Dagur - 06.03.1974, Page 5
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Síniar 1-11-66 og 1-11-67
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVlÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓHANN K. SIGURÐSSON
Prentverk Odds Bjömssonar h.f.
Skaffalækkun
Sjálfstæðisflokksins
SJÁLFSTÆÐISMENN hafa lagt
frani frumvarp á Alþingi þess efnis,
að skattheimta ríkissjóðs verði lækk-
uð unr fjóra milljarða króna, fxá því
sem nú er. Hinsvegar hafa þeir forð-
ast eins og heitan eldinn að minnast
á, hvað eigi að skera niður á nróti í
fjárlögunum. I»eir vita, að mörgum
finnst skattar til ríkissjóðs liáir og
telja því vinsælt að bera fram fjög-
urra milljarða lækkunartillögju á
skattheimtu ríkisins. En málið fer
aftur á móti að vandast, þegar gera
á grein fyrir því, hvernig fram-
kvæma eigi niðurskurðinn á fjárlög-
unum. Ætli þá gruni ekki, að til-
löguflutningur þeirra sé hæpinn ef
almenningi yrði gerð grein fyrir
hvað í þessu felst.
Eða hvernig ætli Norðlendingum
litist á það, ef dregið yrði úr fram-
kvæmdum frá því sem nú er stefnt
að? En lækkun ríkisútgjalda, sem
koma þyrfti á móti áðurnefndum
fjórum milljörðum, myndi nrest
bitna á framkvæmdalrliðunum og
einkunr á landsbyggðinni, utan
Faxaflóasvæðisins, vegna þess að öll
félagsleg uppbygging er þar
skemmra á veg komin, t. d. í sam-
göngum og heilbrigðismálum, svo
eitthvað sé nefnt.
í þessum tillöguflutningi Sjálf-
stæðismanna speglast viðhorf þeirra
til byggðanna, sem mest hafa orðið
útundan í félagslegri uppbyggingu,
því, að það er ekki hægt að gera
hvorttveggja, að framkvæma mikið
og lækka stórlega innheimtur ríkis-
sjóðs. En í málflutningi þeirra Sjálf-
stæðismanna rekst hvað á annars
horn, því að jafnframt fjögurra mill-
jarða sparnaðartillögu sinni halda
þeir því fram, að það þurfi að gera
enn meira átak en áætlað er, í upp-
byggingu veganna, leggja miklu
nreira fé til hafnarbóta, flugvalla, til
bygginga skóla og aðstöðu fyrir heil-
brigðisþjónustu. Þeir hafa talið það
lífsnauðsyn fyrir mannlífið við Eyja-
fjörð að byggja upp Fjórðungssjúkra
húsið á 3—4 árum, en það kostar um
einn milljarð króna. Sé á það bent,
að tillöguflutningur um minni skatt
heimtu ríkisins og jafnframt tillögu-
flutningum um stórauknar fram-
kvæmdir, séu ekki sjálfum sér sam-
kvæmar, segja þeir, að hægt sé þá að
spara á öðrum liðum en fram-
kvæmdaliðum, og verða þá svörin
óljós. Vilja Sjálfstæðismenn draga úr
fé til trygginga- og heilbrigðismála,
sem nú eru rúmir 10 milljarðar?
Vilja þeir draga úr fé til mennta-
(Framhald á blaðsíðu 2)
I minningu Gunnlaugs
Eitt og annað frá bæjarstjórn —
GÓÐUR vinur minn og fjöl-
skyldu minnar, Gunnlaugur
Markússon, pípulagningarmað-
ur, Munkaþverárstræti 12 á
Akureyri, er látinn. Hann and-
aðist sunnudaginn 24. febrúar
sl. eftir aðeins sólarhrings sjúk-
dómslegu og eftir að hafa aðeins
um fárra daga skeið kennt þess
meins, er svo skyndilega leiddi
hann til dauða. Er hann nú yfir-
gefur sína jarðlegu tilveru og
tekur sér bólfestu á æðra til-
verustigi, er sár söknuður kveð
inn af vinum hans og vanda-
mönnum, þeim, er hérna megin
við móðuna miklu búa, en mikil
huggun er í þeirri fullvissu, að
hann hefur nú gengið til endur-
funda við þann ástvin, er hann
mat ofar öllum öðrum, eigin-
konu sína, Önnu Halldórsdótt-
ur, er andaðist þann 24. okt.
1968.
Gunnlaugur Markússon var
Austfirðingur. Hann fæddist að
Mel í Reyðarfirði hinn 11.
janúar árið 1906, sonur hjón-
anna Markúsar Gissurarsonar
og Sigrúnar Einarsdóttur, og
var þannig aðeins 68 ára, er
hann lézt. Hann var ekki nema
2ja ára er sá harmur var kveð-
inn að fjölskyldu hans, að móð-
ir hans lézt, en fyrir hinn unga
svein varð það lán í óláninu, að
hann var tekinn í fóstur af
mikilli ágætiskonu, Þorbjörgu
Jónsdóttur að Hrauni í Reyðar-
firði, og hjá henni ólst hann upp
til unglingsára, er hann byrjaði
að sjá fyrir sér sjálfur. í þá daga
voru unglingum fáir vegir færir
aðrir en þeir að byrja að vinna
hörðum höndum, strax er þeir
gátu vettlingi valdið, Menntun-
arskilyrði voru slæm, að því er
skólamenntun snerti, og efni
fólks takmörkuð. Gunnlaugur
byrjaði þá strax að vinna alla
almenna vinnu til sjós og lands,
eftir því sem tækifæri buðust,
og komu þá þegar í ljós þeir
eiginleikar hans, er svo vel
dugðu honum á lífsleiðinni, trú-
mennska, dugnaður og ósér-
hlífni. Eftir nokkurra ára starf
á fjörðunum fyrir austan lá leið
hans til starfa á Siglufirði, en
þar kynntist hann ungri stúlku,
Önnu Halldórsdóttur frá Bakka
seh í Öxnadal, er hann batzt
órofa tryggðarböndum. Þau gift
ust hinn 15. nóvember 1930, og
stofnuðu heimili að Oddeyrar-
götu 14 á Akureyri, en þar
bjuggu þau þar til er þau höfðu
byggt hús sitt að Munkaþverár-
Stræti Í2. Þar bjuggu þau síðan
til æviloka. Anna var kona afar
- smekkvís og bjó manni sínum
og dætrum þeirra þrem einkar
fagurt og vistlegt heimili, þótt
e.fni hafi efalaust ekki alltaf ver
ið mikil. Dæturnar þrjár eru
Sigrún, Kolbrún og Halla, en
ennfremur ólst dótturdóttirin
Anna upp hjá afa sínum og
ömmu. Hjónaband þeirra Gunn-
laugs og Önnu einkenndist
ávallt af mikilli samheldni og
gagnkvæmri ást og virðingu,
enda varð heimili þeirra fjöl-
skyldunni allri sannkallaður
hamingjureitur. Mikill harmur
- SMÁTT OG STORT
(Framhald á blaðsíðu 5)
inn 296 þingsæti. Frjálslyndi
flokkurinn hlaut 14 þingsæti og
aðrir flokkar 24. Þess er þá
einnig að minnast, að í næstu
kosningum áður, spáðu skoðana
kannanir í Bretlandi því, að þá-
verandi stjórnarflokkur, verka-
mannaflokkurinn með Wilson í
forsæti, myndi sigra íhaldsflokk
inn með nokkrum mun. Þetta
fór á annan veg, eins og kunn-
ugt er.
var að þeim kveðinn við andlát
Önnu, er andaðist eins og áður
sagði á árinu 1968, en það var
Gunnlaugi bót í raunum, að
hann átti jafnan traust athvarf
hjá dætrum sínum og fjölskyld-
um þeirra, og þá einkum hjá
Höllu dóttur sinni og Þráni Jóns
syni, einginmanni hennar, og
börnum þeirra hjóna, að Espi-
lundi 18 á Akureyri. Varð það
annað heimili Gunnlaugs eftir
lát konu hans.
Gunnlaugur Markússon starf-
aði um langt árabil og allt til
æviloka hjá Kaupfélagi Eyfirð-
inga á Akureyri. Störf hans hjá
félaginu voru einkum á sviði
pípulagna og ýmiss konar við-
halds og viðgerða í húseignum
félagsins. Störf sín vann hann
ávallt af einstakri trúmennsku
og ósérhlífni og taldi það ekki
eftir sér, þótt starfið krefðist
vinnufúsra handa hans á öllum
tímum sólarhringsins. Hann var
vinsæll maður og vel látinn af
starfsfélögum sínum og naut
fulls trausts félagsins. Ófáir eru
þeir aðrir, er nutu greiðvikni
hans.
Er ég, sem þessar línur rita,
fluttist með fjölskyldu mína til
Akureyrar fyrir átta árum,
tókst með okkur og Gunnlaugi
góður kunningsskapur og síðar
hlý vinátta. Okkur var jafnan
ánægja að koma á heimili hans
og ávallt var hann aufúsugestur
á heimili okkar hjónanna, en til
okkar kom hann oft og flutti þá
jafnan með sér gleði og bjart-
sýni, sem voru ríkir þættir í
skaphöfn hans. Við Gunnlaugur
áttum þess kost að vera saman
að sumrinu úti í náttúrunni við
veiðiskap, en af veiði í ám og
vötnum hafði hann mikið yndi.
Þá sem jafnan fann maður það,
að hann var traustur maður og
góður félagi, einlægur og hisp-
urslaus. Er nú leiðir skilja við
landamæri lífs og dauða flyt ég
honum hugheilar þakkir okkar
hjónanna og barna okkar fyrir
hlýhug og vinátu í okkar garð
og fyrir trausta samfylgd þau
ár, er við höfum búið hér í bæ.
Ástvinum hans öllum sendum
við alúðarfyllstu kveðjur samúð
ar og samhryggðar, og biðjum
þeim Guðs blessunar í harmi
þeirra.
Valur Arnþórsson.
Saniið við starfsmenn bæjarins.
Kjarasamninganefnd Akur-
eyrarbæjar hefur samið við
Starfsmannafélag Akureyrar-
bæjar um kaup og kjör til
næstu tveggja og hálfs árs.
Samningurinn er í öllufn höfuð-
atriðum eins og kjarasamningur
ríkisins við BSRB. Þó munu
vera í samningunum nokkur
frávik til hagsbóta fyrir bæjar-
starfsmenn hér. Má í því sam-
bandi benda á, að bæjarsjóður
og stofnanji4 hans greiða árlegt
framlag í orlofsheimilasjóð
starfsmannaj og ennfremur til
námssjóðs starfsmanna og nem-
ur framlagið 0.25% af launum
fastra starfsmanna í hvorn sjóð.
Námssjóður á að styrkja starfs-
menn til framhaldsnáms.
Miklar framkvæmdir hjá
Vatnsveitunni.
Fyrir bæjarstjórn liggur fjár-
hags- 'og framkvæmdaáætlun
Vatnsveitu Akureyrar. Kemur
þar fram, að tekjur Vatnsveit-
unnar á þessu ári eru áætlaðar
36.5 millj. kr. Til nýrra fram-
kvæmda er áætlað að verja um
14.5 millj. kr. og er þar einkum
um nýjar lagnir í götum að
HVAR ER NU RÉTTLÆTIÐ?
Öskureið húsmóðir, margra
barna móðir og eignast líklega
og elur upp enn fleiri kjósendur
hér á Akureyri, sendir yfirvöld-
um bæjarins kveðju guðs og
sína á eftirfarandi hátt:
Hvar er réttlætið? Hver
stjórnar því hvort þú færð raf-
magn til að hita íbúðina, eða
ert einn hinna óheppnu, sem
verður að kaupa olíu til hitunar
fyrir mörg þúsund á mánuði?
Ég borgaði tæpar 8 þúsund
krónur síðast, þrátt fyrir góða
tíð og litla kyndingu, á meðan
þeir, sem rafupphitun hafa,
borga aðeins fjórða hluta þess-
arar upphæðar fyrir sína upp-
hitun.
Hvers vegna erum við ekki
öll jafn rétthá í þessu efni?
Borgum við ekki öll okkar gjöld
til bæjarins okkar? Hvers
vegna eiga þá sumir að borga
margfalt á við aðra í upphitun
til að halda á sér hita? Nei,
mér finnst mæhrinn fullur. Eitt
hvað þarf hér að gera til úrbóta.
Bæjarstjórnin talar um hita-
veitu frá Mývatnssveit, en
bæjarstjórnin er róleg í tíðinni,
eins og allir vita.
Húsmæður! Látum þá komast
að því í bæjarstjórninni, að
okkar atkvæði fær sá einn í
næstu kosningum, sem einbeitir
sér að þessu stóra hagsmuna-
máli, þ. e. hitaveitu og það án
nokkurs hangs.
„HVERJUM ER UM AÐ
KENNA?“
Bæði í íslendingi og Degi
hefur sá dráttur sem orðinn er
á tengingu þrettán sveitabæja í
Þistilfirði verið gerður að stór-
máli í forustugreinum. Ekki
skal það lastað að umhyggja
fyrir velferð Norður-Þingeying-
um sé nú kynnt alþjóð.
Skýringar á þessum drætti
eru eftirfarandi:
Þrátt fyrir að byrjað væri á
50 km langri 30 kV línu Kópa-
sker — Þistilfjörður snemma
sumars, eða eins fljótt og færð
leyfði á Axarfjarðarheiði, og
síðan unnið að 20 km langri
11 kV dreifilínu í Þistilfirði, þá
var þessu verki ekki lokið á
sumrinu, en drógst fram á vetr-
armánuðina. Ýmis nauðsynleg
viðhaldsverk þurfti einnig að
vinna á þessu svæði. Á haust-
nóttum var uppvíst að dráttur
yrði á afhendingu spennistöðva
frá Bandaríkjunum, og þá var
strax ljóst að tenging sveita-
býlanna gat ekki orðið fyrir ára
mót. Um áramótin komu síðan
spennarnir, en vegna fjárskorts
voru þeir ekki leystir út fyrr
en seinni hluta janúar.
Spennirinn sem fyrirhugað
var að nota í aðveitustöðina í
Þistilfirði (30/11 kV) var lán-
aður til Rafveitu Vestmanna-
eyja, vegna ástæðna sem alþjóð
eru kunnar, og verður þar, þar
til nýr spennir leysir hann af
hólmi innan skamms tíma.
Ég tel mig ekki þurfa að gefa
skýringu á því að 4 sveitaspenn-
ar voru fluttir úr geymsluhúsi
á Þórshöfn til að leysa vand-
ræði, vegna bilana í Höfða-
hverfi. Skýringar á þessu gætu
þingmenn og aðrir fengið hjá
Höfðhverfingum.
Strax þegar ljóst er, hvenær
það efni verður tiltækt, sem
þarf til að ljúka þessu verki
mun vinnuflokkur verða sendur
austur, en að sjálfsögðu ekki
fyrr.
Ég vona að þessi fáu orð upp-
lýsi þingmen og aðra nægjan-
lega um málið.
I ! L !
Virðingarfyllst,
Ingólfur Árnason.
GALOPIÐ BRÉF
TIL HEIMIS HANNESSONAR
LÖGFRÆÐINGS
Aðeins örfá orð í tilefni af
grein þinni í „Degi“ 20. febrúar
1974.
Nokkrar spurningar:
1. Hvar eru háhitasvæðin og
leirhverirnir í Norðurlands-
kjördæmi eystra?
2. Hvar eru fallvötnin til virkj-
unar í þessu kjördæmi?
3. Hvar eru vinsælustu veiði-
árnar?
4. Hvar er náttúrufegurðin, sem
ferðafólkið er að sækjast
eftir?
Þetta sem ég hef nefnt er ekki
í lögsagnarumdæmi Akureyrar,
ekki einu sinni í Vaðlaþingum.
Þetta allt er í Þingeyjarþing-
urn, þess vegna sendi ég þér
þessar línur.
Allir, sem eitthvað hafa fylgst
með ferðamánnastraumnum í
Norðurlandskjördæmi eystra á
undanförnum árum, hafa séð
með eigin augum, að alla daga
frá vori til hausts koma stórir
hópar ferðafólks með morgun-
flugi frá Reykjavík til Akur-
eyrar. Þar stígur þetta fólk upp
í rútu og ekur austur í Mývatns
sveit og skoðar sig þar um yfir
daginn. Um kvöldið er svo ekið
aftur til Akureyrar, til þess að
ná í flugvélina til Reykjavíkur,
en ekki til þess að skoða sig um
á Akureyri, snotrum bæ að
sönnu! Þar vantar þó það sem
ferðafólkið er að leita að, en er
í ríkum mæli austan við heið-
arnar.
Ferðafólkið fær góða fyrir-
greiðslu í Vaðla- og Þingeyjar-
þingum, sem gæti þó verið
betri, ef t. d. væri gerður fyrsta
flokks flugvöllur og flug-
afgreiðsla í Aðaldal. Ferða-
mannamiðstöð í Mývatnssveit,
Kelduhverfi, Húsavík eða
Reykjahverfi, sem nýtti jarð-
hita til baða, þar sem hann er
nægur fyrir hendi. Ekki spillir
heldur náttúrufegurðin í Mý-
vatnssveit, Hólmatungum,
Hljóðaklettum eða Ásbyrgi fyr-
ir, eða veiðiaðstaðan í þingeysk-
um ám og vötnum, eða skíða-
aðstaðan í Kinnarfjöllum allt
sumarið.
Mér finnst, að Heilsuræktar-
miðstöð eða Ferðamannamið-
stöð væri betur staðsett á góð-
um stað í Þingeyjarþingi, þar
senr yfrið nóg heitt vatn væri
fyrir hendi, en að klessa henni
niður á Akureyri, þar sem heita
vatnið vantar. Enda slíkt í
meira samræmi við byggða-
stefnu þá sem okkar samherjar
hafa boðað, ef framkvæmd
hennar á ekki bara að vera í
látustunni.
í Guðs friði.
Sigfús Jónsson,
Einarsstöðuin.
ræða. En hluti þessa fjár gengur
einnig til _ stofnveitunnar frá
Hörgáreyrum og til vatnsveitu
í Kræklingahlíð.
Nýja vatnsveitan frá Hörgár-
eyrum hefur komið að góðum
notum í vetur, og mikil ánægja
ríkir yfir því, að ráðist var í
þessar vatnsveituframkvæmdir.
Vatnsveitustjóri er Sigurður
Svanbergsson.
Hitaveita frá Mývatnssveit?
Frá hitaveitunefnd bæjarins
kom eftirfarandi bókun:
Lögð voru fram frumdrög að
varmaveitu fyrir Akureyri frá
Mývatnssveit.
Nefndinni þótti niðurstöður
þessarar athugunar athyglis-
verðar og er ákveðið að vinna
þessar athuganir áfram og skila
þeim í skýrsluformi. Ennfrem-
ur er gert ráð fyrir frum-
drögum að áætlun um rafhitun
fyrir bæinn, til þess að fá sam-
anburð á þessum tveimur hit-
unarmöguleikum.
Einnig telur nefndin eðlilegt
að leita eftir greinargerð frá
Jarðhitadeild Orkustofnunar
um líkur fyrir virkjun jarðhita
í næsta nágrenni Akureyrar, og
þar með t. d. á Reykjum í
Fnjóskadal.
Ný togbraut.
íþróttaráð leggur til við bæj-
arstjórn, að keypt verði tog-
braut frá fyrirtækinu Doppel-
mayer í Austurríki, með flutn-
ingsgetu 300 manns á klst., sem
síðar á að vera hægt að auka
upp í 500 manns á klst. Tog-
brautin er áætluð 524 metra
löng, með 195 metra hæðarmis-
mun, og á hún að koma í Reit-
unum í Hlíðarfjalli. Mál þetta
mun hafa verið tekið til um-
ræðu á fundi bæjarstjórnar í
gær.
Áætlað verð togbrautarinnar
er rúmar tvær milljónir króna
í innkaupi, en áætlaður heildar-
kostnaður er rúmar 4 milljónir
króna. í fundargérðinni kemur
einnig fram, að íþróttasjóður
ríkisins mun greiða 30% af
stofnkostnaði á snjótroðara,
sem hingað var keyptur í vetur
og 40% af kostnaðinum við tog-
brautina.
Nýja íþróttahúsið.
Bærinn kaus á sínum tíma
nefnd til að annast undirbúning
byggingar nýs íþróttahúss
(svæðishús) á Akureyri. í
fundargerð frá nefndinni kem-
ur fram, að möguleiki er á því
að undirrita samning við
menntamálaráðuneytið um
byggingu íþróttahússins, ef fyr-
ir lægi staðarval og uppdrættir
að húsinu.
Á allmörgum undanförnum
árurn hefur ríkið áætlað nokkra
fjárhæð til undirbúningsvinnu
þessa mannvirkis, og mun sú
upphæð nema um 6.5 millj. kr.
Hluti þessa fjár hefur verið
lánaður til skólabygginga í
bænum. □
SÝNSNG
SIGURÐUR Örlygsson mun
sýna í sýningarsal Myndsmiðj-
unnar 20 olíu- og akrylmyndir
dagana 9., 10., 13., 16. og 17.
marz.
Sigurður útskrifaðist frá
Myndlista- og handíðaskólanum
vorið 1971, eftir það fór hann
til Danmerkur og innritaðist á
Konunglegu akademíuna í
Kaupmannahöfn, þar_var hann (
lVz vetur. Um þessar mundir
starfar Sigurður sem myndlista
kennari á Egilsstöðum.
Þess má og geta, að Sigurður
er sonur hins víðfræga grínista
og málara Örlygs Sigurðssonar,
sem mun ekki vera Akureyr-
ingum ókunnur.
Sjá nánar um sýninguna í
götuauglýsingu. □
- Frá lélagsráðsfundi...
i (Framhald af blaðsíðu 1)
Sala sjávarafurða gekk vel á
árinu. Nú í árslok eru birgðir
svipaðar og í fyrra.
Birgðir mjólkursamlagsins
eru svipaðar að magni og í
fyrra.
Innlögð mjólk nam samtals
21.296.350 ltr. eða um 1.69%
hækkun frá fyrra ári. Útborgun
til framleiðenda á árinu kr.
405.222.247,70, og er hún
93.266.647 krónum hærri en í
fyrra. Á hvern líter er útborg-
unin 1.902,77 aurar, sem eru
77.4% af grundvallarverði.
Á sláturliúsum félagsins var
slátrað 50.237 kindum. Nam kjöt
þunginn 787.397 kg og var því
5.92% hærri en í fyrra. Meðal-
vigt dilka hækkaði um 0.4 kg
og var 15.05 kg án nýrnamörs.
Gæruinnlegg nam 52.801 stk.,
173.992.3 kg, eða 17.988 kg meiri
þungi en árið 1972.
Ullarinnlegg nam 51.976 kg,
eða 3.570 kg meira en árið áður.
Kjötiðnaðarstöðin tók til
vinnslu og sölumeðferðar
858.148 kg af kjötmeti.
Jarðepli, teknar hafa verið
1.794 tunnur af jarðeplum. Árið
1972 nam þetta 4.383 tunnum.
Freðfiskur, unninn á hrað-
frystihúsum á Dalvík og í Hrís-
ey, alls 1.904.054 kg, eða 2.75%
aukning frá fyrra ári.
1 Fiskimjöl, unnið í Hrísey og
á Dalvík, alls 610.750 kg, eða
8.97% aukning frá fyrra ári.
Saltfiskur, framleiddur í
Hrísey, Hjalteyri, Grímsey, Ár-
skógsströnd og Akureyri 518.550
kg, eða 42.24% aukning frá
fyrra ári.
Hrogn frá Grímsey, Hrísey,
Grenivík, Árskógsströnd og Dal
vík, alls 1.517 tunnur, eða 721
tunnu fleira en í fyrra.
Helztu framkvæmdir á hðnu
ári fólust í malbikun lóða ög
bílastæða bæði á Akureyri og
á Dalvík, og byggingar og breyt
ingar á húseignum. Þar er
stærst í sniðum Hafnarstræti
91—93, nýbyggingin mikla, sem
áður hefur verið frá sagt hér í
blaðinu og því deildarskipta
Vöruhúsi, sem þar er nú, með
herradeild, vefnaðarvörudeild,
skódeild, hljómdeild, leikfanga-
og ritfangadeild, og auk þess
fékk lyfjabúðin nýtt húsnæði,
og Birgðastöð tekin í notkun á
5. og 6. hæð. Fram var haldið
byggingu mjólkurstöðvar, þar
sem frá var horfið 1966. Haldið
var áfram framkvæmdum við
frystihúsið á Dalvík og lokið
breytingum á sláturhúsi þar og
keypt síldarverksmiðja. Frá-
gangi á saltfiskverkunar- og
ísframleiðsluhúsi að mestu lok-
ið í Hrísey og hafnar fram-
kvæmdir við saltverkunarstöð í
Grímsey. Þá var á árinu keypt
mikið af vélum og tækjum.
Áætlaðar framkvæmdir á yfir
standandi ári eru meðal annars
framhaldsframkvæmdir á Dal-
vík og í Hrísey, bygging nýs
útibús við ofanvert Þingvalla-
strætis á Akureyri, framhald
framkvæmda við nýju mjólkur-
stöðina og er þá fátt nefnt af
mörgu. Q
mníniiim
Fulltrúaráð íþróttabandalags Ákureyrar,
(Ljósm.: Fr. V.)
Ársþing Iþrólfabandalags Akureyrar
ÁRSÞING íþróttabandalags
Akureyrar fór fram fyrir
skömmu og voru þar mættir
flestir forustumenn íþróttahreyf
ingarinnar á Akureyri, Form.
ÍBA, ísak Guðmann, flutti
skýrslu stjórnar og gjaldkeri,
Leifur Tómasson, lagði fram
reikningana. Þá var lögð fram
Ársskýrsla ÍBA, 40 bls. bók, og
voru þar skýrslur aðildarfélaga
ÍBA, en þau eru nú 10, en auk
þess skýrslur frá Knattspyrnu-
ráði, Skíðaráði og Knattspyrnu-
dómarafélaginu. Þá er að finna
í Ársskýrslunni yfirlit yfir fé-
lagatölu og íþróttaiðkendur,
sem birt verður síðar.
Það er greinilegt, að talsverð
gróska er í íþróttalífinu í bæn-
um og fer vaxandi. Akureyrar-
bær hefur nú lagt fram veru-
lega aukið fjármagn til hins
frjálsa íþróttastarfs, og færði
þingið bæjarstjórn þakkir fyrir
það, en eins og allir vita, hefur
fjárskortur verið einn mesti
þröskuldur í vegi fyrir auknu
íþróttastarfi í landinu, en skiln-
ingur ráðamanna á starfi íþrótta
hreyfingarinnar fer nú mjög
vaxandi.
Margar tillögur lágu fyrir
þinginu til afgreiðslu og voru
þær allar samþykktar sam-
hljóða.
í þinglok fóru fram kosningar
og var ísak Guðmann endur-
kjörinn formaður ÍBA, en Full-
trúaráð ÍBA, Knattspyrnuráð
og Skíðaráð eru þannig skipuð:
FuIItrúaráð:
ísak Guðmann, form. ÍBA,
Leifur Tómasson, KA, Þröstur
Guðjónsson, Þór, Pétur Pálma-
son, Badmintonfél., Kristín
Jónasdóttir, Skotfél., Árni Jóns
son, Golfklúbbur Ak., Stefán
Árnason, R.Æ.A.K., Vilhjálmur
Ingi Árnason, Sjóferðafél, Ak.,
Stefán Jóhannsson, ÍMA, Gunn
ar Eiríksson, Sundfél. Oðinn,
Birgir Ágústsson, Skautafél. Ak.
Knattspy muráð:
Kristján Kristjánsson, KA,
Steindór Gunnarsson, KA,
Karl Steingrímsson, KA, Sævar
Gestsson, Þór, Sævar Frímanns
son, Þór, Guðni Jónsson, Þór.
Skíðaráð:
ívar Sigmundsson, KA, Óðinn
Árnason, KA, Frímann Gunn-
laugsson, KA, Reynir Brynjólfs
son, Þór, Eggert Eggertsson,
Þór, Grétar Ólafsson, Þór.
íþróttahús.
Ársþing ÍBA haldið 7. febrúar
1974 beinir þeirri ósk til undir-
búningsnefndar að byggingu
nýs íþróttahúss, að nefndin
hraði svo störfum, að i vor verði
unnt að ganga frá samningum
við menntamálaráðuneytið um
„svæðishús“ á Akureyri, og að
bygging þess hefjist ei síðar en
vorið 1975. Hús þetta verði af
þeirri stærð, sem hefur íöglegah
völl fyrir handknattleikskeppni
og rúmgott áhorfendasvæði.
Samþykkt samhljóða.,
* • >144 ’i
Greinargerð:
Um þessa tillögu urðu mestar
unrræður og taldi nefndin, að
íþróttahúsmálin hefðu í dag al-
gjöran forgang um þau mál,
sem hún fjallaði um.
Nefndin leggur áherzlu á, að
staðsetning hins nýja íþrótta-
húss verði ákveðin hið allra
fyrsta og bendir í því sambandi
á samþykktir fyrri ársþinga
ÍBA, þar sem eindregið er mælt
með túninu sunnan sundlaugar.
Við hönnun hússins verði
reynt að taka tillit til sérþarfa
sem allra flestra, t. d. skotfélags,
borðtennis, frjálsra íþrótta, lyft-
inga, auk hinna stærri leikja
eins og handbolta, blaks og
körfuknattleiks. Salarstærð
verði og miðuð við hagkvæma
nýtingu skóla, almennings og
íþróttafélaganna.
Áhorfendasvæði sé ráðgert í
húsinu fyrir 1000—1200 manns.
Bygging hússins hefjist sem
allra fyrst og eigi síðar en vorið
1975.
Vélfryst skautasvell.
Ársþing ÍBA haldið 7. febrúar
1974 telur eðlilegt, að í sam-
bandi við skipulag íþróttamann
virkja á Akureyri verði eigi
látið lengur dragast að staðsetja
framtíðarstað fyrir vélfryst
skautasvell og hefja fram-
kvæmdir hið allra fyrsta. Beinir
þingið því til skipulagsyfirvalda
að hlutast til um það, að þetta
mannvirki verði í tengslum við
eitthvert þeirra íþróttamann-
virkja, sem þegar eru risin eða
eru í hönnun.
Sanrþykkt samhljóða. ,,
l<
Greinargerð:
Allsherjarnefnd taldi höfuð-
nauðsyn í sambandi við vél-
fryst skautasvell, að staðsetn-
ing yrði ákveðin sem fyrst. Tvö
svæði hafa einkum verið til um
ræðu í því sambandi, í brekk-
unni sunnan íþróttavallarins
vestan Hólabrautar, og túnið
sunnan sundlaugar, og þá í ein-
hverjum tengslum við nýja
íþróttahúsið.
Komið hefir í ljós, að við
íþróttavöllinn eru aðstæður
allar mjög þröngar, og er hugs-
að er til þess í framtíðinni að
byggja yfir svæðið, er það allt
að því útilokað.
Allsherjarnefnd leggur því til,
að við tillögu nr. 3 verði bætt:
Vélfryst skautasvell verði haft
í huga, þegar skipulag er gert
af svæðinu sunnan sundlaugar.
Tillaga nr. 4.
Ársþing ÍBA haldið á Akur-
eýri 7. febrúar 1974 fer þess ein-
dregið á leit við íþróttaráð Ak-
ureyrar, að það hlutist til um
að gerð verði gistiaðstaða fyrir
íþróttahópa á efri hæð íþrótta-
hússins við Laugargötu.
Samþykkt samhljóða. ,
íþróttavellir.
Ársþing ÍBA leggur til að til-
nefnd verði þriggja manna
nefnd frá KA, Þór og ÍBA til
viðræðu við bæjaryfirvöld um
uppbyggingu íþróttavalla í bæn
um . og þá sérstaklega svæði
Þórs í Glerárhverfi og svæði
KA í Lundshverfi.
Samþykkt samhljóða.
Greinargerð:
Fyrir allmörgum árum síðan
(Framhald á blaðsíðu 2) , j