Dagur - 13.02.1974, Qupperneq 4
4
5
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Síniar 1-11-66 og 1-11-67
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓHANN K. SIGURÐSSON
Prentverk Odds Bjömssonar h.f.
Tveir þættir
SÚ breyting varð á tekjuskattslög-
unum árið 1972, að felldir voru nið-
ur persónuskattar, sem einstaklingar
áður greiddu til almannatrygginga
og sjúkrasamlaga, og felld voru nið-
ur framlög sveitarfélaga til þessarar
starfsemi og tekjuskatturinn liugsað-
ur út frá þessum breytingum.
Ef þessar breytingar hefðu ekki
verið gerðar og gömlu lögin væru
enn í gildi þyrfti einhleypur karl-
maður nú að greiða í nefnda persónu
skatta, og alveg án tillits til efnahags,
26 þúsund krónur og einhleyp kona
22 þúsund krónur. Hjón með tvö
börn á framhaldsskólastigi, er þau
önnuðust greiðslur fyrir, yrðu þá,
með gamla laginu, að greiða 86 þús-
und krónur, og auðvitað alveg án
tillits til tekna og efnahags. Þegar
menn tala um liáan tekjuskatt og
hækkun hans, má ekki taka þennan
veigamikla þátt, niðurlagða persónu-
skatta, út úr dæminu.
Annar merkur þáttur í löggjöf,
sem núverandi stjórnarflokkar hafa
staðið að, er stóraukinn þáttur ríkis-
ins í heilbrigðismálum. Með þeim
lögum mun reynast unnt að reisa
læknamiðstöðvar og sjúkrahús, þar
sem það áður var ókleift, og er Akur
eyri nærtækt dæmi um það. Meðal
þeirra verkefna, sem nú er unnið að,
er sjúkrahúsbygging hér í höfuðstað
Norðurlands. En mörg undanfarin
ár var ekkert gert í því máli þrátt
fyrir vilja og einhug heimamanna.
Nú, þegar lög mæla fyrir um stór-
aukinn hlut ríkissjóðs við fram-
kvæmdir, þróast þetta mál í rétta átt.
Framundan er margra ára verkefni
við stóra og vandaða sjúkrahúsbygg-
ingu, við hlið hins eldra sjúkrahúss.
Að þessu er stefnt nú með 23 milljón
króna fjárveitingu. Ennfremur á
sjúkrahúsið geymda fjárveitingu, er
einnig er hægt að vinna fyrir nú á
þessu ári. Stjórnarstefnan er við það
miðuð, að auka þjónustu við fólkið
á landsbyggðinni og búa þannig að
því, að það hafi svipaða þjónustu og
lífsafkomu og fólk á höfuðborgar-
svæðinu. Ný og raunhæf fram-
kvæmdastefna í heilbrigðismálum
þjóðarinnar, er stórt skref í þá átt,
og hún markar alger þáttaskil í heil-
brigðismálum.
Fyrsta skóflustunga sjúkrahús-
byggingar á Akureyri hefur verið
tekin. Framkvæmdir eiga að hefjast
í vor. D
Ný Saunabaðsfofd á Sauðárkróki
Friðbjarnarhúsið á Akureyri.
Frá 90 ára afmæli góðlemplara á
EINS og skýrt var ,frá fyrir
nokkru síðan, átti elzta góð-
templarastúkan hér á Akur-
eyri, stúkan Ísafold-Fjallkonan
nr. 1, 90 ára afmæli, en hún er
elzta góðtemplarastúkan í land-
inu. Dagana 10. til 13. janúar
voru hátíðahöld hér í bænum á
vegum Reglunnar af þessu til-
efni og vill blaðið nú skýra frá
því í stuttu máli. Margar eru
þær félagsmálahreyfingar er
sprottið hafa upp og náð ýmis-
legum árangri, en ekki mun
öðrum gert rangt til, þótt sagt
sé, að fáar þeirra hafi látið eftir
sig jafn heilladrjúg spor og
Reglan og sú margvíslega starf-
semi sem upp af henni hefur
sprottið, víðsvegar um lanaið á
síðustu níutíu árum.
Það var fimmtudagskvöldið
10. janúar sl. sem templarar á
Akureyri söfnuðust saman við
Hafnarstræti 23 til að ganga
blysför að Friðbjarnarhúsi.
Voru bornir 11 kyndlar fyrir
hópnum. Er kom að Friðbjarn-
arhúsi var lagður blómsveigur
að styttu Friðbjarnar, en
Indriði Indriðason, stórkanzlari
Reglunnar flutti stutt ávarp. Þá
var gengið í húsið og upp á loft
og þar settur stúkufundur und-
ir forsæti Sveins Kristjánsson-
ar, æðstatemplars ísafoldar, í
sama herbergi og fyrsti stofn-
fundur ísafoldar var haldinn
fyrir réttum níutíu árum af
þeim ellefu mönnum er komu
til þess fundar, en þáverandi
húsráðandi, Friðbjörn Steins-
son var tólfti fundarmaður. Var
þessa atburðar minnst á stutt-
um en áhrifaríkum fundi, þar
sem hvert sæti var skipað og
staðið út í dyr.
Föstudaginn 11. jan. var há-
tíðafundur í st. ísafold í húsa-
kynnum Reglunnar að Hótel
Varðborg, í aðalsalarkynnum
hússins á 1. hæð. Boðið hafði
verið til hátíðahaldanna fram-
kvæmdanefnd stórstúkunnar og
templurum víða að. Voru mætt-
ir á fundinum um 40 gestir víðs
vegar að, frá Stykkishólmi,
Akranesi, Reykjavík, Hafnar-
firði, Keflavík og af Suðurnesj-
um. Höfðu nokkrir verið mætt-
ir þegar kvöldið áður. Fundin-
um stýrði Sveinn Kristjánsson,
en fundargestir voru um 120
reglufélagar. Ávörp voru flutt
og fjöldi af skeytum og kveðj-
um barst til fundarins er lesið
var upp af Arnfinni Amfinns-
syni fyrrv. æðstatemplar stúk-
unnar. Fjöldi barst af góðum
gjöfum, svo sem frá Stórstúku
íslands, Húsráði Templarahall-
arinnar í Reykjavík, Tryggingar
félaginu Ábyrgð, Umdæmis-
stúku Suðurlands, Þingstúku
Reykjavíkur og frá stúkunum í
Reykjavík, Þingstúku Eyjafjarð
ar, stúkunum Brynju og Akur-
liljan á Akureyri, og frá stúku
úti í Noregi, st. Concordia í
Lilleström, barst fagur kerta-
stjaki, en st. ísafold tók þátt í
heimsókn til þeirrar stúku á sl.
sumri. Meðal gjafanna voru um
150.000 krónur til styrktar og
viðhalds Friðbjarnarhúsi, en
það er í eigu og gæzlu Reglunn-
ar á Akureyri.
St. ísafold hafði látið gera
borðfána í tilefni afmælisins.
Einnig hafði hún látið ljós-
prenta í smekklega umgjörð
fyrstu fundargerð stúkunnar.
Þessa hluti ásamt árituðu penna
setti, gaf hún hinum ýmsu gest-
um er mættir voru sem fulltrú-
ar stúkna eða regludeilda.
Á laugardaginn hélt stór-
templar, Ólafur Þ. Kristjánsson,
stórstúkufund og síðar um dag-
inn var haldinn hástúkufundur
er Eiríkur Sigurðsson fyrrv.
skólastjóri, settur umboðsmað-
ur hátemplars, stjórnaði. Eirík-
ur hafði samið yfirlit um sögu
og starf Reglunnar á Akureyri
síðustu tíu árin, í tilefni afmæl-
isins, framhald ritsins Góð-
templarareglan á Akureyri 80
ára, er hann samdi fyrir áratug
síðan. Kom rit þetta út á laugar
daginn. Á laugardagskveldið
var svo veizla í Alþýðuhúsinu
er fyrirtæki Reglunnar á Akur-
eyri bauð til. Voru þangað
xoðnir allir gestir afmælisins,
ásamt bæjarstjóra og fjölda
lieimamanna.
Þar flutti ávarp stórtemplar
Norðmanna, Sigurd Johansen,
sem boðinn hafði verið til af-
mælisins. Það var stórtemplar
Norðmanna er í upphafi studdi
að stofnun Reglunnar á íslandi
og raunar var st. ísafold undir
lögsögu hans fyrstu tvö árin,
unz Stórstúka íslands var stofn-
uð. Ýmsar aðrar ræður voru
þar fluttar, þ. á. m. af stór-
templar Ólafi Þ. Kristjánssyni
og Jóni G. Sólnes bankastjóra
fyrir hönd Akureyrarbæjar.
Garðar Cortes söng einsöng við
undirleik konu hinnar, Christ-
ine. Cortes, og Jón Gunnlaugs-
son fór með gamanmál og fleira
var til skemmtunar.
Sunnudaginn 13. janúar kl.
10.30 árdegis efndi Reglan á
Akureyri til skemmtunar í
Varðborgsbíói fyrir barnastúk-
urnar á Akureyri og í Eyjafirði
og var húsið fullskipað. Hilmar
Jónsson stórgæzlumaður ungl-
ingastarfs setti samkomuna með
ávarpi, en síðan var fjölbreytt
skemmtidagskrá, m. a. skemmtu
þau hjónin Garðar og Christine
Cortes með söng og hljóðfæra-
leik við mikinn fögnuð barn-
anna, Jón Gunnlaugsson og
fleiri.
Síðar um daginn, kl. 2, var
messað í Akureyrarkirkju. Séra
Pétur Sigurgeirsson flutti
messugjörð. Var messugjörðin
helguð starfi templara og bind-
indismanna og minnzt þeirra
mörgu er lagt hefðu sinn skerf
að þessu merka mannbótar-
starfi.
Að lokinni messu safnaðist
þorri hinna aðkomnu gesta,
ásamt mörgum heimamönnum
að kaffiborðum á Hótel Varð-
borg, en þar höfðu flestir hinna
lengra að komnu gesta búið í
boði akureyrskra templara. Þar
með mátti segja að þessum há-
tíðahöldum lyki. Öllum sem
þetta afmæli sóttu lengra að,
kom saman um að st. ísafold og
Reglan á Akureyri hefði staðið
að þessu afmælishaldi með stór-
myndarlegum hætti. Einnig var
það allra mál, að skipulagning
öll og framkvæmd þess hefði
verið til stakrar fyrirmyndar.
Er enginn vafi á því, að fjöl-
menn mót sem þetta, þar sem
félagar geta verið samvistum
dögum saman, líkt og þarna
gerðist, eflir mjög þann samhug
og samstöðu sem nauðsynleg er,
þá samstöðu sem segja má að
sé undirstaða farsælla og heilla-
drjúgra starfa. Þess vegna var
þetta níutíu ára afmæli góð-
templarareglunnar á Akureyri
og á íslandi merkur atburður
sem vænta má að leiði til dáð-
ríks starfs margra bræðra og
systra, mörgum til heilla og
gæfu.
Gestur að sunnan.
SAUNABAÐSTOFA, sem verið
hefur í smíðum í Sundlaug
Sauðárkróks er nú fullgerð og
verður tekin í notkun einhvern
næsta dag. í tilefni af því komu
saman í sundlauginni 7. febrúar,
bæjarfulltrúar, íþróttanefndar-
menn, stjórn Rauða kross deild-
arinnar á Sauðárkróki, iðnaðar-
menn, sem að höfðu unnið og
aðrir gestir. Skoðuðu þeir hin
vistlegu húsakynni baðstofunn-
ar, en sátu síðan kaffiboð hjá
bæjarráði Sauðárkróks, sem
hélt sinn 500. fund þennan dag.
Þar skýrði formaður bæjar-
ráðs, Marteinn Friðriksson, frá
störfum og verkefnum bæjar-
ráðs og hverjir höfðu átt í því
sæti frá upphafi. Formaður
íþróttanefndarinnar, Guðjón
Ingimundarson, minnti á það
m. a. að nú væru liðin 20 ár
síðan hafist var handa um sund
laugarbygginguna á Sauðár-
króki, en fyrsta áfanga var lok-
ið og hann tekinn í notkun 1957.
Hann kostaði rúmar milljón
krónur. Annar áfangi hefur ver-
ið í smíðum undanfarin ár og
er nú lokið með tilkomu sauna-
baðstofunnar. Kostnaður við
þann áfanga er 14.7 milljónir
króna.
- SMÁTT OG STÓRT
(Framhald af blaðsíðu 8)
NÚ VERÐA MISTÖKIN
RANNSÖKUÐ
Sanigöngumálaráðherra, Bjöm
Jónsson, hefur upplýst á Al-
þingi, að ráðuneytið liafi skip-
að tvo menn til að rannsaka mál
þetta, þá Ragnar Ingimarsson
og Gútsaf E. Pálsson. Er starf
þeirra fólgið í því að rannsaka,
livort liönnun og tæknilegur
undirbúningur umræddrar hafn
argerðar og aðrar aðgerðir Hafn
armálastofnunar ríkisins hafi
verið venjulegur og eðlilegur
o. s. frv. En þessi rannsókn sker
ekki úr um fébótaábyrgð af
orðnum skaða, þótt liún varði
e. t. v. mikilvægan þátt málsins.
ÖFGAR TIL IIÆGRI
OG VINSTRI
Morgunblaðið og Þjóðviljinn
deila um margt, og málflutning-
urinn er oft líkur, svo og hjá
fylgiblöðum þeirra út um land.
Þau fylgja bæði öfgastefnum í
mörgum málum og lætur að
líkum, að hvorugt þessara blaða
sætti sig að fullu við þær til-
lögur, sem Einar Ágústsson
utanríkisráðherra hefur lagt
fram í varnarmálunum, en
viðurkenna þær þó beint og
óbeint. Þessi blöð vita sem er,
að tillögur utanríkisráðherrans
eiga sterkan og vaxandi hljóm-
grunn meðal almcnnings.
Ávarp við sfyftu Friðbjarnar
UM leið og ég, fyrir hönd Góð-
templarareglunnar á íslandi
legg þennan minnissveig að
styttu Friðbjarnar Steinssonar
bóksala, þá minnumst við, hér-
stödd, með hrærðum huga,
þeirra ellefu manna sem stóðu.
hér í þessum sporum fyrir níu-
tíu árum síðan, 10. janúar 1884,
áður en þeir gengu inn í þetta
hús og til lítils loftherbergis, til
þess að standa þar að stofnun
félagsskapar nokkurs, ásamt
með eiganda og íbúanda þessa
húss Friðbirni Steinssyni. —
Og í því sama kvöldi í fyrr-
nefndu loftherbergi, stofnuðu
þeir fyrstu stúkuna í alþjóða-
reglu góðtemplara, I.O.G.T. —
Naumast mun nokkum þeirra
er að þeim fundi stóð, hafa órað
fyrir hversu farsællega út-
breiðslu og heillaríka og örugga
Við þetta tækifæri afhenti
formaður Rauða kross deildar-
innar, Gestur Þorsteinsson, 50
þús. kr. gjöf frá deildinni, fram-
lag til kaupa á ofni í baðstofuna.
Með tilkomu baðstofunnar
gefst bæjarbúum nú kostur á
að njóta góðra baða og líkams-
ræktar í góðum húsakynnum.
Sundlaugin hefur nú verið starf
rækt í 17 ár. Auk almennra nota
fer þar fram sundkennsla.
Þannig nutu þar sundkennslu á
sl. vori 570 einstaklingar, þar af
rúmlega 200 úr níu hreppum
sýslunnar. Sést á þessu, að þessi
stofnun hefur mikilvægu hlut-
verki að gegna, bæði að því er
varðar almenna notkun og ekki
síður í sambandi við framgang
fræðslu- og skólaskyldu. G. Ó.
Sjávarfréffir - nýff fímarif
ANNAÐ tölublað tímaritsins
Sjávarfréttir er komið út, en út-
gefandi ritsins er Frjálst fram-
tak h.f.
Sjávarfréttir komu fyrst út í
nóvember í fyrra og unnu sér-
stæðan sigur á íslenzkum blaða-
markaði, segir þar.
í því blaði, sem nú er komið
út, ritar Sveinn Benediktsson
formaður Útgerðarráðs Reykja-
víkurborgar yfirgripsmikla
grein um loðnuveiðar og vernd-
un fiskstofnana. Þá er sagt frá
mannaflaþörf í sjávarútvegi og
þeim skorti, sem er fyrirsjáan-
legur. Hjálmar R. Bárðarson
siglingamálastjóri ritar tvær
greinar í blaðið. Fjallar önnur
um öryggi loðnuveiðiskipa, en
hin um ráðstafanir gegn meng-
un í sjó og alþjóðásamstarf þar
að lútandi.
Ennfremur er fjallað um fisk-
iðnað og útgerð í Keflavík, út-
flutning á lagmeti, hugsanleg-
um fiskútflutning með flugvél-
um. Þá er grein eftir Hjálmar
Vilhjálmsson fiskifræðing um
loðnurannsóknir. Einnig er sagt
frá Fiskvinnsluskólanum og
rabbað er við nokkra nemendur
hans. Grein er um fiskveiði-
þjóðirnar miklu í Suður-
Ameríku og fleiri greinar fjalla
um erlend málefni. Þá er kefli
um tækni og nýjungar.
Ritstjórar blaðsins eru Þór-
leifur Olafsson og Jóhann
Briem.
(Úr fréttatilkynningu)
Skrúðgarðyrkj miámið til Ak.
HÉR á landi er nám í skrúð-
garðyrkju og tilhögun þess á
mótunarstigi. Allar nýjar iðn-
greinar hafa haft byrjunarörðug
leika að glíma við. í garðyrkju-
skólanum í Hveragerði er að
sjálfsögðu lögð megináherzla á
ylrækt. Skrúðgarðyrkjunemar í
dag hafa mjög slæma aðstöðu
hvað varðar verklega kennslu
á Suðurlandi. Hér á Akureyri
er mjög góð aðstaða fyrir hendi,
en það er grasadeild Lystigarðs-
ins, en það mundi kosta milljón-
ir að stofna slíkan garð í Hvera-
gerði. Enginn sérfræðingur í
skrúðgarðyrkju er fastur kenn-
ari við skólann í Hveragerði, en
það kemur að því að ráða þurfi
í þá stöðu.
Nú þegar eru starfandi sér-
fræðingar hjá Akureyrarbæ, og
nýr og góður Iðnskóli. Það er
því krafa Norðlendinga, að
skrúðgarðyrkjunámið verði að-
skilið frá skólanum í Hvera-
gerði og að fastráðinn verði
einn maður til þess að veita
skrúðgarðyrkjudeild Iðnskólans
á Akureyri forstöðu.
Jafnframt því gæti forstöðu-
maðurinn tekið að sér skipulag
fyrir hin ýmsu sveitarfélög
norðanlands og látið nemend-
urna spreyta sig á þeim verk-
efnum.
Lengri námskeið mætti halda
yfir sumartímann, en heima-
menn hafa staðið fyrir nokkrum
námskeiðum sem hafa verið
mjög vel sótt.
Þetta er því aðeins spurning
um það, hvort að ráða eigi
menntaðan einstakling til
Hveragerðis og kosta þar millj-
ónum til í plöntusafn og garð,
eða að staðsetja skrúðgarðyrkju
menntunina hér á Akureyri.
Bæði félög og einstaklingar
hafa haft þetta mál á stefnuskrá
sinni um áratugi. Fegrunarfélag
Akureyrar lagði 50.000,00 kr.
framlag fyrir 3 árum í stofnun
garðyrkjuskóla. Það er því
kominn tími til þess, að láta
verkið tala.
Virðingarfyllst,
Oddgeir Þ. Árnason.
- MEIRI DRYKKJUSKAPUR I LANDINU EN NOKIÍRU SINNI FYRR
(Framhald af blaðsíðu 2).
flest af því þess eðlis, að það
hjýtur að teljast áfengisböl. En
margt er þó enn ósagt í þessu
máli. Ég hef lítið rætt um
drykkjuskap unglinga og
drykkjutísku skólaæskunnar.
Hygg ég þó, að í þeim efnum
hafi orðið hvað mest breyting á
síðustu árum. Athuganir benda
til þess, að aukning meðaltals-
drykkjunnar í landinu síðustu
ár stafi af verulegu leyti af því,
að fólk byrjar nú að drekka
miklu yngra en áður og að kven
fólk drekkur meira og almenn-
ara en áður var. Það fer ekki
milli mála, að skólarnir í land-
inu eigi víð mikið áfengisvanda-
mál að etja. Drykkjutíska er nú
faraldur meðal skólaæskunnar.
Þannig er ég ekki í 'neinum
vafa um það, að ástandið í
áfengismálum þjóðarinnar er
slæmt um þessar mundir, og
það er nauðsynlegt, að ráðandi
menn í landinu leiði hugann að
áfengisbölinu, reyni að gera sér
skynsamlega grein fyrir orsök-
um þess og afleiðingum og hvað
verða megi til þess að bæta þar
nokkuð úr. Ég er að vísu van-
trúaður á allar patentlausnir í
þessu máli eins og öðrum mál-
um. Ég hef t. d. enga trú á
algeru aðflutningsbanni á
áfengi eða öðrum ámóta ráð-
stöfunum. En ég held, að það
sé nauðsynlegt að hugleiða í
fullri alvöru, hvernig draga
megi úr sölu og veitingum
áfengra drykkja eins og Lækna
félagið lagði til og leitast við að
vara fólk við neyslu áfengis og
innræta mönnum það, sem
varla er hægt að deila um, að
áfengi er meira og minna hættu-
legt eiturlyf, sem haft getur
alvarleg áhrif á líkams- og geð-
heilsu manna. Einnig mætti
leiða mönnum það fyrir sjónir,
að óhófsdrykkja í hvaða formi
sem er, er smekkleysi og menn-
ingarskortur, svo að ég vísi til
þess, sem sagt er í greinargerð
fyrir þessu frumvarpi.
fótfestu Reglan eignaðist í okk-
ar landi, þótt hitt sé vissulega
rétt enn í dag, að:
Það er eftir enn að vinna
ærið marga seiga þraut.
Það er eftir enn að finna
ýmsan góðan förunaut.
Og nú ætlum við, Friðbjörn
Steinsson, að ganga í hið sögu-
merka loftherbergi þitt, og
halda þar fram því starfi sem
hefur verið stöðugt fram haldið
frá hinum fyrrnefnda degi. —
Því starfi sem er helgað af
bræðralagshugsjón Reglu okk-
ar, — því starfi se mvið vænt-
um og trúum að muni halda
áfram að bera hamingjusam-
legan ávöxt öldum og óbornum.
Indr. Indriðason.
SVÍAR hafa fundið upp tæki
eitt við björgunarstarf, sem
nefnt er atgeirinn, og er það lík-
legt til að koma að góðu gagni
þar sem þarf að losa fólk úr bíl-
flökum á slysstað. Með því getur
einn maður á svipstundu skorið
og rifið sundur bíl, án verulegra
átaka og með því er einnig
hægt að lyfta nokkurra tonna
þunga.
Er talið líklegt, að oft megi
bjarga mannslífum, ef björgun-
armenn hafa tæki þetta, og get-
ur það auðvitað komið að gagni
á vinnustöðum, svo sem í skip-
um, verksmiðjum og hvarvetna
þar sem hætta er á að menn
geti lokast inni eða orðið undir
þungum hlutum. Tækið er í
öllum sjúkrabifreiðum í höfuð-
borginni, segir í fréttatilkynn-
ingu Rauða krossins. Það kostar
um 20 þúsund krónur. □
Coctail-boS verði afnumin.
Það frumvarp, sem hér er til
umræðu, er fjarri því að vera
nokkur allsherjarlausn á áfeng-
isvandamálinu, enda er því ekki
ætlað að vera það. Þetta frum-
varp fjallar aðeins um afmarkað
efni og tiltölulega þröngt svið.
Frumvarpið hefur þó þann til-
gang að draga úr vínveitingum
hins opinbera og skapa þannig
fordæmi fyrir aðra, sem vissu-
lega er mikils virði. Við flutn-
ingsmenn teljum það verulega
bót og einnig auðframkvæman-
legt, að ríkið afleggi cocktail-
boð. Þetta er tiltölulega nýtt
form gestamóttöku og hefur
varla unnið sér neina órofahefð.
Ég sé ekki, að neinum geti verið
eftirsjá í cocktail-boðum. Það
eru til ótal leiðir til þess að
veita gestum góðan beina, án
þess að hella í þá whiskýi og
öðrum vínblöndum á 1% eða 2
klukkutímum. Það væri mikils-
vert fordæmi, ef ríkið gengi á
undan og legði niður cocktail-
boð, eins og þetta frumvarp ger-
ir ráð fyrir. Ég er ekki í neinum
vafa um það, að því yrði víða
fagnað í landinu, ef sú yrði
niðurstaðan og gæti auk þess
haft víðtæk áhrif í þá átt að
draga úr vínveitingum annarra
aðila, svo sem sveitarstjórna og
einkaf y rirtæk j a. Cocktail-boð
eru hreinar drykkjuveislur. Þar
er tæpast annað veitt en áfengi.
Drykkjuskapur er þar aðal af-
þreyingin. Hér er um að ræða
tískusið, sem við höfum apað
eftir öðrum. Með cocktail-boð-
um er verið að efna til hóp-
drykkju, sem lukkan ein ræður,
hvar enda muni. Það er ekkert,
sem tryggir það, að áfengis sé
ekki neytt í óhófi í slíkum
drykkjuveislum. Að dómi okkar
flutningsmanna ætti hið opin-
bera að ganga á undan um að
afleggja þennan sið. □
Akureyrarmeistarar 1974. Sitjandi, talið frá vinstri: Páll, Soffía og
Frímann. Standandi frá vinstri: Gimnlaugur og Magnús. (F. V.)
Sveil Páls Pálssonar varS
Akureyrarmeisfari í bridoe
FIMMTA febrúar sl. lauk sveita
keppni Bridgefélags Akureyrar.
Alls spiluðu 14 sveitir, sem er
mjög góð þátttaka. Akureyrar-
meistarar 1974 varð sveit Páls
Pálssonar, en auk Páls eru í
sveitinni Frímann Frímannsson,
Gunnlaugur Guðmundsson,
Magnús Aðalbjörnsson og Soffía
Guðmundsdóttir. Sveit Alfreðs
Pálssonar varð í öðru sæti, en
sveit Alfreðs varð Akureyrar-
meistari 1972 og 1973. Sveita-
keppnin var mjög skemmtileg
og tvísýn.
I ■ : i
Úrslit í 13. og síðustu um-
ferðinni urðu þessi: I Stig
Páll — Finnur 20—0
Þormóður — Stefán 20—0
Grettir — Bjarki 20—0
Gunnar Berg — Ásgeir 20—0
Alfreð — Valdimar 19—1
Sveinbjörn — Tómas 13—7
Sigurbjörn — Guðm. 10—10
Röð sveitanna varð þessi:
Stig
1. Sv. Páls Pálssonar 220
2. — Alfreðs Pálssonar 217
3. — Þormóðs Einarss. 216
4. — Sigurbj. Bjarnas. 176
5. — Guðm. Guðlaugss. 168
6. — Grettis Frímannss. 151
7. — Sveinbj. Sigurðss. 148
8. — Gunnars Berg 139
9. — Finns Marinóssonar 91
10. — Bjarka Tr. (M. A.) 89
11. — Ásgeirs Valdimarss. 62
12. — Stefáns Jónssonar 58
13. — Tómasar Sigurjónss. 44
14. — Valdimars Halldórss. 43
Nú er hafin hjá Bridgefélag-
inu firmakeppni og einnig ein-
menningskeppni. Spilað er að
Hótel KEA á þriðjudagskvöld-
um. □
Ááinn úifiufningur á lagmeti
SÖLUSTOFNUN lagmetis var
stofnuð með lögum fyrir, rúmu
ári. Örn Erlendsson' fram-
kvæmdastjóri segir frá þessari
atvinnugrein og vaxandi fram-
leiðslu lagmetis til útflutnings
í Sjávarfréttum, sem nýlega eru
út komnar. Þar segir hann
meðal annars, að 250% sölu-
aukning hafi orðið á lagmeti
fyrstu níu mánuði liðins' árs í
vestrænum löndum, eftir að
Sölustofnunin tók til starfa.
Sjö verksmiðjur eru raunhæf-
ir framleiðendur, segir hann, og
þær eru: Niðursuðuverksmiðja
K. Jónssonar & Co. á Akureyri,
Lagmetisiðjan Siglósíld, Ora í
Kópavogi, Fiskiðja Suðurnesja,
Garði, Norðurstjarnan í Hafnar-
firði, Arctce, Akranesi og HB
og Co. á Akranesi. En alls eru
þó framleiðendur 25 talsins og
framleiða aðrar í minna mæli
og ekki reglulega.
Fimm nýjar stöðvar eru vænt
anlegar og verða þær á Dalvík,
Skagaströnd, Rifi, Sandgerði og
á Reykjanessvæðinu.
Helztu tegundir niðurlagðrar
og niðursoðinnar vöru, sem einu
nafni nefnist lagmeti, eru þessar
helztar: Reykt þorskalifur,
kavíar' úr gráslepþuhrognum,
en íslendingar framleiða 60%
af öllum grásleppuhrognum í
heiminum, ennfremur síld, sem
nú er erfitt að fá hér við land,
rækja, reykt síld, sardínur, fiski
bollur og enn fleira. Nýjar hug-
myndir eru um fiskikökur með
kjötlit, fiskisúpur, hörpudisk,
kavíar úr þorskhrognum, lifrar-
pasta úr þorsklifur og hrognum
og fiskibóllur í ýmiskonar sós-
um.
Helztu markaðir hafa verið í
V.-Evrópu, svo sem í Bretlandi,
ítalíu, Spáni, Svíþjóð, Dan-
mörku, en einnig í Rússlandi,
A.-Þýzkalandi, Póllandi, Tékkó-
slóvakíu. En framkvæmdastjór-
inn telur Japan helzta framtíð-
armarkaðslandið. Hafa fulltrúar
þaðan sýnt mikinn áhuga á lag-
meti frá íslandi, er þeir hafa
komið hingað til lands.
í niðurlagi greinar sinnar
segir Örn Erlendsson: Seljum
út fyrir 450—500 milljónir
króna í ár ef að líkum lætur.
Árið 1972 var selt út fyrir 229
milljónir, árið 1973 fyrir 280
milljónir og í ár er reiknað með
sölu fyrir allt að 500 milljónum
Nær allir fiskistofnar við ís-
land fara minnkandi, er sam-
dóma álit fiskifræðinga og þar
með rýrna þær tekjur, sem við
höfum haft af útflutningi lítt
unninna sjávarafurða. Það ætti
að hvetja okkur til að vinna
sjávaraflann meira en gert hef-
ur verið, eða beint á borð neyt-
andans, svo sem aðrar þjóðir
hafa gert með góðum árangri.
Sú vinna getur tífaldað útflutn-
ingsverðmætið. Q
1