Dagur - 19.12.1973, Síða 4
4
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Símar 1-11-66 og 1-11-67
Ritstjóri og ábyrgSarniaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓHANN K. SIGURÐSSON
Prentverk Odds Björnssonar h.f.
Veiðivötn
VEIÐI í ám og vötnuin hafa löngum
verið talin til mestu hlunninda. Á
síðustu tímum eru þessi lilunnindi þó
meira metin en nokkru sinni fytT, og
byggist það á hinni miklu og vax-
andi eftirspurn til stangaveiða. Verð-
mæti veiðiréttarins byggðist löngum
á hinu kærkomna nýmeti, laxi og
silungi úr ám og vötnum. Nú eru
laxveiðiár leigðar fyrir milljónir á
ári. Og á íslandi hefur sú þróun
orðið, að laxárnar skila margfaldri
veiði, miðað við það sem áður var,
og er það fiskirækt og skynsamlegri
nýtingu að þakka, og er land okkar
liið eina í Evrópu, sem hrósað getur
vaxandi fiskigöngum upp í veiði-
árnar. Munu á þessu ári hafa veiðzt
um eða yfir 60 þúsund laxar, eða
svipað og 1972. Er þetta tíföld veiði,
miðað við veiðina um 1945. Enn er
þó langt í land, að möguleikar ánna
séu fullnýttir. Rannsóknir, tilraun-
ir og aukinn skilningur vísa veginn
í þessu efni.
Ræktun og skynsamlegri nýtingu
laxveiðiánna ber að fagna og lialda
áfram á sömu braut. En einnig þarf
að leggja aukna álierzlu á ræktun og
nýtingu vatnanna, sem fram að þessu
hafa orðið verulega útundan. Má í
þessu sambandi minna á einn „út-
kjálka“ landsins, Melrakkasléttu, þar
sem ferðamenn sjá grjót og meira
grjót. Þar eru um þrír tugir veiði-
vatna, átján þeirra við sjó og jafn-
framt við þjóðveginn, sum þeirra
lokuð en önnur opin í sjó fram.
Engin rannsókn hefur farið fram á
þessum vötnum, með tilliti til rækt-
unar og veiðiskapar. Stofna þarf á
Sléttu félag landeigenda um öll þessi
vötn, hefja rannsóknir á vötnunum
og spara í engu innlenda og e. t. v.
erlenda þekkingu, því að þessi veiði-
vötn geta orðið gullkistur. Vera má,
að sum þessara lokuðu vatna þurfi
aðeins þá meðferð, sem notuð hefur
verið á nokkrum stöðum hérlendis
með góðum árangri, þ. e. að minnka
verulega silungastofninn til þess að
sá silungur, sem eftir verður, geti
náð meiri stærð og orðið eftifsóttur
af stangaveiðimönnum. Þá má víða
hugsa sér hæfilega íblöndun með sjó
eða öðrum næringarefnum, klak þar
sem það kynni að reynast nauðsyn-
legt, skipti á stofnum o. s. frv.
Hin mörgu veiðivötn á Sléttu
ættu að þola 100—200 stangir á dag
og kaupendur veiðileyfa em ekki
vandfundnir, þegar sá fiskur er fyrir
hendi, sem eftirsóttur er og vötnin
geta framleitt með einhverri aðstoð
manna. □
MIKIL starfsemi hefur fari'ð
fram á vegum Héraðssambands
Suður-Þingeyinga á þessu ári.
Keppnistímabil frjálsíþrótta-
fólksins hófst með innanhúss-
móti að Laugum 5. maí, og
voru þátttakendur frá 6 félög-
um.
Héraðsmót í karla og kvenna-
fl. fór fram 7. og 8. júlí. Þátt-
takendur voru 51 frá 7 félögum.
Flest stig félaga hlaut If. Völs-
ungur á Húsavík, 70 stig. Stiga-
hæstu einstaklingar voru Jón
Benónýsson, Völsungi og Berg-
þóra Benónýsdóttir frá Eflingu
í Reykjadal.
Héraðsmót í flokkum meyja,
stúlkna, sveina og drengja var
haldið 11. og 12. ágúst. Þátt-
takendur voru 49 frá 5 félögum.
íf. Eilífur í Mývatnssveit hlaut
flest stig, 278, næstir voru Völs-
ungar með 198 stig. Stigahæstu
einstaklingum á þessu móti
voru veittir fagrir bikarar til
eignar, en þeir voru: í meyja-
flokki Ragna Erlingsdóttir frá
Bjarma í Fnjóskadal, í stúlkna-
flokki Sólveig Jónsdóttir, Eilífi,
í sveinaflokki Steinar Tómas-
son, Eflingu og í drengjaflokki
Gunnar Bóasson, Eilífi. Einnig
er þess að geta, að Bergþóra
Benónýsdóttir hlaut bikar til
eignar fyrir bezta ástundun
æfingíT
Bikarkeppni unglinga á aldr-
inum 10 til 15 ára fór fram 26.
ágúst. Þátttakendur voru 67 frá
7 félögum. Flest stig hlaut íf.
Völsungur, 45.5, í öðru sæti
varð Umf. Bjarmi með 42 stig.
Oll þessi mót fóru fram á
Laugum.
Keppnisferðir frjálsíþrótta-
fólks út úr héraðinu voru
nokkrar. Má þar nefna þátt-
töku HSÞ í 2. deild Bikarkeppni
FRÍ á Akureyri, en þar sigraði
lið HSÞ og ávann sér rétt til
keppni í 1. deild. í þeirri keppni,
sem fór fram í Reykjavík,
mætti HSÞ liðum 5 félaga og
ungmennasambanda. Enda þótt
HSÞ hafnaði þar í neðsta sæti,
eftir tvísýna keppni, má segja
að hið unga lið sambandsins
hafi staðið sig vel.
Á Norðurlandsmóti, sem hald
ið var á Sauðárkróki 2. og 3.
sept. sigraði HSÞ þriðja árið í
röð og vann þar með til eignar
fagra styttu, sem keppt var um.
Á Boðsmót FRÍ átti HSÞ rétt
á að senda 8 keppendur. 5
þeirra mættu til keppni og
stóðu sig með ágætum.
Árleg keppni milli HSÞ og
UMSE fór fram að Laugalandi
í Eyjafirði um miðjan sept.
UMSE sigraði, en nokkur for-
föll voru í liði HSÞ.
Þátttaka í frjálsíþróttamótum
sambandsins hefur verið meiri
í sumar en undanfarin ár, sér-
staklega var hin mikla þátt-
taka í bikarkeppni unglinga
ánægjuleg.
Knattspyrnumót sumarsins
voru viðameiri en nokkru sinni
fyrr. í héraðsmóti var keppt í
tveim aldursflokkum, 16 ára og
eldri og 15 ára og yngri. í eldri
flokki var leikin tvöföld um-
ferð. Þar sigraði Völsungur,
hlaut 16 stig. í næstu sætum
voru Magni frá Grenivík með
12 stig og Efling með 8 stig.
Keppt var um bikar, sem Kísil-
iðjan h.f. gaf á síðasta ári, en
þá vann Magni mótið. í yngri
fl. var leikin einföld umferð og
sigraði Völsungur einnig þar,
hlaut 10 stig. í næstu sætum
voru Efling með 8 stig og Magni
og Eilífur með 6 stig hvort fé-
lag. Keppt var um styttu, er
Kaupfélag Svalbarðseyrar gaf á
síðasta ári, en þá sigraði Efling
í þessum flokki.
í bikarkeppni yngri flokks,
sem var útsláttarkeppni, vann
Efling. Keppt var um styttu,
sem Bílstjórafélag Suður-Þing-
eyjarsýslu gaf. Þetta var í
fyrsta sinn, sem þessi keppni
fór fram og vann Efling hana
eftir tvo úrslitaléiki við Eilíf.
Starfsemi Völsungs var mikil
á knattspyrnusviðinu. Má
nefna, að meistaraflokkur fé-
lagsins lék í 2. deild íslands-
mótsins og tók þátt í Bikar-
keppni KSÍ. Einnig keppti fé-
lagið í íslandsmóti í þriðja,
fjórða og fimmta flokki. Stóð
sá síðastnefndi sig mjög vel og
komst í úrslit.
íf. Magni er einnig vel virkt
félag á knattspyrnusviðinu og
tók þátt í 3. deild íslandsmóts-
Einnig kenndu glímukennarar
á vegum sambandsins í nokkr-
um skólum í héraðinu. HSÞ sá
um Norðurlandsmót í glímu í
apríl. Keppt var í tveimur
flokkum. Ingi Yngvason, Mý-
vetningi, sigraði í flokki full-
orðinna og Haukur Valtýsson,
Bjarma, í drengjaflokki. HSÞ
sendi keppendur til þátttöku í
íslandsglímunni og Flokkaglím
unni, en þar sigraði Ingi í
þyngsta flokki og Haukur í
drengjaflokki.
Sundkeppni fór fram að
Á komandi vetri verður
væntanlega lögð aukin áherzla
á iðkun innanhússíþrótta. Eink-
um eru vonir bundnar við að
auka megi þátttöku í blaki og
badminton. Aðstaða til iðkunar
innanhússíþrótta er slæm í
héraðinu, aðeins tvö íþróttahús,
á Húsavík og Laugum, og full-
nægir hvorugt kröfum nútím-
ans. Að Laugum er nýtt íþrótta
hús í smíðum, en langt í land
að það verði tekið í notkun.
Meðan slíkt ástand varir, er
varla von til mjög aukinna um-
ins. Varð félagið í 2. sæti í E-
riðli eftir tvísýna keppni.
Aðstaða til þátttöku í utan-
hússíþróttum fer nú óðum batn
andi í héraðinu? Á Húsavík er
malarvöllur og í undirbúningi
gerð grasvallar ásamt hlaupa-
brautum. Að Álftagerði í Mý-
vatnssveit er myndarlegur gras-
völlur í eigu Umf. Mývetnings.
Við Ljósvetningabúð er gras-
völlur í eigu Umf. Gaman og
alvara. Á Grenivík er grasvöll-
ur í eigu íf. Magna. Við hina
nýju Fnjóskárbrú er grasvöllur,
nýlegur, í eigu Umf. Bjarma.
Bráðlega mun rætast úr að-
stöðu í Aðaldal og við Reykja-
hlíð, en þar eru ófrágengnir
malarvellir. Við Stórutjarna-
skóla í Ljósavatnsskarði verður
væntanlega tilbúinn malarvöll-
ur til notkunar fyrir nemendur
skólans á þessu skólaári. Að
lokum má nefna völl HSÞ að
Laugum, sem er í röð beztu
íþróttavalla landsins.
Handknattleikur er eingöngu
stundaður á Húsavík, en Völs-
ungar hafa náð mjög athyglis-
verðum árangri í þessari íþrótta
grein, svo sem kunnugt er. ís-
landsmót meistarafl. kvenna í
útihandknattleik 1973 fór fram
á Húsavík og sá Völsungur um
framkvæmd mótsins.
Blak hefur lengi verið stund-
að í Laugaskóla, en sl. vetur
fór í fyrsta sinn fram héraðs-
mót í þessari íþrótt, og sigraði
þar lið Magna.
Badminton er mikið stunduð
á vegum Völsungs og hafa þeir
háð árlega bæjakeppni við Sigl-
firðinga um nokkurt skeið.
Badminton er einnig æft hjá
Umf. Mývetningi og í Lauga-
skóla, en héraðsmót hefur enn
ekki verið haldið í þessari
grein.
Glíma var æfð sl. vetur hjá
Mývetningi og í Laugaskóla.
venju 17. júní á Húsavík. Einn-
ig sá HSÞ um framkvæmd
Unglingameistaramóts Norður-
lands í sundi. Mótið fór fram á
Húsavík og var framkvæmdin
að mestu í höndum Völsungs.
Sundaðstaða er fyrir hendi á
fjórum stöðum í héraðinu, en á
næstunni munu væntanlega
bætast við fjórir nýir sund-
staðir, og þá er von á meiri
þátttöku í þessari ágætu og
hollu íþrótt.
Skíðaíþróttin er mikið stund-
uð á Húsavík og hefur skíða-
fólk Völsungs náð góðum ár-
angri á landsmælikvarða. Skíði
eru einnig nokkuð stunduð í
Mývatnssveit, en lítið annars
staðar í héraðinu. Áhugi er hjá
forráðamönnum skóla á aukinni
skíðakennslu, og er í ráði hjá
HSÞ, að beita sér fyrir útvegun
á skíðakennurum á komandi
vetri.
Bridge hefur lengi verið iðk-
að af aðildarfélögum HSÞ. Hér-
aðsmót var haldið sl. vetur með
nýju sniði. Spilaðar voru þrjár
umferðir og báru Völsung'ar
sigur úr býtum, en Mývetning-
ar urðu í 2. sæti. Árleg bridge-
keppni við UMSE fór fram í
Ljósvetningabúð og vann HSÞ
að þessu sinni.
HSÞ hélt sumarbúðanám-
skeið á Laugum í júní, en það
hefur verið fastur liður í starf-
seminni til margra ára. Nám-
skeiðið stóð í tvær vikur og
voru þátttakendur 36 á aldrin-
um 12 til 15 ára. Þá rak íf.
Eilífur ungmennabúðir um 8
vikna skeið fyrir 5—11 ára börn
og voru þátttakendur 33.
Mikið var unnið að land-
græðslu sl. sumar og munu öll
sambandsfélögin hafa tekið þátt
í því starfi. Félagsmálanám-
skeið var haldið hjá íf. Eilífi sl.
vor. Þátttakendur voru 19,
kennari var Arnaldur Bjarna-
son.
svifa varðandi innanhússíþrótt-
ir. Mikill áhugi virðist vera á
byggingu félagsheimila í hérað-
inu, og eru þau þá ekki hönnuð
sem íþróttamannvirki. Þykir
forráðamönnum HSÞ það óvið-
unandi, að ekki skuli reynt að
sameina xarfir íþróttastarfsemi
og almenns félagslífs í þessum
dýru mannvirkjum.
Fjárhagur HSÞ er erfiður,
svo sem algengast er hjá aðil-
um ungmennafélags- og íþrótta-
hreyfingarinnar. Þó hefur sam-
bandið notið stóraukins stuðn-
ings frá sveitarfélögum á þessu
ári. Einnig er HSÞ styrkt af
sýslusjóði, svo og Kaupfélagi
Þingeyinga, Kaupfélagi Eyfirð-
inga og Kaupfélagi Svalbarðs-
eyrar. Er sambandið mikil þökk
á þessum stuðningi. Höfuð-
útgjaldaliður HSÞ er styrkur
til aðildarfélaganna vegna
kostnaðar við íþróttaþjálfun,
sem þau leggja í. Sambandið
hefur haft það fyrir reglu að
reyna að byggja félögin upp á
þennan hátt.
Á næsta ári verður HSÞ 60
ára. Mun þá verða gert átak til
enn meiri og myndarlegri starf-
semi í tilefni þessa merkis-
afmælis. Nú þegar er hafin fjár-
öflun í þessu skyni með happ-
drætti, sem dregið verður í 28.
desember n. k. Sala miða er
hafin, og er þess vænst að Þing-
eyingar, svo og aðrir velunn-
arar HSÞ, bregðist vel við og
styrki sambandið með kaupum
á happdrættismiðum.
Stjórn HSÞ skipa: Óskar
Ágústsson, Laugum, formaður,
Vilhjálmur Pálsson, Húsavík,
varaformaður, Sigurður Jóns-
son, Yztafelli, ritari, Arngrímur
Geirsson, Álftagerði, gjaldkeri
og Indriði Ketilsson, Ytra-
Fjalli, meðstjórnandi. Fram-
kvæmdastjóri er Arnaldur
Bjarnason, Fosshóli.
(Fréttatilkynning)
Mí’"
5
RAUNIN
SVO segir gamalt máltæki og
er það vissulega satt. Mér hafa
komið sannindi þessa málshátt-
ar í hug í sambandi við verk-
fall þjóna á vínsöluhúsum, sem
staðið heíur nú um sinn.
Blöð og útvarp hafa skýrt frá
því, eftir viðtöl við löggæzlu í
þeim bæjum, sem verkfallið
hefur náð til, að gjörbreyting
hafi orðið á öllum þeim sviðum,
sem undir lögreglu heyrir, að
hafa afskipti af, afbrot, slys og
hverskonar óspektir, utanhúss,
sem innan, heimili meðtalin,
hafa minnkað, svo að ekki er
sambærilegt. Hvað mundi þá ef
öll áfengisneyzla væri úr sög-
unni?
Hér hefur sannazt, svo að
ekki verður um deilt, það sem
oft hefur verið á bent, að vín-
nautnin er undirrót langsam-
lega flestra afbrota, slysa og
félagslegra erfiðleika. Væri
áfengið úr sögunni myndi þetta
gerbreytast.
Annað dæmi langar mig til að
draga fram í þessu máli. Á öðr-
um tug aldarinnar var vínbann
Brúðuvagnar.
Brúðukermr.
Brúður.
Bollasett.
Bílabrautir.
Rúllettuspil.
Fótboltaspil.
Snjóþotur
og ótal margt annað.
Leikfangamarkaðurinn
Hafnarstræti 96.
BARUM
torfæru- og
snjódekk
Jeppadekk 750x16
Jeppadekk,650x16
Jeppadekik 600x16
Vörubíladekk
Mjög hagstætt verð.
Skoda-verkstæðið
Kaldbaksgötu,
Akureyri, sími 2-25-20.
ER ÓLÝGNUST
í landinu um fá ár. Þá brá svo
við, að hverskonar afbrot, eink-
um þó hin grófari, þurrkuðust
því næst út. Þetta er dómur
reynslunnar. Ætti sá dómur
ekki að vera lögeggjan til þjóð-
arinnar um að gera nú sameigin
lega stórt átak og ráðast gegn
vínnautninni með öllum tiltæk-
um ráðum, og hnekkja henni
svo að um muni, og þá um leið
því ófremdarástandi og hreinu
ómenningu, sem ríkt hefur í
sambandi við hana.
Nú fara jólin í hönd. Þau hafa
oft verið kölluð hátíð heimil-
anna. Sú hátíð verður því miður
oft neikvæð ef Bakkus er meðal
boðsgesta. Vinnum að því að
útiloka hann, svo að sem flestir
geti átt sönn og gleðileg jól.
Stefán Rr. Vigfússon.
Kuldafatnaður
til jólagjafa
Kuldaúlpur (gærufóðraðar), verð frá kr. 5985,00
Nylonúlpur, verð frá kr. 1680,00
Kuldajakkar með loðkraga
Peysur, mikið úrval
Hlý nærföt og sokkar
Frottesloppar og náttföt
Kuldaskór og Koreuklossar
GEFIÐ HLÝJAN FATNAÐ
A M A R O
HERRA- OG SPORTVÖRUDEILD
SÍMI 2-17-30.
Tannlæknar bæjarins
auglýsa:
Tannlæknavakt um jól og áramót verður sem
hér segir:
Sunnudag 23./12. kl. 17—18,
Tannlæknastofan Glerárgötu 20.
Mánudaginn 24./12. kl. 11—12,
Tanlæknastofa Steinars Þorsteinssonar,
Skipagötu 1.
Þriðjudaginn 25./12. kl. 17—18,
Tanlæknastofa Steinars Þorsteinssonar,
Skipagötu 1.
Miðvikudaginn 26./12. kl. 17—18,
Tannlæknastofan Glerárgötu 20.
Sunnudaginn 30./12. kl. 17—18,
Tanlæknastofa Baldvins Ringsted,
Hafnarstræti 101.
Mánudaginn 31./12. kl. 11—12,
Tanlæknastofa Jóhanns Benediktssonar,
Ráðhústorgi 3.
iÞriðjudaginn l./l. kl. 17—18,
Tannlæknastofan Glerárgötu 20.
(GEYMIÐ AUGLÝSINGUNA).
SaunsuL
TOSHIBA
Stórkostlegt hljómnlötuúrval
Nýjar plötur: Alice Cooper: Muscle
of Love. — Santana: Welcome. —
The best of Procol Harum. — Donny
Osmonds: A Time for us.
Plötur, sem seljast eins og heitar
lummur: Nazareth — Ringo Starr —
Carpenters — Rolling Stones — John
Lennon. — Ten Years After: Live,
2 LP. — Chicago: VI. — Slade: Slad-
est. — David Cassidy: Dreams. — Dr.
Hook: Belly Up. — Carfunkel: Ang-
el Clare. — Gilbert O Sullivan: I’M
A Writer. — The Beatles: 1967—
1970, 2 LP. — Who: Quadrophenia,
2 LP. — Neil Young: Time Fades
Away. — Grand Funk: W’ere An
American Band. — Three Dog
Night: Cyan. — Osmonds: Sex gerð-
ir. — Fleetwood Mac: Mystery To
Me. — The Mothers: Over-Nite
Sensation. — Urian Heep: Sweet
Freedom o. m. 11.
Nýjar 45 sn. í haugum.
íslenskar hljómplötur, stórar:
Hanna Valdís — Kaffibrúsakarlarn-
ir — Síglaðir söngvarar — Verkstæði
jólasveinanna — Gáttaþefur í glöðurn
hópi — Krakkar rnínir komið þið
sæl. Jólin, jólin: Svanhildur,. — Jól-
in hennar ömmu — Dýrin í Hálsa-
skógi — Bamavísur Stefáns Jónsson-
ar: Bessi Bjarnason — Hljómsveit
Ingimars Eydal — íslensk þjóðlög:
Karlakór Reykjavíkur — Ólafur Þ.
Jónsson — Tónakvartettinn frá
Ný sending af 8 rása spólum.
Stereo cassettu segulbönd kr. 14.950,
00. — 12 tommu sjónvörp, 12 volt og
220 volt, kr. 18.095,00.
Radionette stereo-útvarpstaáki.
Loewe Opta. Vestur-þýzk 24 tommu
sjónvarpstæki. Kr. 33.925,00 hnota,
34.795,00 teak, 47.160,00 hnota með
hurð og borði.
Góðir greiðsluskilmálar.
Útvarpstæki 220 volt með hátalara,
langbylgju, miðbylgju, FM-bylgju,
stuttbylgju. Plötuspilara og segul-
bandsúttak, frá kr. 11.825,00. Hnota,
rauð, lrvít.
Toshiba stereo-sett, útvarp, plötu-
spilari, hátalarar, aðeins kr. 24.185,
00. — Segulbandstæki. — Ferðavið-
tæki. — Plötuspilarar. Stereo-heyrn-
artæki.
HVERGI MEIRA ÚRVAL - PÓSTSENDUM
Viðgerðarþjónusta á eigin verkstæði
Húsavík — Guðrún Á. Símonar:
Fjórtán sönglög — Vilhjálmur Vil-
hjálmsson: Fjórtán vinsæl lög — Þor-
valdur Halldórsson: Gerir ekki neitt
— Bjarki Tryggvason: Kvöld —
Beint útvarp úr Mattíhildi: Úrval
71—72 — Elly og Vihljálmur: Jóla-
lög — Eddukórinn: Bráðum koma
jólin — Kirkjukór Akureyrar og
Hljómsveit Ingimars Eydal: Jóla-
sálmar og jólalög o. m. fl.
Nýjar stórar hljómplötur:
Skaup 73 — Lítið Eitt — Maggi
Kjartans: Clockworking Cosmic
Spirits — Þuríður Sigurðardóttir.
VERIÐ VELKOMIN.
HUQIIWR -
Sími (96)11626 ^—^Gierárgötu 32 Akureyri