Dagur - 23.02.1972, Qupperneq 5
4
5
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Símar 1-11-66 og 1-11-67
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓHANN K. SIGURÐSSON
Prentverk Odds Björnssonar h.f.
Samvinnuhreyfingin
EINKALEYFI til að verzla við Is-
land, gekk kaupum og sölum erlend-
is. Verzlun við landið var einokun
og arðrán um aldir. Þáttur í sjálf-
stæðisbaráttu Jóns Sigurðssonar og
samherja lians var afnám verzlunar-
einokunar. Landsmenn gerðu til-
raunir til að taka verzlunina í sínar
hendur, en þær mistókust þar til
Þingeyingar stofnuðu fyrsta kaup-
félag landsins á Þverá í Laxárdal, en
þar voru að verki fimmtán bændur
úr víðlendu héraði, kjörnir fulltrúar
úr fimm hreppum. Stofnfundurinn
var 20. febrúar 1882, lög fyrsta kaup-
félags landsins, Kaupfélags Þingey-
inga, samþykkt og í fyrstu stjóm þess
kjörnir: Jakob Hálfdánarson, form.,
Jón Sigurðsson alþm. og Benedikt
Kristjánsson. Hart árferði og harðir
verzlunarkostir knúðu menn til að-
gerða. Félagshyggja, góð menntun og
manndómur gaf þeim baráttuþrek
og samtakamátt til að liazla sam-
vinnustefnunni völl og ganga í farar-
broddi undir merki hennar á meðan
fólk í öðrum byggðarlögum og lands
hlutum fór að dæmi þeirra og tók
verzlunarmálin í eigin hendur.
En 20 árum síðar höfðu Þingey-
ingar einnig forystu um stofnun Sam
bands íslenzkra samvinnufélaga, 20.
febrúar 1902, í Yztafelli í Köldu-
kinn. Samvinnulireyfingin, sem nú
minnist tveggja merkra afmæla, á
ríkan þátt í íslenzkri sögu. Þessi fé-
lagsmálahreyfing hefur átt meiri
þátt í bættum hag almennings en
nokkur önnur. Hún hefur stuðlað
meira að jafnvægi í byggð landsins
en nokkurt annað þjóðfélagsafl, því
að eignir samvinnufélaga og fjár-
munir eru bundnir viðskiptasvæð-
inu, gagnstætt öðrum verzlunarfonn-
urn. Og samvinnufélögin hafa frá
fyrstu tíð verið einskonar félagsmála
skóli, jafnframt því að vera það afl
fólksins, sem sameiginlega getur lyft
Grettistökum á braut framfara, sem
einstaklingum er ofvaxið.
Samband islenzkra samvinnu-
félaga er nú orðið ein af meginstoð-
um íslenzkrar þjóðfélagsbyggingar,
með aðalstöðvar sínar í höfuðborg-
inni. Þetta er samband 50 kaupfélaga
um land allt, sem telja 33—34 þús.
félaga. Forystumenn Sambandsins
hafa löngum verið sóttir norður,
fyrsti stjómarformaður var Pétur á
Gautlöndum, þá Steingrímur Jóns-
son, Ólafur Briem, Ingólfur Bjarna-
son, Einar Árnason, Sigurður Krist-
insson og nú Jakob Frímannsson. En
framkvæmdastjórar: Hallgrímur og
Sigurður Kristinssynir, Vilhjáhnur
Þór og nú Erlendur Einarsson. □
Heildarvelía Kaupfélags Eyfiriinga var
FÉLAGSRÁÐSFUNDUR Kaup
félags Eyfirðinga var haldinn á
miðvikudaginn, 16. febrúar. Þar
eiga sæti um fimmtíu manns,
fulltrúar frá hinum 24 félags-
deildum á félagssvæðinu, auk
stjórnar KEA og framkvæmda-
stjóra þess. En félagar í kaup-
félaginu eru nær sex þúsund
manns.
Félagsráðsfundurinn var hald
inn á Hótel KEA og var vel
sóttur að vanda.
Brynjólfur Sveinsson stjórnar
formaður KEA setti fundinn.
Fundarstjóri var Arnsteinn
Stefánsson, en fundarritari Arn
grímur Bjarnason.
Valur Arnþórsson kaupfélags
stjóri flutti síðan skýrslu yfir
rekstur KEA síðasta ár, eins og
venja er á félagsráðsfundum,
um fjárhag þess, framkvæmdir
og framtíðarverkefni. Var
skýrslan mjög greinargóð og
fróðleg, en niðurstöðutölur
reikninga ekki endanlegar á
þessu stigi.
Þetta yfirlit var hið fyrsta,
er nýr kaupfélagsstjóri, Valur
Arnþórsson, flytur félagsráðs-
mönnum, en fyrri kaupfélags-
stjóri, Jakob Frímannsson, sat
nú á áheyrendabekk, en kaup-
félagsstjóraskiptin fóru form-
lega fram í vor, er síðasti aðal-
fundur kaupfélagsins var hald-
inn.
Kaupfélagsstjóri sagði, að
heildarvelta KEA hefði nú í
fyrsta sinn farið yfir tvo millj-
arða króna.
Framleiðsla sauðfjárafurða
hefði aðeins dregizt saman, en
mjólkurframleiðslan því nær
staðið í stað. Hjá verksmiðjun-
um, að tveim undanteknum,
hefði framleiðsluaukningin ver-
ið veruleg. Sala sjávarafurða
hefði gengið mjög greiðlega á
árinu og 'birgðir mjólkurafurða
minnkað mjög mikið.
Vörusalan í búðum félagsins
og útibúum við fjörðinn hefði
enn aukizt verulega og náð rösk
um 620 milljónum króna, sem
er 22% hækkun frá fyrra ári,
Arngrímur Bjarnason, fulltrúi
kaupfélagsstjóra.
Kristján Ólafsson, nýr kaup-
félagsstjóri á Dalvík.
en sala verksmiðjanna og ýmsra
þjónustufyrirtækja hefði aukizt
meira, eða um 27%, en heildar-
sala þeirra varð 392 milljónir
króna.
Ovarlegt er, sagði kaupfélags-
A félagsráðsfundi KEA.
stjórinn, að gera ráð fyrir aukn-
um hagnaði af rekstrinum, þar
sem launakostnaður hefur auk-
izt mjög á árinu.
Innlögð mjólk nam 20.4 millj.
ltr. Seld voru 350 tonn smjörs
frá landinu til Sviss og voru
smjörbirgðir KEA um áramótin
ekki nema 158 tonn.
í sláturhúsum félagsins var
lógað 42.800 kindum. Kjötmagn
ið varð nær 10% minna en
haustið áður en meðalvigt dilka
varð hærri, eða 14.4 kg.
Sala Kjötiðnaðarstöðvarinnar
varð 94 milljónir króna og' hefur
aukizt mjög. Hráefnisskortur er
þar framundan.
Af kartöflum hefur KEA tek-
ið á móti nær 2.200 tunnum.
Freðfiskur, unninn í Hrísey
og Dalvík, var nær 2 þús. tonn,
en saltfiskur frá Hrísey, Ár-
skógsströnd, Grenivík, Gríms-
ey, Hjalteyri og Akureyri var
rúm 400 tonn. Hrogn frá sömu
stöðum voru 733 tunnur.
Fjárfesting KEA á árinu 1971
var um 60 milljónir króna skv.
bráðabirgðauppgjöri. Mun það
vera meiri fjárfesting en á
nokkru öðru starfsári. Meðal
framkvæmda og endurnýjunar
er bygging við Hafnarstræti,
stórgripasláturhús, það full-
komnasta á landinu, ketilhús á
Oddeyri, settar upp frysti- og
flökunarvélar í frystihúsunum á
Dalvík og Hríseé, fjórða hæð
verzlunarhúss við Glerárgötu
36 var innréttuð, bifreiðakaup
til vöruflutninga, keyptar vélar
og tæki í Mjólkursamlag, Kjöt-
iðnaðarstöð og Nýlenduvöru-
deild, keypt húseign við Glerár-
götu vegna Sjafnar og korn-
kvörn til væntanlegrar fóður-
blöndunarstöðvar.
Verklegar framkvæmdir eru
margar á dagskrá, sumar nýjar
en aðrar í framhaldi af því, sem
verið er að vinna að.
Kaupfélagsstjórinn ræddi ítar
lega um tvær stórframkvæmdir,
er stæðu fyrir dyrum, en erfitt
myndi reynast, fjárhagslega, að
framkvæma samtímis. Onnur er
bygging nýrrar mjólkurstöðvar,
sem hafin var fyrir nokkrum
árum en ekki var unnt að fjár-
magna í tíð fyrrverandi stjórn-
arvalda. Hin framkvæmdin er
endurbygging sauðfjárslátur-
húss eða húsa, samkvæmt end-
urteknum og auknum kröfum
þar um, frá erlendum aðilum,
er kindakjöt kaupa hér á landi.
Útlit sé fyrir, að búið sé að ráð-
stafa stofnfjárlánum til slátur-
hússbygginga 4—5 ór fram í tím
ann, og því hafi stjórn KEA
fallizt á þá tillögu kaupfélags-
stjóra, að leggja höfuðáherzlu á
byggingu nýrrar mjólkurstöðv-
ar. Minni framkvæmd er ný
fóðurblöndunarstöð, sem vænt-
anlega tekur til starfa á Odd-
eyri á árinu og verður sérstök
deild í umsjá Ásgeirs Halldórs-
sonar.
Þá sagði kaupfélagsstjórinn
FJÓRÐUNGSSAMBAND Norð
lendinga og Alþýðusamband
Norðurlands hafa ákveðið að
efna til ráðstefnu um atvinnu-
mál á Norðurlandi, sem haldin
verður í Landsbankasalnum á
Akureyri 11. og 12. marz n. k.
Megin viðfangsefni ráðstefn-
unnar verða málefni sjávarút-
vegs og fiskiðnaðar, ennfremur
verður rætt um almenna iðn-
þróun á Norðurlandi og sér í
lagi úrvinnslugreinar iðnaðar.
Til ráðstefnunnar verða boð-
aðir fulltrúar sveitarstjórna, at-
vinnumálanefnda og verkalýðs-
félaga. Jafnframt er þess óskað,
að fyrir ráðstefnuna verði lögð
fram greinargerð um atvinnu-
ástandið, og um framtíðarúrræði
frá þeim sveitarfélögum, þar
sem íbúarnir hafa aðalatvinnu
af iðnaði og sjávarútvegi, sem
gæti orðið til grundvallar um
framtíðarstefnuna í atvinnumál-
um Norðurlands.
frá óskum 120 fjölskyldna á
Siglufirði, um að KEA stofni
þar útibú. Kaupfélag Siglfirð-
inga varð gjaldþrota 1970, sem
kunnugt er. En KEA og Kaup-
félag' Skagfirðinga hafa haft þar
mjólkursölu, og frá 1970 al-
menna matvörusölu.
Enn minntist Valur Arnþórs-
son kaupfélagsstjóri á, að full-
trúi kaupfélagsstjóra hefði ver-
ið ráðinn Arngrímur Bjarnason,
en í hans stað sem skrifstofu-
stjóri Finnbogi Jónassori. Þá
Á ráðstefnunni verða flutt
framsöguerindi um eftirfarandi
efni: Björn Jónsson, formaður
Alþýðusambands Norðurlands,
ræðir um verkalýðshreyfinguna
og atvinnumálin. Hilmar Daní-
elsson, sveilarstjóri á Dalvík,
ræðir um sveitarfélögin og norð
lenzka atvinnuþróun. Ragnar
Arnalds, formáður stjórnar
Framkvæmdastofnunar ríkisins,
ræðir um hlutverk og megin-
stefnu stofnunarinnar. Ingvar
Hallgrímsson, forstjóri Hafrann
sóknarstofnunarinnar, ræðir um
hafrannsóknir og fiskileit. Um
þróun útgerðar á Norðurlandi
ræðir Vilhelm Þorsteinsson, for-
stjóri Útgerðarfélags Akureyr-
inga, og um stöðu fiskiðnaðarins
á Norðurlandi ræðir Marteinn
Friðriksson á Sauðárkróki.
Framkvæmdastjóri Iðnbróunar-
stofnunarinnar, Sveinn Bjöfns-
son, ræðir um iðnþróun og upp-
byggingu iðnaðar. Jón Reynir
(Ljósm.: E. D.)
irS á s. L ári
hefði Kristján Ólafsson verið
ráðinn til að veita forstöðu úti-
búi KEA á Dalvík, í stað Bald-
vins Jóhannssonar, sem lét af
því starfi vegna aldurs.
Um þessi málefni og raunar
miklu fleiri, snerust svo umræð
ur að framsöguerindi kaup-
félagsstjóra loknu og stóðu þær
lengi dag's og voru hinar fróð-
legustu. ' □
Trygginga-
handbókin
ÞAÐ er alkunn staðreynd að
löggjöfin um almannatrygging-
ar er mjög margbrotin, enda ná
bætur almannatrygginga yfir
vítt svið. Þess finnst fjöldi
dæma að þeir, sem hvað mesta
þörf hafa fyrir þá víðtæku þjóð-
félagsáðstoð, sem felst í al-
mannatryggingum, gera sér
minnsta grein fyrir réttindum
sínum. Nú er komin út bók, sem
ætlað er að leysa þennan vanda
borgaranna. Nefnist hún Trygg-
ingahandbókin og er tekin sam-
an af Gunnari G. Schram, en
hann hafði áður tekið saman
Lögfræðihandbókina, sem hlot-
ið hefur miklar vinsældir hjá
almenningi.
Fólk gerir sér ekki ætíð grein
fyrir hvaða réttindi það á sam-
kvæmt almannatryggingum.
Hvenær ber að greiða því bæt-
ur, ef það slasasí eða veikist og
hvenær ekki.
Þetta er í fyrsta sinn sem slík
bók er gefin út hér á landi. Hún
er gagnleg hvéí'ju heimili og
mætti nota sem kennslubók í
skólum landsins.
Höfundur bókarinnar er
Gunnar G. Schram, en hann
lauk doktorsprófi í þjóðarétti
frá háskólanum i Cambridge
árið 1961 og starfar nú sem þjóð
réttarfræðingur utanríkisráðu-
neytisins.
Höfundur getur þess, að við
samantekt bókarinnar hafi
hann notið liðsinnis Sigurðar
Ingimundarsonar, forstjóra
Tryggingastofnunar ríkisins, og
Bjarna Þórðarsonar, fram-
kvæmdastjóra Sambands ís-
lenzkra tryggingafélaga.
Tryggingahandbókin er prent
uð í Prentsmiðjunni Eddu h.f.
Káputeikningu gerði Hilmar
Helgason hjá Auglýsingastofu
Gísli B. Björnssonar. □
Magnússon, framkvæmdastjóri
Síldarverksmiðja ríkisins, ræðir
um úrvinnsluiðnað, einkum mat
vælaiðnað.
Til ráðstefnunnar eru einnig
boðaðir alþingismenn úr Norður
landi pg forstjórar Fram-
kvæmdastofnunarinnar með
málfrelsi og tillögurétt.
-Ráðstefna þessi ex undirbúin
af samstarfsnefnd Alþýðusam-
bandsins og F.jórðungssambands
ins„ í nefndinni eiga sæti:
Tryggvi Helgason, Akureyri,
Jón Karlsson, Sauðárkróki, og
Óskar Garibaldason frá Alþýðu-
sambandi Norðurlands, en frá
Fjórðungssambandi Norðlend-
inga þeir Jóhann G. Möller,
Siglufirði, Stefán Reykjalín,
Akureyri, og Páll Árnason,
Raufarhöfn. Með samstarfs-
nefndinni hefur starfað Áskell
Einarsson, framkvæmdastjóri
Fjórðungssambands Norðlend-
inga. □
SVAR MENNTAMÁLARÁÐHERRA:
T ækniskóliim verður
ekki fluttur norður!
í FYRRI viku var til umræðu í
sameinuðu þingi fyrirspurn frá
tveimur þingmönnum Norðlend
inga, Ingvari Gíslasyni og Lár-
usi Jónssyni, varðandi Tækni-
skóla íslands. Fyrirspurninni
var beint til menntamálaráð-
herra, og hljóðaði hún þannig:
1. Má vænta þess, að Tækni-
skóli íslands, sem nú starfar í
Reykjavík, verði fluttur til Ak-
ureyrar?
2. Ef svo er ekki, hvað mælir
þá gegn því?
Ingvar Gíslason fylgdi fyrir-
spurninni úr hlaði með stuttri
ræðu og lagði einkum áherzlu á
tvö atriði. Annars vegar þá stað
reynd, að Tækniskóli íslands í
Reykjavík býr við ófullkomið
húsnæði, svo að nauðsyn ber til
að reisa hús yfir starfsemi hans.
Hins vegar, að hreyfing væri
uppi norðanlands um þá stefnu
að flytja bæri Tækniskólann til
Akureyrar. Benti framsögumað-
ur á í því sambandi ítrekaðar
ályktanir Fjórðungsþings Norð-
lendinga og bæjarstjórnar Akur
eyrar. Ingvar Gíslason kvaðst
telja, að aðalatriði þessa máls
væri nauðsyn á að vinna skipu-
lega að því að dreifa ríkisstofn-
unum, ekki sízt mennta- og
menningarstofnunum um landið
í stað þess að þjappa öllu slíku
saman í Reykjavík. Nú beri að
nota tækifærið að flytja Tækni-
skólann til Akureyrar.
Lárus Jónsson og Gísli Guð-
mundsson tóku mjög í sama
streng.
Menntamálaráðherra, Magnús
Torfi Ólafsson, svaraði fyrir-
spurninni og sagði, að engar
fyrirætlanir væru uppi um flutn
ing Tækniskólans frá Reykja-
vík. Færði ráðherrann fram
þær ástæður helztar, að kenn-
araskortur og skortur rann-
sóknarstofnana myndi há skóla-
starfinu á Akureyri. Auk þess
væri eðlilegra, eins og málum
væri háttað, að gefa Tækniskól-
anum í Reykjavík færi á því að
þróast þar sem hann væri nú
staðsettur. Hins vegar vildi
menntamálaráðherra minna á,
að lagaheimild væri fyrir stofn-
un sérstaks tækniskóla á Akur-
eyri. Kvaðst hann telja rétt, að
þeirrar heimildar yrði neytt,
þegar aðstæður leyfðu. Þá
minnti ráðherra á, að fyrir efri
deild Alþingis lægi frumvarp til
laga um Tækniskóla íslands.
Þar væri gert ráð fyrir, að skól-
inn starfaði í Reykjavík.
Ingvar Gíslason kvaðst harma
þessa ákvörðun ríkisstjórnar-
innar og lýsti yfir andstöðu
sinni við frumvarpið. Hann
kvað augljóst, að langt yrði að
bíða þess, að tveir tækniskólar
risu á íslandi. Biðin eftir sjálf-
stæðum tækniskóla á Akureyri
yrði því löng. □
Aðalfundur K. Þ. á Húsavík
(Framhald af blaðsíðu 1).
Úr félagsstjórn áttu að ganga
Úlfur Indriðason og Illugi Jóns-
son og voru báðir endurkjörnir.
Fulltrúar á aðalfund SÍS voru
kjörnir Teitur Björnsson, Hauk
ur Logason, Úlfur Indriðason,
Jóhann Hermannsson og Bald-
vin Baldursson.
Aðalfundurinn var þess hvetj
andi að K. Þ. héldi afsláttar-
kortakerfinu áfram. Samþykkt
var, að endurtaka áskorun sína
um, að Landnám ríkisins byggi
heykögglaverksmiðju í Reykja-
hverfi og fól stjórninni að vinna
að því verki áfram.
Guðmundur Sigurjónsson
deildarstjóri fékk heiðursverð-
laun úr Minningarsjóði Þórhalls
Sigtryggssonár.
Stjórn Menningarsjóðs K. Þ.
gerði að tillögu sinni og aðal-
fundur samþykkti, að af þessari
milljón kr. sem sjóðurinn út-
hlutar nú, fái Bókasafnið hálfa
milljón, en ýmsir aðilar minni
upphæðir.
Þá heiðraði Menningarsjóður-
inn þá Pál H. Jónsson og Egil
Jónasson fyrir framlag til
skemmtunar og menningar-
Aðalfundurinn kaus þá Jón
Gauta Pétursson og Karl Krist-
jánsson heiðursfélaga kaupfé-
lagsins. Og þakkaði Karl heiður
inn með hvatningarræðu.
Tillaga frá Eysteini Sigurðs-
syni, Sigurði Jónssyni, Guð-
mundi Hallgrímssyni og Böðv-
ari Jónssyni, svohljóðandi:
„Aðalfundur K. Þ. haldinn 19.
og 20. febrúar 1972, samþykkir
að fela félagsstjóminni að leggja
fyrir deildafundi, á næsta ári,
þá breytingu við 14. grein í sam
þykktum félagsins, að stjórnar-
menn megi ekki sitja nema 9 ár
í einu í stjórn.“ Samþykkt var
að leggja breytinguna fyrir
næsta aðalfund.
Mikið var um skemmtanir.
Hagyrðingar létu mikið að sér
kveða, að venju. Að kvöldi
beggja fundardaganna voru sam
komur til að minnast afmælis-
ins, og hið fyrra kvöldið tvær
samkomur. Þá var m. a. leikið
leikrit Páls H. Jónssonar: ísana
leysir, og er það um stofnun
kaupfélagsins. Leikstjóri var
Sigurður Hallmarsson. Aðal-
afmælissamkoman var á sunnu
dagskvöldið, 20. febrúar. Henni
stjórnaði Finnur Kristjánsson.
Þar fluttu ávörp: Úlfur Indriða-
son, Björn Friðfinnsson og
Andrés Kristjánsson. Karlakór-
inn Þrymur söng og svo var
mikill vísnaþáttur. □
Ársril Ræktunarfélagsins
ÁRSRIT Ræktunarfélags Norð-
urlands, sem Jóhannes Sigvalda
son ritstýrir, er komið út, 140
síður og flytur margan fróðleik
um landbúnað, og náttúrufræði.
Fyrstu grein ritsins skrifar
Árni G. Eylands og heitir hún:
Niður í moldina með hann, og
fjallar hún um húsdýraáburð-
inn og notkun hans. Óttar Geirs
son ritar um tilraunir með sáð-
skipti og einvinnslu jarðvegs,
Sveinn Hallgrímsson ritar um
sauðfé, Bjarni E. Guðleifsson
um kal og kalrannsóknir, Helgi
Hallgrímsson um bláþörunga og
vinnslu þeirra á köfnunarefni
úr lofti, Stefán Aðalsteinsson
um rannsóknastarfsemi land-
búnaðarins, Ingólfur Davíðsson
um skógarleifar á Árskógs-
strönd, Þórarinn Lárusson um
starf sitt og Jóhannes Sigvalda-
son birtir einnig sína starfs-
skýrslu. □
Krisfín Þuríður Jónsdóffir
Fædd, 8 nóv. 1906. Dáin, 24 jan. 1972.
KVEÐJUORÐ
ÞÁ ER vinir kveðja, finnum við
bezt hvers virði þeir voru okk-
ur og samtíðinni. Með Þuríði
hefur bærinn misst •einstakling,
er á hann setti sterkari svip en
meðalmennskan ein gerir. Hún
varð aldrei áhrifakona í bæjar-
málum eða málþingum, en sér-
stæður persónuleiki og með
afbrigðum vinsæl.
Þuríður fæddist í Ærlækjar-
seli í Norður-Þingeyjarsýslu,
dóttir hjónanna Sigurveigar Sig
urðardóttur, Gunnlaugssonar
bónda í Skógum, og Jóns Jóns-
sonar Gauta, sem var brautryðj
andi að stofnun Kaupfélags
Norður-Þingeyinga, fyrsti for-
maður þess og framkvæmda-
stjóri. Hann var. dóttursonur
séra Jóns Þorsteinssonar frá
Reykjahlíð, en fró honum er
rakin hin þekkta Reykjahlíðar-
ætt.
Þegar Þuríður var þriggja ára
fluttist hún, ásamt fjölskyldu
sinni, að Héðinshöfða á Tjör-
nesi, en ellefu árum síðar varð
Ærlækjarsel aftur heimili henn-
ar. í foreldrahúsum kynntist
hún samvinnuhugsjóninni, sem
þá var í mótun hérlendis, eink-
anlega í Þingeyjarsýslum, og
hefur án efa átt sinn þátt í, að
þeir Þingeyingar urðu þekktir
Frá Skákfélagi Ak.
Á SKÁKÞINGI Akureyrar, sem
nú er nýlokið, varð Júlíus Boga
son sigurvergari og hlaut því
titilinn Skákmeistari Akureyrar
1972. Hlaut Júlíus 8% vinning
af 11 mögulegum, í öðru sæti
varð Kristinn Jónsson með 7!£
v. og í þriðja sæti Jón Björg-
vinsson með 7 v.
í I. flokki voru einnig tefldar
11 umferðir og urðu þar efstir
og jafnir Tryggvi Pálsson og
Sveinbjörn Sigurðsson með 8 v.
hvor, og í þriðja sæti Hólmgrím
ur Heiðreksson með 7 v.
Hraðskákmeistari Akureyrar
1972 varð Jón Björgvinsson.
Hlaut hann 21v. af 24 mögu-
legum, í öðru sæti varð Gunp-
laugur Guðmundsson með 21 v.,
og í þriðja sæti Hrafn Arnarson
með 18 Vz v.
Um næstu helgi eigurtl við
von á Timman, hollenzka skák-
meistaranum, sem teflir nú á
Reykjavíkurskákmótinu, hingað
norður til að tefla fjöltefli og
klukkuskák. Er það nánar aug-
lýst í blaðinu og vonumst við
til að menn verði álatir að mæta
honum.
Þá er ákveðið að Skákþing
Norðlendinga hefjist laugardag-
inn 11. marz og væri ánægju-
legt að sjá fleiri aðkomumenn á
mótinu en verið hefur nú undan
farin ár. Q
i
er þar voru í fararbroddi og
ruddu veginn. Ung að árum
varð hún því vitni að harðri og:
tvísýnni félagsmálabaráttu og;
er mér nær að halda, að það
hafi átt sinn þátt í að móta skof
anir hennar á samskiptum fólkí
og ef til vill ýtt undir metnaf
til þess að duga og reynast öðr-
um svo sem kostur var. Um það
bar vitni heimili hennar og
Skarphéðins, því það stóð ætíð
opið vinum, vandamönnum og
jafnvel ókunnugum, er voru :
þörf fyrir aðstoð og fyrir ■
greiðslu. Var þá ekkert til spar
að að veita svo sem efni framasi;
leyfðu og aldrei ætlast til endu
gjalds.
Þuríður hafði ætíð mjög sterk
ar tilfinningar til æskustöð\ ■
anna, og sagði við mig, vio
fyrstu kynni, að sér finndist ég
skyldari en flestir aðrir, sökun
þess eins, að hafa átt til bernsku
leikja sama varpann, fiskas.eii
inn og hólinn, er voru henni :
minningunum heilagt land.
Oft fann ég hana þjást meí’
þeim, er hart voru leiknir í líf •
inu, og ætíð var hendin þá fran
rétt til hjálpar, ef væri það á
hennar valdi. Snörustu þættirr ■
ir í skapgerðinni fundust mé;
þó ætíð lífsgleðin og viljakraft •
urinn. Hún tók mjög ákveðní
afstöðu til mála og fylgdi skor'
inort eftir. Mislíkaði henni, va::
stutt í afgerandi og greinargoti
álit með góðum huga að baki,
en orðavalið og framsetningii'.
mótuðust af stórhug þess, er
þorir að hafa skoðun og verjé.
hana. Því gátu flestir tekið þát;
í léttum hlátri, er oft fylgdi á
eftir snörpum orðum.
„Mig skortir, að geta tekic'
öllu með ró“, sagði hún stund-
um við mig. „En Skarphéðinr?.
haggast aldrei“. Þessar sétrnng-
ar segja okkur, er til þekkjun.
mikið. Lífið færði Þuríði éins
og flestum erfið tímabil mec'
veikindum og ástvinamissi. Þá
var gott að styðjast við þann, e:
miðlað gat styrk og hugarró.
Þuríður var kvödd síðast;;
dag janúarmánaðar, en eftir
standa bjartar minningar un;
mikilhæfa og fórnfúsa samferða
konu. Ég og f jölskylda mín senci
um eiginmanni, syni og öðrum
vandamönnum samúðarkveðj-
ur.
Indriði Úlfsscn,
X I
Hinzta kveðja
MEÐ þessum fáu línum lang&'?
mig til að þakka þér elsku
Gerða mín allar okkar samveru
stundir. Börnin mín þrjú þakka
þér einnig alla þá umhyggju-
semi og alúð er þú ávallt sýndir
þeim. Minningin um þig, svo
björt og fögur mun lifa í hug-
um okkar allra.
Ég kveð þig með söknuði
saklausa fljóo
og sendi þér kveðju frá
þessum hein. l
þú varst svo yndisleg einlæg
og góö
almáttugur Guð þig í faðmi
sér geymi,
Svanhiklur,