Dagur - 06.03.1974, Qupperneq 8
Bagub
AUGLÝSINGASÍMI
Akureyri, miðvikudaginn 6. marz 1974
Silfurfingur-
bjargir. m v GULLSWIIÐIIjt ‘
Fermingar- íf S' \ SIGTRYGGÚR
gjafir, J & PÉTUR ; .
mikið úrval. f AKUREYRI
> SMÁTT & STÓRT
*•••
Nýi báturinn frá Vör. (Ljósm.: G. P. K.)
.Nyr bátui* aflientur frá Yör h.f,
ARÓÐURSROKUR
Stjórnarandstaðan á íslandi er
nokkuð hávaðasöm á köflum, en
þess á milli dregur niður í
henni. Gagnrýni hennar er auð-
vitað sjálfsögð og allar jákvæð-
ar tillögur góðra gjalda verðar
og sjálfsagt að taka meira tillit
til tillagna stjórnarandstöðu en
gert var undir viðreisn. En öðru
hverju upphefur stjórnarand-
staðan miklar áróðursrokur,
svo að allt ætlar af göflunum að
ganga.
FYRSTA ROKAN
Fyrsta rokan átti upptök sín í
Bjarna Guðnasyni, þegar hann
varð núverandi stjórn andsnú-
inn, en um leið varð hann dekur
barn íhaldsins, sem virtist að
hann gæti velt stjórninni.
Bjarni varð uppveðraður af þess
um vinalátum, en hefur nú farið
sér hægar um skeið. Það var
vont að tapa Bjama úr stjórnar-
flokkunum, en stjórnarflokkam
ir hafa samt meirihluta á Al-
þingi og við það situr.
M/B ARNARNES ÍS 133, ísa-
firði, er nýsmíði nr. 3 hjá Vör
h.f. á Akureyri og hófst smíði
þess í apríl 1973.
Báturinn er 29 brúttórúmlest-
ir, útbúinn til línu-, neta-, hand-
færa- og togveiða. í bátnum eru
öll venjuleg siglinga- og fiski-
leitartæki, sem eru í bátum af
Landbúnaðarvörur
hækka
FRAMLEIÐSLURÁÐ landbún-
aðarins hefur auglýst nýtt og
hækkað verð á landbúnaðar-
vörum. Nemur hækkunin 17—
18% til bænda, en hækkun til
neytenda er breytileg í prósent-
tölu vegna niðurgreiðslnanna,
sem eru eins og áður að krónu-
tölu. Varð sexmannanefndin, en
hana skipa bæði framleiðendur
og neytendur, sammála um
hækkunina. Það, sem til hækk-
unar leiðir, er m. a. kaupgjalds-
liðurinn í verðgrundvellinum
og erlendar vörur til búrekst-
urs. Q
AÐFARARNÓTT síðasta laug-
ardags var brotist inn í Véla-
og raftækjaverzlunina, Glerár-
götu 6. Stolið var 4—5 þús. kr.
í peningum úr kassa í skrifstof-
unni. En 2—3 þús. kr. af þess-
um peningum voru gamlir pen-
ingaseðlar, komnir úr umferð,
100 króna seðlar, grænir, jafn-
vel 25 króna seðlar. Biður lög-
reglan að gera aðvart, ef ein-
hver getur gefið upplýsingar um
þjófnað þennan. Q
Lengi pfor í
Gunnarsstöðum, Þistilfirði, 4.
rnarz. Svell hafa nú leyzt af
nokkrum hluta túnanna, en
víða liggur þó klaki yfir öllu.
Snjór er meiri þegar fjær dreg-
ur sjó. Fært er um allar sveitir
og til Raufarhafnar mun vera
bílfært.
Fiskafli er ákaflega tregur.
Hreindýrin hurfu þegar fór
þessarri stærð, svo sem radar,
miðunarstöð, sjálfstýring o. fl.
í bátnum eru 300 hestafla Volvö
Penta aðalvél og reyndist gang-
hraði 10.6 mílur í reynsluferð.
Báturinn er byggður eftir
teikningum Páls Hjartarsonar
skipatæknifræðings.
Hjá Vör h.f. starfa nú 11
menn, en auk fastra starfs-
manna Varar h.f. störfuðu ýms-
ir iðnaðarmenn að smíði báts-
ins, svo sem vélsmiðir frá vél-
smiðjunni Odda h.f., Akureyri,
sem sáu um niðursetningu véla
og spila, rafvirkjar frá Norður-
ljósi s.f., Akureyri, sáu um raf-
lagnir og radíóvirkjar frá Radíó
viðgerðarstofu Stefáns Hall-
grímssonar, Akureyri, sáu um
frágang siglinga- og fiskileitar-
tækja.
Skipstjóri á m b Arnarnesi
er Jón Kr. Jónsson, ísafirði, en
eigandi bátsins er Arnarnes h.f.,
ísafirði.
Hjá Vör h.f. eru nú í smíðum
þrír samskonar bátar sem Arn-
arnes.
(Fréttatilkynning)
ÖNNUR ROKAN
Stjórnarandstæðíngar settu nú
von sína alla á varnarmálin og
komu af stað undirskriftalist-
unum frægu. Vitað var, að-um
það mál eru skiptar skoðanir og
málið því eins og sjálfkjörið til
að spilla samstarfi stjórnarflokk
anna og æsa til mótmæla við
sjálfan stjórnarsáttmálann. í
þessu máli eru öfgaflokkarnir,
bæði íhald og þeir, sem telja sig
lengst til vinstri, ákveðnir, livor
á sínum væng stjórnmálanna.
Þriðja aflið er svo Framsóknar-
Bamaleikritið Halló krakkar!
LEIKFÉLAG AKUREYRAR
frumsýndi barnaleikritið Halló
krakkar á laugardaginn í Sam-
komuhúsinu við ágætar undir-
téktir. Léikrit • þetta er eftir
Svíahn Leif Fostenberg en Guð
laug Iiermannsdóttir þýddi og
staðfærði. Söngtexta annaðist
Óttar Einarsson, leikmynd
gerðu Arnar Jónsson og Þráinn
Karlsson, en leikstjóri er Þór-
hildur Þorleifsdóttir.
Leikarar eru: Aðalsteinn
Bergdal, Géstur E. Jónasson,
Guðlaug Hermannsdóttir, Guð-
mundur Ólafsson, Kjurugei
Alexandra, Saga Jónsdóttir og
Sigurveig Jónsdóttir. En hér er
þó ekki allt upp talið, því að
börnin fá að taka þátt í sumum
atriðum sýningarinnar uppi á
leiðsviðinu og leikararnir koma
einnig „niður“ til áheyrenda,
meðal annars með hina miklu
og ógurlegu slöngu, sem sum
börn eru hrædd við, og þetta
eru nýjungar sem börnin kunna
svo sannarlega að meta.
Efni leiksins er margþætt,
svo sem sjá má á eftirfarandi
xynningu atriða í leikskránni.
En þau heita: Forleikur, kynn-
ingarleikur, spunaleikur, slöngu
leikur, valdaleikur, gátuleikur,
árásarleikur, tónlistarleikur, og
skattaleikur.
Sjónleikurinn Halló krakkar
brúar hið hefðbundna djúp á
milli leikara og áhorfenda —
milli stjarnanna á leiksviðinu
og hinna þöglu leikhúsgesta —
en það hefur löngum verið mik-
ið og staðfast.
Það var gaman að fylgjast
með því, hve börnin voru fljót
að átta sig á hinum breyttu við-
horfum í leikhúsinu: að þau
voru allt í einu orðin þátttak-
endur í sjónleiknum, og að leik-
ararnir voru mitt á meðal þeirra
og unnu fyrir þau og með þeim
— og það var gaman.
Mér þykir sérstök ástæða til
að þakka leikurunum sjö fyrir
það hve vel þeim tókst að fá
börnin til samvinu við sig, og
brjóta þar með nýja leið í leik-
húsinu — og í þetta sinn beint
inn í hug og hjarta yngstu kyn-
slóðarinnar. Börnin munu nú
óð og uppvæg vilja fara í leik-
húsið, og það er bezt að lofa
þeim það.
E. D.
að blota og sér þau nú enginn
maður.
Fréttir hef ég engar að sinni.
En maður einn gamall, sem
búinn var að fara í göngur í
sextíu ár, sagði stundum að
göngum loknum, að heiðin
væri nú kindalaus, og bætti svo
við: Þó getur lengi leynst grátt
lamb undir steini. Ó. H.
Úr leikhúsinu.
(Ljósniyndastoía Páls)
flokkurinn og að vissu leyti
einnig Alþýðuflokkurinn og
mun nú flestum finnast, að
varnarmálin verði naumast
leyst eftir öfgaleiðum. íhalds-
rokan í þessu máli varir ennþá
en er þó að f jara út.
MAGNÚSARROKAN
Það varð enn ein íhladsroka,
þegar Magnús Kjartansson ráð-
herra sagði nágrannaþjóðuin
okkar á Norðurlöndum til synd-
anna í landhelgismálinu, svo að
undan sveið. Hann reifaði þar
og önnur mál, ásamt Gylfa Þ.
Gíslasyni, sem forsætisráðherra
sá ástæðu til að taka til atluig-
unar þá þegar. Nú verður
Magnús að segja af sér og er þá
ekki stjómin fallin, hrópaði
íhaldið. En einnig þetta brást.
Magnús situr og stjórnin situr
og íhaldið á bágt.
VERKFALLSROKAN
Og enn gafst íhaldinu von og
sú von var bundin verkföllum.
Verkföllin stóðu yfirleitt í tvo
daga, og samið var til tveggja
ára. Hinn stórfurðulegi mál-
flutningur Morgunblaðsins, sem
var allur miðaður við verkföll
og að veikja stjórnina, mistókst
með öllu, enda fordæmdur jafnt
af stjórnarandstæðingum, sem
stjórnarsinnum. Menn velta því
nú fyrir sér, út af hverju íhaldið
geri næstu roku.
VÍNLANDSKORTIÐ
FALSAÐ
Komið hefur fram í fréttum, að
Vínlandskortið góða, sem fram
kom árið 1965 og þótti hið merki
legasta og elzt korta, sé falsað.
líklega búið til fyrir skönunu.
Ef svo er, er landabréf Sigurðar
Stefánssonar Iandabréfa elzt.
Það er geymt í Konunglegu bók
hlöðunni í Höfn. Það var teikn-
að á 16. öld og þykir gersemi.
HÚNVETNINGUR SIGRAÐI
í Bikarglímu Glímusambands
íslands urðu þau óvæntu en
verðskulduðu úrslit, að tvítugur
Húnvetningur varð sigurvegari
og heitir hann Þorsteinn Sigur-
jónsson, og hefur liann ekki æft
glímu nema í nokkra mánuði.
Vann liann einnig fegurðarverð-
launin í sínum flokki. Þessi nýi
bikarmeistari er frá Reykjum í
Hrútafirði, stundar iðnnám og
heldur senn á vertíð.
IIÁDEGISVERÐUR FYRIR
50 MILLJÓNIR
Æslsulýðs- og fórnarvika kirkj-
unnar hófst 3. marz og er þá
safnað til bágstaddra í Eþíópíu,
á því svæði, sem íslenzkt kristni
boð starfar, en það er í Konsó.
Þess var getið í áróðri fyrir
söfnun kirkjunnar í þessu sam-
bandi, að íslendingar myndu
um hádegi á sunnudaginn síð-
asta liafa á borðum matvæli
fyrir allt að 50 milljónir króna.
Þessi eða einhver annar sunnu-
dagsmatur myndi nægja til að
seðja G—7000 Konsónienn í
fimm mánuði.
SKODANAKANNANIR
Stundum bregðast skoðanakann
anir og eru brczku kosningarn-
ar glöggt dæmi um það. Þær
spáðu íhaldsflokknum og Heath
naumum sigri yfir verkamanna
flokknum. Niðurstaðan varð sú,
að verkamannaflokkurinn hlaut
301 þingsæti en íhaldsflokkur-
(Framhald á blaðsíðu 4)