Dagur - 04.04.1973, Blaðsíða 1

Dagur - 04.04.1973, Blaðsíða 1
PK Dagur LVI. árg. — Akureyri, miðvikudaginn 4. apríl 1973 — 15. tölublað Þýzkur veiðifloti á Selvogsbanka í GÆRMORGUN áttu að hefj- ast í Reykjavík samningafundir v.-þýzkra og íslenzkra embættis manna um landhelgisdeiluna. Um hádegi í gær var svo frá því skýrt, að þá um nóttina hefðu 22 v.-þýzkir togarar verið komnir inn á Selvogsbanka til veiða, en það þykir eitt hið grófasta landhelgisbrot á alfrið- uðu hrygningarsvæði. íslenzka utanríkisráðuneytið hafnaði viðræðum þar til land- helgisbrjótarnir væru komnir út fyrir línu, og var fundum frestað. Q Klukkan 2.30 gerðist það svo á miðunum á Selvogsbanka, að togararnir hættu veiðum, senni lega að fyrirskipan þýzkra vald hafa. Og samningafundir munu hafa byrjað um klukkan 4.00. í gærmorgun var skorið á •togvíra 46. veiðiþjófsins á Sel- vogsbanka. Ásiglingartilraunir hinna er- lendu veiðiskapa eru orðnar nær daglegir viðburðir. □ Eyfirzkar kcnur hafa orðið Á SAMEIGINLEGUM fundi stjórnar Sambands eyfirzkra kvenna og formanna kven- félaga innan þess, sem haldinn var á Akureyri fimmtudaginn 29. marz 1973, var samþykkt eftirfarandi ályktun: Við furðum okkur á aðgerð- um Húsmæðrafélags Reykjavík ur þar sem það mótmælir hækk un á landbúnaðarvörum einum af öllum neyzluvörum, þrátt fyrir þá staðreynd, að margar tegundir matvæla hafa hækkað mun meira en landbúnaðar- ' afurðir, og væri þá ekki síður ástæða til að mótmæla því. Við teljum þetta vera óverð- skuldaða árás á bændur og hús- MISLINGAR OG RAGÐIR HUNDAR Grenivík 2. apríl. Frystihúsið hefur tekið á móti 385 tonnum fiskjar frá áramótum, á móti 225 tonnum á sama tíma í fyrra. Reytingsafli er, þegar gefur á sjó, og er veitt í þorskanet og á línu. Grásleppuveiðin er lítil- lega byrjuð. Hér um slóðir eru næg hey, eins og menn eiga víðast hvar á þessum vetri. Nýbúið er að setja á og af einum bónda frétti ég, sem á nú 1.2 tonn af heyi á hverja kind, og hafa menn stundum þurft að komast af með minna. Samkomuhald hefur að mestu legið niðri síðan um jól. En um þetta leyti eru menn að halda aðalfundi í hinum ýmsu félög- um, og svo á að halda hér al- mennan sveitarfund á sunnu- daginn kemur. Sigríður Jóhannsdóttir, Gröf, var jarðsungin á laugardaginn var, 85 ára gömul. Mislingar og rauðir hundar eru að stinga sér niður hér og hvar. Mislingar einkum á yngri börnum, sem ekki hafa verið sprautuð gegn þeim. Þau börn, sem sprautuð hafa verið, virð- ast sleppa alveg. P. A. FRÁ MÖÐRUVALLA- KLAUSTURSKIRKJU KIRKJUKVÖLD verður n. k. sunnudag kl. 9 e. h. Tryggvi Gíslason skólameistari flytur ræðu, Gunnfríður Hreiðarsdótt- ir syngur einsöng, sýndar verða litskuggamyndir og kirkjukór- inn syngur undir stjórn Guð- mundar Jóhannssonar. Allir velkomnir. mæður í sveitum landsins, og mótmælum henni eindregið. Við styðjum þá tillögu sunn- lenzkra sveitakvenna að snið- ganga brezkar og vestur-þýzkar vörur, meðan landhelgisdeilan stendur. Okkur finnst fráleitt að ís- lenzkar húsmæður deili inn- byrðis, svo mörg áhugamál sem þær ættu að eiga sameiginlega, því skorum við á þær að kaupa íslenzkar vörur að öðru jöfnu, og efla með því íslenzka fram- leiðslu. Samband eyfirzkra kvenna. Ilestamenn á Akureyri fara oft í hópreið um bæinn á sumardaginn fyrsta. (Ljósm.: E. D.) alfundur Búnaðarsamb. Eyjafjarðar AÐALFUNDUR Búnaðarsam- bands Eyjafjarðar var haldinn 19. og 20. marz á Hótel KEA og stóð í tvo daga. Ármann Dal- mannsson stjórnaði fundi. Á fundinum gerði stjórn sam- Ármann Dalmannsson. bandsins grein fyrir störfum sínum og ráðunautarnir gáfu skýrslur um störf sín. Þá lá fyrir aðalfundinum greinargerð um heykökuverksmiðjuna og margar ályktanir voru sam- þykktar. Aðalfundarins verður getið síðar, ef rúm leyfir í blaðinu. í stjórn Búnaðarsambands Eyjafjarðar eru: Sveinn Jóns- son formðaur, Arnsteinn Stef- ánsson varaformaður, Eggert Davíðsson, Haukur Halldórsson og Sigurgeir Garðársson. Ármann Dalmannsson, sem verið hefur formaður sambands ins síðustu 19 árin, baðst undan endurkosningu. Honum voru þökkuð frábær störf í ræðum og ávörpum, og auk þess voru honum gefnar góðar gjafir. Q FRÁ LÖGREGLUNNIÁ AKUREYRI Sveinn Jónsson. A SUNNUD AGSK V ÖLDIÐ varð harður bifreiðaárekstur á Svalbarðsströnd, sunnan Sval- barðseyrarvegar, er bifreiðar mættust þar. Kastaðist önnur út af vegi, en fór ekki af hjól- unum. Ökumaður og farþegi í annarri bifreiðinni sluppu að mestu ómeidd, ennfremur tveir farþegar hinnar, en ökumaður SAMBANDSFRÉTTIR Breyting á skipan fræðslumála. Á nýafstöðnum fundi í stjórn Sambandsins var ákveðið, að Sigurður Markússon framkvstj. Skipulagsdeildar verði eftirleið- is jafnframt framkvæmdastjóri fræðslumála. Hefur hann þar með á hendi yfirstjórn skóla- starfsemi og blaðaútgáfu Sam- bandsins og fer því m. a. með málefni Samvinnuskólans, Bréfaskólans, Samvinnunnar og Hlyns. Stefnt að betri skinna- og húðaverkun. Samkv. upplýsingum Agnars Tryggvasonar framkv.stj. Bú- vörudeildar er væntanlegur hingað til lands í júní sænskur skinna- og húðasérfræðingur. Verður hann hér hálfan mánuð og heimsækir sláturhúsin víðs vegar um landið, þar sem hann leiðbeinir um bætta meðferð húða og skinna. í kjölfar þessa verður svo haldið námskeið n.k. haust, þar sem fjallað verður um meðferð þessarar vöru og einnig leiðbeint um bættar að- ferðir við fláningu. Þá er einnig fyrirhugað að halda eins dags námskeið í Borgarnesi nú í apríl um með- ferð á vorkópaskinnum. Verður fenginn hollenzkur sérfræðing- ur til að leiðbeina á því nám- skeiði. Á undanförnum árum hefur aðeins um 60% af stórgripa- húðum, kálfskinnum og vor- kópaskinnum farið í fyrsta flokk, og liggur ljóst fyrir, að um milljóna hagnað gæti orðið að ræða fyrir framleiðendur, ef það hlutfall tækist að hækka verulega. Verðlag á þessum afurðum erlendis hefur hækkað mjög undanfarið. Heildarút- flutningur deildarinnar á þess- um vörum á sl. ári nam um 25 millj. kr. Innflutningsdcild veitir 14.6 millj. kr. í afslátt. Á nýafstöðnum stjórnarfundi Sambandsins var ákveðið að veita kaupfélögunum 2M>% af- slátt af viðskiptum þeirra á sl. ári við Vefnaðarvörudeild, Bús- áhaldadeild og Birgðastöð. Sam kvæmt upplýsingum Hjalta Pálssonar framkv.stj. nemur þessi afsláttur samtals 14.6 millj. kr., og hefur Innflutnings- deild þar með endurgreitt kaup félögunum 47.7 millj. kr. sl. fimm ár eða þann tíma, sem slíkur afsláttur hefur verið veittur. Dísarfellið komið til landsins. Hið nýja skip Sambandsins, Dísarfell, kom til landsins mánu daginn 19. marz, og var fyrsta (Framhald á blaðsíðu 4) Bændaklúbbsfundur verður haldinn að Hótel KEA mánudaginn 9. apríl n. k. og hefst kl. 21.00. Frummælandi verður Bjarni Guðmundsson sérfræðingur við Bútæknideild- ina á Hvanneyri. Rætt verður um heyverkun. Q lærbrotnaði. Varð að rjúfa þak bifreiðarinnar til að ná hinum slasaða manni, sem nú liggur í sjúkrahúsi. Önnur bifreiðin er talin ónýt með öllu og hin er mikið skemmd. Um og fyrir helgina urðu nokkrir bifreiðaárekstrar á Ak- ureyri og fimmtándi ökumaður- inn, grunaður um ölvun, var handtekinn. Og svo stingum við inn manni og manni, sagði yfir- lögregluþjónninn að lokum. Lögreglan á þriðjudag: Bíl með fjórum ungum mönn- um valt í gærkveldi uppi hjá malbikunarstöðinni. Tveir þeirra liggja nú í sjúkrahúsi og bíll þeirra ónýttist. Sex umferð- arslys urðu á Akureyri í gær. Gefur dýrasjúkrahús HINN kunni íslandsvinur, Mark Watson, brezkur auðmaður, sem tók tryggð við ísland fyrir áratugum og hefur gefið þjóð- inni margar góðar gjafir, er mikill dýravinur. Hann hefur nú ákveðið að gefa Dýravernd- unarsambandinu 135 fermetra hús, ætlað sem dýrasjúkrahús eða hluti af því. Húsið er smíð- að ytra, en fljótlegt er að setja það upp, þar sem því verður valinn staður. Væntanlegt sjúkrahús er fyrst og fremst ætlað heimilisdýrum, með skurðstofu, aflífunaraðstöðu, legurými og röntgentækjum.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.