Dagur - 25.03.1972, Blaðsíða 8

Dagur - 25.03.1972, Blaðsíða 8
minniiKfiísj r ÁRSSKEMMTUN Oddeyrar- skólans fór fram dagana 9. til 12. marz sl. Skemmtiskráin var : jölbreytt m. a. kórsöngur með undirleik barnahljómsveitar, einsongur, hópsöngur, þjóðdans- ar og margir leikþættir, þ. á. m. 5 atriði úr Skugga-Sveini og nluti af nýju leikriti, er ber nafnið Kúlumaðurinn. Aðsókn að sýningunum var ágóðann í minningarsjóð um mjög mikil og margir urðu frá að hverfa. Var því ákveðið, að SMÁTT & STÓRT Frá vinstri: Sigurgeir Sveinsson, Aðalheiður Ingadóttir og Vífill Valgeirsson komu með peningana. (Ljósm.: E. D.) hafa tvær aukasýningar sl. laug ardag og sunnudag, og gefa Þorgerði Eiríksdóttur, sem lézt af slysförum í vetur úti í London. Á aukasýningunum söfnuðust 16 þúsund krónur, er þrír nemendur úr 6. bekk komu með á skrifstofu blaðsins. □ SAMBANDSFRÉTTIR 'IEILDARSALA verksmiðja og íyrirtækja, sem tilheyra Iðnaðar deild, nam 832.3 millj. kr. árið 1971, samkv. upplýsingum frá Harry Frederiksen farmkv.stj. Er það söluaukning frá árinu 1970 um 146.7 millj. eða 21.4%. 800 mokkapelsar til Finnlands. Þá er nýbúið að ganga frá sölu til Finnlands á 800 mokka- yelsum frá Heklu að verðmæti um 7 millj. kr. Sömuleiðis er unnið að sölu á um 500 pelsum il Þýzkalands, en þessir pelsar eru eins og kunnugt er saumað- ír úr gærum, sem sútaðar eru í ninni nýju sútunarverksmiðju Iðunnar á Akureyri. Vorkaupstefnan fslenzkur fatnaður. Á vorkaupstofnunni fslenzkur fatnaður, sem haldin var í íþróttahúsinu á Seltjarnarnesi dagana 2.—5. marz sl., voru að þessu sinni sýndir skór frá Skó- verksmiðjunni Iðunni og vinnu- fatnaður, unglingabuxur, prjóna íatnaður o. fl. frá Fataverksmiðj unni Heklu. Einar Kjártansson deildar- ítjóri Vefnaðarvörudeildar, sem ser um sölu á verksmiðjuvörun- um, sagði SF, að 40—50 kaup- endur hefðu heimsótt sýningar- íluta deildarinnar, og salan á bessum vörum hefði numið tæp- aukna hagkvæmni við skipu- lagningu á framleiðslunni. FRÁ INNFLUTNINGSDEILD. Byggingarnefni að bei-ast til landsins. Byggingar- og girðingaefni er nú sem óðast að berast til lands- ins, að því er Hjalti Pálsson framkv.stjóri sagði SF. Gert er ráð fyrir, að Mælifell lesti 3.700 teningsmetra af timbri í Finnlandi 7.—11. apríl, og Hvassafell liðlega 600 tonn af girðingarefni í Antwerpen hinn 11. apríl. Líka eru um 160 tonn af svört um og galvaniseruðum vatns- rörur frá Frakklandi þegar kom in til landsins, og 185 tonn eru um 9 millj. kr. Til samanburðar mætti nefna, að á sömu vorkaup stefnu í fyrra hefði deildin selt framleiðsluvörur Heklu og Gefj unar, en þá hefði salan numið 3.6 millj. kn Einar gat þess einnig, að vor- kaupstéfriurnar. ’væru orðnar fastur liður' í sölu iðnaðarvarn- ings hér á landi, sem ætti tví- mælalaust' rétt á sér. Á þeim væri selt fram í tímann, þ. e. til afgreiðslu næsta vor og sumar, sem skapaði verksmiðjunum á leiðinni með Skógafossi. Af 2.000 tonnum af steypustyrktar- stáli, sem pöntuð hafa verið í Tékkóslóvakíu, eru fyrstu 750 tonnin tilbúin þessa dagana og bíða skips. Þá gengur afgreiðsla á Gust- avsberg vörum frá Svíþjóð og spónaplötum frá Noregi mjög vel, og má segja, að þessar vör- ur séu stöðugt landsins. að berast til Þakjárn. Vegna verkfalla í Bretlandi hefur orðið seinkun á afgreiðslu þakjárns þaðan, en það átti að afskipast í marz og apríl. Frá Belgíu kemur töluvert af þak- járni, sem afgreitt verður í júní og júlí. Alls eru í pöntun um 1200 tonn af þakjárni. Hagstæð innkaup á stáli. Hjalti gat þess, að Innflutn- ingsdeild hefði að þessu sinni tekizt að gera mjög hagstæð inn kaup á steypustyrktarstáli. Deildin hefði gert innkaup sín í Tékkóslóvakíu fyrr í vetur, og væri stálið, sem þaðan kæmi, hið ódýrasta, sem nú væri kost- ur á að fá á markaðinum. Steypustyrktarstál hefði og hækkað mjög í verði síðustu vikur og mánuði, eða um 10— 12% á tímabilinu frá því í des- ember. □ Smjörbirgðir litlar UM sl. áramót voru smjörbirgð- ir í landinu 589.7 tonn á móti 1.078.3 tonnum í lok árs 1970. Ostabirgðir í árslok 1971 voru samtals 557.5 tonn á móti 493.5 tonnum í árslok 1970. Samtals voru því birgðir smjörs og osta 1.147.2 tonn í árslok 1971 á móti 1.635.8 tonnum í árslok 1970. í lok febrúar 1972 voru smjör birgðir 40Ö tcmn á móti 949 tonn um á sama tíma 1971 og osta- birgðir voru 510 tonn, en 370 tonn í febrúarlok 1971. Rétt er að geta þess, að ostar þurfa að geymast 1—3 mánuði til þess að verða söluhæfir og þurfa því jafnan að vera fyrir hendi alkniklar, ostabirgðir. Sala smjörs jókst um 37.2% á árinu 1972 og varð um 7.7 kg. á mann. Er það svipuð smjör- neyzla og algeng er í vestræn- um löndum en meira en helm- ingi minni en þar sem mest er. Ostaneyzla jókst um rúm 14%, en er þó enn til muna minni en í flestum nágrannalöndum okk- ar. Ostaneyzlan varð um 5 kg. á mann árið 1971. Upplýsingaþjónusta landbúnaðarins. SANDUR FLUTTUR UM ROR Verkfræðingar í sovétlýðveld- inu Grúsíu hafa fundið upp nýja aðferð við flutning á sandi og öðrum líkum efnum eftir röra- Ieiðslum. Efnið er sett í sérstak- lega þar til gerða geyma, sem eru á hjólum og eru knúnir af þrýstilofti gegn um röraleiðsl- urnar með 30 km. liraða á klst. Að loknum tilraunum hefur nú verið lögð 45 km. löng sand- flutningaröraleiðsla í tengslum við steypustöð nokkra. „Hliðar- spor“ eru til þess, að „lestir“ geti mætzt. — APN SKÓGAR OG GARÐAR MOSKVU Umliverfis Moskvu er skóga- og garðabelti, er nær yfir 275 þús- und liektara. Auk liálfrar ann- arrar milljónar manna, sem búa á þessu svæði, er þarna griða- staður fyrir á aðra milljón manna í frítímum sínum. Á svæðinu eru yfir 300 friðaðir sögustaðir, og eru margir þeirra tengdir lífi og starfi Leníns. Þá eru þarna 35 friðuð náttúru- verndarsvæði, skógar, gróður- svæði, vötn, ár og fuglalífs- svæði, alls um 700 hektarar að stærð. — APN SELJA UNGLINGUM Það vakti athygli þegar samtök bindindismanna gengu á fund forsætisráðherra á dögunum með nokkrar flöskur af áfengi, sem unglingar liöfðu keypt í vín búðum ríkisins, án nokkurrar afgreiðslutregðu. Mun víða pott ur brotinn í þessum efnum, og er sannarlega ekki gott fyrir lögreglumenn að hafa hendur í hári þeirra, er bendlaðir eru við lögbrot í útvegun áfengis handa börnum og unglingum, þegar viðskiptahættir vínbúða eru með þessum hætti. VIÐRÆÐUR FLJÓTLEGA Einar Ágústsson utanríkisráð- herra sagði nýlega á þingfundi, í umræðum um utanríkismál, að ekki myndi líða á löngu þar til viðræður hæfust við stjórn Bandaríkjanna um vamarsamn- inginn og hersetuna. En í tíð „viðreisnar“ var auðvitað ekki farið fram á endurskoðun varn- arsamningsins, fremur en nokk uð væri aðhafst í landhelgis- málinu. Munu því nú orðið flestir landsmenn fylgjandi, að endur- skoðun um hersetuna sé ekki aðeins sjálfsögð, lieldur líka nauðsynleg og þótt fyrr liefði verið. AÐ RÍSA ÚR ÖSKUSTÓNNI Víða um land eru heimili í Vegagerðarmenn fagna iupi | Dalvík 2L marz. Fólki virðist líða mjög vel, svona almennt séð, og á góða veðráttan sinn stóra þátt í því. Naumast er nægt að segja, að hér hafi fallið snjór, þótt norðanátt kæmi sem snöggvast, því að hér er ekki sporrækt, en aðeins grátt í rót. Björgúlfur var að landa 20— 30 tonnum og Björgvin er á veiðum. Loftur Baldvinsson er hættur á loðnu, eftir góða ver- tíð o ger að búa sig á togveiðar. Mun afli hans verða lagður hér á land eftir því sem möguleikar leyfa. Aflabrögð togbátanna hafa verið heldur léleg, og svo má raunar segja um alla fiskibát- ana hérna, að afli þeirra hefur verið fremur lítill, nema þeirra er stunda rauðmaga- og grá- sleppuveiðina. Þar aflast vel, þótt minna sé um talað en oft áður, þegar vart var um annað rætt en grásleppu og grásleppu- hrogn. Minni bátar eru bæði með línu og net, og suma daga reyta þeir nokkuð, þótt í heild sé afl- inn ekki mikill. J. H. BÝGGING 34 krn. vegar, 1700 metra brúa ög 17 krii. grjótgarða á Skeiðarársahdi, á að hefjast eftir páskana. Vegagerðinni á að ljúka 1974 og kosta 500 millj, króna. Þá verður ísland annað land og betra, segja stjórnvitringar, hringvegur kom inn um landið og menn óhrædd- ir við gutlanda í Skeiðarárhlaup um framtíðarinnar. Forsjónin lætur að heitustu óskum vegagerðarmanna, og lof ar Grímsvötnum að brjóta sér leið úr jöklinum og fram í árnar á Skeiðarársandi, svo unnt sé að mæla og reikna hvernig bíla- hættu vegna drykkjuskapar for- eldra eða annarra í fjölskyld- unni. Menn vilja loka augunum fyrir þessu og gera það í lengstu lög, einkum þeir seni bjóða þess ari liættu heim. Þetta er alkunn saga, og sem betur fer rísa einnig margir upp úr ösku- stónni í tæka tíð, liefja sjálfa sig upp úr eynidinni og lijálpa öðrum. Þetta er ekki aðeins virðingarvert, heldur aðdáunar- vert, og ættu allir góðir menn, livort serii þeir eru alveg bind- indismenn eða ekki, að styrkja þetta fólk til dáða og rétta því hjálparhönd. En á þetta er minnt hér, vegna þess, að blaðið hefur fengið af því gleðilegar fregnir úr nágrannabyggð, að björgunarstörf í þessa átt sé í fullum gangi og sýnist bera góð- an árangur. HÁAR TÖLUR Ekki mega menn kippa sér upp við það, þótt háar tölur birtist um eitt og annað frá fjöhnenn- um þjóðumr Þó tala' þær sínu máli engu síður en áðrar tölur og geta vqrið eftirtektarverðar. f Bandaríkjunum eru áfengis sjúklingar níu milljónir talsins. Krufningar sýna, að niikið alko- hol er í blóði annars hvers manns, sem farast í umferðar- slysi, og í blóði þriðja hver$ manns, sem myrtur ér —, þá einatt af öðrum drukknum manni eða mönnum. Þar fyrir utan kostar alkoholismi þjóðina 1500 milljónir dala. AFNOTAGJÖLD HÆKKA Útbúnir hafa verið reikningar fyrir afnotagjöld útvarps og sjónvarps og hækka þau um 10%. Afnotagjald fyrir útvarp verður á ári 1.300 krónur, en fyrir sjónvarp .3.100 krónur. — Gjöld þessi voru áður 1180 og 2800 krónur. Þá hefur verið ákveðin hækk- un auglýsingaverðs útvarps og sjónvarps. I útvarpi hækka aug- lýsingar um 20%, en auglýsinga mínútan í sjónvarpi kostar nú 15 þús. kr.,-en hækkar og kostar 20 þús. kr. tvo síðustu mánuði ársins. vegir verði bezt gerðir á þess- um fræga sandi. í fyrradag rann 50 sinnum meira vatn úr Skeiðarárjökli en í er í Soginu og 120 sinnum meira vatn en í Laxá í S.-Þing, svo að samanburður sé notaður. Gunnar Árnason með refinn. (Ljósm.: E. D.) Ók yfir hvítan ref GUNNAR Árnason bílstjóri á Stefni ók vörubíl sínum á leið til Akureyrar, austan fjarðar, seint á miðvikudagskvöldið og sá þá hvítan ref í ljósgeislanum, skamnat £rá Geldingsárbrú. Var rebbi utan vegar en hljóp upp á veginn, síðan eftir honum spotta korn, þar til hann lenti undir hjólum bílsins og lét þar líf sitt. Þessi refur var feitur og fann- hvítur feldurinn. □

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.