Dagur - 08.05.1971, Blaðsíða 2
2
hölvaldinn
Baráítan vi6
SKÆÐUSTU ■ sjúkdómar, sem
þjá ísl. þjóðina í dag eru hjarta
sjúkdómar, og afleiðingar
þeirra, æðakölkun, kransæða-
stífla o. fl. Sjúkdómar þessir
leggja nú flesta íslendinga að
velli í dag. Ennþá hafa íslend-
ingar ekki getað snúið þessari
óheillaþróun við, en þær þjóðir,
sem fyrst hófu baráttuna gegn
þessum voða, eru nú að merkja
árangurinn.
í Bandaríkjum N.-Ameríku
fer dauðsföllum af sjúkdómi
þessum fækkandi og sam-
kvæmt síðustu fregnum frá
Noregi er dánartalan þar einnig
að fara lækkandi. Hér á íslandi
byrjaði baráttan nokkru seinna,
en forgöngumenn baráttunnar
trúa því að það sem hægt er að
gera í þessum sökum í U.S.A.
og Noregi, það muni einnig geta
gerzt á íslandi, og þess vegna
er barátta hér á landi nú harðn
andi móti vágesti þessum.
Ekki munu allir sérfræðingar
sammála um að neitt eitt atriði
í lífi manna geti valdið sjúk-
dómi þessum, flestir munu fall-
ast á að orsakirnar séu fleiri en
ein og fleiri en tvær — séu þær
allar samverkandi, misjafnlega
þó.
Það er einkennandi að vel-
ferðarríkin svonefndu, verða
mest fyrir barðinu á sjúkdómi
þessum. Ég hefi lesið um og
heyrt lærða sérfræðinga nefna
helzt eftirtaldar orsakir: Ofát,
offita, rangt blönduð fæða, kyrr
setur, „stress“, of miklar reyk-
ingar, einkanlega þá sígarettu-
reykingar, og margt. fleira, sem
ekki verður talið hér.
Það er álit þess, er þetta ritar,
að ofát, rangt blönduð fæða og
kyrrsetur, ásamt óhóflegum
sígarettureykingum séu allt
það versta, sem getur valdið
mestu um þennan sjúkdóm.
Sjálfsagt hjálpar margt fleira
til. Það er í raun og veru áber-
andi að í fátækt stríðsáranna,
skuli sjúkdómur þessi varla
bæra á sér, eins og fram kom í
Alfræðirit
ÞRIÐJA útgáfa af landkynn-
ingarbókinni ICELAND IN A
NUTSHELL er nýkomið á
markað. Útgefendur eru Ferða-
handbækur s.f. Allt efni bókar-
innar hefur verið endurskoðað
og breytt eftir því sem þörf hef-
ur krafið og reynslan leitt í
ljós að væri nauðsynlegt, auk
þess hefur ýmsu nýju verið
bætt við og er bókin því orðin
Skákmenn á
Akioreyri cg í
nærsveifum
BRAGI Kristjánsson skákmeist
ari frá Reykjavík teflir klukku-
fjöltefli við 10 af sterkustu skák
mönnum Akureyrar að Hótel
Varðborg kl. 2 e. h. á laugardag.
Á sunnudag teflir Bragi Krist-
jánsson fjöltefli í Landsbanka-
salnum kl. 1.30 e. h. Öllum er
heimil þátttaka í fjölteflinu.
Skákfélag Akureyrar.
versia
erindi prófessors Sigurðar Sam-
úelssonar , í útvarpinu nýlega,
en með bátnandi hag þjóðanna
færist þessi alvarlegi vágestur
svo í aukana að hann líkist nú
helzt farsótt. Nú fara fram í
flestum ef ekki allílestum menn
ingarlöndum heims, rannsóknir
á því hvað valdi þessum öra
vexti. - sjúkdóms þessa, hvaða
ráð séu nærtækust að stöðva
útbreiðslu hans og einnig farið
sumsstaðar áð byggja endur-
næfingarstöðvar fyrir þá, sem
hafa d’engið sjúkdóminn, reyna
áð-' laákna.! þá" svo að þeir geti
orðið 'þjóðinni nýtir borgarar
áfram,_ þrátt fyrir áfallið, er
Sjúkdórmrrinn hefir valdið.
Á íslandi starfar stofnun, sem
í 'daglhgii .tali er nefnd Hjarta-
vernd og vinnur hún í þeim
anda, sem aðrar slíkar stofnanir
gera í öðrum mennigarlöndum.
Leitað.er eftir byrjunareinkenn
um sjúkdóms þessa og annarra
fylgikvilla er seinna gætu haft
áhrif til hins lakara, en af þeim
eru emna algengastir: of hár
blóðþrýstingur, byrjandi sykur
sýki og ef til vill aðrir leyndir
sjúkdómar. Eru heimilislæknar
viðkomandi sjúklinga látnir fá
greinargóða lýsingu á sjúkdóm
um, ef fyrirfinnast, er þá jafnan
miklu auðveldara að koma við
lækningu eða halda þeim í
skefjum, ef um þá er vitað og
réttum læknisráðum hlýtt. En
geta margt illt af sér gert ef
látnir eru í friði.
Hjartavernd vinnur sam-
kvæmt vísindalegum reglum í
samráði við Alþjóðaheilbrigðis-
stofnunina. Teknir eru vissir
aldurshópar, þ. e. a. s., þeir hóp
ar, sem eru í mestri hættunni
og þeir skoðaðir fyrst. Hefir
þannig verið aðfarið á Stór-
Reykjavíkursvæðinu. Auk þess
hefir verið skoðað fólk á öllum
Reykjanesskaganum, í Gull-
bringu- og Kjósarsýslu, Akra-
nesi, Mýra- og Borgarfjarðar-
sýslum. Verið er nú að skoða
fólk á Akureyri og tekinn um
um ísland
nokkru stærri en áður, eða
rúmar 240 blaðsíður.
Efni bókarinnar er í stórum
dráttum þannig, að gerð er
grein fyrir sögu þjóðarinnar,
helztu möguleikum til þess að
komast til landsins, hvenær
helzt eigi að koma, hvernig
klæðnað eigi að taka með sér,
hvaða ferðaskrifstofur séu starf
andi, hvaða skilyrði þurfi að
uppfylla til þess að komast inn
í landið, lísti er yfir erlend
sendirþð, hérlendis og íslenzlc
sendirað dg konsúlöt erlendis.
íslenzkri tun^u eru gerð nokk-
ur skil, einnig fánanum, skjald-
armerkinu, þjóðsögnum og þjóð
görðúriuina..ísíenzkur matur fær
sinn kafla og einnig helztu
atriði 'varðandi tóbak og áfengi.
Sagt er frá helztu frídögum á
ári hverju, greint frá listgrein-
um, ;tjtúgrbrögðum og reglum
varðandi1 rhannanöfn, þá koma
allskonar hagkvæmar upplýs-
ingar um rafmagn, ljósmyndun,
þjónustugjöld, frímerkjasöfnun,
útgáfu landkynningarrita og ís-
landskorta, listi er yfir hótel og
veitingahús, sagt frá útvarpi,
sjónvarpi og póstþjónustunni.
Stór kafli er varðandi allt er
h'tur að innanlandsferðum, og
listi yfir björgunarskýli. íþrótt-
um er gerð skil, einnig veiði í
ám og vötnum, sagt er frá öll-
um íslenzkum fuglum, hestum,
hestamennsku og hreindýra-
veiðum, minjasöfnum, minnis-
vörðum og gömlum húsum. □
leið hluti af S.-Þingeyjarsýslu
og einnig Eyjafjörður. Næsta
haust er ekki ólíklegt að teknar
verði sýslurnar Austanfjalls,
þar með þá Vestmannaeyjar.
Nú er einnig farið að endur-
skoða vissa hópa á Stór-Reykja
víkursvæðinu auk nýrra hópa.
Þess að auki eru skoðaðir sjúkl-
ingar utan kerfisbundna rann-
sóknanna, ýmsir þeir sjúkling-
ar, sem kenna sér hjartasjúk-
dóms, og þá eftir tilvísun á
lækna stöðvarinnar. Kostar sú
skoðun ca. 500 kr., en afgang-
inn borgar viðkomandi sjúkra-
samlag. Hefir margur notið hér
góðs af.
Svo þegar litið er á þann
tíma, sem Hjartavernd hefir
starfað, verður QÍgi annað sagt
en mikið hafi verið gert, en
mestur hlutinn þó ógerður.
Mun ætlunin að fara svona
rannsóknarferð í kringum allt
landið og tekst það væntanlega
á næstu 3—5 árum.
Þegar starfsemin var að hefj-
ast var hugsun forgöngumann-
anna einnig að koma á fót end-
urhæfingarstöð hér ekki langt
frá höfuðstöðvunum, en ennþá
leyfir fjárhagurinn það ekki, og
alls ekki ólíklegt að það opin-
bera hjálpi þar að einhverju
leyti upp á sakirnar.
Alþj óðaheilbrigðisstof nunin
fylgist vel með gerðum okkar
hér heima. Þeir lærðu menn
vita um fólksfæðina á landinu
á tiltölulega afmörkuðum svæð-
um og þess vegna gott að draga
ályktanir af útkomunni að lokn
um fyrstu rannsóknum landið
yfir.
Því er ekki að neita að án
mjög mikils stuðnings, bæði frá
einstaklingum og félögum,
hefði þessi starfsemi tæplega
séð dagsins ljós, en með þeirri
einstæðu hjálp, er frá fyrrnefnd
um aðilum kom og svo með
hinu svonefnda tappagjaldi, er
við fáum af hverri gosflösku,
sem keypt er, hefir starfsemin
komizt þetta sem hún er komin.
En allt er þetta dýrt og alltaf
kemur eitthvað nýtt, sem kallar
á meira fé, ný tæki o. s. frv.
Þess vegna var það að sett var
á fót happdrætti, sem nú er að
byrja 3ja árið.
Undanfarin 2 ár hafa Akur-
eyringar og Eyfirðingar styrkt
þessi happdrætti vel og virðast
skilja fullkomlega hina miklu
nauðsyn á stuðningi við gott
málefni. Þeir hafa skilið að hér
er ekki aðeins stórt menningar-
mál á ferðinni, heldur mannúð-
armál fyrst og fremst og hver
vill segja: Þetta mál kemur mér
ekki við? Ég held að þeir yrðu
ekki margir.
Það er siður nú að heimta
margt af ríkinu, en ábyggilega
hefir stefna þeirra, er hrintu
þessu fyrirtæki — Hjartavernd
— af stað í upphafi, verið rétt,
að leggja fram úr vasa samtak-
anna það sem hægt var, en rík-
ið hjálpaði svo áleiðis eftir
beztu manna yfirsýn. En nú er
happdrættið orðinn fastur tekju
stofn ,og nú er leitáð til lands-
manna um stuðning og efast ég
ekki um að þeir verði vel við
bón þeirra, er nú leita á náðir
þeirra fyrir starfsemi Hjarta-
verndar.
Með sérstakri auglýsingu á
öðrum stað í blaðinu, er greint
frá hvar og hvernig hægt verð-
ur að kaupa happdrættismið-
ana. Munið að það sem hver og
einn leggur í Guðs-kistuna í
dag, getur hann ef til vill þurft
að nota sjálfur síðar, því engin
veit sína ævina fyrr en öll er.
Óskar Jónsson,
Hafnarfirði.
Akureyringar sigursælir s bridge
UM síðustu helgi fóru tvær
akureyrskar bridgesveitir til
keppni á íslandsmót í Reykja-
vík. Keppt var í sex riðlum og
varð sveit Guðmundar Guð-
laugssonar fyrst í sínum riðli,
en sveit Páls Pálssonar í öðru
sæti í sínum eftir mjög jafna og
skemmtilega keppni.
Sveit Guðmundar mun svo
spila í sex liða úrslitum síðar í
þessum mánuði.
SMÁTT & STÓRT
(Framhald af blaðsíðu 8).
VIÐTAL VIÐ RÁÐHERRA
í íslendingi-lsafold 30. apríl sl.
var langt viðtal við Magnús
Jónsson fjármálaráðherra og
komið víða við. Magnús vonar
að greiðslugeta atvinnuveganna
vaxi á „verðstöðvunartímabil-
inu“ sem rennur út 1. septem-
ber, en því miður liefur nú
komið í Ijós, að útflutningsverð-
mæti frá vctrarvertíð verða 800
milljón krónum minni en í
fyrra, að sögn Ríkisútvarpsins.
Enn koma mönnum í hug um-
mæli Ólafs Björnssonar pró-
fessors og alþingismanns um
„hrollvekjuna11, sem í vændum
sc 1. sept. Yfirleitt er þetta mál-
efnalegt viðtal og áreitnislítið,
sem vænta mátti, nema helzt
um landhelgismálið. Er rétti-
lega fram tekið, ,.að pappírs-
áætlanir eru fánýtar, ef fjár-
magn vantar“ og bæta mætti
því við, gengistryggð lán eru
stundum liefndargjöf. Áherzla
er á það lögð, að með atvinnu-
málaþætti Norðurlandsáætlun-
ar hafi ekki fallið neitt „manna“
af himnum ofan, eins og hann
orðar það, og er það víst hverju
orði sannara.
VON UM TVO
Aðspurður um kosningahorfur
segir Magnús, „að línur séu
óskýrar“. Það kemur þó glöggt
frarn, að hann gerir ráð fyrir að
Sjálfstæðismenn fái tvo menn
kjörna og að frambjóðandinn í
þriðja sæti verði landskjörinn á
uppbót, eins og Bjartmar var,
því hann kallar fjórða sætið
„fyrsta varamannssætið“ þar
sem sé „hinn margreyndi stríðs
maður Sjálfstæðisflokksins á
Akureyri, Jón G. Sólnes“. Skýr
ingu vantar á því, hvers vegna
þessi „margreyndi stríðsmaður“
er ekki í þriðja sæti. Magnús
minnist þess, að þeir Jónas G.
Rafnar, Bjartmar á Sandi og
Gísli Jónsson séu horfnir af list-
anum að eigin ósk, segir að auð
vitað sé aldrei hægt að fullyrða,
hvaða umróti svo miklar breyt-
ingar valdi. Virðist þó vera á
svipaðri skoðun og Stefán á
Hlöðum um kosningahorfurnar.
S.TÚKRAHÚSMÁIJÐ
Ritstjóri spyr Magnús í viðtal-
inu: „Hvemig leysti ríkisstjórn-
in mál Fjórðungssjúkrahúss-
ins?“ Þessari spurningu svarar
Magnús ekki, en bendir á, að
samkvæmt gerðri áætlun kosti
nýbygging fyrir 240 rúm, 370
milljónir. Hafi heilbrigðismála-
ráðuneytið fallizt á, að hér yrði
fyrsta flokks sjúkrahús. En það
er eins og M. J. segir, að hér
þarf fleira til að koma. Ingvar
Gislason og fleiri Framsóknar-
menn fluttu í vetur frumvarp
um lausn þcssa máls, sem að
minnsta kosti einn úr stjórnar-
liðinu (B. S.) lýsti yfir fylgi við.
Af einhverjum ókenndum
ástæðum, hófu Sjálfstæðismenn
liér nyrðra áróður gegn þessari
lausn. En eftir er að sjá, hvort
eitthvað flcira liggur fyrir nú,
cn „hugmyndir“ einar um fjár-
öflunina. Það kemur í ljós á
sínum tíma, livort góð lausn er
fundin og trygg og ber að fagna
því ef svo er.
VOPNAIILÉ?
Nú í vikunni gaf ríkisstjórnin
út boðskap þess efnis, að skip-
uð hefði vcrið 7 manna nefnd
til að endurskoða lög no. 55 frá
1962 um kjarasamninga opin-
berra starfsmanna. í nefndinni
eru þrír menn frá B.S.R.B.,
tveir frá Bandalagi háskóla-
manna og tveir ráðuneytisstjór-
ar frá ríkisstjórninni. Kjara-
samningarnir, sem gerðir voru
á öndverðum sl. vetri, hafa eins
og kunnugt er, vakið miklar um
ræður á opinberum vettvangi
og verður það ekki rakið hér,
sem um þá hcfur verið sagt.
Mjög megn óánægja hefur kom-
ið fram hjá háskólamcnntuðum
mönnum sérstaklega og liafa
þeir sagt sig úr lögum við
B.S.R.B., stofnað sérsamtök sín
á miíii og gert kröfur um sér-
aðild að kjarasamningum. Nýja
nefndaskipunin á þcssum tíma,
virðist vera til þess ætluð, að
draga úr umtali og átökum um
þessi mál fyrir kosningar.
'S5
|«»1
SAAB 1966 til sölu,
Uppl. hjá ívari Sig-
mundssyni, síma 2-17-20.
Til sölu RENAULT 4L
(A-1442).
Jóhannes Ólafsson,
Gránufélagsgötu 41A.
Til sölu MOSKVITS,
árg. ’66. Lítið ekinn.
Uppl. í síma 1-15-37.
A J A X
gluggalögur
A J A X
ræstiduf t