Dagur - 09.06.1971, Page 4
4
j
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Símar 1-11-66 og 1-11-67
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓN SAMÚELSSON
Prentverk Odds Björnssonar h.f.
SKAPANDI
FÉLAGSHYGGJA
MENN gera sér það nú ljóst, að hér
í Norðurlandskjördæmi eystra getur
það ráðizt, hvort núverandi stjórn
heldur velli í kosningunum eða fell-
ur. Stjórnin verður að biðjast lausn-
ar, ef fjórir Framsóknarmenn ná
kjöri í jæssu kjördæmi í stað þriggja
áður, miðað við óbreytt hlutfall í
öðrum kjördæmum. Að j>essu geta
allir íhaldsándstæðingar unnið og
sigrað ef }>eir vilja og setji ekki allan
metnað sinn og þrótt í vonlausan
skæruhernað inn á við.
En stjómarskipti eru nauðsyn af
}>ví, að núverandi stjórn hefur beðið
skipbrot í þeirri meginstefnu, sem
hún mótaði og lýsti fyrir þjóðinni
við upphaf valdatöku sinnar og síðar.
í staðinn hefur stjórnarstefnan orðið
óskapnaður, eða alls engin stefna, og
leitt til ófarnaðar.
ísland er vanj>róað land í vegamál-
um, enda lagt kapp á byggingu hrað-
brauta, sem eru 4—5% vegakerfisins,
en 95% veganna látin gi'otna niður
og verða vegleysur svo vikum og mán-
uðum skiptir.
ísland er líka vanþróað í peninga-
málum og fjáimálum. Við eigum met
í verkföllum og verðbólgu, höfum
þurft að sjá á bak þúsunda ungra og
vaskra manna, er horfið hafa af landi
brott í atvinnuleit vegna atvinnu-
skorts hér heima. Vísitala vöru og
}>jónustu hækkaði um 123% á sjötta
áratugnum og }>ótti flestum nóg. En
á sjöunda áratugnum hækkaði þessi
vísitala um 247%, svo gjörsamlega
úrræðalaus er sú ríkisstjórn, sem við
stýrið situr. Skólamál og heilbrigðis-
mál og tryggingamál eru óviðunandi
og j>jóðfélagsþegnum freklega mis-
munað, og landbúnaðurinn er van-
virtur á hinn herfilegasta hátt. Stefn-
an í landsbyggðarmálum er á j>ann
veg, að dreifbýlinu er á ýmsum stöð-
um að blæða út. Gæði landsins eru
ekki nýtt, en kapp lagt á að flytja
inn erlent fjármagn til athafna fyrir
útlend fyrirtæki, sem liér kaupa ó-
dýra orku og ódýrt vinnuafl.
Gagnstætt öllu }>essu er hin skap-
andi félagshyggja Framsóknarflokks-
ins, }>ar sem framfarir á landinu öllu
er hið sígilda kjörorð þess stjórnmála-
flokks, sem stærstur er stjómarand-
stöðuflokka og á fylgi að fagna í sveit-
um og bæjum aim land allt hin síðari
ár. I’essi félgsliyggja og trúin á landið
og fólkið ber í sér þá bjartsýni, sem
liverri þjóð er meiri nauðsyn en flest
annað. □
Þetta land á ærinn
JÓNAS Jónsson ráðunautur Bún-
aðarfélags Islands, skipar baráttu-
sætið á lista Framsóknarmanna í
Norðurlandskjördænti eystra. —
Hann er vel menntaður, ungur
maður og vaskur, háttvís og þó
ákveðinn í skoðunum. Dagur bað
hann um viðtal og fer það hér á
eftir.
— Þú ert ráðunautur og þar mcð
starfsmaður ba'nda. Hvað finnst
þér um landbúnaðarmálin?
— Ég tel, að landbúnaðarstefna
sú, sem fylgt hefur verið og nefna
mætti stefnu Ingólfs og Gylfa, hafi
verið í höfuðatriðum röng, enda
mjög frábrugðin þeirri stefnu, sem
Framsóknarflokkurinn lylgdi,
þegar hann réð þessum málum. —
Þá var það liöfuð stefnumálið, að
framleiðslan yrði sem ódýrust —
það kom bæði bændum og neyt-
endum til góða. Framfarir voru
þá lilutfallslega örari í landbún-
aðinum, enda var fjármagnið ó-
dýrara. Lánin vortt á lægri vöxt-
um og til lengri tíma, og bændur
voru ekki skattlagðir til þess að
fjármagna lánasjóðiiia. Það er
grundvallaratriði, að veita þarf
fjármagninu til baka til fram-S,
leiðslugreina, eins og landbún
aðar, en ekki skattleggja atvinnu-’
vegina .
Stefna Ingólfs og Gylfa er hrein
verðhækkunarstefna. Vextir voru
hækkaðir, lánstími styttur og
rekstrar- og afurðalán stórlega
dregin saman, hlutfallslega. Þar
við bætist stofnlánadeildarskattur-
urinn á bændur. Það var lengi
viðkvæði Ingólfs, að ekkert gerði
til þó að framleiðslukostnaður
hækkaði, bændur fengju það aftur
í afurðaverðinu. Rekstrarvörur
eins og áburður liafa svo stórlega
liækkað. Við þetta bætist svo sölu-
skattur á landbúnaðarvörur, sem
ætti að afnema. Allt þetta hefur
valdið mjög miklum verðhækk-
unum á landbúnaðanörum, og
spillt bæði innlendum og erlend-
um markaði þeirra. Þetta heíur
orðið til að rýra hag bænda, sér-
staklega þcirra, sem hafa staðið í
framkvæmdum og þeirra, sem búa
á harðbýlii svæðum. Allt er þetta
jafnt á ábyrgð stjórnarflokkanna,
en Alþýðuflokkurinn sýnir þarna
algert ábyrgðarleysi. Þessi ranga
stefna bitnar jafnt á bændum og
tieytendum.
— Hver eru aðalmál þcssarar kosn-
ingabaráttu?
— Landhelgismálið og lands-
byggðastefnan — alveg tvímæla-
laust. Ég hef sagt, að þessi mál
væru raunar greinar á sama meiði.
Inn í landsbyggðastefnuna fellur
„landverndin", þ. e. a. s. öll um-
hverfis- og náttúruvernd.
Þau samcinast því í því, að við
viljum bvggja landið okkar allt,
ráða cinir yfir því og vemda öll
þess gæði til lands og sjávar, —
það er að fara þannig mcð þau,
að landið batni í liöndunum á
okkur og við skilum því bctra og
fegurra lil eftirkomendanna.
Ég ætla ekki að rekja landhelgis-
málið hér nánar, en mig langar
til að víkja aðeins nánar að því,
hvað ég tel grundvallaratriði
landsbyggðastefnu Framsóknar-
manna.
Alveg sérstaklega vegna þess,
að hér í þessu kjördæmi eru allir
þeir möguleikar fyrir hendi til
}>ess, að það hafi forystu fyrir öðr-
um landshlutum í því að koma
henni í framkvæmd.
— Hver er kjarni landsbyggðastcfn-
unar?
— Flann er sá ,að það er hag-
kvæmast þegar á allt er litið, að
byggðin sé dreifð um landið allt,
þannig, að fólkið, sem nýtir frum-
gæði landsins, hafi búsetu sem
næst þcim. Þannig nýtast lands-
gæðin mest — þannig verður t. d.
SEGIR JÓNAS JONSSON RÁÐU-
NAUTUR í VIÐTALI VIÐ DAG
að nýta verðmæti moldarinnar til
ræktunar — fiskimiðanna til margs
konar veiða — verðmæti landrým-
isins og náttúrufegurðarinnar til
ferðaþjónustu — ánna og vatn-
anna til liskræktar og hinna
margháttuðu hlunninda og hvers
konar aðrar landsnytjar.
En þessu verður að fylgja meira,
það er of einhæft að í héruðum
°g byggðarlögum landið um kring,
Jónas Jónsson.
séu aðeins unnin frumframleiðSlu-
störf — þar verður fullvinnsla af-
urðanna einnig að fara fram í
sem allra mestum mæli — en auð-
vitað í hagkvæmum einingum. —
Auk þess verður að dreifa þjón-
ustustörfunum sem mest um
landið — clreifa þjónustuiðnaði —
stjórnsýslu- og menntastofnunum.
Aukin tækni krefst oft stærri
eininga, en ekki alltaf. Það er eitt
af nauðsynlegum rannsóknarefn-
um, hvernig hægt er að dreifa
iðnaðar- og þjónustustörfum á
hagkvæman hátt.
Sumt verður að vera í stórum
einingum og sumt af því á stórum
stöðum — annað gctur verið á
smærri stöðum. Sumt getur verið
í smáum einingum og er óháð
stærð nálægs markaðar.
Við uppbyggingu iðnaðar um
landið, þarf skipulag og hand-
leiðslu. Það þarf góða yíirsýn yfir
gæði landsins — það þarf að vita,
hvar þau eru og liver þau eru. —
Síðan þarf handleiðslu, ekki ríkis-
forsjá, heldur góða ráðgjafarstofn-
un, sem getur leiðbeint um það,
hvaða iðngreinar og iðnfyrirtæki
er ráðlegt að leggja í á hverjum
stað.
Síðan þarf markaðskannanir og
markaðsleiðbeiningar og sam-
vinnu um markaðsfærzlu.
— Hvað um rekstrarform?
— Við teljum, að reksturinn
eigi jöfnum höndum að vera
samvinnurekstur, sem hefur gefizt
mjög vel í iðnaði t.d. hér á Akur-
eyri, og einstaklingsrekstur, eða
félagsrekstur, einstaklinga, sveitar-
félaga og samvinnufélaga. I jressu
sambandi má rninna á, að j>að er
fullkomlega tímabært að taka upp
aðild starfsfólksins að stjórn
stærri fyrirtækja og hlutdeild þess
í arði eða greiðslu eftir afkomu.
Þá vil ég sérstaklega undirstrika
]>að, að frá sjónarmiði byggða-
stefnu, gefur samvinnureksturinn
sérstakt öryggi. Fjármunir og at-
vinnutæki samvinnufélaganna
verða ekki flutt burt, eins og oft
vill verða, ef um hreinan einka-
rekstur er að ræða.
— Hvað uni málefni þessa kjördæin-
is?
— Þar cr af mörgu að taka. Eins
og ég sagði áðan, eru hér allir
möguleikar fyrir hið blómlegasta
og fjölbreyttasta atvinnulíf. Fram-
faramálin yrði næstum of langt
upp að telja. Ég held, að vegirnir
hljóti að koma fyrst. Þeir hafa
hvarvetna þar sem við höfum ver-
ið á fundum vcrið nefndir fyrst
af heimamönnum. Hér ]>arf mikil
átök í vegamálum. Þó eru ]>etla
engar óyfirstíganlegar fram-
kvæmdir — það mætti mikið gera
fyrir það fé, sem fer í 1 km af
hraðbrautunum lyrir sunnan, þar
sem þær eru dýrastar.
Við þurfum fyrst og fremst VEGI
færa allt árið um öll héruðin.
Ég ætla ekki að telja upp ein-
staka vegi, en get ekki stillt mig
um að ncfna veg yfir Leirurnar
innan við Pollinn hérna á Akur-
eyri, út ströndina og yfir Vikur-
sk-arð. Fólk fyrir austan Vaðlaheiði
vill ekki láta sér nægja teikningar
al lnaðbraut, yfir Vaðlaheiði — og
]>að biður ekki um hraðbrautina
núna, heldur veg, færan allt árið.
Nú, það ]>arf að byggja upp mjög
mikið af Olalsfjarðarveginum, og
það ]>arl að byggja upp mjög
langa kafla í N.-Þing, af Þing-
eyjarsýslubraut. Brii á Mjóadalsá
hjá Mýri er orðið mjög brýnt að
fá — ]>ar á eftir kænii fljótlega
vegur ylir Sprengisand, sem
muncli gjiirbreyta öllum ferðamál-
um í héruðunum. — Millilanda-
flugvöllur í Aðaldal er líka
draumur framsýnna manna í þeim
efnum. En allra brýnast er þó að
bæta aðstöðuna þar nú þegar. —
Auk þess þarf auðvitað að gera
fullkominn flugvöll fyrir Akur-
cyri.
Auðiindir þessa landshluta eru
stórkostlegar, þar sem eru árnar
og vötnin til liskiræktar. Klak- og
eldisstöð fyrir lax og silung þarf
að koma sem fyrst, þar er ekki
eltir neinu að bíða, btíið að kanna
það, að hér eru ágæt skilyrði á
fleiri stöðum. Það stendur bara á
frumkvæði ríkisins.
— Hvað um raforkumálin?
— Ég veit ekki, hvort menn
gera sér almennt ljóst, að þessi
héruð, einkum þó Þingeyjarsýsl-
urnar, munu vera orkuríkasta
svæði landsins, fyrir utan Arnes-
og Rangárvallasýslur. En orku-
kortin eru rangt teiknuð nú upp
á síðkastið, þegar ráðgerð eru
vatnarán bæði austur og suður
yfir fjöllin. En auk hinnar miklu
orku, sem við höfum virkjanlega,
einkum í Jökulsá á Fjöllum og
Skjálfandafljóti, eru hér þrjú há-
hitasvæði. í Námaskarði, á Þeista-
reykjum og við Kröflu. Orkan í
jarðvarmanum er talin samanlögð
jaín mikil og í fallvötnunum, og
við erum tæpast byrjaðir að virkja
hana. Aðrar þjóðir hafa þó af því
langa reynslu og farsæla. Þá cr
eftir að nefna hin dýrmætu fiski-
mið hér fyrir norðan, sem eru auð-
vitað okkar mcsti auður, ef við
getum verndað þau og fáum að
nýta þau rétt og búa að þeim
einir. Við verðum að efla okkar
matvælaiðnað, bæði tir sjávarafla
og landbúnaðarvörum; það verð-,
ur fyrst og fremst okkar stóriðja í
framtíðinni. Við eigum að vera-
stoltir af því að vera stórfram-
leiðendur matvæla í sveltandi
lieimi.
— Að lokum. Hvcrjar telur þú kosn-
ingahorfurnar?
— Ég tel mig lítinn spámann í
þeim efnum sem öðrtim, en mér
finnst margt benda til að okkur
gangi vel i þessuin kosningum.
Ég vil benda á, að mcð klofn-
ingnum í Alþýðubandalaginu
hafa þeir sjálfir afsalað sér þing-
sæti hér. Baráttán um .það sæti
hlýtur því að verða á milli okkar
og Alþýðuflokksins. Ég trúi því,
að margir sannir vinstri menn og
stjórnarandstæðingar sjái þetta og
fylki sér um B-Iistann, hvað sem
þeir annars hctðu gcrt, segir Jónas
Jónsson ráðunautur að lokum, —
og þakkar blaðið svör hans.
E. D.
VÍSUKORN
Á HINIJM fjölmenna og glæsi-
lega fundi Framsóknarmanna á
Hótel KEA á sunnudaginn, orti
einn fundargesturinn þessa
vísu á meðan Ingvar Baldurs-
son flutti ræðu sína:
í Norðurlandskjördæmi
austara er
æska með starfshendur góðar.
Fram nú til sigurs hún
B-listann ber
og bjargar því sæmd vorrar
þjóðar.
Ásókn erlendra veiSiskipa ler vaxandi
VIÐ hittum að máli Kristján
Ásgeirsson, formann sjómanna-
félagsins ,á Húsavík. Sjómanna-
félagið er raunar samvinnufélag
bæði útgerðarmanna og sjó-
mítnna. ,
Á HÚsavík eru nú gerðir út
13. þilfarsþátar frá 1Ö—45 smá-
lestir og eru allir miðaðir við
útgerð þaðan allt árið.
í smíðum eru þrír bátar,
tveir af þeim eru þegar komnir
á þessu ári.
, Þessir smærri bátar fiska
margir þannig að á vorin, frá
marzbyrjvtri og til maíloka eru
þeir við hrognkelsaveiðar, síð-
an erp það handfæra- og nóta-
veiðar yfir sumarið, og svo lína
að haustinu, eða dragnót. Drag-
nótaveiðar eru leyfðar á ákveðn
um svæðum, frá og með 1. sept-
ember.og til októberloka.
Stærri bátarnir eru með net
eða línu, allan veturinn, en
minni bátarnir róa þá minna.
Einn bátur hefur verið gerður
út á togyeiðar. Svo er mikill
fjöldi af trillum gerður hér út.
Það lýsir útgerðinni nokkuð,
að árið 1969 voru innleggjendur
í FiskiðjusamÍág Húsayíkur um
100 og allt að 50 aðilar hafa lagt
inn sama daginn.
— Ilér eru því margir út-
gerðaraðilar?
t— Já, þetta er alger heima-
útgerð. Kftir- stríðið dróst út-
gerð saman hér, svo kom hafnar
garðurinn pg aðstaðan batnaði.
Eftir útfa'rslu landhelginnar
1952, fór þetta svo enn vaxandi.
Það fór svo nokkuð saman með
tilkomu Fiskiðjusamlagsins um
1950, að aðstaðan batnaði, og
menn sáu möguleika til þess að
lifa hér af útgerð árið um
kring. Mest munaði svo um út-
..færsluna 1958, án hennar væri
tæplega vonlegur útvegur hér
nú.
— Hér er aflað góðs hrá-
efnis?
r—. Já, og aflinn er tiltölulega
jafn allt árið. Yfirleitt er þetta
ungur iiskur, enda telja fiski-
fræðingar, að hér fyxir Norður-
landi séu mikilsverðar uppeldis
stöðvar, og jafnvel mjög mikils-
verðar inni á Skjálfanda.
•— Þið hafið ályktað í land-
helgismálinu?
— IVIjög ákveðið, já. Sjó-
mannafélagið sendi ályktun
sína öllum alþingismönnum
kjördæmisins. Hún var á þá
leið, að landhelgin yrði þegar
færð út í 50 mílur.
— Teiur þú áséknina hér
hafa aukizt?
— Já, erlend skip sækja nú
æ meira á svæði eins og út af
Melrakkasléttu og Langanesi.
Við teljum, að eftir að við
höfum náð yfirráðum yfir land-
Kristián Ásgeirsson.
grunninu, verði að taka það til
rækilegrar athugunar, hvemig
hagkvæmast er að nýta þessi
mið sem bezt fyrir okkur. Það
er alveg öruggt, að útfærslan
1958 var ómetanleg fyrir þessa
byggð.
— Nokkuð fleira, Kristján?
— Nú standa fyrir dyrum
samningar um verðlagninu á
fiski frá 1. júní. Við hér teljum,
að verðið geti hækkað verulega.
Enda var það staðreynd, að það
er hættulega lágt kaup, sem sjó
menn hafa. Það er augljóst
hvað það er uggvænlegt, ef sjó-
menn eru jafnvel verr launaðir
en þeir sem vinna í landi. Ef
ekki fást góðir menn til sjó-
mennsku, horfir uggvænlega
fyrir þjóðinni.
Við hér á Húsavík megum þó
teljast heppnir, því fiskiðjuver-
ið hefur greitt kr. 1.21 hærra
fyrir kílóið, en lágmarksverð-
lagsráðsverð, segir Kristján að
lokum og við þökkum honum
fyrir. □
- ViBurkenning krafa
a ú
(Framhald af blaðsíðu 1)
an flutning þeirra og kynningu
þeirra á hinum mörgu málum
er þeir ræddu bæði á sviði þjóð
mála og sénnála Norðlendinga.
Sjálfstæðisflokkurinn treysti
ekki „ungu“ mönnunum.
Það vakti sérstaka athygli í
umræðunum, sem Ingvar Gísla-
son benti sérstaklega á, að þeir
menn á lista Sjálfstæðisflokks-
ins, sem með mjög takmörkuð-
um árangri hefur verið reynt
að byggja upp í augum yngra
fólks með þeim rökum að þeim
væri sýnt með því sérstakt
traust var ekki treyst betur af
forystunni en svo, að þeir fengu
rétt aðeins að mæla örfá orð í
umræðunum, en fjármálaráð-
herrann taldi ekki á það hætt-
andi að leggja á þá meiri
ábyrgð — enda kannski varla
von eftir þá frammistöðu, sem
þeir sýndu af sér. Halldór Blön
dal vildi breyta tryggingakerf-
inu nokkrum vikum eftir að
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
gert þar sýndarbreytingu, sem
ekki er enn einu sinni komin til
framkvæmda. Ekki fylgjast
menn betur með en þetta.
B-LISTINN
HÉR eru kynntir tveir fram-
bjóðendur, sem framhald á
kynningu B-listans og eru það
9. og 10. maður listans.
Aðalbjörn Gunnlaugss.
AÐALBJÖRN Gunnlaugsson,
kennari í Lundi í Öxarfirði, er
fæddur á Gnmd á Langanesi
26. febrúar 1936. Aðalbjörn
iiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiii
F rambjóáenaur
kynntir _
llllllillllllllllllllllllllllllllHIIIIUIIIIIIIIIIHIHIHIIIIIIIIIIIIHIIII
stjóri og kona hans Eiríksína
Ásgrímsdóttir, bæði ættuð úr
Héðinsfirði. Sjómennsku hefir
Þorsteinn stundað frá unga
aldri eða 1946, fyrst á smærri
dekkbátum og síðan á stærri
togveiðiskipum. Vorið 1953 lauk
hann stýrimannsprófi frá Stýri-
mannaskólanum í Reykjavík,
og hefir starfað síðan ýmist sem
stýrimaður eða skipstjóri á
stærri fiskiskipum. Þorsteinn
Björnsson er kvæntur Hólm-
fríði Magnúsdóttur úr Ólafs-
firði. □
Aðalbjörn Gunnlaugsson.
stundaði nám í Héraðsskólaii-
um á Laugum, en síðar við
Kennaraskóla íslands og lauk
kennaraprófi árið 1960, en hef-
ur auk þess sótt sérstök nám-
skeið fræðslumálastjórnarinn-
ar í stærðfræði, íslenzku o. fl.
Kennari við Héraðsskólann á
Reykjum í Hrútafirði 1960—64.
Skólastjóri við barna- og ungl-
ingaskólann í Skúlagarði : í
Kelduhverfi og við miðskólann
í Lundi 1964—69. í stjórn
Styrktarfélags lamaðra og fatl-
aðra 1960—61. í stjórn Sam-
bands bindindisfélaga í skólum
og ritstjóri Hvatar 1957—59. Er
íonnaður barnaverndarnefnd-
ar, áfengisvarnanefndar og
bókasafnsnéfradar í Öxarfirði og
r stjórn ungmennafélags þar.
Formaður Framsóknarfélags
Norður-Þingeyinga - vestan
Öxarfjarðárheiðar. Kona hans
er Erla Óskarsdóttir frá Reykj-
arhóli .í Reykjahverfi. □
Þorsteinn Björnsson
ÞORSTEINN Björnsson, stýri-
maður í Ólafsfirði, er fæddur
30. maí 1929 á Siglufirði. For-
eldrar: Björn Sigurðsson skip-
Þorsteinn Björnsson.
Rangfærslur Lárusar
Jónssonar.
Lárus Jónsson leyfði sér gegn
betri vitund að halda tvennu
fram um afstöðu Framsóknar-
flokksins í sambandi við upp-
byggingu nýrra atvinnugreina.
Hann sagði, að Framsóknar-
flokkurinn væri algerlega and-
stæður samvinnu við erlent fjár
magn í sambandi við uppbygg-
ingu nýrra fyrirtækja. Þetta er
rangt. Flokkurinn hefur ekki
útilokað notkun á erlendu fjár-
magni í afmörkum tilvikum ef
þannig er búið um hnútana með
lagasetningu hverju sinni, að
íslenzk yfirráð séu tryggð.
Hann hafnar hins vegar þeim
boðskap Sjálfstæðisflokksins að
vaxtarbroddur atvinnulífsins
verði síaukin samvinna við er-
lend stórfyrirtæki og þeim úr-
tölum, sem fylgja slíkum hugs-
unarhætti. Hin rangfærslan var
í sambandi við EFTA. Þar sagði
Lárus, að Framsóknarflokkur-
inn berðist gegn slíkrri aðild.
Það er að sjálfsögðu alrangt,
enda erum við þegar aðilar að
EFTA. Hitt er rétt, að flokkur-
inn taldi á sínum tíma, að ís-
lendingar væru þess óviðbúnir
að gerast virkir þátttakendur
vegna skorrts á forsjá og undir-
búningi. Því miður hefur það
komið áþreifanlega í ljós, að
þessi skoðun reyndist rétt. Við
erum í EFTA ig það er skoðun
Framsóknarflokksins, að grípa
verði til nýrra aðgerða og
vinnubragða til að auka þá við-
skiptasamvinnu, sem þar er í
húfi í íslenzkum útflutnings-
atvinnuvegum til stuðnings. □
Landað úr
togbátom
Ólafsfirði 7. júní. í dag er verið
að landa úr togveiðibátunum,
sem komu inn um helgina. Afl-
inn hjá þeim, er með rýrara
móti. Að vísu var útivist hjá
sumum í styttra lagi, vegna sjó-
mannadagsins. Sigurbjörg var
með 34 smálestir, Stígandi 20 og
Ólafur bekkur 12. Flestir trillu-
bátar eru nú byrjaðir færa-
veiðar, en afli hefur verið held-
ur tregur. B. S.
A DAGSKRA
EINS og kunnugt er, hefur
Kjördæmissamband Framsókn-
arfélaganna átt frumkvæðið að
vaxandi umræðum um ferða-
mál og ferðaþjónustu með ráð-
stefnunum á Akureyri og í Mý-
vatnssveit nú fyrir skömmu. Á
Akureyrarráðstefnunni ræddu
menn fyrst og fremst ferðamál-
in í heild, en í Mývatnssveit
voru ferðamál á Norðurlandi
einkum á dagskrá. Var einkar
ánægjulegt að fylgjast með slík-
um áhuga manna á báðum þess
um ráðstefnum á þessari vax-
andi og mikilvægu atvinnu-
grein, sem í stórauknum mæli
mun setja svip sinn á atvinnu-
mál landsins, og ekki sízt Norð-
lcndinga, á næstu árum.
Heimir Hanncssón.
FERÐAIMÁL í ÞINGEYJAR.
ÞINGI.
í Mývatnssveit voru ferðamál
í Þingeyjarþingi að sjálfsögðu
á dagskrá. Fiutti Bjöm Frið-
finnsson, bæjarstjóri á Húsavík,
athyglisvert erindi um þau mál.
Gerði bæjarstjórinn margt að
umtalsefni, sem fróðlegt væri
að ræða nánar, en vikið skal að
örfáum atriðum. Hann benti á,
að fyrir þá ferðamenn, sem
koma i Þingeyjarþing frá aðal-
dyrunum á Keflavíkurflugvclli,
væri aðeius ein leið, þ. e. með
bifreið eða flugvél til Akureyr-
ar og þaðan með bifreið austur.
Hann benti á, að vegasamband-
ið frá Akureyri, ekki sízt um
Vaðlaheiði, væri oft hið erfið-
asta og þar með samgöngur við
Mývatnssveit, en þetta mætti
leysa á annan hátt. Þó að leiðin
frá Akureyri væri bætt, væru
óviðunandi samgöngur að og
frá héraðinu. Þingeyingar
hefðu eiít bezta flugvallarstæði
landsins, en Aðaldalsflugvöll
þyrfti nauðsynlega að lengja og
bæta og setja upp fullkomin
öryggistæki, auk þess sem
brýna nauðsyn bæri hið fyrsta
til að bæta núverandi aðstöðu
við völlinn, sem væri fyrir neð-
an allar liellur. Með beinum
flugsamgöngum frá Reykjavík,
mundi mjög aukast allur ferða-
mannastraumur til Þingeyjar-
sýslu, og þá einkum í Mývatns-
sveit, og væri vel til fallið að
bjóða ferðamönnum upp á fcrð,
sem á Norðurlandi hæfist á
Aðaldalsflugvclli, þaðan væri
ekið kísilveginn í Mývatnssveit
og síðan um Fljótsheiði til Akur
eyrar, t. d. með viðkomu við
Goðafoss, en flogið væri frá Ak-
ureyri suður.
VAXANDI TEKJUMÖGU-
LEIKAR.
Bæjarstjórinn taldi, að ekki
væri fjarri lagi að reikna með
því, að 15% erlendra ferða-
manna kæmi til Norðurlands,
ef hins vegar yrði unnið mark-
visst að þróun ferðamála á
Norðurlancli, væri ekki mikil
bjartsýni að reikna með því að
30% allra crlendra ferðamanni',
á íslandi kæmi til Norðurland?
á árinu 1980 eða um 45.00Þ
manns. Bæjarstjórinn taldi, ac
miðað við þó fátæklegu aðstöði.
scm erlcndir ferðamenn hafa
enn hér á landi, væri varlega
áætlað, að þeir eyddu kr. 2,500
pcr gistinótt, en miðað við tvær
og hálfa gistinótt að meðaltali
í Þingeyjarþingi, gætu tekjui-
heimamanna af 45.000 ferða-
mönnum orðið kr. 280.000.00.00,
scm með auknum cyðslumógu
lcikum fyrir ferðamennina
gætu hæglega orðið um kr,
350.000.000.00, og það munaðii
um minna fyrir eklti fjölmenn ■
ara svæði. f sambandi við fyrir ■
hugaðan hringveg urn landið,
minntist bæjarstjórinn ennfrem
ur á þá Iiugmynd, að ineð tiL
tölulega litlum tilkostnaði
mætti skipta hringveginum :
tvo hálfhringi og stytta j>anni;
vegalengdina frá Mývatnssveii;
til Reykjavíkur um töluvert i\
annað hundrað kílómetra meb'
vegagerð um Sprengisand, er.
eins og kunnugt er, er þega:
kominn ágætur vegur sunnan■
megin frá upp að Þórisosi, en
þaðan að Mýri í Bárðarda.
vegarstæði eitt það bezta sem
væru aðeins 115 kilómetrar oj
völ er á. Fyrir ferðamenn
myndu þannig opnast tvæ.
skemmtilegar hringfcrðir aust'
ur um og vestur um, og mögu-
leikar til svokallaðrar óbyggða-
ferða út frá Sprengisandsleií!
væru óþrjótandi.
SAMEIGINLEGIR
HAGSMUNIR.
En það liggur Ijóst fyrir eftír
ráðstefnurnar báðar, að mikil
verkefni eru framundan í lerðv -
málum Norðlendinga. Á Mý ■
vatnssvcitarráðstcfnunni var
ákveðið að stofna til ferðamála-j
félags Þingeyinga, og á Akur-
cyri er þcgar fyrir ferðamalb-
félag, sem starfað hefur í mörg
ár. Það er því ljóst, að menn
eru að átta sig betur og betui'
á þeirri staðreynd, að ferða-
þjónusta er þcgar orðinn mikií '
vægur atvinnuvegur og getur
orðið mun stærri, bæði fyrir
landið í hcild og Norðurland, et
rétt cr á haldið. Akureyri er og
verður að sjálfsögðu miðstöo
slíkrar starfsemi á Norðurlandi,
cn ljóst er, að Þingcyjarsýslur
eiga marga sem að þessum mal -
uni vilja vinna. HagsmunL’
þessara aðila fara saman. Þab
er ánægjulegt að vita að þetta
er að verða mönnum ljósara en
áður.
Flugu í matínn
ÞAÐ er mikið að gera í eldhúc -
inu í Hótel Reynihlíð þessa dag-
ana. Fulltrúar á norræna lækna
þinginu í Reykjavík skreppa
nefnilega þangað norður í hi ■
degismatinn. Samkvæmt upp ■
lýsingum Arnþórs Björnssona.'
hótelstjóra voru til dæmis 84
fulltrúanna þar í hádeginu i
gær, en það er ferðaskrifstofan
Utsýn, sem gengst fyrir pessum
ferðum þeirra norður i matirm,
Mikið er bókað af ferðamömi-
urn til gistingar í Reynihlíð :i
sumar og allt fram í ágústiok.
Á hótelinu er gistirými fyrir 45
manns. Ennþá hafa hótelgestir
lítið annað við að vera en borða
góðan mat, en bráðlega taka tii
starfa bíla- og bátaleiga við Mj •
vatn. Mikill áhugi er einnig :i
því, að koma á fót hestaleigu,
en það mál er aðeins á umræðn
stigi enn. Q