Dagur - 09.06.1971, Page 2
2
Irá fjármálaráðherra m vegamálin
Alhugasemd
í GREINARSTÚF í blaði yðar,
íherra ritstjóri, sem kom út sl.
laugardag, er um það spurt,
ihvort það sé nánast af grútar-
skap núverandi stjórnarflokka,
að Vaðlaheiðarvegur o. fl. vegir
'hér í kjördæminu hafi verið illa
íærir að undanförnu.
Fjárveitingar til vegamála
ihafa stóraukizt á undanförnum
arum, þótt miðað sé við fa^t
verðlag, og hefir yfirleitt verið
samkomulag milli allra þing-
::lokka um fjáröflun til þessara
íramkvæmda. Þetta kjördæmi
ihefir fullkomlega fengið sína
ihlutdeild í þessu framkvæmda-
ié og það eru víðar á okkar
ilandi slæmir vegir en í Norður-
landskjördæmi eystra. Á þessu
svæði sem mörgum öðrum, óska
:menn gjarnan örari umbóta, en
það verður ekki allt gert í einu,
og mér hefir fundizt stjórnar-
andstæðingar telja skatfa alveg
nægilega háa.
Það er ekkert nýtt fyrir-
'hrigði, sem sumir virðast telja,
að holklaki geri vegi á stórum
svæðum illfæra vissan tíma á
■yorin. Tíðarfar veldur bví nú,
að þessi ófærð kemur fyrr en
oft áður, en vegirnir lagast þá
jlíka einnig fyrr. Eigi að gera
alla islenzka vegi svo úr garði
á skömmum tíma, að slíkar tor-
færur myndist ekki, þá myndi
það kosta fjárhæðir, sem ég
ihygg fáa skattgreiðendur vera
■reiðubúna að horfast í augu við,
jbví að holklaki í vegum er ekk-
ert einstakt fyrirbrigði í þessu
ikjördæmi.
Ólafsfirði 7. júní. Barnaskóla
Ólafsfjarðar var slitið 28. maí
sl., að viðstöddu miklu fjöl-
menni. Skólastjórinn, Björn
Stefánsson, sleit skólanum og
gerði grein fyrir störfum hans
á sl. starfsári. í vetur voru 157
nemendur í skólanum í 7 bekkj-
ardeildum. Fastir kennarar við
tkólann voru 5 auk fjögurra
stundakennara. Barnaprófi
luku 19. börn. Hæstu einkunn
hlaut Bryndís Gunnlaugsdóttir,
3.86. Hæstu einkunn yfir skól-
ann fékk Sólrún Pálsdóttir í 5.
bekk, 8.92. Skólastjórinn gat
’bess í ræðu sinni, að skólastarf-
:ið væri alltaf að verða umfangs
meira og fjölbreyttara. Á liðn-
um vetri var m. a. tekin úpp
kennsla í eðlisfræði í 5. bekk og
annfremur dönskukennsla í
Ófeigsstöðum 8. júní. Ekki er
iaust við að hér sé að verða of
þurrt á jörðu í öllu góða veðr-
inu. Það kerftur ekki dropi úr
lofti. Allt grær, sem gróið getur,
en gamla kalið segir til sin enn-
pá. Gömlu túnin gróa eitthvað
upp, en nýræktir, sem gerðar
/oru í hálfdeigu landi, gróa
seinna. Eins er með nýræktir
í viðarmóum, þær gróa illa.
Sauðburður gekk yfirleitt
ágætlega, kýr eru víða komnar
út. Girðingar eru illa á sig
kömnar ennþá vegna snjó-
þyngsla. Yfirleitt var fé sleppt
um síðustu helgi, en það er þó
allvíða á túnum ennþá.
Verið er að hressa upp á veg-
inn hérna. Hann er orðinn
sæmilega fær, en ósléttur. Það
er verið að bera eitthvað ofan
1 hann.
Um pólitíkina er það að segja,
að fermingarpólitíkin hefur ver
ið mikil núna, en ekki veit ég
hvort prestarnir mega, stöðu
Mér er vel ljóst, að nauðsyn-
legt er verulegt átak til umbóta
á þeim vegum, sem nefndir eru
í umræddri grein. Nýr vegur
yfir Vaðlaheiði er nú á dagskrá
og einnig mikil lagfæring á Dal
víkurvegi. í framsveitum Eyja-
fjarðar hafa vegir verið mun
betri i vor vegna þeirrar skyn-
samlegu ráðstöfunar að nota
nýbyggingafé í fyrra til ofaní-
burðar.
Hvort illfærir vegir í vorleys-
ingum séu að kenna eftirlits-
manna Vegagerðar ríkisins hér
er auðvitað fjarri öllu lagi.
Vitanlega byrfti meira fé til við
halds vega, en vegaáætlun hefir
verið afgreidd með samstöðu
flokka á Alþingi og ekki talið
fært að taka meira fé frá ný-
byggingum. Þótt enn meira fé
væri til viðhalds, þá myndi það
heldur ekki leysa allan vanda,
því að ekki þýðir annað en bíða
með úrbætur meðan vegirnir
halda ekki malarbílunum.
Greinarhöfundur Dags spyr
kurteislega, cn það sama verður
ekki sagt um alla. Sárindi
manna yfir illfærum vegum
hafa af fleirum, jafnvel fram-
bjóðendum, verið notað sem
innlegg í kosningabaráttuna og
þá helzt reynt að vera að mér
sem fjármálaráðherra, sem all-
an vanda á að leysa, án þess þó
að vera með ágengni í garð
fólks með skattkröfum. Má hér
segja, að flest sé hey í harðind-
um og vígstaðan í kosningabar-
áttunni ekki talin sigurstrang-
leg.
sama bekk og stuðst þar við hið
nýja tilraunaverkefni í dönsku.
í 6. bekk hefur danska verið
kennd sjö sl. ár, en var nú bætt
við einum tíma á viku í vetur.
Þá gat skólastjóri þess, að eðlis-
fræðikennsla í 6. bekk myndi
hefjast á komandi hausti.
Nokkur börn hlutu verðlaun
fyrir góðan námsárangur og
prúðmennsku. Verðlaun þessi
voru gefin af Rotaryklúbb
Olafsfjarðar, verzluninni Lín og
kennurum skólans. Kann skól-
inn gefendum beztu þakkir fyr-
ir. Sunnudaginn 2. maí var
handavinna, vinnubækur og
frjáls vinna nemenda til sýnis
í skólanum. Sýning þessi var
ágætlega sótt, enda var þarna
margt fallegra og eigulegra
muna að sjá. B. S.
sinnar vegna, predika annað en
guðsorð. Ég held, að hér í sveit-
inni sé annars nokkuð góð póli-
tík, og kemur það síðar í ljós.
B. B.
ÍÞRÓTTAFÉLAGIÐ ÞÓR mun
sjá um hátíðahöldin í bænum
17. júní, og væntir þess, að bæj-
arbúar taki góðan þátt í þeim
að vanda. Dagskráin fer hér á
eftir í aðalatriðum:
Kl. 8,00 verða fánar dregnir
að húni og 9.30 verður stund
fyrir börnin á Ráðhústorgi. Þar
skemmtir Tóti trúður hinn vin-
sæli. Eftir hádegið kl. 13.30
hefst leikur Lúðrasveitarinnar
á torginu og kl. 14 verður hátíð-
in formlega sett. Síðan flytur
sr. Birgir Snæbjörnsson guðs-
Að lokum aðeins til upplýs-
ingar, ef einhver ekki veit. Fjár
málaráðherra hefir ekki fremur
en hver annar þingmaður áhrif
á skiptingu fjárveitinga til vega
mála. Alþingi skiptir þessu fé
með vegaáætlun og um skipt-
ingu fjár í þetta kjördæmi hefir
orðið full samstaða milli þing-
manna kjördæmisins. Viðhalds-
fé er ekki skipt af Alþingi held-
ur af vegamálastjórn eftir
ákveðnum reglum. Ég hefi per-
sónulega ekkert á móti því, að
meira fé sé varið til vegamála,
ef menn vilja draga úr öðrum
MAGNÚS Jónsson fjármálaráð
herra birtir á öðrum stað í Degi
í dag athugasemd við aðsenda
grein um vegamál, sem kom í
blaðinu fyrir skömmu. Að
gefnu þessu tilefni frá ráðherr-
anum verður ekki hjá því kom-
izt að gera sérstaka athugasemd
við athugasemd hans.
Svo hlálegt sem það er, verð-
ur ekki annað ráðið af orðum
Magnúsar Jónssonar en að
stj órnarandstaðan, þar með tald
ir Framsóknarmenn, hafi ráðið
stefnunni í vegamálum til jafns
við sjálfa ríkisstjórnina, enda
segir hann beinlínis, að „yfir-
leitt hafi verið samkomulag
milli þingflokka um fjáröflun
til þessara framkvæmda.“
Ekki er þetta trúleg saga,
enda fjarri öllu lagi.
Stefnumunur í vegamáluin.
Sannleikurinn er sá, að mjög
djúpstæður ágreiningur hefur
ríkt á undanförnum árum milli
Framsóknarflokksins og stjórn-
arflokkanna um stefnuna í vega
málum. Þessi stefnumunur kem
ur fram í ýmsu. 1 fyrsta lagi er
mikill ágreiningur milli Fram-
sóknarmanna og Sjálfstæðis-
manna um fjáröflunarleiðir fyr-
ir vegasjóð. í öðru lagi er stór-
felldur ágreiningur um fram-
kvæmdastefnuna sjálfa, þ. e.
a. s., hvernig raða skuli fram-
kvæmdum í vegamálum og í
hvers konar framkvæmdir skuli
ráðizt öðrum fremur.
Skal þetta skýrt nokkru nán-
ar.
1. Framsóknarmenn telja, að
verja eigi til vegamála „öllum
tekjum af umferðinni“, eins og
gert var á þeim árum sem Fram
sóknarmenn réðu þessum mál-
um. Þetta gerir ríkisstjórnin
ekki, heldur notar álögur á um-
ferðina að verulegu leyti sem
þjónustu og Fjallkonan flytur
ávarp. Kl. 14.30 verður farið í
skrúðgöngu til íþróttasvæðisins,
þar sem fram fer fánahylling og
lúðrablástur, áður en Hjörtur
Pálsson flytur ræðu dagsins.
Síðan syngur Karlakór Akur-
eyrar, nýstúdent flytur ræðu
og Alli Rúts skemmtir. Þá verð-
ur keppt í frjálsum íþróttum og
knattspyrnu. Liðin eru lið ÍBA
1961 á móti liðinu 1971. Þá fer
fram reiptog og fleira.
Kl. 17.30 verður barna-
skemmtun á Ráðhústorgi undir
stjórn Bergþóru Gústafsdóttur.
fjárveitingum eða hækka
skatta, en engar tillögur hefi ég
enn heyrt í þá átt.
Magnús Jónsson.
I
Athugasemd við „athugasemd“.
Dagur telur sjálfsagt að birta
þessa „athugasemd" Magnúsar
Jónssonar, en leiðir athygli les-
enda að sérstakri grein blaðsins
við ofanskráð orð ráðherrans,
sem birt er hér á síðunni. Þess-
ar greinar hafa beðið birtingar
lengur en ætlað var. □
almennan tekjustofn fyrir ríkis
sjóð.
2. Ágreiningur er um fram-
kvæmdirnar sjálfar. Framsókn-
armenn telja, að stefna ríkis-
stjórnarinnar sé röng að því er
varðar sjálfa framkvæmdaröð
vegagerðar í landinu og því sé
ráðstöfunarfé vegasjóðs illa var
ið og misskipt miðað við alls-
herjarhagsmuni landsmanna og
jafnrétti landshlutanna í vega-
málum. Stefna ríkisstjórnarinn-
ar er í því fólgin að leggja höf-
uðáherzlu á „hraðbrautarfram-
kvæmdir" í nágrenni Reykja-
víkur, en láta vegamál annarra
landshluta sitja á hakanum.
Framsóknarmenn vilja fram-
kvæma vegagerð nánast þver-
öfugt við þessa stefnu. Þeir
leggja aðaláherzlu á sem jafn-
asta uppbyggingu viðunandi
vegakerfis í öllum landshlutum
jafnt, en að hraðbrautarfram-
kvæmdir, sem eru mjög dýrar,
bíði, eða til þeirra verði aflað
sérstaks fjármagns, sem ekki
skerði ráðstöfunarfé vegasjóðs
til almennra vega, þ. e. lands-
brauta og þjóðbrauta.
Það er vanhugsaður útúr-
snúningur hjá ráðherranum,
þegar hann reynir að gefa í
skyn, að Framsóknarmenn og
aðrir, sem ekki hrífast af for-
ystu hans í vegamálum, heimti
fullkomna vegagerð allsstaðar í
einu vetfangi. Framsóknar-
menn gera ekki þá kröfu til
Magnúsar Jónssonar, að hann
láti leggja nýja vegi eða lag-
færa þá gömlu á einu sumri.
En þá kröfu gera Framsóknar-
menn til þeirra, sem ráða vega-
málum, að þeir vinni þannig að
vegaframkvæmdum, að einhver
von sé til þess að sjá megi fyrir
endann á öngþveitinu í vega-
málunum. Það verður aldrei, ef
núverandi hugsunarháttur
Magnúsar Jónssonar ræður.
„Hraðbrautarstefna“ .Sjálfstæð-
isflokksins getur ekki leitt til
annars en vaxandi öngþveitis
og misréttis í vegamálum.
Skoplítið áhrifavald Magnúsar!
Magnús Jónsson reynir af ein
hverjum ástæðum að gera
áhrifavald sitt í vegamálum allt
að því skoplítið, þegar hann læt
ur í það skína, að hann hafi
ekki meiri áhrif í þeim efnum
en „hver annar þingmaður“.
Þessu trúir enginn. Sem fjár-
málaráðherra síðastliðin sex ár
hefur Magnús Jónsson auðvitað
haft afgerandi áhrif á stefnuna
í vegamálum. Ríkisstjórnin ber
ábyrgð á vegamálunum og fjár-
málaráðherra veldur stórum
hlut þeirrar ábyrgðar. Minna
má á það, að það var fyrsta
F ermingarbarnamótið
verður á laugardaginn, cg
verða þau börn, sem fermd
voru í Akureyrarkirkju og Lög
mannshlíðarkirkju í vor að til-
kynna þátttöku sína strax til
sóknarprestanna.
Farið verður frá Akureyrar-
kirkju kl. 9 f. h. og í Freyju-
lund. Þar fer mótið fram og á
Möðruvöllum. Börnin verða að
nesta sig yfir daginn en fá
mjólk á staðnum. Ferðakostn-
aður fram og aftur er kr. 175
og mótsgjald kr. 50. Takið með
Nýja-Testamentið og verið búin
til leikja og íþrótta á staðnum.
verk Magnúsar Jónssonar sem
fjármálaráðherra að svipta
vegasjóð lögbundnu og um-
sömdu framlagi úr ríkissjóði,
sem árlega skýldi lagt fram.
Nam þessi upphæð 47 millj. á
ári.
Er holklakinn náttúru-
fyrirbæri?
Magnús Jónsson segir, að
ekki sé nýtt, að holklaki geri
vegi illfæra á vorin. Þetta er
rétt. Aurbleytan á vegunum er
alkunn raun íslenzkra vegfar-
enda og kemur á margan hátt
einna verst yið Norðlendinga,
sem búa öðrum fremur við
gamla malarlausa og úr sér
gengna vegi. Þeim mun seinna
sækist að bæta úr þessu ástandi
sem stefna Sjálfstæðisflokksins
í vegamálum varir lengur, því
að ekki fer það fé til uppbygg-
ingar ófærra vega á Norður-
landi, sem varið er til hrað-
brautagerðar út frá Reykjavík.
Magnús Jónsson og aðrir
framámenn ríkisstjórnarinnar
geta auðvitað, ef þeir vilja, eytt
kröftum sínum í það að sann-
færa Norðlendinga um, að hol-
ldakinn sé eðlilegt náttúrufyrir
bæri. En Framsóknarmenn líta
ekki þannig á. Holklakinn er
smánarblettur á íslenzkri vega-
gerð. En fyrst og fremst er
liann spegilmynd af ríkjandi
afturhaldsstefnu í vegamálum.
Fyrir þá stefnu verður ríkis-
stjórnin ein kölluð til ábyrgðar.
Spírað ÚTSÆÐI til sölu.
Uppl. í síma 1-27-25.
Notuð og nýyfirfarin
, ,Pf af f “-S AU M A VÉL,
í tösku, til söfu í Þing-
vallastræti 18. Verð kr.
7.500.00.
Uppi. í síma 1-13-70.
Til sölu 4ra tonna
TRILLA með Simrad
dýptarmæli. — Bátnum
getur fylgt þorskanót og
loðnunót.
Uppl. í síma 6-12-21 eða
6-13-08.
Berneskólö Ólafslj. slilið
Allt grær, sem gróið getur
iðarhöldin hér 17. júni
(Fréttatilkynning)
Ríkisstjómin verður kölluð til
ábyrgðar vegna vegaöugþveitis
SVAE TIL MAGNÓSAR JÓNSSONAR RÁÐH