Dagur - 26.02.1972, Blaðsíða 7
7
NORDURLANDAFERÐ F.F.N.E.
í JÚNÍ NÆSTKOMANDI: AðSÍHS Öfíá S30ÍÍ IðliS.
HAFIÐ SAMBAND VIÐ SKRIFSTOFUNA, HAFNARSTRÆTI 90, SEM FYRST FFNE
Tilkynning
til frainleiðenda og innflytjenda
vörugjaldsskyldrar vöru.
Geíin liefur verið út regl.úgerð nr. 15. 11. febrúar
1972. .um vörugjald, samkvænn heimild í lögurn
nr. 97/1971. Um leið og framleiðendum og inn-
flytjendum vörugjaídsskyldrar vöru er bent á að
kynna sér efni reglugerðarinnar, skal vakin sér-
stök -athygli á eftirfarandi.
1. Ákvæðum 3. gr. reglugerðarinnar um tilkynn-
ingarskyldu framleiðenda til tollstjóra varð-
andi framleiðsluvörur.
2. Akvæðum 11. gr. reglugerðarinnar urn gerð
og auðkenni vörureikninga frá framleiðend-
ium yfir gjaldskyldar vorur.
3. Ákveðið hefur verið, að eftirlit með auð-
kenndum vörureikningum framleiðenda og
innflytjenda, sbr. 11. gr. réglugerðarinnar,
verði í höndtim tollstjórans í Reykjavík fyrir
allt landið.
FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ,
18. febrúar 1672.
Landhefgin 50 sjómílur l.sepl.
Bfetum og V-Þjóðverjum tilkynnt ákvörðunin
(Framhald af blaðsíðu 1)
Fréttatilkynning ráðherra fer
hér á eftir:
„Viðræður hafa farið fram
milli ríkisstjórna íslands og
Bretlands í því skyni að finna
liagfellda lausn á vandamáluni
brezkrar togaraútgerðar jafn-
framt því, að tryggðir séu lífs-
liagsmunir íslenzku þjóðarinn-
ar. Afstaða ríkisstjórnar Islands
hefir komið fram við ýmis tæki
færi og skal þá sérstaklega vísað
til greinargerðarinnar frá 31. ág.
1971 til brezka sendiráðsins og
ræðu utanríkisráðherra íslands
hinn 29. september 1971 í hinum
almennu umræðum á allslierj-
arþingi Sameinuðu þjóðanna,
sbr. hjálagt fylgiskjal. Þeim sjón
armiðum, sem Iiggja til grund-
vallar þeirri ákvörðun ríkis-
stjórnar fslands að gefa út nýja
reglugerð varðandi fiskveiðitak-
mörk á landgrunnssvæðinu, er
lýst í hjálagðri greinargerð,
„Fiskveiðilögsaga fslands“, dags.
febrúar 1972.
Jafnframt því að árétta öll
þessi sjónarmið, vill ríkisstjórn
fslands nú taka fram eftirfar-
andi:
f greinargerðinni frá 31. ágúst
1971 var frá því skýrt, „að í því
skyni að efla verndarráðstafan-
ir, scm nauðsynlegar eru til að
tryggja lífshagsmuni íslenku
þjóðarinnar á liafinu umhverfis
landið, telur ríkisstjórn íslands
nú nauðsyn bera til að færa út
fiskveiðitakmörk fslands þann-
ig, að þau nái yfir hafsvæði land
grunnsins“. Þar var einnig sagt,
að ríkisstjórn fslands væri þeirr
ar skoðunar, að nú hafi verið
náð að fullu tilgangi og mark-
miði ákvæða orðsendinganna
frá 1961 um að vísa tilteknum
ágreiningsatriðum til dómsúr-
lausnar. Ríkisstjórn fslands tel-
ur því, að ákvæði orðsending-
anna eigi ekki lengur við og að
íslendingar séu þess vegna ekki
bundnir af þeim.
Ríkisstjórn fslands hefir því
ákveðið að gefa út nýja reglu-
gerð um 50 mílna fiskveiðitak-
mörk frá núgildandi grunnlín-
um umhverfis fsland og að hún
komi til framkvæmda hinn 1.
september 192, svo sem segir í
ályktun Alþingis, sem sam-
þykkt var samhljóða hinn 15.
febrúar 1972.
Ríkisstjórn fslands vonar, að
viðræður þær, sem nú standa
yfir, muni.svo fljótt sem verða
má Ieiöa til hagfelldrar lausnar
á þeim vandamálum, sem hér er
um að ræða .
Afrit greinargerðar þessarar
verður sent aðalritara Samein-
uðu þjóðanna og ritara Alþjóða-
dómsins". □
GÓÐAR VÖRUR
GOTTVERÐ
KARLMANNA-
SKÓR
Fjölbreytt úrval
Tízkulitir
SÍMI 21400
SKÓDEILD
Tveggja herb. íbúð
óskast frá og með 1. okt.
Uppl. í síma 1-18-95
milli kl. 6.30 og 8.30 e.h.
Karlmaður óskar eftir
rúmgóðu herbergi til
leigu. Reglusemi heitið.
Fyrirframgreiðsla ef ósk-
að er.
Uppl. í síma 1-21-71.
Þrjár stúlkur með kenn-
aramenntun óska eftir
að taka á leigtu 3 herb.
íbúð, með eldhúsi, baði,
aðgang að þvottahúsi og
sér inngangi.
Helzt í útjaðri bæjarins,
frá 20 júlí framm í apríl
næsta ár.
Tilboð leggist inn á af-
greiðslu blaðsins.
Hrærivél (Ballerup) til
söLu. Lítið notuð. Tæki-
færisverð.
Uppl. í síma 1-10-94.
Til sölu einbreiður
SVEFNSÓFI, sófaborð,
snyrtikommóða og tvær
Hansa-hillur með uppi-
stöðurn. •
Uppl. í síma 1-20-81.
H U D S O N
SOKKAR OG SOKKABUXUR
20 og 30 den., 6 stærðir.
Söluumboð á íslandi:
DAVÍÐ S. JÓNSSON og Co. h. f.
Þingholtsstræti 118 Reykjavík.
Sími 91-2-43-33.
í» •
Uiuggatjakla eim
ÞYKK - í næstu viku
VEFNAÐARVÖRUDEILD
ÚTSÖLUNNI lýkur á laugardag -
Nýjar KÁPUR og JERSEYDRAGTIR
á mánudag.
VERZLUN BERNHARÐS LAXDAL
Hús til sölu:
Tilboð óskast í húseignirnar Strandgata 23 og
Lundargata 2, Akureyri. Húseigniinar standa á
eionarlóð osj eru íbúðar- oa. verzlunarlnisnæði.
Tilboðum sé skilað til undirritaðs fyrir 15. marz
n.k., sem veitir allar nánari upplýsingar.
Réttur áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er
eða hafna öllum.
VALDEMAR BALDVINSSON,
Ásveg 27, sími 2-13-31 og 1-16-08 (heima).