Dagur - 10.11.1971, Qupperneq 7
7
LEIKFÉLAG AKUREYRAR
„ÞAÐ ER KOMINN GESTUR“
Næstu sýningar:
Fimmtudag — laugardag og sunnudag.
■! Munið áskriftarkortin — 25% afsláttur.
Til sölu:
Einbýlishús á Ytri-Brekkunni.
Einbýlishús í smíðum í Lundunum.
Raðhús í smíðutn í Glerárhyerfi.
5 herbergja íbúð í Glerárhverfi.
4 herbergja íbúð á Syðri-Brekkunni.
3 og 4 herbergja íbúðir við Miðbæinn.
2 herbergja íbúð í Innbænum.
RAGNAR STEINBERGSSON, HDL.,
Geislag. 5, sími 1-17-82. — Viðtalstími kl. 17—19.
Áburððrpinfafisr!
Þeir, sem hyggjast kaupa áburð hjá oss á næsta
ári, þurfa að gera pantanir sínar hjá skrifstofu
vorri, eða útibússtjórum á hverjum stað, FYRIR
1. DESEMBER 1971.
Gert er ráð fyrir að áburðarinnflutningi verði
hagað á svipaðan hátt og undanfarin ár.
Um þriðjungur af köfnunarefni verður flutt inn.
Ennfremur tökum við jjantanir í SAÐVORUR
og ÁBURÐARKALK frá Sementsverksmiðjunni.
Sjáið nánar í tilkynningu frá Áburðarverksmiðj-
unnx.
KAUPFELAG EYFIRÐINGA
Eiginmaður minn, faðir okkar, afi og bróðir,
ALBERT SÖLVASON,
Eiðsvallagötu 28, Akureyri,
andaðist í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri að
kvöldi hins 5. nóv.
Jarðarförin ákveðin frá Akureyrarkirkju laugar-
daginn 13. nóv. n.k. kl. 1.30 e. h.
Kaiólína Gísladóttir,
Kristín Albei tsdóttii',
Albert Karlsson,
Jón G. Albertsson,
Dolores Albertsson,
Candica Albertsson,
Karolina Albertsson,
Jón G. Albertsson jr.
og systkini hins látna.
Alúðarkveðjur og þakkir sendum við ykkur öll-
unr, sem studduð okkur og
HERVÖRU
í veikindum hennar og hafið ,við andlát hennar
og útför minnzt hennar fagurlega, og veitt okkur
þá hjálp, sem aldrei verður fullþökkuð.
Guð blessi ykkur.
Gísli Jónsson,
Hjörtur Gíslason,
Arnfríður Gísladóttir,
María Gísladóttir,
Soffía Gísladóttir,
Guðrún Gísladóttir,
Ingibjörg Gísladóttir,
Jón Gíslason.
I.O.O.F. Rb. 2. 1211U08y2 I
□ RUN 597111107
Frl. .
1 Atkv. ‘.
SUNNUDAGASKÓLI
Akureyrarkirkju verður n. k.
sunnudag kl. 10.30 f. h. Öll
börn hjartanlega velkomin.
— Sóknarprestar.
MÖÐRUVALLAKLAUSTURS-
PRESTAKALL. Guðsþjón-
usta að Bakka n. k. sunnudag
kl. 2 e. h. Guðsþjónustum,
sem frestað var sl. sunnudag
verða n. k. sunnudag sem hér
segir: Að Möðruvöllum kl.
10.30 f. h. og að Bægisá kl.
4 e. h. — Sóknarprestur.
FERMIN G ARBÖRN í Akur-
eyrarkirkju á nætsa vori, eru
beðin að koma til viðtals í
kapelluna, sem hér segir: Til
séra Birgis Snæbjörnssonar
fimmtudag 11. nóv. kl. 5 e. h.,
til séra Péturs Sigurgeirsson-
ar föstudag 12. nóv. kl. 5 e. h.
ÆSKULÝÐSFÉLAG
Akureyrarkirkju —
drengjadeild. Fundur
kl. 8 fimmtudagskvöld.
Allir drengir fermdir sl. vor
velkomnir. — Stjórnin.
I.O.G.T. st. Ísafold-Fjallkonan
no. 1. Fundur fimmtudaginn
11. þ. m. kl. 8.30 e. h. í Félags-
heimili teplara — Varðborg.
Fundarefni: Vígsla nýliða.
Rætt um Reykjavíkurferð.
Eftir fund: Spurningakeppni
o. fl. — Æ.t.
SAMHJÁLP, félag til varnar
syskursýki, heldur fund að
Hótel KEA laugardaginn 13.
nóvember kl. 3 e. h. Þess verð
ur minnzt, að 50 ár eru liðin
frá uppgötvun insúlínsins.
Nýir félagar velkomnir. —
Stjórnin.
- VETUR HEILSAR
MESSAÐ í Akureyrarkirkju kl.
2 n. k. sunnudag. Kristniboðs-
dagur. Gunnar Sigurjónsson
cand. theol. predikar. Sálmar
no: 29 — 15 — 94 — 419 —
203. Tekið á móti gjöfum til
kristniboðsins. — P. S.
KRISTNIBOÐSHÚ SIÐ ZION.
Sunnudaginn 14. nóv. Sunnu-
dagaskóli kl. 11 f. h. Öll börn
velkomin. Almenn samkoma
kl. 8.30 e. h. (Kristniboðsdag-
urinn). Sýnd verður kvik-
mynd frá kristniboðsstarfi á
Madagaskar. Gunnar Sigur-
jónsson cand. theol. talar.
Allir hjartanlega velkomnir.
LAUFÁSSPRESTAKALL. —
Guðsþjónusta að Svalbarði
n. k. sunnudag 14. nóv. kl. 2
e. h. — Sóknarprestur.
SAMKOMUR votta Jehóva að
Þingvallastræti 14, II hæð.
Hinn guðveldislegi skóli,
þriðjudaginn 9. nóvember kl.
20.30. Við bjóðum yður einnig
að koma og hlusta á tímabær-
ar og andlega uppbyggjandi
biblíuræður, sem Berndt
Carlsson frá Reykjavík mun
flytja: Laugardaginn 13. nóv-
ember kl. 20.30, sunnudaginn
14. nóvember kl. 16.00 heitir
ræða hans: Breytir sannleik-
urinn lífi þínu? Allir vel-
komnir.
Framhald af blaðsíðu 8.
hugsa til heimferðar. Vetur kon
ungur hafði riðið í hlað á hvít-
um fáki sínum og heilsaði mis-
jafnlega vel búnum dansgest-
um á tröppum í Miðgarði. Veð-
urhæðin var mikil, hálka á veg-
um og akstursskilyrði afleit,
enda óhöppin eftir því. Aðilar
úr björgunarsveitinni á Sauðár
króki voru kallaðir út um nótt-
ina og unnu til næsta kvölds við
að sinna fólki og bílum, er lent
höfðu í erfiðleikum. Heyrt hefi
ég, að sumir séu ekki komnir
heim til sín enn.
S. G.
BRÚÐKAUP: Laugardaginn 6.
nóv. voru gefin saman í hjóna
band í Akureyrarkirkju brúð
hjónin ungfrú Sigríður Gísla-
dóttir og Ragnar Halls Halls-
son. Heimili þeirra er í Ása-
byggð 15, Akureyri.
Ennfremur 7. nóv. brúð-
hjónin ungfrú Sigurbjörg
Stella Einarsdóttir og Páll
Þorsteinsson ketil- og plötu-
smiður. Heimili þeirra er að
Norðurgötu 33, Akureyri.
Og brúðhjónin ungfrú
Soffía Sævarsdóttir hár*
greiðsludama og Helgi Vil-
berg Hermannsson nemandi í
Handíða- og myndlistaskólan-
um. Heimili þeirra er að
Skarðshlíð 25, Akureyri.
FRÁ Þingeyingafélaginu á Ak-
ureyri. Annað spilakvöld fé-
lagsins verður laugardaginn
13. nóv. n. k. í Alþýðuhúsinu.
Hefst kl. 8.30. Góð verðlaun.
Skemmtiatriði. Verið velkom
in. — Nefndin.
ÁHEIT á Munkaþverárkirkju:
N. N. kr. 200, öldruð kona kr.
200, ónefndur kr. 200, N. N.
kr. 200, ónefndur kr. 1.200,
G. F. kr. 200. — Beztu þakkir.
— Sóknarnefndin.
NÁMSKEIÐ í teikningu og með
ferð lita og ljósmyndanám-
skeið auglýst í blaðinu í dag.
„Opið hús“ í Hvammi öll mið
vikudagskvöld kl. 8—10 e. h.
— Æskulýðsráð Akureyrar.
LIONSKLÚBBUR
m i^AKUREYRAR
PAKISTANSOFNUNIN: Anna
S. Björnsdóttir, Guðrún Jóns-
dóttir og Björn Jónsson kr.
3.000, I. G. kr. 1.000, ágóði af
hlutaveltu, sem þau héldu
Erla Hrönn Aðalgeirsdóttir,
Inga Garðarsdóttir, Krist-
björg Steingrímsdóttir og Jó-
hannes Steingrímsson kr. 837,
Helgi Garðarsson kr. 1.000,
ónefnd kona kr. 500, H. K. kr.
1.000, N. N. kr. 200. — Gef-
endum færi ég öllum beztu
þakkir. — Birgir Snæbjörns-
Fundur í Sjálfstæðishús
inu fimmtudaginn 11.
nóv. kl. 12 á hádegi.
HLUTAVELTA. Kvennadeild
Slysavarnafélagsins heldur
hlutaveltu í Alþýðuhúsinu
sunnudaginn 14. nóv.' kl. 4.
Margt ágætra muna. —
Nefndin.
ÞRAUTGOÐIR A
RAUNASTUND
SÖFNUN og áheit. Pakistan-
söfnunin: N. N. kr. 1.000, K. J.
kr. 1.000, Svavar og Helga kr.
1.000. — Áheit á Akureyrar-
kirkju kr. 1.500 frá sjómanni.
— Áheit á Strandarkirkju kr.
1.000 frá H. J. — Beztu þakk-
ir. — Birgir Snæbjörnsson.
P AKISTANSÖFNUNIN: Frá
gamalli konu kr. 100, frá Guð-
mundi og Steinunni Grímsey
kr. 3.000, frá Sigríði Jónsdótt-
ur Hóli kr. 500, frá Guðnýju
Sigurðardóttur kr. 200, frá
A. B. J. kr. 1.500. — Til
Strandarkirkju frá gamalli
konu kr. 100. — Beztu þakkir.
— Pétur Sigurgeirsson.
ÞRIÐJA bindi hins ágæta rit-
verks „Þrautgóðir á rauna-
stund“ kemur á markaðinn á
næstunni. Stærsti kafli bókar-
innar er lýsing á björgunar-
afrekinu við Látrabjarg í des.
1947, eftir frásögn björgunar-
leiðangursmanna og skipbrots-
manna sjálfra.
Þeir sem kynnu að hafa hug
á að eignast þessar fróðlegu
bækur, eitt bindi eða öll þrjú,
geta fengið ritverkið á bók-
hlöðuverði ef þeir gerast áskrif-
endur fljótlega.
Nánari upplýsingar og
áskriftamóttöku veitir Sesselja
Eldjárn, Þingvallastræti 10, Ak.,
sími 1-12-47, og mun hún einnig
taka á móti áskriftum. □
I Gleðjið með gjöf frá gullsmi!
★★★ SKRAUTVÖRUR ÚR GULLI OG SILFRI í fjölbreyttara úrvalí
en nokkru sinni fyrr.
★★★ BORBÚNAÐUR ÚR SILFRI OG SILFURPLETTI.
★★★ SKÁLAR OG FÖT ÚR „ELOXERUÐU“ ÁLI - sex litir.
★★★ MYNDARAMMAR — margar stærðir og rnargir litir.
★★★ BORÐ- OG VASAKVEIKJARAR með „elektroniskri“ kveikju -
(engir steinar).
★★★ TRÚLOFUNARHRINGAR - margar gerðir.
GULLSMIÐIR SIGTRYGGUR og PÉTUR
Brekkugötu 5 — sími 1-15-24.
I.