Dagur - 10.11.1971, Blaðsíða 4

Dagur - 10.11.1971, Blaðsíða 4
4 Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri Símar 1-11-66 og 1-11-67 Ritstjóri og ábyrgðarmaður: ERLINGUR DAVÍÐSSON Auglýsingar og afgreiðsla: JÓN SAMÚELSSON Prentverk Odds Bjömssonar h.f. Erfið mál bíða úrlausnar ÞEGAR íslendingar yfirgáfu land sitt í þúsundatali, undir „viðreisnar“- stjóminni og leituðu sér atvinnu meðal annarra þjóða, gerði bæjar- stjómin á Akureyri ýmsar fram- kvæmdaörvandi ráðstafanir til að afstýra vandræðum. Síðan hefur ríkt hér atvinnugóðæri og svo er enn. Af stórum miðstöðvum atvinnulífsins ber fyrst og fremst að nefna iðnað samvinnumanna, sem hefur verið efldur síðustu misserin með aðstoð ríkisvalds og banka. Bæjarútgerðin eða Ú. A. með sína fjóra togara og hraðfrystihús og aðra fiskverkun, veitir mörgum hundruðum manna atvinnu, og Slippstöðin h.f. hefur á undanförnum árum stundað lands- kunnar skipasmíðar og skipaviðgerð ir, er talin standa fremst innlendra skipasmíðastöðva og hefur óþrjót- andi verkefni. Kaupfélag Eyfirðinga með sína fjölþættu starfsemi, auk verzlunarinnar, veitir bæjarbúum geysimikla atvinnu. Er þá fátt eitt talið af mörgu, er samanlagt styður atvinnuöryggið og þar með grund- völl framfara og menningarlífs í höfuðstað Norðurlands. En engin þessara meginstoða má bresta og enn fleiri stoðum þarf að renna undir þróttmikið athafnalíf, sem allir vilja skapa. Akureyringar eiga um þessar mundir við þrjú erfið vandamál að glíma. Hið fyrsta þeirra er yfirvof- andi raforkuskortur. Ríkisstjómin hefur boðað nýja stefnu, er leyst get- ur þann vanda ef henni verður ötul- lega fram haldið, því að nú liggur það 1 jóst fyrir, að Laxá gerir það ekki. Slippstöðin h.f. á í miklum fjár hagserfiðleikum um þessar mundir, en hún er sameign bæjar, ríkis, KEA og nokkurra minni hluthafa. Beðið er eftir raunhæfum aðgerðum hins opinbera í málinu, en fullvíst má telja, að þetta nauðsynlega og vel búna fyrirtæki verði ekki látið gjalda byrjunarörðugleika á þann veg að starfsemin dragist saman. Væntanlega verður bæði um að ræða beina aukna aðstoð og þær endur- bætur á rekstri, sem gætu falið í sér eins fullkomna nýtingu þekkingar, vinnuafls og véla, sem nokkur kostur er á. Þriðja vandamálið er liin mikla, vöruhöfn, sem verið er að byggja. En famkvæmd hafnargerðarinnar hefur stöðvazt þetta ár vegna þess, að byggt var á sandi er undan lætur. Vita- og hafnarmálaskrifstofan ber ábyrgð á undirbúningsrannsóknum, sem virð- ast hafa verið ófullkomnar, og er endurhönnun óhjákvæmileg. Þessi vandamál verður að leysa og ástæða er til að ætla, að það takist innan tíðar með sameiginleguin og góðum vilja margra aðila. □ Almenningnr væntii* sér rnildls af störfum rikisstj órnarinnar VIÐTAL VIÐ INGVAR GÍSLASON ALÞM. BLAÐIÐ átti stutt viðtal við Ingvar Gíslason alþingismann, er hann dvaldist heima í helgar fríi um síðustu helgi og spurði tíðinda af helztu málum þings og stjórnar um þessar mundir. — Eins og við er að búast eru miklar annir á Alþingi nú, svaraði Ingvar Gíslason, og mörg og fjölbreytt mál, sem þingmenn hafa til meðferðar, þó ekki séu öll beinlínis til um- ræðu í þingsölum. Þingmenn skipta að sjálfsögðu með sér verkum, m. a. í fastanefndum þingsins. Ég á sæti í fjárveit- inganefnd eins og mörg fyrir- farandi ár. Það er tímafrekt starf, einkum á fyrri hluta þingsins. — Eitthvert blað hér í bæn- uni var að furða sig á því, að þú skyldir ekki verða formaður fjárveitinganefndar? — Ekki öðru en því, að það hefur lengi verið venja í sam- bandi við stjórnarsamstarf, þar sem Framsóknarflokkurinn hef ur átt fjármálaráðherra, að þá sé formaður fjárveitinganefnd- ar úr samstarfsflokki, en ekki úr Framsóknarflokknum. Við Framsóknarmenn teljum þetta góða reglu og höfum hana í heiðri nú sem endranær. — Það hefur nokkuð verið um það rætt, að fjárlagafrum- varpið hafi hækkað verulega frá fjárlögum þessa árs. Hvaða ástæður liggja til þess? — Það er rétt, að niðurstöðu tala fjárlagafrumvarpsins er hærri en fjárlög fyrir árið 1971. Ástæðan er augljós. Viðskilnað- ur fráfarandi ríkisstjórnar í efnahags- og fjármálum veldur þar mestu um. Verðbólgan set- ur mark sitt á fjárlagafrum- varpið. Og það kemur víða fram. Gleggsta auðkenni verð- bólgunnar er sá liður fjárlaga, sem ákveður útgjöld til niður- greiðslu á vöruverði innanlands BÍLAR TIL SÖLU: FORD CORTINA, árg. 1971, 2 dyra. FORD CORTINA 1600 árg. 1970, 4 dyra m/útvarpi. FORDUMBOÐIÐ BÍLASALAN H.F. — Strandgötu 53 — Sími 2-16-66 TAPAÐ Peerpont KVEN- MANNSÚR tapaðist. Finnandi vinsamlegast hringi í síma 2-15-76. KÖKUBAZAR verður haldinn að Hótel KEA sunnudaginn 14. nóv. kl. 2 e. h. — Ágóði rennur til Ejórðungs- sjúkrahússins á Akur- eyri. Hjúkrunarkonur. til þess að halda niðri dýrtíð. Þessi liður er áætlaður á fjár- lagafrumvarpinu 1600 milljónir króna og hefur hækkað um 500 milljónir miðað við gildandi fjárlög. Launahækkanir opin- berra starfsmanna komu nú með fullum þunga á ríkissjóð, en þær einar valda 910 milljón króna hækkun. Ohjákvæmileg- ar útflutningsuppbætur verða nú hærri en áður, og þannig mætti lengi telja. — En góðæri til lands og sjáv ar hlýtur að auðvclda afgreiðslu fjárlaganna? — Jú, í sjálfu sér er það rétt. En það hlýtur að vekja manni ugg, að þrátt fyrir ágætt ár og gott atvinnuástand í heild, þá er arfurinn frá óstjórnartíma íhaldsins slíkur, að verðbólgu- ófreskjan er nærri óseðjandi. Þessari gráðugu ófreskju verð- um við að fórna miklum fúlgum fjár í beinum framlögum, eins og niðurgreiðslurnar sýna, og það er anzi hætt við, að það komi niður á framkvæmdum og framförum í félags- og menn- ingarmálum, ef ekki er sérstak- lega að gert. Ég er þeirrar skoð- unar, að enn um sinn séu niður- greiðslurnar óhjákvæmilegar. Það er að vísu baggi, sem frá- farandi ríkisstjórn hefur bundið okkur, en við getum ekki vænzt þess að létta þessa byrði af ríkis sjóði i einu vettfangi. Hins veg- ar verðum við að leitast við að minnka smám saman þessa erfiðu byrði. En það mun taka sinn tíma. — En nú hefur ríkisstjórnin heitið því að hrinda í fram- kvæmd víðtækri umbótastefnu- Til sölu 4ra dyra deluxe CORTINA ’65. Uppl. í síma 2-11-86 eftir kl. 7 á kvöldin. Bifreið óskast? FORD BRONCO, árgerð 1966, má vera óklæddur. Uppl. í síma 2-10-44 og 1-14-13. Til sölu TAUNUS 17M, árgerð ’66, 4ra dyra, ekinn 48000 km. Uppl. í síma 1-21-39 eftir kl. 19. Til sölu er A-3870, SCOUT ’67. Bíllinn er á nýjum dekkum, ný- sprailtaður og vönduð klæðning. Uppl. í síma 1-27-08, eftir 6 eða á Bílasölunni. Til sölu VW '64. Til greina koma skipti á yngri bifreið. Uppl. í síma 1-11-13, miðv.d.k. og næstu kvöld eftir kl. 8. skrá. Getur það gcrzt án mikils fjármagns? — Nei, að sjálfsögðu ekki. Umbótastefnuskrá ríkisstj órnar Olafs Jóhannessonar krefst fjár magns. Það verður því ekki hjá því komizt að gera fullnægjandi ráðstafanir til fjáröflunar. M. a. verður að auka svo tekjur ríkis- sjóðs, að hann rísi undir öðru og fleiru en því að greiða niður verðbólgu og dýrtíð frá tímum Magnúsar Jónssonar og Gylfa Þ. Gíslasonar og annarra, sem mestan þátt eiga í mislukkaðri stjórnarstefnu síðustu 12 ára. Það er ekki ætlun okkar, sem stöndum að þessari ríkisstjórn, að láta óstjórnarbyrðar frá fyrri tíð skammta okkur fé til fram- kvæmda og framfara. — Fjárlögin koma þá til með að hækka í meðförum Alþingis? — Já, hjá því verður ekki komizt. Því miður get ég ekki upplýst á þessu stigi, hversu mikil sú hækkun verður. Það fer eftir atvikum. Það er m. a. eftir því, hversu mikinn hraða ríkisstjórnin og flokkar hennar ákveða að hafa á um fram- kvæmd málefnasamningsins. í þessu sambandi þykir mér rétt að minna á það, sem raunar er alkunna, að starfandi eru nefnd ir á vegum ríkisstjórnarinnar, sem ætlað er að endurskoða reglur, sem varða tekjuöflun hins opinbera og almannatrygg- ingarnar. Hér er um ákaflega mikilsvert mál að ræða og æski legt, að þessar nefndir gætu lok ið meginstarfi sínu sem fyrst. Ég segi það m. a. vegna þess, að það myndi mjög auðvelda af- greiðslu fjárlaga, ef álit þessara nefnda lægju fyrir. — Hvenær má vænta frum- varps að lögum um Fram- kvæmdastofnun ríkisins? — Ég vona, að það geti orðið innan skamms tíma. Hins vegar er ég ekki við því búinn nú að greina nánar frá því máli í ein- stökum atriðum. Hvernig er samstarfið innan ríkisstjómarinnar? — Það er ágætt. Enda væri allt annað óeðlilegt. Ríkisstjórn- in er rétt að stíga sín fyrstu spor, og lítil ástæða til þess fyr- ir andstæðinga hennar að vænta sér ávinnings af ímynd- uðum ágreiningi innan hennar. Slíkt er víðs fjarri og alls ekki til umræðu. Ríkisstjórnin stend ur í stórræðum inn á við og út á við, og menn gefa sér engan tíma til sundurþykkju. Almenn- ingur í landinu væntir sér mik- ils af þessari stjórn og má ekki til þess hugsa, að íhaldið kom- ist til valda á næstu árum. Blaðið þakkar Ingvari Gísla- syni greið svör. □ TRYGGINGAMÁL FYRSTI bændaklúbbsfundur Búnaðarsambandsins var hald- inn á Hótel KEA á mánudaginn. Fundarefni var tryggingamál. Frummælendur voru Sigurður Þórhallsson og Sigurður Þ. Guð mundsson, báðir frá Samvinnu- tryggingum. Mjög miklar umræður urðu og fjölmargar fyrirspurnir. Kom í ljós, að margs þurfti að spyrja og mörgu að svara. Mun meiri fræðsla í þessu efni nauð- synleg. Fundinn sóttu allt að 30 manns. Fundarstjóri var Sigur- geir Garðarsson. Gert er ráð fyrir 2—3 fundum bændaklúbbsins fyrir jól. □ Frá vinstri: Katrín Jónsdóttir, Sigurveig Jónsdóttir og Þráinn Karlsson í hlutverkum sínum. (Páll) ÞAÐ ER KOMINN GESTUR Höfundur: Istvan Örkény. Þýðing: Bríet Héðinsdóttir og Þorsteinn Þorsteinsson. Leikmynd: Ivan Törrök. Leikstjórar: Þórhildur Þor- leifsdóttir og Arnar Jónsson. ÞEGAR ég var að byrja að skrifa þessar línur, barst mér í hendur Alþýðubandalagsblaðið, þar sem blaðamaður þess hefur viðtal við annan leikstjórann, framkvæmdastjórann og eina af aðalleikkonu L. A. í þessu við- tali kemur margt einkennilegt fram. Um fortíðina segir fram- kvæmdastjórinn, að fram að þessu hafi ráðið „happa og glappastefna". Leikstjórinn bæt ir við, að vísu hafi þau stundum gert lukku, en engu að síður, lé- leg leikrit. Og eftir að hafa lýst bágbornum fjárhag félagsins sé útkoman sú, „að notast verð- ur við það bezta sem til.er þýtt. Eina sem félagið getur gert að svo komnu máli er að eiga sér vissan metnað.“ Þegar blaða- maðurinn spyr, hvort Leikfélag ið eigi þann metnað, er leik- konan því samþykk, en fram- kvæmdastjórinn segir: „Að minnsta kosti ákveðinn hópur“. Þó vill hann ekki svara fyrir alla meðlimi þess. Um starfsemi leikhúsanna fyrir sunnan hafa þau sitt álit, t. d. segir leikstjór- inn: „Hitt er svo annað mál, hvaða álit maður hefur á þeim sýningum sem ganga fyrir sunn an“. Svo mörg -eru þau orð. Eftir lestur þessa viðtals er ekki ann að hægt en að dæma verk þeirra eftir strangasta mati. Annars legg ég til, að þetta við- tal verði birt í næstu leikskrá í heild. ---- ’ Ef Við tökum þettá leikrit, „Það er kominn gestur'1, sem L. A. frurtisýndi sl. fimmtudags- kvöld;- og búið er að sýna í 14 löndum, væri gaman að vita hvor hópurinn innan L. A., sá sem hefur metnað eða hinn, helur valið það. Sennilega hafa engin Ieikrit verið sýnd víðar og oftar hér á landi en Skugga- Sveinn og Ævintýri á gönguför, og þo ’þaú séu góð á sinn máta, munu fáir telja þau með því Rezta í leikbókmenntum. Mér fannst frumsýningin á fimmtudaginn of langdregin, og of mikill' seinagangur frá byrj- un" tíl enda, og þar sém þarna voru áð verki tveir leikstjórar, ’og ’ þeir ekki af „happa og glappa“ tímanum, er þetta þeirra sök. Sömuleiðis verður að skrifa á þeirra reikning val leikara í hlutverkin. Að láta ungan og óreyndan ■leikara í Tót gamla er ekki hægt. Ég efa ekki, að Arnar Einarsson sé efni T leikara, en við þetta hlutverk ræðiir hann ekki. Guðlaug Hermannsdóttir lék Agíku, dóttir Tót. Var ekki hægt að fá yngri stúlku í Agíku? Gestur Jónasson lék póstinn: eitt bezta hlutverkið í leiknum. Eg held að Gesti hafi ekki verið gerður neinn greiði ’að velja hann í þetta hlutverk. 'Sigurveig Jónsdóttir lék 'Marisku,'konu Tót, og gerði því hlutverki prýðileg skil. Sömu- leiðis Þrálnn Karlsson í majórn um, þessum taugaveiklaða ræfli. Þráinn og Sigurveig eru bæði vaxandi leikarar, með skíra ■framsögn og öryggi. Aðalsteinn Bergdal lék prófessor Cipraini og gerði það prýðilega. Um aðra leikendur er htið hægt að segja, nema ekki hefði ég kosið Kjartan Olafsson minn prest. Tjöldin. voru sérkennileg og skemmtileg, enda unnin af fag- manni. En ekki get ég gert að því að aldrei kann ég við að leikarar séu að hamast á sen- unni að færa til fleka og muni fyrir opnum tjöldum. Ef við eigum að taka ummæli þess fólks er ég vitnaði til í upp hafi alvarlega, og að þau túlki skoðanir stjórnar L. A., er ég tel víst, þar sem framkvæmda- stjóri þess var fyrir svörum, er gleðilegt að vita, að í framtíð- inni verði aðeins sýnt það bezta í leikbókmenntum, og hætt verði að sýna þriðja og fjórða flokks efni eins og framkvæmda stjórinn segir í viðtalinu að gert hafi verið fram að þessu. En — meira þarf til, að við trúum því að t. d. þetta leikrit, „Það er kominn gestur“, sé fyrsta flokks og öll uppsetning þess og túlk- un sömuleiðis. Það er móðgun við leikhúsgesti, ef L. A. ætlar sér að segja okkur hvað sé list og hvað ekki. Leikfélag Akur- eyrar hefur skyldur við áhorf- endur, meiri skyldur en við nokkra leikara þó þeir eigi vissulega skilið sitt. Hvað sem leikstjóri L. A. segir eru leik- húsin í Reykjavik búin að slá sjónvarpið út, og er t. d. í haust metaðsókn að leikhúsum þar. Gleðilegt væri ef L. A. gæti gert það sama. Að endingu. Kuldinn í leik- húsinu frumsýningarkvöldið bætti ekki úr skák. Leikhúsgestur. Slarfsamt og auðugt líf þrátt fyrir sykursýki Á ÞESSU ári eru 50 ár liðin síðan insúlínið fannst, en það er meðal, sem sykursýkissjúkling- ar nota. Það voru tveir amerískir vís- indamenn, sem fundu insúlínið árið 1921. Það voru þeir F. G. Banting (1891—1941) í sam- vinnu við ungan vísindamann, C. H. Best f. 1899, sem tókst fyrstum að framleiða insúlín í lífeðlisfræðilegu stofnuninni í Toronto. Þeir framleiddu það með tilraunum á hundum. Banting var skurðlæknir, en Best var lífeðlisfræðingur. Það er að þakka þessu meðali, að margir þeir sem hafa sykur- sýki geta lifað starfsömu og auðugu lífi, þar sem meðalið heldur veikinni niðri, þó að ekki sé unnt að lækna hana. Þessa viðburðar var minnzt á alþjóðaheilbrigðisdeginum í ár. Banting varð ekki gamall maður, hann lézt 1941 fimmtug- ur að aldri, en félagi hans Best er enn á lífi 72 ára. Enska sykur sýkisfélagið bauð honum til 'Englands í sumar í sambandi við 50 ára afmæli insúlínsins ög um leið heimsóttí "hann Dan- mörku, þar sem félagasamtök í þessu efni eru mjög öflug. Nóbelsverðlaunin voru veitt fyrir þessa uppgötvun 1923. Verðlaununum var skipt milli Bantings og prófessors Mak- leod, stjórnanda vísindastofn- unarinnar í Toronto. En Ban- ting skipti sínum hluta til helm inga milli sín og Best, og Mak- leod sínum milli sín og James Collips, sem hafði aðstoðað við hreinsun á insúlíninu. Á síðastliðnu ári var stofnað hér í bænum félagið „Samhjálp — félag til varnar sykursýki.“ Eru félagar þess um 30. Þetta er fyrsta félag sykursjúkiinga hér á landi, en væntanlega verður annað félag um þetta efni stofnað bráðlega í Reykja- vík. Formaður félagsins hér er Gunnlaugur P. Kristinsson. Á þessu ári minnast sykur- sýkissjúklingar um heim allan þeirra Bantings og Bests með virðingu og þakklæti. E. S. gróðurvernd Um gróðureyðingu og BEITARÞOL LANÐS OG TILRAUNABÚ Á FUNDI landbúnaðarnefndar Fjórðungssambands Norðlend- inga á Akureyri í síðustu viku, flutti Ingvi Þorsteinsson mag- ister erindi um landgræðslu og gróðureyðingu. Sagði hann meðal annars, að framlag til landgræðslu hefði fjórfaldazt að verðgildi frá 1950. En raunverulega úttekt á það, sem áunnizt hefur, vantar. Gróðurkort hafa verið gerð af öllu landi þriggja sýslna, þ. e. Austur-Skaftafellssýsla, Mýra- og Borgarfjarðarsýslu. Sýndi Ingvi kort af nokkrum hluta þessa landsvæðis og benti á, að á þessum kortum væri hægt að lesa ræktunarhæfni jarðanna og um leið möguleika þeirra. Ræðumaður taldi, að utan jökla væri ofbeittur þriðjungur lands ins, annar þriðjungur hóflega beittur en afgangurinn vanset- inn og mætti þar bæta við 57 þús. ærgildum. Umfram-ærgildi, sem ekki hafa fulla beit eru um 220 þúsundir í landinu. Það er Norð-Austurland, sem bætt get- ur við sig búpeningi í haga, en Suður- og Suð-Vesturland er of- beitt. Á sumum stöðum á Norð- urlandi er land einnig talið of- beitt. Haga þarf nýtingu lands- ins á þann vcg, sagði ræðu- maður, að hófleg beit væri, bæði með því að fjölga á þeim svæðum, sem við geta tekið og með því að' bæta haga með rækt un, þar sem nú er fullbeitt eða ofbeitt. Sýndi hann og skýrði niðurstöður athugana í þessu efni, máli sínu til fyllri skýr- inga. Hann sagði í ræðulok: Við skuldum landinu 20 þúsund hektara, sem blásið hafa upp. Með skírskotun til stefnuyfir- lýsingar ríkisstjórnarinnar um stóraukið átak í landgræðslu og landverndarmálum, ályktar landbúnaðarnefnd Fjórðungs- sambands Norðlendinga 29. okt. 1971: Niðurstöður af rannsóknum og gróðurkortagerð Rannsókn- arstofnunar landbúnaðajins hafa leitt í ljós mjög víðtæka of- beit á afréttum og heimalönd- um, m. a. á Norðurlandi. Hraða verður úttekt á beitarþoli og ræktunarhæfni jarða, sem hafin er. í þessu gkyni þarf að stójfr auka framlög til gerðar gróður- og jarðkorta, sem er gru'ndvöll- ur skipulegra aðgerða til notk- unar beitilands.. Jafriframt'telur nefndin eðlilegt, að fullkomin samvinna sé um nefnda korta- gerð á milli Rannsóknarstofn- unar landbúnaðarins, Land- náms ríkisins, Fasteignamats ríkisins og þeirra stofnana ann- arra, sem hlut eiga að máli, til FÖSTUDAGSKVÖLDIÐ 5. nóv. efndi Tónlistarfélag Akur- eyrar til skemmtikvölds í Sjálf- stæðishúsinu. Þar kom fram sovézkt lista- fólk, Kiridlova þjóðlagasöng- kona, Petrova danskona og Zotof bajanleikari. Sovézkir eru kunnir að því að senda ekki nema færasta fólk út fyrir landsteinana til listaflutnings. Svo reyndist einnig að þessu sinni, og er víst óhætt að segja, að þremenningarnir hafi gengið beint inn í hjartað á Akureyr- þess að þau megi verða sem. fullkomnust, varðandi skrán- ingu jarða, stærð og landa- merki. Samhliða heildaráætlun fyrir gróðurvernd og land- græðslu í landinu verði ger<" framkvæmdaáætlun fyrir ein- staka landshluta um aðgerðir i gróðurvernd og landgræðslu oí ræktun bithaga til að létta aí: ofbeit og koma í veg fyrir bú ■ stofnsskerðingu. Nefndin skor- ar á landbúnaðarráðherra og Alþingi að tryggja fjármagn ti. landgræðsluáætlunar fvri: Norðurland. Nefndin telur nauc'- synlegt, að sem fyrst verði gerö ar tilraunir með það, hver áhrif misgóð sumarbeit hefur á væn- leika sauðfjár að hausti og til þess að gera ajjnennar ranr, • sóknir á nýtingu beitilanda tel- ur nefndin, að fengnu áliti séi ■ fróðra manna, að jörðin Krókur í Þorkelshólshreppi í V.-Hún. se ákjósanleg. Jörð þessi er í eigu Þorkelsþólshrepps og er í eyði. Byggingar eru allmiklar og ræktun á jörðinni. Q ingum eftir undirtektum ac' dæma. Þau léku listir sínar af yfii ■ burða kunnáttu og með elslui' legu, látlausu yfirbragði. Svo ánægjulega brá við, að’ Sjálf ■ stæðishúsið mátti heita fullsetit' og spáið það vonandi góðu urr; aðsókn á komandi vetri. Næstu tónleikar á vegum Tón listarfélags Akureyrar verða i lok nóvember. Þar leikur Iona Brown fiðluleikari frá Bret- landi, en Philip Jenkins mun annast undirleik. Q Listafólk frá Sovét Viðskiptasamningur til þriggja ára i Aukin sala niðursuðu- og ullarvara til Sovét HINN 2. nóv. sl. var undirritað- ur viðskiptasamningur milli ís- lands og Sovétríkjanna, er gilda á til ársloka 1974. Tilkynning utanríkisráðu- neytisins um þetta efni hljóðar svo: „Hinn 23. október sl. fór til Moskvu samninganefnd undir forystu Þórhalls Ásgeirssonar, ráðuneytisstjóra í viðskiptaráðu neytinu, til þess að semja um nýtt viðskiptasamkomulag til langs tíma milli íslands og Sovétríkjanna, en slíkir samn- ingar hafa verið gerðir síðan 1953. Viðræður hófust 25. októ- ber við sovézka samninganefnd undir forystu A. N. Manzhulo, aðstoðar-utanríkisviðskiptaráð- herra Sovétríkjanna, og hafa síðan staðið. í dag undirrituðu Lúðvík Jósepsson, viðskiptaráðherra, og N. S. Patolichev, utanríkis- viðskiptaráðherra Sovétríkj- anna, nýtt samkomulag um við- skipti milli íslands og Sovét- ríkjanna, sem gildir fyrir tíma- bilið 1. janúar 1972 til 31. desem ber 1974. Viðskipti landanna verða sem hingað til á jafn- keypisgrundvelli með tilheyr- andi árlegum vörulistum á báða bóga. Vörur þær, sem gert er ráð fyrir sölu á til Sovétríkj- anna árlega á samningstímabil- inu eru: Hraðfryst fiskflök 12.000—15.000 tonn. Heilfrystur fiskur 4.000—6.000 tonn. Salt- síld 2.000 tonn. Niðursoðinn og niðurlagður fiskur 100—150 millj. króna. Fiskmjöl 5.000 tonn. Prjónaðar ullarvörur 100 —150 millj. króna. Ullarteppi 60—80 millj. króna. Málning og lökk 1.000 tonn. Ymsar vörur 25 millj. króna. Hins vegar er gert ráð fyrir, að Sovétríkin selji aðallega til íslands eftirtaldar vörutegund- ir: Benzín, brennsluolíur, timb- ur, valsaðar járn- og stál-vörur, bifreiðar, vélar, verkfæri, áhöld og tæki, gler og hjólbarða. Samningurinn gerir ráð fyrir allverulegri aukningu viðskipta í TILKYNNINGU frá Áburðar- verksmiðju ríkisins segir meðal annars svo: Hér með óskum vér eftir, að pöntun yðar fyrir þann áburð, sem afgreiða á til notkunar á árinu 1972, hafi borizt oss í hendur, eigi síðar en 1. desem- ber 1971. Af áætlaðri köfnunarefnis- notkun landsins 1972, áætlum vér að um þriðjungur verði inn flutt köfnunarefni. Hið inn- flutta köfnunarefni mun vænt- anlega verða fyrir hendi í kalk- ammansaltpétri 26%, kalsium nitrati 15.5% N (Noregs- saltpétri), túnáburðarblöndu 22-11-11 að viðbættum 2.7% brennisteini, svo og í tvígildum milli landanna. Sérstakiega e: um að ræða mikla auknmgu á útflutningi íslenzkra iðnaðai- vara, svo sem niðursuðuvörum, prjónuðum ullarvörum og ullar teppum. í þessum vöruflokkun; er yfirleitt um að ræða tvöföld- un frá því sem verið hefur. finn fremur hefur í fyrsta sinn feng- izt kvóti fyrir málningu. Þá hafa Sovétríkin gefið vii- yrði fyrir því að kaupa á þessu ári til viðbótar því, sem aðu :' hefur verið samið um, fryst fist: flök og niðursuðuvörur fyrir samtals tæplega 200 milljónir króna.“ Q blöndum 26-14-0 og 23-23-C. Einnig verður fluttur inn áburo ur til garðræktar 9-14-14, eins og verið hefir á liðnum árum. Reiknað er með, að um tveir þriðju af köfnunarefnisaburða þörf landsins verði mætt neö notkun Kjarnaáburðar. Klórsúrt kalí verður flutt inn grófkornað og með 60% KoO styrkleika, en brennistemssún kalí með 50% KoO styrkleika og fínkornað. Gert er ráð fyrir, að forfó) ’ sýruáburður verði í þrífosfati 45% PoO,-,, eins og verið hefir. Innfluttur áburður verður af- greiddur í polyethylene (plastj pokum, eins og á síðastliðnu vori. — (Sjá auglýsingu). Q Um tilbúna áburðinn

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.