-
as Leifsson 11. á 95.82 sek. Sig-
urvegari varð Richard Hanson
á 90.78 sek.
Næsta dag var keppt í stór-
um skíðastað Waterville Valley.
Þar var einnig keppt í stórsvigi.
Svandís var nú 7. af 18 á 92.90
sek, en sama stúlka sigraði,
Stacey Wéston á 83.02 sek.
Haukur varð 2. af 56 keppend-
um á 79.25 sek. Sigurvegari
David Benedict á 79.19 sek., en
Tómas sleppti næstsíðasta porti
og var dæmdur úr leik.
Að lokum spyrjuin við þig,
Leifur, hvort þú sért ekki
ánægður með frainmistöðu þess
ara ungmenna?
Jú, það verð ég að segja. Ég
átti aldrei von á meiru en að
þau yrðu um eða rétt framan
við miðju. Þetta voru allsterk
mót og landslag allt frábrugðið
okkar, tré rétt við brautina og
krakkarnir þurftu því að vera
með hjálma. Þau vöktu líka
mikla athygli fyrir skíðakunn-
áttu og góða framkomu í alla
staði. Fyrir þeirra liönd vil ég
þakka öllum er gerðu þessa
ferð mögulega en slíkar ferðir
víkka sjóndeildarhring ung-
mennana og eru um leið ágæt
landkynning fyrir okkar litla
land. □
Áskell Einarsson.
Nýr framkvæmdast jóri
Á FÖSTUDAGINN var Áskell
Einarsson, fyrrum bæjarstjóri á
Húsavík, ráðinn framkvæmda-
stjóri Fjórðungssambands Norð
lendinga. En Lárus Jónsson, er
það starf hafði með höndum
áður, sagði því lausu.
Mun Áskell fljótlega flytja til
Akureyrar, þar sem skrifstofa
samtakanna er. Q
Frá Fegrunarlélagi
SMATT & STORT
ÓÞARFA HROLLUR
I LÁRUSI
Lárus Jónsson núverandi með-
ritstjóri íslendings-ísafoldar, og
frambjóðandi Sjálfstæðisflokks-
ins, er með „prófskrekk“ og
þarfnast hughreystingar. Miðað
við kosningatölur 1967 ætti
hann ekki að vera í fallhættu
að þessu sinni. Ekki er ástæða
til að ætla, að Lárus reynist sú
kjósendafæla að Sjálfstæðis-
flokkurinn missi þetta þingsæti,
sem Magnús Jónsson skipaði
áður. Það er allt of áberandi
hræðslumerki hjá Lárusi, að
stökkva upp á nef sér út af því,
að Framsóknarmenn héldu
ferðamálaráðstefnu hér á Akur
eyri um síðustu helgi, og að
álíta, að það sé gert til að kasta
rýrð á Lárus, sem er formaður
í Ferðamálafélagi Akureyrar.
Satt að segja er alveg óvíst, að
forgöngumenn ráðstefnunnar
hafi leitt hugann að því, liver
þar væri formaður, enda hafa
litlar sögur af þeirri for-
mennsku farið. En það er al-
gengt í seinni tíð að floltkar
boði ráðstefnur um einstök mál.
Sjálfur var Lárus á einni slíkri
í Reykjavík í vetur og fékk
birta mynd af sér við hliðina á
borgarstjóranum í Mbl. og fór
vel á því.
SJÚKRAHÚSMÁL
„Skrekkur“ Lárusar, eða þeirra
pilta við fslending-ísafold kem-
ur líka fram í óráðshjali þeirra
í blaði þeirra um frumvarp urn
sjúkrahúsmál, sem Framsóknar
menn fluttu á Alþingi um að
efla Fjórðungssjúkrahúsið á
Akureyri, með auknu ríkisfram
lagi. Segir blaðið, að með þessu
hafi Framsóknarmenn gert
sjúkrahúsmálið að „pólitísku
bitbeini“. Enginn efast um að
Lárus kunni að „bíta bein“, en
vandlifað verður fyrir hann á
Alþingi, og þó einkum fyrir
kjósendur hans, ef hann þá tel-
ur sér óhcimilt að leggja fyrir
þingið tillögur um áhugamál
sín.
GÓÐ ÁHRIF
Þótt frumvarp Framsóknar-
manna verði e. t. v. ekki að lög-
um að þessu sinni, virðist það
nú þegar hafa haft góð áhrif á
ráðherrana. Sjúkrahússtjórnin
mun fyrir nokkrum dögum,
liafa fengið hjá þeim loforð um
töluyerða fyrirgreiðslu — eftir
kosningar — og ber að fagna
því, að hún þurfti ekki a$ þessu
sinni að ganga bónleið til búð-
ar. En Framsóknarmenn munu
fylgja þessu máli eftir þar til
lausn er fengin, og ólíklegt er,
að vanliugsuð skrif í bæjarblaði
spilli góðri samstöðu manna og
kvenna hér á Akureyri í góðu
máli.
KÓNGUR VILL SIGLA
í gömlu spakmæli segir: Kóng-
ur vill sigla, en byr hlýtur að
ráða. Fyrir tveiin árum ákvað
Laxárvirkjunarstjórn að f.vlgja
ráðum verkfræðinga og ráð-
lierra um Suðurárveitu og 57
metra stífluna í Laxárdal, og
vanmat þá andstöðú, sem í ljós
kom hjá eigendum vatna og
lands. - Bæjarblöðin flést höfðu
uppi léttúðarhjal um þetta mál.
Þau áttuðu sig' ekki á því, að
málið var örðugra viðfangs en
valdaníenn höfðu búizt við.
Dagur hafði aðstöðu til að vita
meira um þetta mál og gerði
sér grein fyrir því, að Ieita yrði
samkomulags og bénti á sátta-
leið, sem reyna bæri. Þetta vita
þeir, sem blöðin lesa, og verður
enginn meiri maður af því, að
neita því, sem sannanlega var
um þetta mál rætt og ritað á
sínum tíma. Margir vita það
líka, að ef hlutaðeigendur í
valdastöðum hefðu verið fáan-
legir til að líta með vinsemd á
ábendingar Dags í fyrra, um
lausn deilunnar, væri nú friður
yfir þessu máli. Fleipur fslend-
ings um Laxá fyrr og síðar
kann að reynast dýrt fyrir ríkis
kassann og skattborgarana. Og
vera má að Laxármálið leysist
ekki fyrr en deiluaðilar hætta
að ofmeta aðstöðu sína.
Leiklisi á Svelbarðsströnd
UMF. ÆSKAN á Svalbarðs-
strönd hefur að undanförnu æft
gamanleikinn „Skammvin
sæla“ og var hann frumsýndur
sl. laugardagskvöld. Síðan hafa
farið fram tvær sýningar. Að-
sókn hefur verið góð og undir-
tektir prýðilegar. Leikstjóri er
Júlíus Oddsson frá Akureyri.
Næstu sýningar verða í Frey-
vangi í kvöld (miðvikudag) kl.
9 e. h. og í Laugaborg fimmtu-
dagskvöld kl. 9 e. h.
Á mynd, sem ekki komst sök-
um þrengsla, eru þessi talin frá
v.: Ásgeir Stefánsson, Jóhanna
Kristjánsdóttir, Guðrún Helga-
dóttir, Haukur Laxdal, Bjarney
Bjarnadóttir, Haukur Halldórs-
son, Elsæ Stefánsdóttir, Stein-
unn Sigurðardóttir og Sævald-
ur Valdimarsson. □
Fundirnir í Úlalsfirði og á
Húsavík tókusi mjöo vel
FRÉTTIR hafa borizt blaðinu
af fundum þeim í Olafsfirði og
á Húsavík, sem Framsóknar-
flokkurinn efndi til og áður
voru auglýstir. En á þeim fund
um báðum var Helgi Bergs rit-
ari Framsóknarflokksins aðal
ræðumaður, og ræddi hann um
atvinnumál og landhelgismál í
yfirgripsmiklum framsög'u-
erindum.
Fundurinn í Ólafsfirði var 26.
marz. Fundarstjóri var *Stefán
Ólafsson múrararmeistari. Um
40 manns sóttu fundinn. í fram-
söguræðu sinni lýsti Helgi
Bergs stefnu flokksins, eins og
hún birtist í flutningi þing-
mála, og ennfrecnur gerði hann
ítarlega grein fyrir landhelgis-
málinu, sögu þess og núver-
andi stöðu.
Til máls tóku, að lokinni
frumræðu: Jónas Jónsson og
Ingi Tryggvason.
Á fundinum á Húsavík, sem
70 manns sóttu og haldinn var
á laugardaginn, 27. marz, stjórn
aði Guðmundur Bjarnason bæj-
arfulltrúi fundi. Að ræðu Helga
Bergs lokinni tóku þessir til
máls: Jónas Jónsson, Ingi
Tryggvason, Sigfús Jónsson á
Einarsstöðum, Finnur Kristjáns
son kaupfélagsstjóri, Haraldur
Gíslason mjólkurbússtjóri, Jón
Árni Sigfússon, Vogum og
Krktján Ásgeirsson formaður
sjómannafélags staðarirus. □